Birgir Leifur á fjórum yfir Birgir Leifur Hafþórsson lék á fjórum yfir pari í gær á áskorendamóti í Svíþjóð og var þá í 128.-135. sæti af 144 kylfingum. Svíinn Christian Nilsson hefur örugga forystu, er á 12 höggum undir pari. Sport 9. september 2005 00:01
Ragnhildur bætti vallarmetið Ragnhildur Sigurðardóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, bætti í gær vallarmetið á Hvaleyrarvelli þegar hún lék á 68 höggum eða þremur undir pari vallarins. Ragnhildur bætti árangur Þórdísar Geirsdóttur um tvö högg. Sport 9. september 2005 00:01
Calcavecchia og Glove leiða Bandaríkjamennirnir Mark Calcavecchia og Lukas Glove hafa forystu á Opna kandadíska mótinu í golfi. Þeir léku í gær á 68 höggum eða fimm undir pari. Sænski Sport 9. september 2005 00:01
Ólafur fór vel af stað á lokahring Ólafur Már Sigurðsson úr GR fór vel að stað í morgun á lokahringnum á Holledau-mótinu á þýsku EPD-mótaröðinni. Að loknum fjórum holum var á Ólafur á tveimur höggum undir pari og er sem stendur í öðru sæti á 12 höggum undir pari. Sport 7. september 2005 00:01
Ollie sigraði á Deutsche Bank Hinn 46 ára gamli Bandaríkjamaður Olin Browne fer upp um 138 sæti á stigalista kylfinga eftir sigur á Deutsche Bank mótinu í Bandarísku mótaröðinni í golfi í gær. Sport 6. september 2005 00:01
Garcia Evrópumeistari Spánverjinn Sergio Garcia vann sigur á Evrópska meistaramótinu í golfi sem lauk í Sviss í gær. Sigur Spánverjans var naumur en hann lauk leik samtals á fjórtán höggum undir pari. Sport 5. september 2005 00:01
Spennan eykst á Deutshe Bank Gífurleg spenna er um sigurinn á Deutshe Bank mótinu í Bandarísku mótaröðinni í golfi. Fimm kylfingar eru efstir og jafnir á tíu höggum undir pari samtals eftir 54 holur. John Rollins, Jason Bohn,Billy Andrade, Olin Browne frá Bandaríkjunum og Carl Petterson frá Svíþjóð. Sport 5. september 2005 00:01
Stigameistarar Toyota Heiðar Davíð Bragason GKJ og Ragnhildur Sigurðardóttir GR eru stigameistarar Toyota mótaraðarinnar í golfi en sjötta og síðasta stigamót sumarsins lauk í gær á Korpúlfstaðavelli. Sport 5. september 2005 00:01
Tinna efst fyrir lokahring Tinna Jóhanssdóttir úr Keili var í efsta sæti að loknum fyrsta hring á lokamóti Toyota-mótaraðarinnar sem lýkur í dag en Ragnhildur Sigurðarsdóttir úr GR hafði þegar tryggt sér titilinn og sigur í stigakeppninni. Heiðar Davíð Bragason, Íslandsmeistari úr GKJ, er í efsta sæti í karlaflokki ásamt Hlyni Geir Hjartarsyni frá Selfossi, en Heiðar Davíð og Sigurpáll Geir Sveinsson berjast um sigurinn í karlaflokki á mótaröðinni. Sport 4. september 2005 00:01
Tiger gekk illa á öðrum degi Tiger Woods fór illa að ráði sínu á öðrum keppnisdegi á Deutsche Bank mótinu í Boston, en hann lék annan hringinn á tveimur höggum yfir pari, en Tiger sem lék á 73 höggum var í efsta sæti á mótinu að loknum fyrsta keppnisdegi. Hann er fjórum höggum undir pari en Bandaríkjamennirnir Jeff Brehaut og Olin Brown eru efstir á níu höggum undir pari. Sport 4. september 2005 00:01
Ólöf María á þremur yfir pari Ólöf María Jónsdóttir er í 38.-43.sæti fyrir lokahringinn á Nykredit-mótinu í golfi í Danmörku, en hún var á parinu í gær og er samtals á þremur höggum yfir pari eftir þrjá hringi. Sport 4. september 2005 00:01
Barist á Korpúlfsstaðavelli Lokamótið á Toyota-mótaröðinni í golfi hófst í morgun við Korpúlfsstaði. Þar eru flestir bestu kylfingar landssins mættir til leiks. Heiðar Davíð Bragsson og Sigurpáll Geir Sveinsson, báðir úr GKJ, berjast um stigameistaratitilinn í karlaflokki en Ragnhildur Sigurðardóttir GR hefur þegar tryggt sér titilinn í kvennaflokki. Leiknar verða 36 holur, 18 í dag og 18 á morgun, sunnudag. Sport 3. september 2005 00:01
Tiger efstur í Boston Tiger Woods hefur forytsu að loknum fyrsta keppnisdegi á Deutshe Bank meistaramótinu í golfi sem fram fer í Boston. Hann lék fyrsta hringinn á 65 höggum og er á sex höggum undir pari. Tiger hefur eins höggs forystu á Carlos Franco, Briny Baird, Steve Lowery og Billy Andrade. Vijay Singh, sem vann mótið í fyrra, hætti við þátttöku vegna bakmeiðsla. Sport 3. september 2005 00:01
Ólöf slapp í gegnum niðurskurðinn Ólöf María Jónsdóttir, kylfingur úr Keili í Hafnarfirði, keppir nú á næst síðasta mótinu í Evrópumótaröð kvenna en það fer fram á Kokkedal-vellinum í Danmörku. Hún lék á 70 höggum í dag og er samtals á þremur höggum yfir pari og slapp í gegnum niðurskurðinn. Hún er í 40.-49. sæti eftir keppni dagsins en alls komust 65 kylfingar í gegnum niðurskurðinn. Sport 2. september 2005 00:01
Ólöfu gengur illa í Danmörku Kylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir lék í dag fyrsta hringinn á alþjóðlega golfmótinu sem fram fer í Kokkedal í Danmörku. Ólöf lék á 5 höggum yfir pari og er sem stendur í 71-96 sæti. Mótið er liður í evrópsku mótaröðinni. Lora Fairclough frá Englandi hefur forystu eftir fyrsta hringinn á 7 höggum undir pari. Sport 1. september 2005 00:01
Rose enn með forystu Englendingurinn Justin Rose er enn með forystuna á Buick meistaramótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi. Forysta Rose er aðeins eitt högg en var fjögur eftir tvo hringi. Bandararíkjamaðurinn Ben Curtis er í öðru sæti ellefu undir pari en mótinu lýkur í kvöld. Sport 28. ágúst 2005 00:01
Donald og Rumford efstir Englendingurinn Luke Donald og Ástralinn Brett Rumford voru efstir og jafnir á tólf höggum undir pari eftir 36 holur á sterku móti í Munchen í Þýskalandi í Evrópumótaröð kylfinga. Svíinn Niclas Fasth er sem stendur með forystuna á 13 undir eftir að hafa leikið á 64 höggum í dag. Sport 27. ágúst 2005 00:01
Ólöf María í 92-95 sæti Ólöf María Jónsdóttir er sem stendur í 92 til 95 sæti á finnska meistaramótinu í golfi í kvennamótaröð Evrópu. Hún lauk öðrum hring sínum rétt áðan á sex yfir pari á 77 höggum en fresta varð leik í gær vegna veðurs. Sport 27. ágúst 2005 00:01
Rose með forystu á Buick mótinu Justin Rose frá Englandi er með fjögurra högga forystu á Buick meistaramótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi. Rose er tólf undir pari eftir 36 holur. Bandaríkjamennir Kevin Sutherland og Ben Curtis eru jafnir í öðru sæti. Rose lék á 63 höggum í gær en þessi 25 ára Englendingur hefur ekki unnið á mótaröðinni Bandarísku. Sport 27. ágúst 2005 00:01
Ólöf náði sér ekki á strik í gær Kylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir náði sér ekki nægilega vel á strik á fyrstu tveimur hringjunum á Opna finnska meistaramótinu í Helsinki um helgina, en hún lék á ellefu höggum yfir pari vallarins. Sport 27. ágúst 2005 00:01
Woods landaði sigri á Nec mótinu Besti kylfingur heims, Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods, sigraði á NEC heimsmótinu í golfi í Akron í Ohio í gærkvöldi en leikið var á Firestone vellinum. Sport 22. ágúst 2005 00:01
Woods og Perry efstir á NEC-mótinu Bandaríkjamennirnir Tiger Woods og Kenny Perry hafa forystu fyrir lokahringinn á NEC-mótinu í golfi í Akron í Ohio í Bandaríkjunum. Þeir eru báðir á sjö höggum undir pari. Vegna rigningar var keppni stöðvuð í þrjár klukkustundir og síðan var henni frestað. Enn hafa því ekki allir kylfingarnir lokið þriðja hring. Sport 21. ágúst 2005 00:01
Donald og Woods efstir í Akron Englendingurinn Luke Donald og Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods hafa foryrstu þegar keppni er hálfnuð á NEC Invitational-mótinu í golfi í Akron í Ohio. Báðir eru á fjórum höggum undir pari. Woods tapaði tveimur höggum á síðustu holunni í gærkvöldi þegar hann skaut boltanum beint í tré. Sport 20. ágúst 2005 00:01
Singh og Woods með forystu NEC Tveir stigahæstur kylfingar heims, Tiger Woods og Vijay Singh, hafa forystu á NEC Invitationalmótinu í golfi í Akron í Ohio. Þeir léku á 66 höggum eða 4 undir pari. Það sama gerði sænski kylfingurinn Henrik Stenson. Stenson lék feykivel framan af og var á 6 höggum undir pari þegar 4 holur voru eftir. Sport 19. ágúst 2005 00:01
Langt frá sínu besta Íslensku keppendurnir á Evrópumótinu í golfi voru langt frá sínu besta á fyrsta keppnisdegi en Íslandsmeistarinn Heiðar Davíð Bragason stóð sig best og lék á tveimur höggum yfir pari og er í 45 til 58. sæti, en mótið fer fram í Belgíu. Sport 18. ágúst 2005 00:01
PGA meistaramótið hafið á ný PGA meistaramótið í golfi sem frestað var vegna veðurs í gær er hafið á nýjan leik og bein útsending er frá mótinu á Sýn. Phil Mickelson frá Bandaríkjunum er með forsytu á samtals 4 höggum undir pari og er hann í síðasta hollinu ásamt Davis Love III á 14. holu. Steve Elkington frá Ástralíu og Daninn Thomas Björn koma næstir á 3 höggum undir pari. Sport 15. ágúst 2005 00:01
GR og GKj meistarar í sveitakeppni Kvennalið Golfklúbbs Reykjavíkur og karlalið Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ urðu í gær Íslandsmeistarar í sveitakeppni í golfi. GR sigraði Golfklúbinn Keili í úrslitum með tveimur vinningum gegn einum en Kjalarmenn höfðu betur í baráttu við Golfklúbb Reykjavíkur í karlaflokki, sigruðu með þremur vinningum gegn tveimur. Sport 15. ágúst 2005 00:01
Mickelson tapar höggi. Phil Mickelson og Steve Elkington eru jafnir og efstir á PGA mótinu í golfi á þremur höggum undir pari. Elkington á eina holu eftir en Mickelson tvær, mótið er í beinni á Sýn. Sport 15. ágúst 2005 00:01
Mickelson PGA meistari Phil Mickelson sigrði rétt í þessu á PGA Meistaramótinu í golfi á fjórum höggum undir pari. Mickelson fékk fugl á síðustu holunni og tryggði sér þar með sigurinn. Daninn Thomas Bjorn og Ástralinn Steve Elkington urðu jafnir í öðru sæti, höggi á eftir Mickelson. Sport 15. ágúst 2005 00:01
Keppni hætt vegna veðurs Keppni á PGA-Meistaramótinu í golfi var frestað um klukkan ellefu í kvöld vegna þrumuveðurs á Baltusrol-vellinum í New Jersey og hefur verið ákveðið að hefja leik aftur á morgun. Sjónvarpsstöðin Sýn mun vera með beina útsendigu á morgun og hefst útsending klukkan 14:00. Þegar leik var hætt var Phil Mickelson frá Bandaríkjunum með forsytu. Sport 14. ágúst 2005 00:01