UEFA ætlar að taka úrslitaleik Meistaradeildarinnar af Rússum Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ætlar að taka úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu af Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Fótbolti 24. febrúar 2022 15:31
„Vona að þessir stóru menn með engan heila muni stöðva þetta stríð“ Rúmenski knattspyrnustjórinn Mircea Lucescu, sem stýrir Dymamo Kiev í Úkraínu, segist verða að sýna gott fordæmi og ætlar ekki að yfirgefa Kænugarð þrátt fyrir innrás Rússa í landið og sprengingar í borginni. Fótbolti 24. febrúar 2022 14:31
Félag Guðlaugs Victors fjarlægir merki Gazprom af treyjunni Schalke 04, sem landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson, leikur með hefur ákveðið að fjarlægja merki rússneska olíufyrirtækisins Gazprom af treyju sinni vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Fótbolti 24. febrúar 2022 14:11
Var viku að forða eignum fyrirtækisins úr landi Aron Arngrímsson, íslenskur kafari og atvinnurekandi sem hefur stundað rekstur í Úkraínu undanfarin ár, vann sleitulaust að því undanfarna viku að færa allar eignir fyrirtækis síns úr landi og í bandarískan banka. Erlent 24. febrúar 2022 14:10
Matvöruverslanir og hraðbankar tæmdir í Kænugarði Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og íbúi í Kænugarði í Úkraínu var nokkuð rólegur þegar fréttastofa náði af honum tali á tólfta tímanum. Hann segir íbúa borgarinnar þó mjög kvíðna fyrir komandi dögum og mikil óvissa ríki meðal landsmanna um framhaldið. Innlent 24. febrúar 2022 13:35
Umheimurinn bregst harkalega við innrás Rússa Leiðtogar ríkja um allan heim hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og boða hertar refsiaðgerðir gegn þeim. Pútin Rússlandsforseti hótar öllum þeim sem reyni að stöðva innrásina afleiðingum sem aldrei hafi sést áður í veraldarsögunni. Erlent 24. febrúar 2022 12:45
Lýsir stórmerkilegum persónulegum kynnum af Pútín Harald Malmgren, hagfræðingur og ráðgjafi fjölda Bandaríkjaforseta í alþjóðamálum í gegnum tíðina, skrifar grein á vefmiðilinn Unherd í dag, þar sem hann lýsir persónulegum kynnum sínum af Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Erlent 24. febrúar 2022 12:44
„Sorglegt að við séum að horfa upp á stríðsátök í Evrópu á þessum tímum“ Forsætisráðherra fordæmir innrás Rússa í Úkraínu og segir að íslensk stjórnvöld muni þegar í stað leggja aukið fé í mannúðaraðstoð. Þá megi búast við aukinni umferð og liðsflutningum af hálfu Atlantshafsbandalagsins um varnarsvæðið á næstu dögum og vikum. Innlent 24. febrúar 2022 12:31
Neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka í Úkraínu Rauði krossinn hefur hafið neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka í Úkraínu sem hófust í morgun. Alþjóða Rauði krossinn er þegar með umfangsmikla mannúðaraðstoð í landinu vegna ástandsins sem hefur varað í austur Úkraínu undanfarin átta ár og vinnur hönd í hönd með Rauða krossinum í Úkraínu við að mæta þörfum almennra borgara og lina þjáningar vegna vopnaðra átaka. Heimsmarkmiðin 24. febrúar 2022 12:25
Rússar fá að keppa í Eurovision þrátt fyrir allt Rússland mun fá að taka þátt í Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, þrátt fyrir innrás í Úkraínu. Þetta tilkynntu skipuleggjendur keppninnar í hádeginu. Erlent 24. febrúar 2022 12:17
Sextán íslenskir ríkisborgarar enn í Úkraínu Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins fylgist grannt með stöðu 28 einstaklinga sem staddir eru í Úkraínu. Sextán þeirra eru íslenskir ríkisborgarar og hinir tólf hafa náin tengsl við Ísland, eru annað hvort makar eða börn íslenskra ríkisborgara. Innlent 24. febrúar 2022 11:58
„Ég svara ykkur eftir nokkra daga ef ég verð enn á lífi“ Þessi orð mælti faðir Oksönu Shabatura þegar hún bað hann um að leggja mat á ástandið og spá fyrir um framhaldið í Úkraínu. Þau eru til marks um þá óvissu og skelfingarástand sem almenningur í Úkraínu býr nú við. Innlent 24. febrúar 2022 11:57
Búast við að virkja viðbragð við Keflavíkurflugvöll „Það sem kann að gerast er að virkjaðar verði viðbragðsáætlanir, varnaráætlanir, sem myndi þá og gæti þýtt - jafnvel óháð því hvort það yrði gert að aukinn viðbúnaður, aukin viðvera, aukið eftirlit og þar er Keflavíkursvæðið mikilvægt svæði. Og svona strategísk staðsetning okkar hér gerir það að verkum að það má búast við því að það verði aukinn viðbúnaður, aukið eftirlit og frekara viðbragð, hér eins og annars staðar.“ Innlent 24. febrúar 2022 11:49
Rússneski sendiherrann kallaður á teppið Mikhaíl V. Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi var kallaður á teppið í utanríkisráðuneytingu, bæði í gær og í dag, þar sem íslensk stjórnvöld fordæmdu árásir Rússa í Úkraínu. Forsætisráðherra segir það sorglegt að stríðsátök hafi brotist út í Evrópu. Innlent 24. febrúar 2022 11:24
Hlutabréfamarkaðir rauðir en olía og gull rýkur upp Verðið á Brent Norðursjávarolíu er komið upp fyrir hundrað Bandaríkjadali á tunnuna í fyrsta skipti frá árinu 2014 í kjölfar innrásar Rússa inn í Úkraínu sem talið er að geti haft áhrif á framboð olíu. Viðskipti erlent 24. febrúar 2022 11:21
Aukafréttatími í hádeginu vegna innrásar í Úkraínu Rússneski herinn gerði í morgun innrás í Úkraínu að skipan Vladimír Pútín forseta Rússlands. Sprengjum hefur rignt yfir nokkrar borgir Úkraínu, innrás úr norðri, austri og suðri en fólksflótti er frá höfuðborginni Kiev í vestur. Innlent 24. febrúar 2022 10:22
Veruleiki fólks í Úkraínu Árásir rússneskra hersveita hafa kollvarpað lífi íbúa í Úkraínu. Greint hefur verið frá því að Rússar hafi skotið flugskeytum á nokkrar borgir í Úkraínu í morgun. Þá hefur stór hópur hermanna einnig ráðist inn í landið. Erlent 24. febrúar 2022 09:02
Forsætis- og utanríkisráðherra Íslands fordæma árásina á Úkraínu fortakslaust Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkiráðherra hafa fordæmt árás Rússa án fyrirvara. Innlent 24. febrúar 2022 08:41
Vaknaði við sprengingar: „Það var sjokk að vakna við þetta í morgun“ Óskar Hallgrímsson ljósmyndari sem er búsettur í Kænugarði í Úkraínu vaknaði við sprengingar í nótt. Rússar hafa hafið innrás af fullum krafti en Óskar segir að stríður straumur sé af íbúum Kænugarðs út úr borginni. Fólk er að flýja vestur. Innlent 24. febrúar 2022 08:08
Markmiðið að brjóta niður hernaðarmátt Úkraínu og „afmá nasismann“ Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði þjóð sína klukkan þrjú að íslenskum tíma þar sem hann sagðist hafa samþykkt hernaðaraðgerð í aðskilnaðarhéruðunum Luhansk og Donetsk í Úkraínu. Erlent 24. febrúar 2022 07:44
„Þetta er stríð“ Sendiherra Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum segir að átökin sem hafin eru þar í landi séu stríð. Rússar hófu allsherjarinnrás í landið í morgun og sprengjum rignir nú yfir úkraínskar borgir. Erlent 24. febrúar 2022 07:22
Segir að alþjóðasamfélagið muni draga Rússa til ábyrgðar Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur brugðist við því sem hann kallar „tilefnislausa og óréttlætanlega“ árás rússneskra hersveita á Úkraínu. Hann segir heiminn allan biðja fyrir Úkraínumönnum og standi með þeim. Erlent 24. febrúar 2022 07:08
Vaktin: Allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu Her Rússlands gerði innrás í Úkraínu eftir skipun frá Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í nótt. Innrásin hófst á sprengjuregni í nokkrum borgum Úkraínu og innrás úr norðri, austri og suðri. Erlent 24. febrúar 2022 06:23
„Skref sem gæti markað upphaf stríðs í gjörvallri Evrópu“ Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu ávarpaði þjóð sína í kvöld þar sem hann segir að yfirvöld í Rússlandi hafi fyrirskipað innrás og að þetta skref Rússa gæti verið upphafið á stríði í gjörvallri Evrópu. Erlent 23. febrúar 2022 23:27
Úkraína óskar eftir neyðarfundi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna Úkraína hefur óskað eftir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna komi saman á neyðarfundi vegna ástandsins í landinu. Gervihnattamyndir sýna skýrt liðssöfnun Rússa við landamærin. Erlent 23. febrúar 2022 22:55
Aðskilnaðarsinnar biðja Rússa um hernaðaraðstoð Aðskilnaðarsinnar í héruðunum Doetsk og Luhansk í Úkraínu hafa óskað eftir hernaðaraðstoð frá Rússlandi til að bregðast við ágangi Úkraínumanna. Þetta hefur AP fréttastofan eftir talsmanni Kreml. Erlent 23. febrúar 2022 22:31
Neyðarástandi lýst yfir í Kiev Borgarstjórinn í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði hefur lýst yfir neyðarástandi í borginni sem tekur gildi á miðnætti. Erlent 23. febrúar 2022 22:29
Þorgerður Katrín: Samstaða á alþjóðavettvangi framar viðskiptahagsmunum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingmaður Viðreisnar segir stöðuna í Úkraínu óþolandi og grafalvarlega. Utanríkismálanefnd Alþingis fundaði tvívegis um málið í dag. Innlent 23. febrúar 2022 21:14
Úkraínska þingið samþykkir að lýsa yfir neyðarástandi Úkraínska þingið samþykkti rétt í þessu að lýsa yfir neyðarástandi í landinu vegna yfirvofandi allsherjarinnrásar Rússa í landið. Erlent 23. febrúar 2022 20:21
Forseti Úkraínu segir Úkraínumenn standa eina í vörnum landsins Atkvæðagreiðslu um tillögu Öryggis- og varnamálaráðs Úkraínu um að lýsa yfir neyðarástandi í landinu vegna hernaðaraðgerða Rússa var slegið á frest í dag eftir víðtæka árás á tölvukerfi landsins. Utanríkisráðherra Lettlands hvetur til enn harðari refsiaðgerða en samþykktar hafa verið. Utanríkismálanefnd Alþingis fundaði tvívegis um úkraínudeiluna í dag. Erlent 23. febrúar 2022 20:00