Mikið fjör í bikarnum á morgun Á morgun hefjast 16-liða úrslitin í Lýsingarbikar karla í körfubolta með fjórum leikjum. Grannliðin Hamar/Selfoss og Þór Þorlákshöfn eigast þá við í Hveragerði klukkan 16 og klukkan 19:15 mætast Keflavík B og Grindavík í Keflavík, Valur og Skallagrímur í Kennaraháskólanum og Tindastóll tekur á móti KR á Króknum. Körfubolti 9. desember 2006 21:25
Tap hjá Njarðvík og Keflavík Körfuboltalið Njarðvíkur og Keflavíkur töpuðu bæði stórt í leikjum sínum í Evrópukeppninni í kvöld, en bæði lið mættu sterkum andstæðingum í Úkraínu. Njarðvík tapaði fyrir Cherkaski Mavpy 114-73 og Keflavík tapaði 93-78 fyrir Dnipro. Körfubolti 7. desember 2006 18:54
Snæfell á toppinn Snæfell vann gríðarlega mikilvægan sigur á Grindavík á útivelli í Iceland Express-deild karla í kvöld, 68-75. Með sigrinum komst Snæfell á topp deildarinnar. Körfubolti 4. desember 2006 20:30
KR tapaði óvænt í Hveragerði Skallagrímur komst upp að hlið KR og Snæfells á topp Iceland Express-deild karla í körfubolta eftir tiltölulega auðveldan sigur á Þór á Þorlákshöfn í kvöld, 98-80. Á sama tíma tapaði topplið KR fyrir Hamar/Selfoss í Hveragerði, 83-69. Fjórir leikir voru á dagskrá í kvöld. Körfubolti 3. desember 2006 20:48
Frítt á leik Njarðvíkur og Samara Njarðvíkingar spila í kvöld sinn síðasta heimaleik í Evrópukeppninni í haust þegar þeir taka á móti rússneska liðinu Samara, en leikið er í Keflavík. Sparisjóður Keflavíkur hefur ákveðið að bjóða frítt á leikinn sem hefst klukkan 19:15 og því upplagt fyrir alla að mæta á leikinn og styðja við bakið á Njarðvíkingum. Körfubolti 1. desember 2006 15:49
Keflvíkingar steinlágu á heimavelli Karlalið Keflvíkinga í körfubolta steinlá á heimavelli sínum fyrir tékkneska liðinu Mlekarna Kunin 108-78 í Áskorendakeppni Evrópu. Keflvíkingar hafa unnið einn leik í riðlinum en tapað þremur. Körfubolti 30. nóvember 2006 21:10
Keflavík og Haukar í eldlínunni í kvöld Tvö íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld. Karlalið Keflavíkur tekur þá á móti tékkneska liðinu Mlekarna Kunin á heimavelli sínum í Keflavík klukkan 19:15 og Haukastúlkur sækja lið Canarias heim á Las Palmas. Körfubolti 30. nóvember 2006 15:00
Keflavík lagði Grindavík Keflavíkurstúlkur halda öðru sætinu efstu deild kvenna í körfubolta eftir sannfærandi sigur á grönnum sínum í Grindavík í Sláturhúsinu í kvöld. Takesha Watson skoraði 32 stig fyrir Keflavík, en Tamara Bowie skoraði 39 stig fyrir Grindavík. Körfubolti 29. nóvember 2006 22:28
Fjölnir mætir Keflavík Í dag var dregið í 16-liða úrslitin í bikarkeppni Lýsingar í körfubolta. Þrjár af átta viðureignum í umferðinni verða einvígi úrvalsdeildarliða þar sem Fjölnir tekur á móti Keflavík, Tindastóll mætir KR og þá mætast suðurlandsliðin Hamar/Selfoss og Þór úr Þorlákshöfn. Körfubolti 29. nóvember 2006 16:04
Grindavík lagði Snæfell Grindavík lagði Snæfell 87-82 í stórleik dagsins í 32 liða úrslitum bikarkeppni Lýsingar í körfubolta. Steven Thomas skoraði 23 stig og hirti 8 fráköst fyrir Grindavík og Adam Darboe skoraði 18 stig. Justin Shouse skoraði 28 stig fyrir Snæfell, Sigurður Þorvaldsson 17 og Hlynur Bæringsson skoraði 13 stig og hirti 15 fráköst. Körfubolti 26. nóvember 2006 22:06
Stanslaus körfubolti alla helgina Það verður sannarlega mikið um að vera í körfuboltanum hér heima um helgina en þá fara fram 32-liða úrslit í Bikarkeppni Lýsingar í karlaflokki. Fjörið hefst raunar í kvöld með viðureign Þórs á Akureyri og Fjölnis, en þá verða 7 leikir á morgun og 8 á sunnudaginn. Körfubolti 24. nóvember 2006 19:48
Stóráfangi hjá Rögnvaldi Hreiðarssyni Körfuknattleiksdómarinn Rögnvaldur Hreiðarsson nær merkum áfanga í dómgæslunni á sunnudaginn þegar hann dæmir leik Grindavíkur og Snæfells í bikarkeppni Lýsingar. Þetta verður þúsundasti leikurinn sem Rögnvaldur dæmir á vegum KKÍ og verður hann aðeins annar dómarinn í sögunni til að dæma svo marga leiki. Körfubolti 24. nóvember 2006 19:41
Loksins sigur hjá Keflvíkingum Keflvíkingar urðu í kvöld fyrsta íslenska körfuknattleiksliðið í vetur til að vinna leik í Evrópukeppninni þegar liðið skellti sænska liðinu Norrköping á heimavelli sínum 109-99. Keflvíkingar voru skrefinu á undan allan leikinn og eru í þriðja sæti riðils síns eftir sigurinn. Körfubolti 23. nóvember 2006 20:56
Keflvíkingar yfir í hálfleik Keflvíkingar hafa yfir 55-51 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðsins gegn sænska liðinu Norrköping í Áskorendakeppni Evrópu. Leikurinn fer fram í Keflavík. Thomas Soltau er stigahæstur heimamanna með 16 stig og 7 fráköst og Sverrir Sverrisson hefur skorað 10 stig. Körfubolti 23. nóvember 2006 19:56
Gunnar Einarsson með tímamótaleik í kvöld Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflvíkinga, spilar í kvöld sinn þrítugasta Evrópuleik í körfubolta fyrstur íslenskra körfuboltamanna. Keflvíkingar taka á móti liði Norrköping í Keflavík í kvöld í Ákorendakeppni Evrópu og hefst leikurinn klukkan 19:15. Körfubolti 23. nóvember 2006 16:44
Tap hjá Njarðvíkingum Íslensk körfuknattleikslið ríða ekki feitum hesti frá þáttöku sinni í Evrópukeppnunum þar sem af er, en í kvöld tapaði Njarðvík 82-78 fyrir Tartu Rock frá Eistlandi í leik sem háður var í Keflavík. Friðrik Stefánsson og Jeb Ivey skoruðu 22 stig fyrir Njarðvíkinga, en Friðrik hirti auk þess 17 fráköst. Körfubolti 22. nóvember 2006 21:09
Njarðvíkingar mæta Tartu Rock í kvöld Karlalið Njarðvíkinga og kvennalið Hauka verða í eldlínunni í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld. Njarðvíkingar taka á móti eistneska liðinu Rartu Rock klukkan 19:15 í íþróttahúsinu í Keflavík, en Haukaliðið mætir sterku liði Parma frá Ítalíu á útivelli. Körfubolti 22. nóvember 2006 17:18
Jón Arnar tekur við ÍR-ingum Jón Arnar Ingvarsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍR í körfubolta. Hann tekur við starfi Bárðar Eyþórssonar, sem sagði upp störfum um helgina. Jón Arnar er íslenskum körfuboltaáhugamönnum að góðu kunnur eftir farsælan feril með landsliðinu á árum áður. Körfubolti 20. nóvember 2006 21:30
Snæfell sigraði Tindastól örugglega Snæfell komst upp í 2. sæti Iceland Express-deildar karla í kvöld með því að sigra Tindastól með sannfærandi hætti á heimavelli sínum í kvöld, 108-85. Körfubolti 20. nóvember 2006 20:56
Bárður hættur með ÍR Bárður Eyþórsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari ÍR í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu ÍR óskaði Bárður eftir því að vera leystur undan samningi af persónulegum ástæðum. Körfubolti 20. nóvember 2006 08:42
KR-ingar lögðu Íslandsmeistarana KR er komið á topp Iceland Express-deildarinnar í körfubolta eftir góðan sigur á Íslandsmeisturum Njarðvík í Frostaskjólinu í kvöld, 75-69. Skallagrímur stökk upp í annað sæti með því að leggja Grindavík af velli á heimavelli sínum, 83-74. Körfubolti 19. nóvember 2006 21:15
Keflvíkingar töpuðu fyrir Dnipro Keflvíkingar töpuðu fyrir úkraínska liðinu BC Dnipro í öðrum leik sínum í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta í Keflavík í kvöld 96-97. Leikurinn var í járnum á lokamínútunum, en sterkt lið gestanna reyndist Keflvíkingum of stór biti til að kyngja. Thomas Soltau skoraði 25 stig og hirti 8 fráköst fyrir Keflvíkinga og Magnús Gunnarsson skoraði 23 stig. Körfubolti 17. nóvember 2006 20:47
Ætlum okkur að komast upp úr riðlinum Keflavík leikur í kvöld sinn annan leik í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta. Liðið mætir BC Dnipro frá Úkraínu og býst Sigurður Ingimundarson þjálfari við erfiðum leik. Keflavík tapaði í síðustu viku fyrir tékknesku liði ytra og verður sem fyrr að stóla fyrst og fremst á heimavöllinn til að safna stigum. Fjögur lið eru í riðlinum og komast tvö efstu í 16-liða úrslit. Körfubolti 17. nóvember 2006 00:01
Naumt tap hjá Njarðvíkingum Njarðvíkingar töpuðu í kvöld öðrum leik sínum í röð í riðlakeppni Áskorendakeppni Evrópu í körfuknattleik þegar liðið lá fyrir úkraínska liðinu Cherkaski 98-96 í Keflavík. Gestirnir höfðu tögl og haldir framan af leik, en með góðum endaspretti voru Njarðvíkingar nálægt því að stela sigrinum. Körfubolti 16. nóvember 2006 21:41
Njarðvík mætir Charkasky í kvöld Íslandsmeistarar Njarðvíkur í körfuknattleik mæta í kvöld úkraínska liðinu Cherkasky Mavby í Áskorendakeppni Evrópu, en leikið verður í Keflavík. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Þetta er annar leikur Njarðvíkinga í riðli sínum, en liðið lá fyrir sterku liði Samara frá Rússlandi í fyrsta leik sínum á dögunum. Körfubolti 16. nóvember 2006 17:51
Leik Hamars og Snæfells frestað Leik Hamars/Selfoss og Snæfells sem fara átti fram á Selfossi í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs. Leikurinn fer þess í stað fram í Hveragerði annað kvöld klukkan 19:15. Einn leikur er á dagskrá hjá konunum í kvöld, þegar Stúdínur taka á móti Grindavík í íþróttahúsi Kennaraháskólans klukkan 19:15. Körfubolti 13. nóvember 2006 16:18
Grindavík og KR á toppnum Grindvíkingar og KR-ingar sitja á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir leiki kvöldsins, en Snæfell og Njarðvík eiga leik til góða og geta komist upp að hlið þeirra með sigri í næsta leik. KR ingar unnu auðveldan sigur á ÍR í Seljaskóla 81-66 og Grindavík lagði Tindastól á Sauðárkróki 101-82. Þá vann Þór í Þorlákshöfn góðan sigur á Fjölni 97-95. Körfubolti 12. nóvember 2006 21:54
Skallagrímur lagði Hauka Skallagrímsmenn lögðu Hauka 98-79 á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrsta leik dagsins í úrvalsdeild karla í körfubolta. Darrell Flake átti stórleik fyrir Skallana, skoraði 27 stig og hirti 18 fráköst og Jovan Zdravevski skoraði 23 stig. Roni Leimu skoraði 27 stig fyrir Hauka, Kevin Smith 17 og Kristinn Jónasson skoraði 15 stig og hirti 11 fráköst. Þetta var fimmti sigur Skallagríms í röð í deildinni eftir tap í fyrstu tveimur leikjunum. Körfubolti 12. nóvember 2006 19:23
Páll Axel stigahæsti Íslendingurinn Tim Ellis hjá Keflavík er stigahæsti leikmaðurinn í úrvalsdeild karla í körfubolta þegar leiknar hafa verið sex umferðir, en hann skorar að meðaltali 29,3 stig í leik. Páll Axel Vilbergsson hjá Grindavík er stigahæsti íslenski leikmaðurinn í deildinni með 21,7 stig í leik. Körfubolti 10. nóvember 2006 19:29
Njarðvíkingar töpuðu í Rússlandi Njarðvíkingar töpuðu í dag fyrsta leik sínum í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta þegar liðið lá 101-80 fyrir liði Samara frá Rússlandi, en leikið var ytra. Brenton Birmingham skoraði 28 stig fyrir Njarðvík og Jeb Ivey 21 stig. Körfubolti 9. nóvember 2006 18:15