

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Eyjamönnum og Keflavíkurkonum spáð sigri í Lengjudeildunum
ÍBV og Keflavík er spáð sigri í Lengjudeildum karla og kvenna í knattspyrnu en kynningarfundur Lengjudeildanna fór fram í dag.

Eitt tap í viðbót og draumar um Íslandsmeistaratitil eru úr sögunni
Með tapinu gegn Breiðablik í gær er ljóst að lið Selfyssinga má ekki tapa leik það sem eftir lifir sumars ætli þær sér að verða Íslandsmeistarar.

Ólafur Ingi um Rúnar Pál: Með krónískt hæsi eftir að hafa gargað samfleytt á íslenska dómara í sex ár
Ólafur Ingi Skúlason, aðstoðarþjálfari og fyrirliði Fylkis, lét gamminn geisa á Twitter í gær en Ólafur Ingi fékk rautt spjald í leik Fylkis og Stjörnunnar fyrr í vikunni.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 3-0 | Auðveldur sigur hjá Garðbæingum
Garðabæjarstúlkur eru komnar á sigurbraut eftir þægilegan 3-0 sigur á FH í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Nýliðarnir gáfu meisturunum leik
Nýliðar Þróttar fengu verðugt verkefni í kvöld þegar Íslandsmeistararnir komu í heimsókn.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Fylkir 1-3 | Fylkir með verðskuldaðan sigur í Vesturbæ
Fylkir bar sigurorð af KR í Vesturbænum í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Lokatölur 3-1 fyrir Árbæingum.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Breiðablik 0-2 | Blikasigur í kaflaskiptum leik
Breiðablik sigraði Selfoss með tveimur mörkum gegn engu í Pepsi Max deild kvenna í kvöld.

Segir KA vilja vera Bayern norðursins
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að það sé mikilvægt fyrir KA að spila á mikið af norðanmönnum því þeir vilji vera Bayern norðursins. Þetta sagði hann í Pepsi Max-stúkunni á mánudagskvöldið.

Dagný skoraði þegar Selfoss vann Blika síðast fyrir sex árum
Í stórleik kvöldsins heimsækja Blikakonur lið sem þær hafa ekki tapað fyrir í úrvalsdeildinni í sex ár.

Nýtt sjónarhorn á sigurmark KR: „Það liggur við að þeir geti haldist í hendur“
KR vann 1-0 sigur á Val í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla um síðustu helgi en leikurinn var opnunarleikur sumarsins í Pepsi Max-deild karla. Sigurmarkið skoraði Óskar Örn Hauksson eftir fyrirgjöf og vandræðagang í vörn Vals.

Nýliðar Fjölnis fá framherja frá Víking
Örvar Eggertsson hefur fært sig um set og mun taka slaginn með Fjölni í Pepsi Max deildinni í sumar.

Fimm leikir sýndir beint í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla
32 liða úrslit Mjólkursbikars karla eru nú öll staðfest með leikdögum og leiktímum.

KR-liðið minnir Hjörvar á San Antonio Spurs með Ginóbili, Duncan og Parker
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að ólseigt lið KR í Pepsi Max-deild karla minni hann á San Antonio Spurs í kringum tímabilið 2014. Þeir neita að gefast upp og láta ekki umræðu spekinga hafa áhrif á sig.

„Hann er hrikalega góður en hann er með skrokk níræðs manns“
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, vonast til þess að Ólafur Örn Eyjólfsson, leikmaður HK, springi enn frekar út í sumar en Hjörvar ræddi um miðjumanninn öfluga í Pepsi Max-stúkunni á mánudagskvöldið.

Hjörvar um breiddina fram á við hjá HK: „Skelfilegt mál“
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur, segir að það sé skelfilegt mál að HK vakni upp við þann vondan draum að vera varla með framherja er Pepsi Max-deild karla er farinn af stað.

Segir að Hilmar Árni hafi ekki æft aukaspyrnurnar síðan 2016
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að hann hafi ekki séð Hilmar Árna Halldórsson æfa aukaspyrnur í nokkur ár en þrátt fyrir það hefur hann raðað inn mörkum úr aukaspyrnum.

Keflavík þéttir raðirnar
Keflavík hefur styrkt raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en Helgi Þór Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Dagskráin í dag: Spænskur fótbolti á þjóðhátíðardaginn
Tveir leikir í spænska boltanum eru í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 í dag en beinum útsendingum fer fjölgandi eftir að boltinn fór að rúlla víðs vegar um heiminn eftir kórónuveiruhléið.

„Heldur þú að Óskar tæki einhvern úr Gróttu í æfingahóp sinn?“
Breiðablik vann afar sannfærandi 3-0 sigur á nýliðum Gróttu í 1. umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. Getumunurinn á liðunum virtist mjög mikill.

Haukur Páll fór upp í 33 skallaeinvígi í KR-leiknum
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Valsmanna, var heldur betur í eldlínunni í opnunarleik Vals og KR í Pepsi Max deild karla og það sýnir tölfræðin.

Tár á hvarmi eftir mark Kristins - Enginn hringdi eftir síðasta tímabil
„Það mátti sjá tár á hvarmi. Það voru allir ofboðslega ánægðir fyrir hönd Kidda,“ sagði Gummi Ben í Pepsi Max stúkunni þegar rætt var um Kristin Steindórsson og langþráð mark hans gegn Gróttu á sunnudag.

Atli tók langflesta spretti: „Búinn að breyta sér úr lúxusleikmanni“
Atli Sigurjónsson hljóp 1,4 kílómetra á spretti, það er að segja á yfir 20 km/klst, þegar hann lék með KR gegn Val í 1. umferð Pepsi Max-deildinni í fótbolta.

Bara ef Rúnar Páll fengi Fylki í hverri umferð: 33 stig af 33 mögulegum
Rúnar Páll Sigmundsson er búinn að stýra Stjörnumönnum til sigurs í öllum ellefu deildarleikjum sínum á móti Fylki síðan að hann tók við í Garðabænum.

Víkingar sakna Guðmundar: „Hver getur skorað þarna annar en Óttar?“
„Hver getur skorað þarna annar en Óttar?“ spurðu sérfræðingarnir sig í Pepsi Max stúkunni, þegar þeir ræddu um sóknarleik Víkings eftir að liðið varð að sætta sig við 1-1 jafntefli við nýliða Fjölnis í gærkvöld.

Sjáðu þegar hola myndaðist í andliti Ragnars Braga - Frá keppni næstu vikurnar
Ragnar Bragi Sveinsson verður ekki með Fylki næstu vikurnar eftir að hann skall illa með höfuðið saman við Daníel Laxdal í 2-1 tapinu gegn Stjörnunni í Pepsi Max deildinni í fótbolta í gærkvöld.

Segir brot Ólafs Inga ótrúlega heimskulegt: „Þetta er bara árás“
„Þetta er bara árás. Alveg hrikalega gróft,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, um tæklingu Ólafs Inga Skúlasonar í Fylki sem fékk rautt spjald fyrir brot í leik liðanna í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-1 | Dramatík í Garðabæ
Stjarnan vann Fylki á dramatískan hátt í Pepsi Max deild karla í kvöld. Lokatölur 2-1, en sigurmarkið kom undir lok leiksins í uppbótartíma.

Óli Stígs: Ánægður með vinnusemina í strákunum
Stjarnan vann Fylki á dramatískan hátt í Pepsi Max deild karla í kvöld. Lokatölur 2-1, en sigurmarkið kom undir lok leiksins í uppbótartíma.

HK fær framherja
HK hefur fengið Stefan Alexander Ljubicic til liðs við sig og á hann að styrkja liðið fyrir komandi átök í Pepsi Max-deild karla.

Hilmar Árni: Mjög gaman að spila aftur alvöru leiki
Stjarnan vann dramatískan sigur á Fylki í Pepsi Max deild karla í kvöld, lokatölur 2-1 í Garðabænum þar sem Stjörnumenn tryggðu sigurinn í blálokin.