Þórarinn Ingi og Hildur efnilegust Efnilegustu leikmenn ársins í Pepsi-deild karla og kvenna eru að þessu sinni Þórarinn Ingi Valdimarson, ÍBV, og Hildur Antonsdóttir, leikmaður Vals. Íslenski boltinn 20. október 2011 17:29
Hannes Þór og Gunnhildur Yrsa valin best Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, voru í dag valin bestu leikmenn Pepsi-deildanna í árlegu kjöri leikmanna deildarinnar. Íslenski boltinn 20. október 2011 17:27
Valsstúlkur úr leik í Meistaradeildinni - myndir Knattspyrnuvertíðinni á Íslandi lauk formlega í gær þegar síðasta íslenska liðið féll úr leik í Evrópukeppni. Valur lá þá fyrir Glasgow City, 0-3, í Meistaradeild Evrópu. Íslenski boltinn 7. október 2011 06:00
KR-ingar búnir að finna þjálfara á kvennaliðið sitt KR-ingar hafa fundið eftirmann Björgvins Karls Gunnarssonar sem hætti með kvennalið félagsins á dögunum. Jón Þór Brandsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR og skrifaði hann undir þriggja ára samning í gær. Þetta kemur fram á heimasíðu KR. Íslenski boltinn 2. október 2011 06:00
Tíu marka maður fjögur ár í röð Atli Viðar Björnsson hefur raðað inn mörkum í FH-liðinu undanfarin ár og hefur nú náð einstökum árangri í efstu deild á Íslandi. Atli Viðar er fyrstur til að ná fernunni – að skora tíu mörk eða fleiri fjögur sumur í röð. Íslenski boltinn 30. september 2011 08:00
Hlynur: Hélt að þær væru sterkari Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Þórs/KA, bjóst við meiru af Potsdam í Meistaradeildinni í dag. Potsdam vann leikinn 6-0 en þjálfarinn er stoltur af leikmönnum sínum. Íslenski boltinn 28. september 2011 18:32
Helena: Gaman að mæta góðum leikmönnum "Þetta var ógeðslega gaman," sagði Helena Jónsdóttir, markmaður Þórs/KA eftir leikinn gegn Potsdam í Meistaradeildinni í dag. Potsdam vann leikinn 0-6 á Akureyri. Íslenski boltinn 28. september 2011 18:22
Ísland bara með eitt lið í Meistaradeild kvenna á næsta ári Ísland verður bara með eitt lið í Meistaradeild kvenna á næsta ári en Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið út þátttökulista fyrir næstu keppni í Meistaradeild kvenna. Nýkrýndir Íslandsmeistarar Stjörnunnar verða því einu fulltrúar Íslands í keppninni 2012-2013 en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 27. september 2011 14:15
Hlynur tekinn við kvennaliði Breiðabliks Breiðablik gekk í gær frá ráðningu Hlyns Eiríkssonar sem þjálfara meistaraflokks kvenna. Hlynur þjálfaði lið Þór/KA í Pepsi-deild kvenna á síðasta tímabili. Íslenski boltinn 24. september 2011 14:15
Þorlákur Árnason: Fyrst og fremst viðurkenning fyrir liðið sjálft "Þessi viðurkenning er fyrst og fremst fyrir liðið sjálft,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar, en hann var í dag valinn besti þjálfari umferða 10-18 í Pepsi-deild kvenna. Íslenski boltinn 12. september 2011 17:00
Birna Berg: Að velja íþrótt er eins og að velja á milli barna sinna „Þetta er bara frábær viðurkenning og ég er mjög ánægð,“ sagði Birna Berg Haraldsdóttir, markvörður ÍBV, en hún var valinn besti markvörður umferð 10-18 í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Íslenski boltinn 12. september 2011 16:30
Gunnhildur Yrsa: Liðsheildin er sterk hjá Stjörnunni "Mér líður bara mjög vel eftir þessa viðurkenningu,“ sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, en hún var valinn besti leikmaður umferða 10-18 í Pepsi-deild kvenna í dag. Íslenski boltinn 12. september 2011 14:30
Gunnhildur Yrsa og Þorlákur best Val á liði umferða 10-18 í Pepsi deild kvenna fór fram í hádeginu í dag, en verðlaunin voru afhent í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar. Íslenski boltinn 12. september 2011 13:19
Stjörnustelpur tóku við Íslandsbikarnum - myndir Stjarnan tók í dag við Íslandsbikarnum í Pepsi-deild kvenna eftir 5-0 sigur á Breiðabliki í lokaleiknum sínum. Stjörnstúlkur voru búnir að tryggja sér titilinn fyrir ellefu dögum en fengu ekki bikarinn afhentan fyrr en eftir síðasta heimaleik sinn sem var í dag. Íslenski boltinn 10. september 2011 22:00
Stjörnustúlkur jöfnuðu stigamet Vals í dag Stjarnan jafnaði stigamet Vals í úrvalsdeild kvenna í dag með því að vinna 5-0 sigur á Breiðabliki í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna. Stjarnan náði í 51 af 54 mögulegum stigum og jafnaði met Vals frá árinu 2008. Íslenski boltinn 10. september 2011 19:30
Ashley Bares: Mikið afrek að vinna deildina með þessu liði Ashley Bares skoraði eitt marka Stjörnunnar í 5-0 sigri á Breiðabliki í dag og varð markadrottning deildarinnar með 21 mark í 18 leikjum. Hún var í viðtali á Sporttv í leikslok. Íslenski boltinn 10. september 2011 17:30
Þorlákur Árnason: Stjarnan er með langbesta liðið Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar, sá sínar stelpur enda Íslandsmótið með stæl og vinna 5-0 sigur á Breiðabliki í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Stjörnustelpur fengu Íslandsbikarinn afhentan í leikslok. Íslenski boltinn 10. september 2011 16:30
Eyjastúlkur unnu upp þriggja marka forskot Vals - Grindavík fallið Eyjastúlkur náðu ótrúlegu 4-4 jafntefli á móti Val í lokaumferð Pepsi-deild kvenna í dag en Valskonur náðu tvisvar þriggja marka forskoti í leiknum. Grindavíkurstúlkur náðu ekki að framkalla kraftaverk og eru fallnar úr Pepsi-deildinni en KR-stúlkur björguðu sæti sínu á markatölu. Íslenski boltinn 10. september 2011 15:39
Fimmtándi sigur Stjörnunnar í röð - Harpa með tvö gegn gömlu félögunum Íslandsmeistarar Stjörnunnar héldu sigurgöngu sinni áfram í Pepsi-deild kvenna í dag með því að vinna 5-0 sigur á nágrönnum sínum í Breiðabliki í lokaumferðinni. Stjörnustúlkur fengu síðan Íslandsbikarinn afhendan í leikslok en þetta var fimmtándi deildarsigur liðsins í röð. Íslenski boltinn 10. september 2011 14:48
Stjörnustelpurnar fá Íslandsbikarinn afhentan í dag Það verður mikil hátíð í Garðabænum í dag þar sem Stjörnustúlkur fá Íslandsbikarinn afhentan eftir lokaleik sinn í Pepsi-deild kvenna sem er á móti Breiðabliki. Leikur Stjörnunnar og Breiðabliks hefst klukkan 13.00 en öll lokaumferðin fer á sama tíma. Íslenski boltinn 10. september 2011 12:00
Úrslit dagsins í Pepsi-deild kvenna Íslandsmeistarar Stjörnunnar gefa ekkert eftir þó svo bikarinn sé í höfn. Í dag rúllaði Stjarnan yfir Grindavík, 1-7, á meðan Valur pakkaði KR saman. Íslenski boltinn 3. september 2011 16:53
Stjarnan sjöunda félagið sem verður Íslandsmeistari hjá konunum - myndir Stjörnukonur fögnuðu fyrsta Íslandsmeistaratitli félagsins eftir 3-0 sigur á Aftureldingu í gær. Stjarnan er sjöunda félagið sem nær að verða Íslandsmeistari kvenna í fótbolta en það eru liðin 18 ár síðan að nýtt nafn var skrifað á bikarinn. Íslenski boltinn 31. ágúst 2011 08:30
Ásgerður: Kláruðum þetta í seinni hálfleik eins og oft áður „Þetta er geðveikt tilfinning og það er ekki hægt að lýsa þessu," sagði Stjörnukonan Ásgerður Stefanía Baldursdóttir í viðtali á SportTV í kvöld eftir að Stjarnan hafði tryggt sér Íslandsmeistarabikarinn. Stjarnan þurfti einn sigur í síðustu þremur leikjum sínum og hann kom á móti Aftureldingu í kvöld. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 23:22
Gunnhildur Yrsa: Búnar að bíða eftir þessu í mörg ár Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, var kát eftir sigurinn á Aftureldingu í kvöld en með honum tryggði Stjörnuliðið sér Íslandsmeistarabikarinn í fyrsta skiptið. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 22:33
Þorlákur: Vissum alveg að við værum ekkert að fara að klúðra þessu „Mér líður mjög vel," sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar eftir að stelpurnar hans höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Þetta er fyrsti stóri titill félagsins í meistaraflokki í fótbolta og hann kom á fyrsta ári Þorláks með liðið. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 22:21
Soffía: Erum bestar á landinu „Við lögðum ansi mikið á okkur og loksins náum við að uppskera eins og við sáðum, þetta er ljúft. Það er fullkomið að ná að landa titlinum á heimavelli,“ sagði sigurreif Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitlinum með Stjörnunni í kvöld. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 22:04
Eyjakonur halda fjögurra stiga forystu á Þór/KA ÍBV og Þór/KA unnu bæði leiki sína í 16. umferð Pepsi-deild kvenna í kvöld en liðin eru að berjast um þriðja sætið í deildinni. Eyjakonur hafa því fjögurra stiga forskot á norðankonur þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 20:26
Stjörnukonur Íslandsmeistarar - Valur felldi Þrótt Stjörnukonur unnu í kvöld fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins í meistaraflokki karla og kvenna í fótbolta með því að vinna 3-0 sigur á Aftureldingu í 16. umferð Pepsi-deildar kvenna. Stjarnan þurfti bara einn sigur í síðustu þremur umferðunum en með þessum sigri er ljóst að Valskonur geta ekki náð Stjörnunni að stigum. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 20:18
FH og Selfoss komin upp í Pepsi-deild kvenna FH og Selfoss tryggðu sér örugglega sæti í Pepsi-deild kvenna á næsta sumri eftir sigra í seinni leikjum sínum í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í kvöld. FH vann 6-0 sigur á Haukum og því 14-1 samanlagt en Selfoss vann 6-1 sigur á Keflavík og þar með 8-4 samanlagt. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 19:29
Sandra laus frá Jitex: Maður léttist um nokkur kíló í hjartanu Sandra Sigurðardóttir, fyrrum markvörður sænska liðsins Jitex virðist loksins vera að losna undan samningi við félagið. Sandra rifti samningi sínum við Jitex fyrr í sumar vegna vanefnda en Svíarnir litu svo á að hún væri enn samningsbundinn sínu félagi og mætti því ekki fara heim til Stjörnunnar. FIFA hefur nú úrskurðað í málinu og það Söndru í vil. Íslenski boltinn 30. ágúst 2011 15:15