Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Möguleg markaðsmisnotkun í Kauphöllinni til rannsóknar Kauphöllin rannsakar viðskiptahætti sem áttu sér stað á markaði með ríkisbréf rétt fyrir lokun í dag. 17.9.2010 18:30
Leynisamkomulag tryggir friðhelgi Fyrrverandi fjármálastjóri Glitnis hefur með leynisamkomulagi við slitastjórn bankans tryggt sér friðhelgi gegn mögulegum málsóknum. Slitastjórnin hefur jafnframt lýst því yfir að hún muni greina opinberum rannsóknaraðilum frá samkomulaginu við hann og gagnsemi þess. 17.9.2010 18:57
Landsvirkjun semur um 100 milljón dollara skuldabréf Landsvirkjun undirritaði í dag samning um útgáfu skuldabréfs að fjárhæð 100 milljónir Bandaríkjadollara eða tæpa 12 milljarða kr. Skuldabréfið er til fimm ára og ber fasta 6,5% vexti. Milligönguaðili er Deutsche Bank og eru kaupendur erlendir fjárfestar. 17.9.2010 15:41
Netspilavíti spáir í íslenskt gagnaver Eigandi netspilavítisins BoDog segist ætla að flytja netstarfsemi sína til íslenska gagnaversins Thor Data Center. Þetta kemur fram í umfjöllun á vefsíðunni onlinecasino.com. Samkvæmt upplýsingum frá gagnaverinu hafa þó engir samningar verið gerðir og er málið allt á könnunarstigi. 17.9.2010 15:18
Nefndin: Kaup Magma Energy á HS Orku eru lögleg Í skýrslu nefndar um orku- og auðlindamál kemur fram að skoðun nefndarinnar á samningum um kaup Magma Energy á HS orku sem hún fékk aðgang að leiddi ekki í ljós neina augljósa annmarka. Frá lagalegum sjónarhóli sé ekki tilefni til að gera athugasemdir við samningana sem slíka. 17.9.2010 14:20
Töluverð aukning í heildarveltu atvinnulífsins Heildarvelta í atvinnulífinu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum jókst töluvert í maí og júní samanborið við sama tímabil í fyrra. Í krónum talið var hún 15% meiri á þessu tímabili en að teknu tilliti til verðlagsbreytinga nam aukningin 7,9%. 17.9.2010 11:47
Íbúðaverð í borginni stóð í stað í ágúst Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu stóð í stað í ágúst frá fyrri mánuði samkvæmt vísitölu íbúðaverðs sem tekin er saman af Þjóðskrá Íslands og birt var síðdegis í gær. Vísitalan stendur nú í 302,8 stigum. 17.9.2010 11:00
Spáir stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig Greining Íslandsbanka reiknar með því að Peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka stýrivexti bankans um 1,00 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 22. september næstkomandi. Við þetta lækka vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana í 4,5% og vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 6,0%. 17.9.2010 10:57
Seðlabankinn og Kaupþing deila um söluna á FIH Samkvæmt frétt á vefsíðunni business.dk er komin upp deila milli Seðlabanka Íslands og skilanefndar Kaupþings um hvoru af tveimur kauptilboðum í FIH bankinn eigi að taka. Töluverður munur er á tilboðunum. 17.9.2010 10:40
SFF segir mikilvægt að óvissu hafi verið eytt Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) telja að með dómi Hæstaréttar 16. september hafi verið stigið stórt skref til að eyða þeirri óvissu sem lánþegar og lánveitendur hafa búið við í tengslum við lán með óskuldbindandi gengistryggingarákvæðum. 17.9.2010 09:14
Nýtt tæknisprotasetur opnar Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins opnar nýtt sprotasetur á morgun. 17.9.2010 09:08
Ormarr ráðinn útibústjóri hjá Íslandsbanka Ormarr Örlygsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Íslandsbanka á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Hann tekur við starfinu af Páli Björgvini Guðmundssyni sem hefur verið ráðinn bæjarstjóri Fjarðarbyggðar. 17.9.2010 08:19
Ábyrgðinni velt af ríkinu á lífeyrissjóði Kaup Framtakssjóðs Íslands og aðkoma lífeyrissjóðanna að endurreisn efnahagslífsins í kjölfar kreppunnar var harðlega gagnrýnd á morgunverðarfundi Samtaka verslunar og þjónustu í gær þar sem farið var yfir fjárfestingarstefnu sjóðsins. 17.9.2010 04:00
Viðskiptavinir SP-Fjármögnunar fá upplýsingar á næstu dögum Eftirfarandi yfirlýsing hefur borist frá SP-Fjármögnun vegna gengisdómsins sem féll í Hæstarétti í dag: 16.9.2010 21:28
Arion banki ekki með nein gengistryggð bílalán Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Arion banka vegna gengisdómsins í dag: 16.9.2010 21:08
Endurskipulagningu Íslandsbanka lýkur í október Íslandsbanki hefur í ljósi niðurstöðu Hæstaréttar einsett sér að flýta vinnu varðandi uppgjör og endurútreikning erlendra bílalána, kaupleigusamninga og einkaleigusamninga. Niðurstaða þeirrar vinnu mun liggja fyrir um miðjan október næstkomandi í þeim tilvikum þar sem ekki hefur verið um yfirtökur eða uppgreiðslur á lánasamningum að ræða samkvæmt tilkynningu frá bankanum. 16.9.2010 18:38
Landsbankinn endurútreiknar gengistryggð fasteignalán Landsbankinn hefur hafið endurútreikninga á fasteignalánum í samræmi við gengisdóminn sem féll í dag. 16.9.2010 18:28
Íslandsbanki vísar ásökunum um þvinganir á bug Íslandsbanki vísar á bug ásökunum framkvæmdastjóra Capacent í fjölmiðlum þess efnis að bankinn hafi þvingað starfsmenn félagsins til þess að taka yfir rekstur þess og skipta um kennitölu. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur bankinn átt í viðræðum við félagið síðustu misseri vegna slæmrar skuldastöðu þess. 16.9.2010 15:06
Íslandsbanki fjármagnar Björgunarmiðstöð Árborgar Sveitarfélagið Árborg og Íslandsbanki undirrituðu í dag kaupsamning vegna fasteignarinnar að Árvegi 1 á Selfossi . Húsnæðið mun hýsa Björgunarfélag Árborgar, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Brunavarnir Árnessýslu. 16.9.2010 13:33
Forstjóri Capacent segir yfirtökuna vera kennitöluflakk Forstjóri Capacent á Íslandi segir að yfirtaka starfsmanna félagsins á rekstri þess sé dæmi um kennitöluflakk. Íslandsbanki hafi þvingað starfsmenn til að taka yfir rekstur félagsins en bankinn vildi ekki fallast á tilboð um niðurfærslu lána. Ný kennitala hefur verið stofnuð í kringum rekstur félagsins en ekki stendur til að segja upp starfsfólki. 16.9.2010 12:15
Frumtak keypti 70% í Median Frumtak hefur keypt u.þ.b. 70% hlutafjár í Median - Rafræn miðlun hf. Seljandur hlutarins eru Drómi hf. og Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur annast ráðgjöf og 16.9.2010 11:40
Áhugavert ef Norðurlöndin afgreiða lán án Icesavelausnar Greining Íslandsbanka segir mjög áhugavert að sjá hvort næsta útgreiðsla Norðurlandalánanna komi samhliða þriðju endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), en þrátt fyrir að Icesave málið sé ekki í höfn eru viðræður byrjaðar að nýju og samkomulag gæti verið innan seilingar. Kannski dugar það Norðurlöndunum að málið sé í vinnslu og lausn í sjónmáli? 16.9.2010 11:04
Skuldatryggingaálag Íslands komið undir 300 punkta Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur farið stiglækkandi síðustu daga. Þó er ekki um mikla breytingu að ræða, en í lok dags í gær stóð álagið í 299 punktum (2,99%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni sem er 11 punktum lægra en það var fyrir viku síðan. 16.9.2010 10:28
Eignir og eigið fé tryggingarfélaganna lækka Heildareignir tryggingarfélaganna námu 135 milljörðum kr. í lok júlí og lækkuðu um 1,9 milljarð kr. á milli mánaða. Eigið fé lækkaði um rúmlega 1 milljarð kr. og nam 53,6 miljörðum kr. í lok júlí. 16.9.2010 08:56
Meðallaun hjá félögum FVH eru 600 þúsund á mánuði Heildarmánaðarlaun viðskiptafræðinga og hagfræðinga mælast nú 600 þúsund kr. að meðaltali sem er hækkun um tæplega 3% frá því á sama tíma í fyrra. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) hefur birt niðurstöður úr kjarakönnun félagsins fyrir árið 2010 en félagið hefur gert kjarakannanir reglulega frá árinu 1979. 16.9.2010 08:35
Segir nýtt hagstætt Icesave-tilboð í boði Viðskiptablaðið segir frá því í dag að Bretar og Hollendingar hafi boðið íslenskum stjórnvöldum að leggja fram nýtt tilboð um lausn á Icesave-deilunni milli landanna. Hið nýja tilboð sé mun hagstæðara en það sem áður hafi verið í boði. 16.9.2010 08:13
Hagnaður Arion banka tæpir 8 milljarðar á fyrri helming ársins Hagnaður Arion banka samkvæmt könnuðum árshlutareikningi fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 17,7% á ársgrundvelli. 16.9.2010 08:00
Hekla boðin til sölu Arionbanki ætlar selja bílaumboð Heklu og rennur tilboðsfrestur út 29. september. Hekla var stofnuð árið 1933 og var um árabil eitt öflugasta bílaumboð í landinu. 16.9.2010 07:11
Starfsfólk Capacent tekur yfir reksturinn Hópur starfsmanna Capacent hefur eignast fyrirtækið eftir að móðurfélagi þess mistókst að semja við viðskiptabanka sinn um niðurfellingu á erlendu láni. Aðrir starfsmenn fyrirtækisins munu á næstu dögum fá tækifæri til að eignast hlut í félaginu. 16.9.2010 05:15
Segir endurskoðendur víst hafa brugðist við - fréttaskýring Hvernig hafa endurskoðendur horfst í augu við ábyrgð sína á bankahruninu? 16.9.2010 04:45
Gagnaveitan greiði vexti af láni frá OR Gagnaveitu Reykjavíkur ber að greiða eðlilega vexti af láni Orkuveitu Reykjavíkur til fyrirtækisins samkvæmt ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar sem birt var í gær. 16.9.2010 00:01
Sigurður Helgason stjórnarformaður Icelandair Group Þau Auður Finnbogadóttir, Finnbogi Jónsson, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Sigurður Helgason og Úlfar Steindórsson, voru kjörin í stjórn Icelandair Group á hluthafafundi se fram fór í dag. Þá voru þau Herdís Dröfn Fjeldsted, Magnús Magnússon og Vilborg Lofts, sjálfkjörin í varastjórn. 15.9.2010 19:27
Arðgreiðslur úr VÍS stórjukust eftir að Exista eignaðist félagið Arðgreiðslur úr Vátryggingarfélagi Íslands jukust um nær þrjúhundruð prósent eftir að Exista, félag í meirihlutaeigu Bakkabræðra, eignaðist félagið 15.9.2010 18:50
Þriðja endurskoðun AGS verður 29. september Samkomulag hefur náðst um að þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands verði tekin fyrir í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) 29. september næstkomandi. 15.9.2010 15:27
Árétting frá FME vegna VÍS fréttar Fréttastofu hefur borist árétting frá Fjármálaeftirlitinu vegna fréttar Stöðvar 2 um tryggingafélagið VÍS í gærkvöldi. Hún hljóðar svo orðrétt: 15.9.2010 19:19
Arion hagnast um tæpa 8 milljarða Hagnaður Arion banka samkvæmt könnuðum árshlutareikningi fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta samkvæmt tilkynningu frá bankanum. 15.9.2010 18:12
Ólíklegt að samþjöppun á matvörumarkaði verði aftur eins Samkeppniseftirlitið hefur ríkari heimildir í dag en áður til að koma í veg fyrir samþjöppun á markaði sem skaðar samkeppni ef hún á sér í stað í gegnum kaup á fyrirtækjum, segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, aðspurður hvort samþjöppun á matvörumarkaði geti aftur orðið með svipuð hætti og hún hefur verið undanfarin ár. 15.9.2010 17:00
Samið við Belize um að stöðva skattaundanskot Samstarf Norðurlanda um að stöðva skattaundanskot heldur áfram. Á miðvikudag undirrituðu fulltrúar norrænu ríkjanna: Svíþjóðar, Danmerkur, Noregs, Finnlands og Íslands og fulltrúar sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands og Færeyja, samning um gagnkvæm upplýsingaskipti við Belize. 15.9.2010 15:42
Reykjaneshöfn í vanskilum með skuldabréfaflokk Reykjaneshöfn er í vanskilum með gjalddaga 1. maí sl. vegna greiðslu afborgana og vaxta af skuldabréfaflokki RNH08. 15.9.2010 14:43
Rúm 4.200 tonn veidd umfram kvóta á fiskveiðiárinu Á síðasta fiskveiðiári, sem lauk um mánaðarmótin, voru 4.212 tonn veidd umfram úthlutaðan kvóta. Þetta kemur fram á vefsíðu Fiskistofu. Þessum afla var landað en verðmæti hans fer að mestu í Verkefnasjóð sjávarútvegsins. Reikna má með að aflaverðmæti þessa utankvótafisks nemi yfir milljarði kr. 15.9.2010 14:24
Seldu minkaskinn fyrir hátt í 300 milljónir í Kaupmannahöfn Íslenskir loðdýraræktendur hafa selt skinn fyrir hátt í 300 milljónir kr. á uppboðinu sem nú stendur yfir hjá Kopenhagen Fur í Kaupmannahöfn. Þar með liggur ljóst fyrir að söluverðmæti íslenskra minkaskinna á þessum markaði verður yfir milljarði kr. á árinu. 15.9.2010 13:02
Glitnir greiðir kröfuhöfum 250 milljarða á næsta ári Skilanefnd Glitnis mun greiða kröfuhöfum bankans um 250 milljarða kr. á næsta ári.. Þetta kemur fram í samtali Bloomberg fréttaveitunnar við Árna Tómasson formann skilanefndarinnar. 15.9.2010 12:41
Mikill verðmunur á fiski eftir verslunum Munur á hæsta og lægsta verði á fiski var í flestum tilfellum um eða yfir 50% þegar Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ferskum fiski í fiskbúðum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri á mánudag. 15.9.2010 12:16
Holskefla af nauðungarsölum að ríða yfir almenning Holskefla af nauðungarsölum er að ríða yfir núna, segir Marinó G. Njálsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna. Frestur nauðungarsalna sé útrunninn hjá þeim sem óskuðu eftir honum um leið og lögin tóku gildi. 15.9.2010 12:03
Landsbankinn hefur gert fjölmarga „kyrrstöðusamninga“ Landsbankinn býður bæði einstaklingum og fyrirtækjum fjölmörg úrræði til lausnar á skuldavanda, en ekki sé til sérstakt form samninga sem bera heitið „kyrrstöðusamningar.“ Í þeim skilningi hafi því enginn slíkur samningur verið gerður. Sé hugtakið hins vegar túlkað á þann veg að kyrrstöðusamningur feli í sér að innheimtuaðgerðum sé frestað á meðan viðskiptavinur inni af hendi tilteknar greiðslur samkvæmt samningi hafi fjölmargir slíkir samningar verið gerðir, jafnt við einstaklinga og fyrirtæki. 15.9.2010 11:22