Fleiri fréttir

Orkuvaktin: Raforkukaup fyrir milljarð skoðuð

Á því fimm mánaða tímabili sem Orkuvaktin hefur að boðið fyrirtækjum að skoða hagræðingarmöguleika í innkaupum á raforku að kostnaðarlausu hafa kaup fyrir ríflega milljarð á ári verið skoðuð þ.e. heildarkostnaður án vsk.

Delta flýgur fimm sinnum í viku til New York

Bandaríska flugfélagði Delta Airlines ætlar að hefja áætlunarflug á milli Keflavíkur og New York í byrjun júní og fljúga fimm ferðir í viku. Í tilkynningu frá Delta segir að farÞegum frá Íslandi gefist kostur á hagstæðu tengiflugi til 35 áfangastaða í Bandaríkjunum, Kanada, Rómönsku Ameríku og í Karabíska hafinu, með Delta og samstarfsflugfélögum þess vestra.

Kaup á skuldabréfi aldrei færð til bókar

Samnings um kaup gjaldeyrissjóðs Glitnis, GLB FX, á skuldabréfi af Saga Capital í ágúst 2008 er í engu getið í bókum eða fundargerðum sjóðsins frá þeim tíma. Reglum samkvæmt átti að færa alla gerninga sjóðsins í bækur hans í enda hvers dags, enda höfðu þeir alla jafna áhrif á afkomu sjóðsins, sem er uppreiknuð daglega. Í þessu tilviki var það ekki gert.

Stjórn Icelandair vill auka virði hlutafjár um 2,5 milljarða

Stjórn Icelandair Group hf. ákvað í dag að fara í opið hlutafjárútboð til þess að hækka hlutafé félagsins um 500 - 1.059 milljónir hluti. Gangi þetta eftir gæti verðmæti hlutafjár í félaginu aukist um allt að 2,5 milljarða kr.

Um 9,5 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 9,5 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði lítillega í 1,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 5 ma. viðskiptum.

Einhugur um vaxtalækkun

Allir nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands voru sammála um að lækka skyldi stýrivexti um 0,75 prósentustig þegar að ákvörðun um það var tekin síðast. Nefndarmenn ræddu lækkun vaxta um 0,75-1% og lagði seðlabankastjóri fram tillögum um 0,75 prósentustiga lækkun.

Telur Spkef geta myndað kjölfestu í sparisjóðakerfinu

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur að Spkef sparisjóður geti orðið nægilega stór eining til að mynda kjölfestu í sparisjóðakerfinu. Slík kjölfesta sé nauðsyn til að viðhalda kerfinu.

Allt klárt fyrir gulldepluna hjá HB Granda á Akranesi

Þess er nú beðið að gulldepluveiðar glæðist en tvö skip HB Granda hafa undanfarna daga leitað að þessum smáa fiski frá Skerjadjúpi í vestri og austur fyrir Vestmannaeyjar. Á Akranesi eru starfsmenn fiskmjölsverksmiðju félagsins tilbúnir til þess að taka á móti afla og vinna hann en ekkert hefur verið unnið í verksmiðjunni frá því í júlí í sumar.

IFS: Ársverðbólgan lækkar úr 3,3% í 3,0%

Verðbólguspá IFS greiningar fyrir nóvember hljóðar upp á hækkun vísitölu neysluverðs um 0,4%. Ef spáin gengur eftir, mun 12 mánaða verðbólga mælast 3,0%. Verðbólga undanfarinna þriggja mánaða á ársgrundvelli hækkar úr 4,0% í 4,6%. Hagstofan mælir vísitölu neysluverðs í þessari viku, mánudag til föstudags, en niðurstöðurnar verða birtar fimmtudaginn 25. nóvember nk.

Íslenskan kuldaklæðnað er að finna víða um heim

Íslenskur útivistarfatnaður er ekki bara áberandi hér heima heldur hafa hin ýmsu merki haslað sér völl víða um heim. Allir eiga það sameiginlegt sem framleiða íslenskan útivistar­fatnað að horfa til tækifæra sem gefast í sölu utan landsteinanna. Fimm íslensk fyrirtæki framleiða útivistarfatnað undir eigin merkjum, en eru afskaplega misstór.

Spáir því að verðbólgan hjaðni í 3,1%

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka í nóvember um 0,5% frá októbermánuði. Gangi spáin eftir mun verðbólga hjaðna úr 3,3% í 3,1% og hefur þá ekki verið lægri frá því í júní 2005.

Telur að botninn sé í sjónmáli á íbúðamarkaðinum

Líklegt er nú að hægfara viðsnúningur sé framundan á íbúðamarkaði og botninn í sjónmáli. Það sem styður þá þróun er meðal annars viðsnúningur í kaupmætti, hjöðnun verðbólgu, styrking á gengi krónunnar, lægri vextir og hin almenni viðsnúningur í hagkerfinu sem framundan er.

Jákvæð viðbrögð við tilboði Marel um skuldabréfakaup

Eigendur samtals 65,65% af útistandandi skuldabréfum í flokki MARL 06 1 hafa tekið skilyrtu tilboði Marel um endurkaup á bréfunum, sem tilkynnt var um þann 1. nóvember síðastliðinn, samtals 1.510 milljónir kr. að nafnverði.

Keyptu fyrirtækjalánin með 1.600 milljarða afföllum

„Nýju bankarnir keyptu fyrirtækjalánin á að meðaltali um 40% af kröfuvirði við yfirfærslu frá gömlu bönkunum. Hlutfallið getur verið mismunandi milli bankanna þriggja. Afföllin voru því um 1.600 milljarðar kr. miðað við upphaflegan efnahagsreikning bankanna þriggja."

Ross Beaty vill selja allt að 25% hlut í HS Orku

Ross Beaty forstjóri Magma Energy segir að til greina komi að selja allt að 25% hlut í HS Orku til traustra íslenskra fjárfesta. Hluturinn yrði seldu á pari, það er sama verði og Magma keypti hann á.

Hollur matur í Happi

Þrátt fyrir erfiða tíma í atvinnu- og efnahagslífi eru enn vaxtarmöguleikar fyrir nýjar og góðar hugmyndir. Dæmi um þetta er Happ ehf. sem hefur vaxið fiskur um hrygg frá stofnun þess fyrir um tveimur árum.

Culiacan flytur í stærra húsnæði

„Fólk veltir því meira fyrir sér hvað það borðar. Það kýs nú frekar hollari mat,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri veitingastaðarins Culiacan.

Spónn fyrir íslenskan landbúnað

Endurvinnslan Fengur ehf. áætlar að framleiða 3-4 þúsund tonn af spóni á ári fyrir íslenskan landbúnað. Við endurvinnsluna er hrein orka, jarðgufa, notuð við framleiðsluna. Þá er verið að búa til vöru úr endurvinnanlegu hráefni, með því að nýta timbur sem áður var að mestu urðað í jörðu eða notað til brennslu í stóriðjum, að því er segir í tilkynningu.

Speisuð hugmynd ratar á Alþingi

Hugmyndin um risagróðurhúsið hefur í raun gengið það langt að nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins, Hreyfingarinnar og Samfylkingar lögðu fram þingsályktunar­tillögu á Alþingi á síðasta þingi sem fjallaði um græna hagkerfið. Á meðal tillagna var bygging risa­gróðurhúss.

5,2 milljarða hagnaður hjá Icelandair

Icelandair skilaði 5,2 milljarða króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta er töluvert betri afkoma en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 4 milljörðum króna.

Petrobras ætlar á toppinn

Brasilíska olíufyrirtækið Petrobras hyggur hátt, en það áætlar að verða stærsti olíuframleiðandi heims árið 2015.

HS Orka hagnast um 1,2 milljarða

Hagnaður HS Orku á fyrstu níu mánuðum þessa árs nemur ríflega 1,2 milljörðum króna eftir skatta. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn ríflega 2,2 milljörðum krónum.

Arev eignast rekstur Next á Íslandi

Einkafjármagnssjóðurinn Arev NI slhf. sem er í meirihlutaeigu Jóns Scheving Thorsteinsson, eignaðist að fullu tískuvöruverslunina Next hér á landi í október. Next rekur eina verslun í Kringlunni á 1.500 fermetrum að ótöldum lager og skrifstofu.

Óbreyttir vextir Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum og í samræmi við breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir. Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,5 prósent og 5 prósent á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis.

Keypti verðlaust bréf af Saga á yfir milljarð

Gjaldeyrissjóður Glitnis keypti verðlausa skuld af Saga Capital á yfir milljarð eftir hrun. Talið var að kaupsamningurinn hefði verið falsaður til að láta líta út fyrir að hann hefði verið gerður fyrir hrun en það reyndist ekki rétt. Forstjóri Saga segist ekki í rannsókn.

Stefna á útrás bókhaldsforrits

Fyrirtækið Regla hefur síðastliðin tvö ár prufukeyrt samnefnt bókhaldskerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á netinu. Stefnt er að því að markaðssetja það erlendis á næstu mánuðum. Þetta er íslensk nýsmíði frá grunni, sem fór í gang af fullum krafti eftir bankahrunið 2008.

Gerir ráð fyrir að eiga 1.100 íbúðir í árslok

Íbúðalánasjóður yfirtók 537 íbúðir fyrstu átta mánuði ársins og átti samtals 822 íbúðir hinn 1. september síðastliðinn. Áætlanir sjóðsins gera ráð fyrir að hann muni eiga um 1.100 íbúðir í lok þessa árs.

Arðgreiðslur skila sér ekki inn í landið

Dótturfélög íslenskra fyrirtækja og félög í eigu innlendra aðila í útlöndum sendu ekki arð af rekstri þeirra heim til móðurfélaga hér á fyrri hluta árs. Arðgreiðslur voru sömuleiðis ekki fluttar heim á fyrstu sex mánuðum síðasta árs.

Gamma hækkaði lítillega

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 4,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 2,1 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 2,6 ma. viðskiptum.

Nefnd skipuð til að kanna forsendur verðtryggingar

Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur skipað nefnd sem mun kanna forsendur verðtryggingar á Íslandi. Nefndin er skipuð í kjölfar þingsályktunar frá 16. júní sl. og mun meðal annars meta kosti og galla þess að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi, án þess að fjármálastöðugleika sé ógnað.

Sérstakur rannsakar lán til Baugs, FS-38 og Landic auk Stím

Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á lánveitingum Glitnis og viðskiptum með hlutabréf fóru fram húsleitir á ýmsum stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Nánar tiltekið eru til rannsóknar eftirgreind mál:

Eurostat mælir 4,6% verðbólgu hér á landi

Verðbólgan hér á landi var 4,6% í október samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) tekur saman og birti nú í morgun. Minnkar því verðbólgan um 0,5 prósentustig milli mánaða en hún var 5,1% hér á landi í september samkvæmt vísitölunni.

Lítil batamerki í verslun fyrir utan raftækjaverslun

Þrátt fyrir að vísbendingar um t.d. kortaveltu landsmanna bendi nú til þess að einkaneysla sé að hrökkva í gang á nýjan leik segja hagtölur um verslun aðra sögu. Enn sem komið er sjást ekki batamerki í veltu í verslunum að raftækjaverslun undanskilinni, en velta í raftækjaverslunum hefur nú aukist mikið undanfarna 5 mánuði.

Fengur hefur endurvinnslu á timbri hérlendis

Endurvinnslan Fengur ehf. framleiðir spón fyrir íslenskan landbúnað og vill með því leggja sitt af mörkum við að efla innlenda framleiðslu og nýsköpun til að flýta fyrir bata efnahagslífsins, að því er segir í tilkynningu. Áætlað er að framleiða um 3000-4000 tonn á ári fyrir innlendan markað.

ASÍ: Vörukarfan lækkar í Hagkaupum og Nóatúni

Verðið á vörukörfu ASÍ hefur lækkað umtalsvert í Hagkaupum og Nóatúni frá því í sumar en á sama tíma staðið óbreytt í lágvöruverslunarkeðjunum Bónus og Krónunni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjustu verðmælingu verðlagseftirlits ASÍ á almennri vörukörfu í helstu matvöruverslunarkeðjunum.

SFÚ: Frosinn kvótamarkaður og geysihá verð

Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) lýsa yfir áhyggjum af stöðunni á leigumarkaði aflaheimilda. Leigumarkaðurinn er frosinn og verðin gríðarlega há. SFÚ hvetur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að leita úrræða sem allra fyrst til að leysa vandann og hvetur ráðherra til beita þeim úrræðum sem fyrir hendi eru í núverandi lögum um stjórn fiskveiða.

Sjá næstu 50 fréttir