

Golf
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Magnús Lárusson var í stuði á seinni deginum
Magnús Lárusson úr Kili tryggði sér sigur á fyrsta stigamóti íslensku mótaraðarinnar sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru. Magnús Lárusson spilaði seinni daginn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari.

Valdís Þóra lék á pari í dag og tryggði sér sigurinn
Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL tryggði sér sigur í kvennaflokki á fyrsta stigamóti íslensku mótaraðarinnar sem lauk á Hólmsvelli í Leiru í dag. Valdís Þóra lék á 72 höggum í dag eða á pari og lauk því leik á 151 höggi eftir 36 holur.

Birgir Leifur í 25. sæti í Belgíu
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lauk keppni á Telenet Trophy mótinu í Belgíu og endaði í 25.-28. sæti.

Örn Ævar og Ólafur jafnir - Eygló Myrra efst hjá konunum
Örn Ævar Hjartarson úr GS og Ólafur Loftsson úr NK eru efstir og jafnir eftir fyrri daginn á fyrsta mótinu á Íslensku mótaröðinni í golfi sem hófst í dag á Hólmsvelli í Leiru. Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO hefur forustu í kvennaflokki.

Frábær endasprettur komi Birgi Leif áfram
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG komst í dag í gegnum niðurskurðinn á Telenet Trophy mótinu í Belgíu. Birgir Leifur fékk fugla á síðustu þremur holunum sem nægðu honum til þess að komast áfram.

John Daly snýr aftur eftir keppnisbann
Sex mánaða keppnisbanni golfarans skrautlega, John Daly, í PGA-mótaröðinni er lokið og kappinn mun spila aftur golf í Bandaríkjunum eftir þrjár vikur.

Mickelson dregur sig úr keppni
Phil Mickelson hefur dregið sig úr keppni á golfmótum á næstunni eftir að konan hans greindist með brjóstakrabba.

Cejka með fimm högga forystu á Players-mótinu
Þjóðverjinn Alex Cejka er með fimm högga forystu á sex kylfinga, þeirra á meðal Tiger Woods, fyrir lokakeppnisdaginn á Players-mótinu í golfi í Bandaríkjunum.

Birgir Leifur meðal neðstu manna á Ítalíu
Ekkert gekk hjá Birgi Leifi Hafþórssyni á opna ítalska meistaramótinu í golfi á lokakeppnisdegi mótsins í dag.

Illa gengið hjá Birgi Leif
Birgir Leifur Hafþórsson hefur ekki náð sér á strik á opna ítalska meisataramótini í golfi sem er hluti af Evrópumótaröðinni.

Sky segir Birgi Leif vera frá Noregi
Þó svo Birgir Leifur Hafþórsson sé að gera frábæra hluti á opna ítalska meistaramótinu í Tórínó þá virðist hann eiga nokkuð í land með að skapa sér nafn í golfheiminum.

Sjóðheitur í Tórínó
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson fór á kostum á opna ítalska meistaramótinu í dag en spilað er í Tórínó.

Tiger fer ágætlega af stað
Players-meistaramótið í golfi hófst á Sawgrass-vellinum í dag. Líkt og áður eru öll augu á Tiger Woods. Honum gekk ágætlega fyrsta daginn og kom í hús á 71 höggi eða einu höggi undir pari.

Birgir Leifur á einu undir pari
Birgir Leifur Hafþórsson hóf í morgun keppni á móti á Ítalíu sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Ballesteros: Ég hef náð 90% heilsu
Spænski kylfingurinn Seve Ballesteros segist hafa náð 90% heilsu á ný eftir að hafa greinst með heilaæxli í haust.

Birgir Leifur úr leik
Birgir Leifur Hafþórssn er úr leik á opna Spánarmótinu í golfi eftir að hafa lokið öðrum hringnum á mótinu á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari.

Tiger efstur í Charlotte
Tiger Woods er í efsta sæti eftir fyrsta keppnisdag á móti í PGA-mótaröðinni sem fer fram í Charlotte í Bandaríkjunum.

Misheppnað upphafshögg Murray sendi konu á spítala
Gamanleikarinn Bill Murray átti líklega eitt versta upphafshögg golfsögunnar í dag. Murray, sem tekur þátt í móti þar sem atvinnumenn og frægt fólk spilar saman, hitti boltann svo illa í upphafshöggi sínu að hann fór af brautinni, yfir götu og inn í garð hjá saklausu fólki.

Cabrera vann Masters mótið eftir tvöfaldan bráðabana
Angel Cabrera vann Masters mótið í golfi eftir tvær umferðir í bráðabana. Mótið var því æsispennandi en Cabrera hafði taugarnar í að afgreiða málið.

Woods fór illa að ráði sínu
Bæði Tiger Woods og Phil Mickelson fóru illa að ráði sínu undir lokin á hringjum sínum á Masters mótinu í golfi sem er við það að klárast.

Nær Woods efstu mönnum?
Augu margra á Masters mótinu í golfi munu beinast að hollinu sem hefur leik klukkan 17.35 að íslenskum tíma. Þá slá þeir Tiger Woods og Phil Mickelson af fyrsta teig, hálftíma á undan forystusauðunum Angel Cabrera og Kenny Perry.

Cabrera og Perry í forystu fyrir lokadaginn á Masters
Angel Cabrera frá Argentínu og Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry hafa forystu fyrir lokahringinn á Masters mótinu í golfi eftir keppni dagsins.

Nýtt met á Mastersmótinu - Kim var með ellefu fugla í dag
Anthony Kim setti nýtt met á Mastersmótinu þegar hann náði ellefu fuglum á öðrum hring á Augusta-vellinum í dag. Kim bætti 23 ára gamalt met Nick Price sem náði tíu fuglum árið 1986.

Tiger er sjö höggum á eftir efstu mönnum á Mastersmótinu
Tiger Woods náði ekki að bæta stöðu sína á öðrum degi Mastersmótsins í golfi en hann lék annan hringinn á pari og er á tveimur höggum undir pari. Bandaríkjamennirnir Kenny Perry og Chad Campbell eru efstir og jafnir en þeir hafa spilað fyrstu 36 holurnar á 9 höggum undir pari. Öðrum degi er ekki lokið.

Campbell í forystu á Augusta
Bandaríkjamaðurinn Chad Campbell hefur tveggja högga forystu á næstu menn á fyrsta degi Masters mótsins í golfi sem fram fer á Augusta vellinum.

Masters-mótið hafið
Nú þegar eru fyrstu kylfingarnir farnir af stað á fyrsta keppnisdegi Masters-mótsins sem fer fram í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum.

Woods er bjartsýnn
Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er fullur sjálfstrausts fyrir US Masters mótið í golfi þó hann sé rétt að komast af stað eftir langt hlé eftir hnéuppskurð.

Birgir Leifur endaði meðal neðstu manna í Portúgal
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék lokahringinn á opna portúgalska mótinu á Evrópumótaröðinni á 72 höggum eða einu höggi yfir pari. Hann endaði mótið í 72. sæti og lék holurnar 72 á átta höggum yfir pari.

Birgir Leifur í vandræðum á sömu holum og í gær
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson spilaði á fimm höggum yfir pari á þriðja degi opna portúgalska mótinu í dag en mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni.

Birgir Leifur í gegnum niðurskurðinn
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum niðurskurðinn á Estoril-mótinu í Portúgal þó svo hann hafi ekki spilað sérstaklega vel í dag.