

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Berglind Rós Ágústsdóttir, fyrirliði og óvæntur markaskorari Fylkis í dag, var ekkert alltof sátt með stigið sem liðið náði í gegn Stjörnunni í dag. Hún tekur þó stiginu og fagnar að fyrsta – og líklega eina – mark sumarsins sé komið.
Fram og Leiknir Reykjavík eru í harðri baráttu um að komast upp í Pepsi Max deild karla en bæði lið unnu sína leiki í dag.
Liðin í 4. og 5. sæti í Pepsi Max deild kvenna gerðu 1-1 jafntefli á Samsung-vellinum í Garðabænum í dag.
Kórdrengir slátruðu Fjarðabyggð 6-1 í 2. deild karla í Fjarðabyggðahöllinni í dag. Með sigrinum eru Kórdrengirnir prúðu komnir langleiðina með að tryggja sæti sitt í Lengjudeildinni á næsta tímabili, sem er næstefsta deild á Íslandi.
Stærstu leikir tímabilsins í Pepsi Max deild kvenna eru tvímælalaust leikir Breiðabliks og Vals. Valur er á toppnum með einu stigi meira en Breiðablik, en Blikar eiga leik til góða. Liðin mætast á Hlíðarenda í dag kl. 17:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Að venju er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum á þessum laugardegi.
Tindastóll tryggði endanlega toppsætið í Lengjudeild kvenna eftir sigur á ÍA í kvöld.
Stefán Teitur Þórðarson, einn besti leikmaður Pepsi Max deildarinnar í knattspyrnu, mun spila í Danmörku frá og með næstu helgi.
Erik Hamrén kveðst bjartsýnn fyrir leikinn gegn Rúmeníu enda aldrei getað valið jafn sterkan hóp síðan hann tók við íslenska karlalandsliðinu.
Ætli Blikarkonur að fara langt með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn á morgun þá þurfa þær að gera eitthvað sem þær hafa ekki náð í meira en fimm ár.
„Þetta eru oft mörk sem að skila sér inn í svona stóra leiki“ segir Margrét Lára Viðarsdóttir um mörkin úr föstu leikatriðum þar sem Blikakonur hafa gert svo vel í Pepsi Max deild kvenna í sumar.
Birkir Már Sævarsson hefur farið á kostum í Pepsi Max deildinni að undanförnu og fékk sæti í landsliðshópnum sem mætir Rúmeníu, Danmörku og Belgíu.
Mesti markaskorari Valsliðsins hefur ekki skorað á móti Blikum í meira en þrjú ár og á morgun er úrslitaleikur Vals og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn.
Erik Hamrén tilkynnti í dag landsliðshópinn fyrir leikina gegn Rúmeníu, Danmörku og Belgíu.
Valskonur þurfa að hafa sérstaklegar góðar gætur á tveimur leikmönnum Breiðabliks leiknum í stórleiknum á morgun.
Þrír leikir fóru fram í Pepsi Max-deild karla í gær. Sex mörk voru skoruð í leikjunum þremur.
„Liðin eru bæði á mikið betri stað en þau voru í fyrri leiknum,“ segir Mist Rúnarsdóttir um Breiðablik og Val sem mætast í hálfgerðum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta á morgun.
Ummælum Rúnars Kristinssonar, þjálfara KR, í garð Fylkismannsins Ólafs Inga Skúlasonar hefur verið vísað til aga- og úrskurðanefndar KSÍ.
Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður knattspyrnuliðs Keflavíkur, hefur hafnað tilboði enska D-deildarliðsins Oldham Athletic og ætlar að klára tímabilið með Keflavík.
Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, var sáttur með sigur sinna manna gegn Víking eftir allt sem hefur gengið á undanfarið. Hann hrósaði Guðjóni Orra Sigurjónssyni sérstaklega en markvörðurinn varði víti í 2-0 sigri í kvöld.
Hilmar Árni Halldórsson bjargaði stigi fyrir Stjörnuna með marki í uppbótartíma er FH mætti í Garðabæinn í 14. umferð Pepsi Max deildar karla.
Þjálfari Stjörnunnar hældi Haraldi Björnssyni, markverði liðsins, eftir jafnteflið við FH á Samsung-vellinum í kvöld.
Íslandsmeistarar KR lögðu bikarmeistara Víkings í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Líkt og í fyrri leiknum fór leikurinn 2-0 fyrir KR.
Leikið var í 14. umferð Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Breiðablik og KA skildu jöfn á Kópavogsvelli og markaskorari Blika var svekktur í leikslok.
Breiðablik og KA skildu jöfn í kvöld er þau mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu.
Rúnar Kristinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara KR til ársins 2023.
„Liðin hafa sent skýr skilaboð sín á milli og þetta verður gríðarlega spennandi á laugardaginn,“ segir Margrét Lára Viðarsdóttir um toppslaginn á milli Vals og Breiðabliks í Pepsi Max-deildinni.
Víkingar sáu rautt í bókstarflegri merkingu þegar þeir mættu KR síðast í Pepsi Max deild karla í fótbolta en liðin mætast aftur í Vikinni í kvöld.
Fylkismenn ætla ekki að kæra ummæli Rúnars Kristinssonar, þjálfara KR, eftir leik liðanna á sunnudaginn til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ.
Ummæli tökumanns Gróttu TV í garð dómara kostuðu Gróttu 50 þúsund krónur.