Golf

Golf

Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Fréttamynd

Íslenska Ryder-keppnin

Í dag hefst liðakeppnin KPMG-bikarinn sem er íslenska útgáfan af hinni frægu Ryder-keppni sem er á milli Bandaríkjanna og Evrópu. Á Íslandi keppir landsbyggðin við Reykjavíkurúrvalið. Þetta er í fjórða skiptið sem þessi keppni fer fram og að þessu sinni verður leikið á Leirdalsvelli í Kópavogi. Hefst keppni klukkan 8.00. Landsbyggðin hefur unnið tvisvar en Reykjavíkurúrvalið einu sinni.

Golf
Fréttamynd

Tinna: Missti sjálfstraustið | bjartsýn eftir sigurinn á Símamótinu

Tinna Jóhannsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, sigraði á Símamótinu sem lauk í gær á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Þetta var fyrsti sigur Tinnu á Eimskipsmótaröðinni í sumar en hún hefur ekki náð sér almennilega á strik í keppnisgolfinu í sumar. Tinna vonast til þess að erfiðleikarnir séu nú að baki en hún mun á næstu mánuðum einbeita sér fyrir úrtökumótið fyrir Evrópumótaröð kvenna.

Golf
Fréttamynd

Einar Haukur er sáttur við sumarið | stórt próf bíður hans í Svíþjóð

"Þetta var kannski gott fyrir mig að fara þrívegis í bráðabana um sigurinn,“ sagði Einar Haukur Óskarsson afrekskylfingur úr Keili eftir sigurinn á Símamótinu í Grafarholti í gær. Þetta er fyrsti sigur Einars á Eimskipsmótaröðinni í sumar en hann hefur einu sinni áður sigrað á Eimskipsmótaröðinni. Einar Haukur stefnir á að komast í atvinnumennsku í haust en hann endaði í fjórða sæti stigalista Eimskipsmótaraðarinnar.

Golf
Fréttamynd

190 metra upphafshögg beint ofan í

Gunnar Páll Þórisson úr GKG fór holu í höggi á 6. holunni á lokahringnum á Símamótinu í golfi en leikið er í Grafarholti í dag. Greint er frá þessu á vefsíðunni Kylfingur.is.

Golf
Fréttamynd

Signý: Heiður að vinna stigameistaratitilinn

"Það er heiður að vinna stigameistaratitilinn og sýnir að ég var stöðug í keppnisgolfinu í sumar,“ sagði Signý Arnórsdóttir úr Keili eftir að hún tryggði sér stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinn í golfi í dag á Grafarholtsvelli. Signý endaði í þriðja sæti á Símamótinu sem lauk í dag en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni á þessu tímabili.

Golf
Fréttamynd

Hlynur Geir: Stefndi á að vera stigameistari | ætlar að draga úr keppnisgolfinu

"Ég er mjög sáttur við þetta tímabil,“ sagði Hlynur Geir Hjartarson úr Golfklúbbi Selfoss eftir að hann tryggði sér stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinni í golfi í dag. Hlynur endaði í fjórða sæti á síðasta stigamóti ársins, Símamótinu, sem lauk í Grafarholti í dag en þetta er í þriðja sinn sem Hlynur Geir verður stigameistari.

Golf
Fréttamynd

Tinna hafði sigur í Grafarholtinu

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili sigraði kvennaflokki á Símamótinu í golfi en keppt var í Grafarholti. Mótið var það síðasta á Eimskipsmótaröðinni í sumar.

Golf
Fréttamynd

Kristján og Tinna halda forystunni á Símamótinu

Keilisfólkið Kristján Þór Einarsson og Tinna Jóhannsdóttir eru áfram efst eftir tvo hringi á Síma mótinu í golfi sem fer fram á Grafarholtsvelli og er lokamót sumarsins á Eimskipsmótaröðinni. Bæði voru þau Kristján og Tinna með forustu eftir fyrstu 18 holurnar en alls voru spilaðar 36 holur í dag. Síðasti hringurinn fer síðan fram á morgun.

Golf
Fréttamynd

Kristján Þór á tveimur höggum undir pari eftir fyrstu 18 holurnar

Keilismaðurinn Kristján Þór Einarsson er með tveggja högga forystu eftir fyrsta hringinn á Síma-mótinu í golfi sem stendur nú yfir á Grafarholtsvelli í Reykjavík en þetta er lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur í dag, laugardag. Strákarnir eru því á leiðinni út aftur á eftir.

Golf
Fréttamynd

Tinna með eitt högg í forskot eftir fyrsta hringinn

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili er með eitt högg í forkost eftir fyrsta hringinn á Síma-mótinu í golfi sem stendur nú yfir á Grafarholtsvelli í Reykjavík en þetta er lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur í dag, laugardag. Stelpurnar eru því á leiðinni út aftur á eftir.

Golf
Fréttamynd

Barist um stigameistaratitilinn

Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi, Síma-mótið, hófst í morgun á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur í dag, laugardag. Góð þátttaka er í mótinu og ellefu af alls tuttugu efstu á stigalistanum í karlaflokki eru á meðal keppenda.

Golf
Fréttamynd

Afrekskylfingar berjast um stigameistaratitla á Síma-mótinu

Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi, Síma-mótið, fer fram á Grafarholtsvelli í Reykjavík um helgina og hefst keppni á laugardaginn. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af 36 holur á laugardeginum. Góð þátttaka er í mótinu og 11 af alls 20 efstu á stigalistanum í karlaflokki eru á meðal keppenda. Hámarksfjöldi keppenda er 84 kylfingar og hefur myndast biðlisti inn í mótið hjá körlunum.

Golf
Fréttamynd

Úlfar búinn að velja þá sex kylfinga sem fara á HM í Tyrklandi

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið samkvæmt afreksstefnu Golfsambandsins sex kylfinga til að leika fyrir Íslands hönd á HM karla og kvenna. Heimsmeistaramótið verður haldið verður í Tyrklandi í haust en leikið verður á Gloria Golf Resort (Old og New course) í Antalya í Tyrklandi.

Golf
Fréttamynd

Garcia gaf eftir og Watney fagnað sigri

Bandaríski kylfingurinn Nick Watney landaði sigri á Barclays-mótinu í New York fylki um helgina. Watney lyfti sér upp í efsta sæti stigalista FedEx-bikarsins og á möguleika á 10 milljóna dollara verðlaunafé á lokamótinu í næsta mánuði.

Golf
Fréttamynd

Arnór: Þetta var alls ekki skemmtileg lífsreynsla

Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason samdi um helgina til eins árs við hið sterka þýska félag, Flensburg. Liðið varð í öðru sæti í þýsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og leikur því í Meistaradeildinni í ár.

Golf
Fréttamynd

Garcia leiðir í New York

Spánverjinn Sergio Garcia hefur tveggja högga forskot á Barclay's mótinu í New York þegar einn hringur er eftir.

Golf
Fréttamynd

Garcia með tryggt sæti í Ryder-liðinu

Spænski kylfingurinn Sergio Garcia sigraði á Wyndham meistaramótinu og tryggði sér um leið sæti í Ryder-liði Evrópu. Spánverjar hafa alltaf átt kylfing í liðinu og það breytist ekki núna.

Golf
Fréttamynd

Ólafía og Ólafur unnu á Kiðjabergsvelli

Ólafur Björn Loftsson úr NK og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR sigruðu í Securitas mótinu, sem er hluti af Eimskipsmótaröðinni, á Kiðjabergsvelli í dag. Keppnin var jöfn og spennandi í báðum flokkum og réðust úrslit ekki fyrr en á lokaholunum. Þetta var næst síðasta mót sumarsins á Eimskipsmótaröðinni. Lokamótið verður í Grafarholti eftir tvær vikur.

Golf
Fréttamynd

Birgir Leifur á meðal þeirra efstu fyrir lokadaginn í Horsens

Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG er á meðal efstu manna fyrir lokakeppnisdaginn á Áskorendamótaröð Evrópu. Keppt er í Horsens í Danmörku en um er að ræða næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Birgir lék á 69 höggum í dag eða -3 og er hann samtals á 8 höggum undir pari. Klas Eriksson frá Svíþjóð er efstur en hann er á 11 höggum undir pari eftir að hafa leikið á nýju vallarmeti á fyrsta keppnisdeginum – 62 höggum.

Golf
Fréttamynd

Guðrún Brá efst í kvennaflokki | pútterinn var sjóðheitur

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK er með forystu eftir fyrsta hring af þremur á stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar í golfi, Securitas mótinu, sem fram fer á Kiðjabergsvelli. Hún lék hringinn í dag á 72 höggum, eða einu höggi yfir pari. "Það var fyrst og fremst pútterinn sem var heitur í dag, hann var að redda mér hvað eftir annað,“ sagði Guðrún Brá sem var með 26 pútt á hringnum í dag.

Golf
Fréttamynd

Arnar Snær með vallarmet á Kiðjabergsvelli – 66 högg

Arnar Snær Hákonarson úr GR setti nýtt og glæsilegt vallarmet á Kiðjabergsvelli í dag er hann lék á 66 höggum af hvítum teigum, eða 5 höggum undir pari vallar, á fyrsta hring á Eimskipsmótaröðinni. Hann bætti gamla vallarmetið um tvö högg, en það var í eigu Birgis Leifs Hafþórssonar og Örvars Samúelssonar. Arnar Snær lék skollalausan hring - fékk 5 fugla og 13 pör og var þetta jafnframt besti hringurinn hans á ferlinum.

Golf