Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spákaupmenn vaknaðir til lífsins á skuldabréfamarkaði Spákaupmenn eru vaknaðir til lífsins á skuldabréfamarkaðinum hér á landi eftir harða útreið í september. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa þar sem fjallað er um stöðuna á skuldabréfamarkaðinum. 16.11.2010 07:59
Afkoma Icelandair batnar töluvert milli ára Icelandair skilaði 5,2 milljarða kr. hagnaði á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta er töluvert betri afkoma en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 4 milljörðum kr. 16.11.2010 07:52
Engin skýring að svo stöddu "Dráttur á sölu Sjóvár á sér eðlilegar skýringar sem Seðlabankinn getur ekki tjáð sig um opinberlega að svo stöddu," segir í yfirlýsingu Seðlabanka Íslands. 16.11.2010 07:43
Slæmt fyrir íslenskt efnahagslíf Afskráning Össurar úr íslensku Kauphöllinni eru slæm tíðindifyrir íslenskan hlutabréfamarkað og efnahagslíf, segir Þórður Friðjónsson forstjóri Kuphallarinnar í viðtali við Fréttablaðið. 16.11.2010 07:09
FME verði hluti af lausninni en ekki vandanum Viðskipti Fjármálaeftirlitið (FME) hefur alls kært 43 mál til sérstaks saksóknara frá stofnun síðarnefnda embættisins. Þar af hafa sextán mál verið kærð undanfarið ár. Þetta er meðal þess sem fram kom á ársfundi FME í gær. 16.11.2010 06:00
Stærsta félagið segir skilið við Kauphöllina Stoðtækja- og gervilimaframleiðandinn Össur hefur farið fram á afskráningu úr Kauphöllinni. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, býst við að afskráningin gangi í gegn á næstu vikum. Við hana missir Kauphöllin sitt langstærsta félag. Össur hyggst leggja áherslu á skráningu í Nasdaq OMX kauphöllina í Kaupmannahöfn. Félagið er nú skráð í báðar kauphallirnar. 16.11.2010 06:00
Nýr Icesave samningur Samninganefndir Íslands, og Breta og Hollendinga, hafa komið sér saman um grundvallaratriðin í nýju samkomulagi vegna Icesave reikninga Landsbankans. Drögin hafa verið kynnt hagsmunaaðilum. Samkvæmt þeim munu 40 til 60 milljarðar falla á íslenska ríkið. 15.11.2010 18:31
World Class á spottprís Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir greiddu aðeins 25 milljónir króna fyrir rekstur World Class þegar þau keyptu hann af þrotabúi Þreks, sem var í eigu þeirra sjálfra. Eignin er metin á 500-700 milljónir króna. 15.11.2010 18:52
Nærri 6 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,3% í dag í 5,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,4% í 2,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,2% í 2,9 ma. viðskiptum. 15.11.2010 16:15
Össur hf. sækir um afskráningu úr Kauphöllinni Össur hf. hefur óskað eftir afskráningu úr Kauphöll á Íslandi. Áhersla verður lögð á skráninguna í Kaupmannahöfn. 15.11.2010 15:37
Yfirveðsett íbúðalán í bönkum nema 85 milljörðum Um mitt ár 2010 voru útlán með veði í íbúðarhúsnæði hjá viðskiptabönkunum 261 milljarðar kr. og 42 milljarðar kr. hjá sparisjóðunum, eða samtals 303 milljarðar kr. Um 28% þessara lána eru með veðhlutfall sem er yfir 100% eða samtals ríflega 85 milljarðar kr. 15.11.2010 14:42
Aktu Taktu óheimilt að nota orðið Twister Hérðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að Aktu Taktu sé óheimilt að nota orðið Twister á matseðlum sínum. Kentucky Fried Chicken (KFC) í Bandaríkjunum eigi réttinn á þessu vörumerki. 15.11.2010 14:09
Vill rifta meintum gjafagjörningi upp á hálfan milljarð Sigurbjörn Þorbergsson, skiptastjóri Þreks sem áður rak World Class, mun á næstu dögum höfða mál til að rifta meintum gjafagjörningi. Fyrri eigendur greiddu 25 milljónir fyrir eignir sem skiptastjórinn metur á 500- 700 milljónir. 15.11.2010 12:57
Smálán: Bannað að lána tekjulágum Starfsemi smálánafyrirtækja verður starfsleyfisskyld. Starfandi fyrirtæki fá þriggja mánaða frest til þess að afla sér starfsleyfis, samkvæmt nýju lagafrumvarpi sem efnahags- og viðskiptaráðherra hefur boðað um starfsemi slíkra fyrirtækja. 15.11.2010 11:42
Árleg raunávöxtum lífeyrissjóða 3,1% frá árinu 1997 Íslenskir lífeyrissjóðir eru með um 3,1% árlega raunávöxtun frá árinu 1997 á meðan markaðsraunvextir hafa verið um 4,5%. Þetta kemur fram í áliti frá hinu óháða og sérhæfða fjármálafyrirtæki GAMMA þar sem fjallað er um ávöxtunnarmarkmið lífeyrissjóðanna. 15.11.2010 11:06
ReMake í úrslit í alþjóðlegri keppni sprotafyrirtækja Íslenska sprotafyrirtækið ReMake Electric er komið í úrslit í alþjóðlegri keppni sprotafyrirtækja um grænar hátæknilausnir, Cleantech Open Global Ideas Competition. 15.11.2010 09:43
Heildaraflinn jókst um 4% milli ára í október Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum októbermánuði, metinn á föstu verði, var 4,1% meiri en í október 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,6% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. 15.11.2010 09:05
Rekstrarkostnaður íslenskra lífeyrissjóða lægstur innan OECD Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða á Íslandi og í Danmörku er lægri en í nokkrum öðrum aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. 15.11.2010 09:02
Yfirtöku á Exista lokið, 306 milljarða skuld breytt í hlutafé Kröfuhafar Exista hafa yfirtekið félagið að fullu og er endurskipulagningu þess þar með lokið. Skuldum upp á 2 milljarða evra eða um 306 milljarða kr. var breytt í hlutafé í eigu kröfuhafanna. Þetta kemur fram í Financial Times í dag. 15.11.2010 08:51
Útlán ÍLS hafa lækkað um rúma 3 milljarða milli ára Samtals námu útlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 tæpum 23 milljörðum króna samanborið við rúmlega 26 milljarða á sama tímabili ársins 2009. 15.11.2010 07:41
Bankarnir hömluðu nýsköpun í landinu Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra setur Alþjóðlega athafnaviku klukkan 17 í dag. Er þetta í annað sinn sem vikan er haldin hér á landi og segir Katrín ljóst að framtakið í fyrra hafi skapað nauðsynlegt og skemmtilegt umtal um þau tækifæri sem í boði eru. 15.11.2010 06:00
Hókípókí-vinnubrögð við útboð á borun á Vaðlaheiði Ræktunarsamband Flóa og Skeiða (RSFS) borar nú rannsóknarholur á Vaðlaheiði þrátt fyrir að hafa ekki mátt bjóða í verkið vegna þess að það er í greiðslustöðvun. Sambandið fór bakleið að verkinu, sem undirverktaki nátengds fyrirtækis. Vegamálastjóri segir þetta skrítið en þó löglegt. 15.11.2010 06:00
Staða ríkissjóðs betri en spáð var Staða ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins var nítján milljörðum króna betri en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er fram kemur í nýjum tölum fjármálaráðuneytisins. 15.11.2010 03:30
Vill eftirlit frá Vinnumálastofnun til verkalýðsfélaga „Það fór allt í rugl þegar vinnumálastofnun fór að sjá um þetta,“ sagði Tryggvi Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um eftirlit með bótagreiðslum en honum finnst Vinnumálastofnun ekki vandanum vaxið til þess að hafa eftirlit með þeim fjölda bótaþega. 14.11.2010 19:26
Gjaldeyrissakamál hugsanlega í uppnámi vegna lagaklúðurs Gjaldeyrisreglur Seðlabankans voru ekki birtar með réttum hætti fyrr en í október síðast liðnum og voru því óskuldbindandi, að mati hæstaréttarlögmanns. Ef það verður niðurstaða dómstóla gæti það haft áhrif á fjölda mála þar sem menn eru grunaðir um að brjóta gegn höftunum. 14.11.2010 18:35
Jónína: „Hótaði ekki - talaði bara götumál sem útrásarvíkingar skilja“ Jónína Benediktsdóttir beitti verulegum þrýstingi á forstjóra Kaupþings vegna fjármuna sem hún taldi sig eiga inni hjá bankanum. Hún þvertekur þó fyrir að hafa beitt fjárkúgun. Allt að sex ára fangelsi liggur við slíku broti. 14.11.2010 18:46
AGS: Efnahagsbati hægari vegna seinkunar á fjárfestingum Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, undir handleiðslu Julie Kozack, heimsótti Reykjavík í byrjun nóvember vegna fjórðu endurskoðun sjóðsins upp á 2,1 milljarð dollara. Þeir telja að efnahagsbatinn muni ganga hægar vegna seinkunnar á fjárfestingaverkefnum. 14.11.2010 15:25
„Evrópusambandið er ekki korter í þrjú lausn“ „Maður hristir þetta ekki bara úr erminni,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni þegar hann var spurður út í ummæli Ögmundar Jónasson dómsmálaráðherra, sem sagði í fréttum í gær að hann vildi að umsóknarferlið inn í ESB yrði klárað á tveimur mánuðum. 14.11.2010 10:59
Segir rekstrarkostnað lífeyrissjóða glórulausan „Þetta er glórulaust í þeim skilningi að sjóðirnir gera nákvæmlega það sama,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, en hann tók saman rekstrarkostnað sex stærstu lífeyrissjóðanna fyrir árið 2009. 13.11.2010 15:46
Jóhannes Jónsson hefur greitt fyrir helminghlut í SMS Jóhannes Jónsson stofnandi Bónuss hefur í dag ásamt erlendum fjárfestum greitt til Arion banka hf. kaupverð á helmingshlut í færeyska verslunarfélaginu SMS. Áður hefur komið fram að verðmæti þessa hlutar sé um 450 milljónir kr. 12.11.2010 14:53
Spá: Ársverðbólgan eitt prósent á næsta ári Greining Arion banka spáir því að ársverðbólgan minnki niður í eitt prósentustig á næstu þremur mánuðum. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. 12.11.2010 14:25
Ríkisendurskoðun fylgist náið með sparnaði næstu ár Ríkisendurskoðun mun leggja áherslu á vandamál stjórnvalda og stofnana vegna erfiðrar stöðu ríkissjóðs í stjórnsýsluúttektum sínum á næstu tveimur árum. Sérstök áhersla verður lögð á að ríkisstofnanir standi við sparnaðaráform stjórnvalda. 12.11.2010 13:56
Segja mál sjömenninganna eiga heima á Íslandi Ný gögn sem slitastjórn Glitnis hefur lagt fram í New York í skaðabótamálinu gegn sjömenningunum sanna ekkert og sýna að málið á ekki heima þar heldur fyrir íslenskum dómstólum, að mati lögmanna stefndu. Þá telja þeir áhuga íslensku þjóðarinnar á málinu styðja þá kröfu. 12.11.2010 12:18
Tap lánastofnana á gengislánum nemur 108 milljörðum Samkvæmt nýju frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um gengistryggð lán er tap lánastofnana á ólögmæti þessara lána alls 108 milljarðar króna. Frumvarpið felur í sér að öll gengistryggð bíla- og fasteignalán verði talin í sama flokki. 12.11.2010 12:10
Desemberuppbót skal greiða fyrir 15. desember Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins (SA) greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. 12.11.2010 09:51
Engar eða litlar fjárfestingar hjá 60% fyrirtækja innan SA Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 30% telja það óvíst en einungis 12% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna. 12.11.2010 09:38
Skuldabréf N1 á athugunarlista í Kauphöllinni Kauphöllin hefur sett skuldabréfaflokk útgefnum af N1 á athugunarlista hjá sér. Ástæðan er tilkynning frá félaginu um að endurfjármögnun og endurfjármögnun BNT, móðurfélags N1, muni ekki ljúka fyrr en á næsta ári. 12.11.2010 09:31
Yfir þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en eitt ár Enn fjölgar í þeim hópi einstaklinga sem hafa verið án atvinnu í meira en ár. Þeir voru nú í lok október 4.614 talsins en höfðu verið 4.534 í lok september. Þetta jafngildir 35% atvinnulausra í október sem er með hæsta hlutfalli sem mælst hefur. 12.11.2010 09:07
Iceland Glacial útvegar 900 milljónir í nýtt rekstrarfé Iceland Glacial, fyrirtæki Jóns Ólafssonar, hefur útvegað 8 milljónir dollara eða rétt tæpar 900 miljónir kr. í nýtt rekstrarfé. Þetta kemur fram á vefsíðunni BevNET.com en þar er haft eftir Jóni að þetta fé hafi komið frá „vinum og vandamönnum“. 12.11.2010 08:23
Vilja hefja byggingu útgerðarmiðstöðvar á Akranesi Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður leita nú að áhugasömum aðilum til að reisa útgerðarmiðstöð á Akranesi. Unnið hefur verið að undirbúningi málsins um nokkurt skeið. Um er að ræða aðstöðu fyrir útgerð smábáta og aðra hafnsækna starfsemi við Akraneshöfn. 12.11.2010 07:58
Töluverður samdráttur kortaveltu í október Heildarvelta debetkorta í október 2010 var 29,4 milljarða kr. og er þetta 4,4% samdráttur miðað við október 2009 en 4,9% samdráttur miðað við september 2010. 12.11.2010 07:44
Aðild að ESB og upptaka evru leysir myntvandann „Það er alveg klárt að aðild að Evrópusambandinu og evrusvæðinu myndi leysa myntvandann sem birtist í fjármálakreppunni hér, bæði frá sjónarhóli verðstöðugleika og frá sjónarhóli fjármálastöðugleika,“ sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á hádegisfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) um peningamál í gær. Um leið áréttaði hann að landið gæti sam 12.11.2010 06:15
Stærsta átak í heimi á sviði nýsköpunar Alþjóðlega athafnavikan á Íslandi hefst á mánudaginn næstkomandi. Að vikunni koma um 100 lönd og er þetta í annað sinn sem vikan er haldin á Íslandi og í þriðja sinn á heimsvísu. 12.11.2010 05:00
Þarf ekki að taka við stórri lóð Reykjavíkurborg er ekki skyldug til að taka við stórri lóð undir atvinnuhúsnæði í Hádegismóum, samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Dómurinn, sem er fordæmisgefandi, kann að hafa áhrif á réttindi lóðarhafa sem vilja skila lóðum sínum vegna brostinna forsendna. 11.11.2010 21:21
Bankar og lífeyrissjóðir enn á móti flatri niðurfellingu skulda Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion, sagði þetta að loknum samráðsfundi í dag. „Það er bara verið að velta upp mörgum leiðum, nú þarf að horfa á hvaða leið eru færar.“ Spurður hvort bankinn útiloki almenna aðgerðir sagði Höskuldur: „Já, okkur finnst það liggja í augum uppi að það sé ekki sú leið sem á að fara” 11.11.2010 18:45