Íslenski boltinn

Íslenski boltinn

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Valur - KA | Nær KA að sleppa frá falli?

Hér fer fram textalýsing frá leik Vals og KA í fjórðu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta. Flautað verður til leiks á N1-vellinum á Hlíðarenda klukkan 14:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Bjarni Jó hættur

Reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er hættur þjálfun og yfirgefur sviðið sem leikjahæsti þjálfari Íslandssögunnar til þessa. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Áttum mun meira skilið úr þessum leik“

Haraldi Frey Guðmundssyni, þjálfara Keflavíkur, fannst að fótboltaguðirnir hefðu átt að verðlauna hans lið með stigi eða stigum þegar liðið tapaði fyrir Breiðabliki í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. 

Fótbolti
Fréttamynd

„Flott frammi­staða miðað við að­stæður“

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, hrósaði leikmönnum sínum fyrir að spila flottan fótbolta í þeim veðuraðstæðum sem veðurguðirnir buðu upp á þegar Blikar unnu Keflavík í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. 

Fótbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skaga­menn sóttu stig í Fossvoginn

Víkingur og ÍA gerðu 2-2 jafntefli á Víkingsvelli í 25. umferð Bestu deildar karla. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum Valdimars Þórs Ingimundarsonar og Arons Elís Þrándarsonar en Skagamenn unnu sig inn í leikinn. Markús Páll Ellertsson minnkaði muninn fyrir hlé og sjálfsmark Olivers Ekroth í upphafi síðari hálfleiks tryggði ÍA stig.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Í fyrsta sinn sem við vinnum ó­sann­gjarnt“

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir að barátta og seigla hafi skilað stigunum þremur á móti Fram í rimmu liðanna í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. KR-liðið hafi í fyrsta skipti í sumar innbyrt sigur sem liðið átti sennilega ekki skilið. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta var alltaf mitt mark“

Áhöld eru um hvort Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, hafi skorað fyrra mark liðsins þegar liðið vann Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld og þar af leiðandi jafnað markamet Benónýs Breka Andréssonar í efstu deild. 

Fótbolti