
Hörkumynd
Niðurstaða: Fjörugri en forverar hennar og alls ekki fyrir lofthrædda.
Gagnrýni á kvikmyndum, bókmenntum, tónlist, leikhúsverkum og fleiru.
Niðurstaða: Fjörugri en forverar hennar og alls ekki fyrir lofthrædda.
Niðurstaða: Gömul Megasarlög í gjörbreyttum útgáfum.
Niðurstaða: Sannferðug saga úr samtímanum. Ragnar hefur náð góðum tökum á spennusögunni.
Gríðarlega heillandi plata frá Helga Hrafni, sem verður bara betri og betri. Mikil synd ef hún nær ekki eyrum eins margra og hún á skilið.
Gímaldin verður seint sakaður um að reyna að þóknast fjöldanum. Þessi nýja plata hans og hljómsveitar er að mörgu leyti mjög „hardkor". Umslagið er t.d. ekki notendavænt – jafnvel fráhrindandi. Nafn flytjanda er hvergi sjáanlegt og upplýsingar ólæsilegar. Tónlistin sjálf er líka hrá og hörð.
Kýr Stalíns er sláandi saga sem hristir upp í lesendum og veitir nýja sýn, en er ofurlítið langdregin á köflum.
We Need to Talk About Kevin er óhuggulegasta mynd ársins. Drungalegt drama um viðkvæmt málefni. Hér er vandað til verka og útkoman er frábær.
The Black Keys er orðið tíu ára gamalt band og El Camino er sjöunda plata sveitarinnar. Hraðsoðin og melódísk blúsrokkplata sem rúllar örugglega í gegn.
Þessi fjórða plata Hljómsveitarinnar Ég byggir á svipuðum grunni og fyrri verk sveitarinnar. Áhrif frá hippatónlist sjöunda áratugarins eru greinileg og hérna er samspil gítars, bassa og trommu stórgott.
Þegar jólamynd tekst að græta tvo fullorðna einstaklinga og yngsti meðlimurinn fer fyrr að sofa til að reyna að heilla jólasveininn upp úr svörtu stígvélunum hefur hún augljóslega náð markmiði sínu. Arthúr bjargar jólunum er hugljúf teiknimynd með sönnum anda jólanna.
Dulúðin ræður ríkjum í tónsmíðum Önnu Þorvaldsdóttur, og Aeriality, sem frumflutt var á Sinfóníutónleikum í Hörpu á fimmtudagskvöldið undir stjórn Ilan Volkov, var engin undantekning. Verkið jaðrar við að vera sveimtónlist, en hún einkennist af mikilli kyrrstöðu, löngum hljómum og óljósum klið. Slík tónlist skapar stemningu en það er engin sérstök framvinda í henni, a.m.k. ekkert í líkingu við flest þekktu klassísku tónverkin.
Niðurstaða: Flott yfirlitsútgáfa frá eðalsveitinni Grafík.
Stórvirki frá einu af okkar albestu skáldum, sem slær nýja tóna og kemur á óvart í þessari bók.
Sparaðu þér aurinn og settu frekar jalapeño í augað á þér. Af hverju er Adam Sandler svona illa við okkur? Hvað höfum við gert honum? Er hann kannski viljandi að reyna að eyðileggja feril sinn? Af hverju hættir hann ekki þá frekar að leika í kvikmyndum? Og hvernig má það vera að þessi mynd sé búin að hala inn 65 milljónir dollara? Megum við eiga von á framhaldsmynd? Spurningarnar eru margar og þeim er ekki auðsvarað. En þessa mynd skaltu forðast eins og drepsótt.
Strengur eftir Tómas R. Einarsson er einstakt verk. Þó að hugmyndin sé frumleg er tónlistin bæði aðgengileg og hljómfögur. Það er vel hægt að njóta hennar án þess að virkja allar þær tengingar sem verkið býður upp á. Mér hefur alltaf fundist hljómur kontrabassans einstaklega fallegur og þessi einfalda, latínskotna tónlist er bæði þægileg og heillandi.
Niðurstaða: Lofar góðu til að byrja með en nær svo engu flugi.
Einhver jafnskemmtilegasta ljóðabók síðari missera. Það sem fyrst vekur athygli þegar bókinni er flett er kímnin í ljóðum Antons Helga. Tyrfni í myndmáli er víðs fjarri, ljóðin bera með sér hversdagslegan blæ og eru sannanlega fyndin.
Fyrsta plata Togga kom út fyrir fimm árum og þar var hann í trúbadoragírnum. Hún fékk ágætar viðtökur en Toggi varð þekktara nafn eftir að bæði Páll Óskar og síðar meir Hjaltalín fluttu lag hans við texta Páls Óskars, Þú komst við hjartað í mér. Vinsældir lagsins voru gríðarlegar og á endanum var það kjörið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Nology er ein af skemmtilegustu plötum ársins og stendur undir öllum væntingunum sem til hennar voru gerðar. Á heildina litið er þetta frábær plata frá einstakri hljómsveit. Forneskjulegt framtíðarpopp í hæsta gæðaflokki.
Það var í einu orði sagt mögnuð stemning á tónleikum Fjallabræðra í Fríkirkjunni á laugardagskvöldið. Fjallabræður og gestir fylltu kirkjuna af gleði og góðri tónlist.
Árið 2003 í Reykjavík. Katla hefur gosið í tvö ár og öskufallið byrgir fólki sýn, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Tvær persónur, Ingibjörg og Jón, fara út af sporinu vegna samskipta við aðrar tvær, Elísabetu og Láka, sem þykjast búa yfir leyndarmáli hins eina sanna koss, koss lífsins sem gefur andagift eða sturlun eftir því hvernig viðtakandinn bregst við. Allt endar með ósköpum, enginn gengst við ábyrgð og lífið heldur áfram, meira eða minna óbreytt. Koss lífsins reynist vera koss dauðans.
Mögnuð og vel gerð mynd um harðsnúna valdabaráttu og fórnarkostnað hennar. George Clooney verður sífellt betri leikstjóri. Myndir um masandi jakkalakka virðast henta honum einstaklega vel og það sem sumum kann að þykja óspennandi efniviður nær hann að matreiða á nokkuð ferskan og skemmtilegan máta.
Bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um íslenska kommúnista er læsileg frásögn, prýdd fjölda mynda og krydduð skemmtilegum arfsögnum. Kaflar eru stuttir og efnið streymir létt fram. Þetta er myndarleg bók og vel gerð, fáar ritvillur og útlit gott. Þetta er mikið verk, rúmlega 600 blaðsíður, og rækilegar eftirmálsgreinar, heimilda- og nafnaskrár.
Þögul nóttin hefur yfir sér fágað yfirbragð. Það hefur greinilega verið vandað til verka. Á heildina litið þokkalegasta plata, en Felix gerir örugglega betur næst.
Kjarr er nýtt verkefni Kjartans Ólafssonar sem gerði góða hluti sem annar aðalmaður rafpoppsveitarinnar Ampop og var hann einnig meðlimur í Leaves. Á heildina litið er þetta ágætis plata frá hæfileikaríkum tónlistarmanni.
Ein af rokkplötum ársins. Sólstöfum hefur tekist að búa til magnaða stemningu á henni sem nær taki á manni strax í forspilinu í fyrsta laginu, Ljós í stormi, og heldur manni út plötuna.
Tower Heist hefur allt sem til þarf nema brandarana. Leikarahópurinn er öflugur og Brett Ratner er enginn aukvisi þegar kemur að leikstjórn gamansamra spennumynda og hefði því átt að geta neglt þetta. Handritið er hins vegar ekki nógu fyndið og eftir stendur grínmynd þar sem grínið er af skornum skammti.
Gríðarflott, frumlegt og hyldjúpt skáldverk. Frá fyrstu síðu Hálendisins liggur einhver heimsendastemning yfir öllu og andrúmsloftið er mettað beyg.
Gylfi, Rúnar og Megas syngja saman fleiri slagara. Þrjár stjörnur er fín plata. Hún kemur manni í gott skap og virkar best spiluð á miklum styrk.