Biden viðurkennir þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Joe Biden Bandaríkjaforseti varð í gær fyrsti forseti Bandaríkjanna til þess að formlega lýsa fjöldamorðunum á Armenum árið 1915 sem þjóðarmorði. Morðin áttu sér stað í þá deyjandi Ottómanveldinu þar sem nú er Tyrkland. Erlent 25. apríl 2021 07:47
Bandaríkin vilja leiða baráttuna gegn loftslagsvánni Bandaríkin kynntu í dag nýja lofslagsáætlun en ríkið stefnir á að draga úr mengun gróðurhúsalofttegunda um 50-52 prósent, miðað við losun árið 2005, fyrir 2030. Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti áætlunina á loftslagsráðstefnu í dag. Erlent 22. apríl 2021 18:41
Talibanar með pálmann í höndunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í vikunni þá ákvörðun að kalla alla hermenn Bandaríkjanna heim frá Afganistan fyrir 11. september næstkomandi. Það ætlar hann að gera án þess að setja talibönum skilyrði. Ákvörðunin gæti reynst íbúum landsins afdrifarík. Erlent 17. apríl 2021 23:01
Nýskilinn, aleinn og við það að drekka sig í hel Hunter Biden, sonur Joe Biden Bandaríkjaforseta, ræddi glímu sína við áfengis- og kókaínfíkn í ítarlegu viðtali við breska ríkisútvarpið BBC í gær. Þá var hann einnig spurður út í gagnrýni sem hann og faðir hans sættu vegna stjórnarsetu þess fyrrnefnda í úkríanska orkufyrirtækinu Burisma. Erlent 6. apríl 2021 15:04
Hundur Bidens beit starfsmann Hvíta hússins Major, annar hunda Joe Biden Bandaríkjaforseta og Jill Biden konu hans, beit starfsmann Hvíta hússins á mánudaginn var. Þetta er í annað sinn sem Major, sem er þýskur fjárhundur, bítur frá sér eftir komuna í Hvíta húsið. Erlent 31. mars 2021 07:10
Forsetinn líkir nýjum kosningalögum í Georgíu við Jim Crow Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur líkt nýjum kosningalögum í Georgíu við ódæðisverk og kallað þau „Jim Crow á 21. öldinni“. Biden varð í fyrra fyrsti demókratinn til að tryggja sér kjörmenn ríkisins frá 1992. Erlent 27. mars 2021 08:22
Tvöfaldaði bólusetningarmarkmiðið og staðfesti framboð 2024 Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að ríkisstjórn hans hygðist útdeila 200 milljón bóluefnisskömmtum á fyrstu hundrað dögum hans í embætti. Það eru tvöfalt fleiri skammtar en Biden hafði áður lofað að yrðu gefnir á sama tímabili. Erlent 25. mars 2021 23:50
Bein útsending: Fyrsti blaðamannafundur Joe Biden í embætti Joe Biden forseti Bandaríkjanna heldur sinn fyrsta blaðamannafund nú síðdegis síðan hann tók við embætti forseta. Beina útsendingu af fundinum má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan. Erlent 25. mars 2021 17:28
McConnell varar við „sviðinni jörð“ í öldungadeildinni Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, varaði Demókrata í gær við því að Repúblikanar myndu skilja eftir sig sviðna jörð ef reglan um aukin meirihluta verði felld niður. Joe Biden, forseti, segist styðja að breyta reglunni til fyrra horfs. Erlent 17. mars 2021 10:27
Fyrsti ráðherra Bandaríkjanna af frumbyggjaættum Bandarískir öldungadeildarþingmenn staðfestu í gærkvöldi tilnefningu þingkonunnar Deb Haaland í embætti innanríkisráðherra. Þar með varð hún fyrsti fumbygginn sem verður ráðherra í sögu Bandaríkjanna. Erlent 16. mars 2021 09:33
Biden til þjóðarinnar: „Ég þarfnast ykkar“ Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur vakið mikla athygli fyrir ávarp til bandarísku þjóðarinnar í gær, þar sem umfjöllunarefnið var kórónuveirufaraldurinn. Keppast menn nú við að bera saman nýjan tón Biden við það stef sem hefur glumið síðustu ár. Erlent 12. mars 2021 16:55
1,9 billjóna aðgerðapakki Bidens gerður að lögum Joe Biden Bandaríkjaforseti skrifaði í dag undir lög um eina umfangsmestu efnahagsinnspýtingu í sögu Bandaríkjanna til að ráða niðurlögum kórónuveirufaraldursins og koma hjólum atvinnulífsins aftur á hreyfingu. Erlent 11. mars 2021 23:30
Ein stærsta efnahagsinnspýting í sögu Bandaríkjanna samþykkt Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti endanlega eina umfangsmestu efnahagsinnspýtingu í sögu Bandaríkjanna til að ráða niðurlögum kórónuveirufaraldursins og koma hjólum atvinnulífsins aftur á hreyfingu. Aðgerðapakkinn var eitt stærsta stefnumál Joes Biden forseta og demókrata á Bandaríkjaþingi. Erlent 11. mars 2021 09:37
Biden í basli á landamærunum Þrátt fyrir að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hafi skrifað undir forsetatilskipanir og gripið til annarra aðgerða á fyrsta degi í embætti, hefur það litlum árangri skilað á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Í ljósi þess öngþveitis sem ríkir þar. Erlent 9. mars 2021 23:01
Hundur Joes Biden til vandræða og sendur burt úr Hvíta húsinu Tveimur hundum bandarísku forsetahjónanna Joe og Jill Biden, hefur verið vísað burt úr Hvíta húsinu í Washington og þeir sendir aftur til heimilis Biden-hjónanna í Delaware. Þetta var gert í síðustu viku eftir að annar hundanna, Major Biden, sýndi af sér árásargjarna hegðun. Erlent 9. mars 2021 14:19
Samþykktu tveggja billjóna efnahagsaðgerðir Bidens vegna faraldursins Einn af hverjum þremur Bandaríkjamönnum hafa misst einhvern nákominn vegna Covid-19. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær efnahagslegar mótvægisaðgerðir Joes Biden Bandaríkjaforseta til bregðast við áhrifum faraldursins. Erlent 7. mars 2021 13:47
Aukin öryggisgæsla við bandaríska þinghúsið Öryggisgæsla hefur verið aukin umhverfis þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum þar sem lögregla óttast að aftur verði reynt að ráðast inn í húsið líkt og gerðist þegar kjör Joe Bidens var formlega staðfest í byrjun janúar þar sem fimm létu lífið. Erlent 4. mars 2021 07:02
Trump herðir tökin á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gærkvöldi að hann ætlaði sér ekki að sleppa tökunum á Repúblikanaflokknum. Þess í stað væri hann að herða tökin og gaf hann í skyn að hann gæti boðið sig fram aftur til forseta fyrir kosningarnar 2024. Erlent 1. mars 2021 09:00
Biden skrefinu nær því að ná björgunarpakkanum í gegn Björgunarpakkafrumvarp Joes Biden Bandaríkjaforseta var samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í nótt. Frumvarpið gerir ráð fyrir opinberum útgjöldum upp á 1.900 milljarða dollara. Erlent 27. febrúar 2021 09:35
Bandaríkjaher gerir loftárás í austurhluta Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gærkvöldi loftárásir á mannvirki við landamærastöð í Sýrlandi sem notuð er af fjölda vígasamtaka sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Íran. Enn sem komið er hafa engar fregnir borist um mannfall. Erlent 26. febrúar 2021 08:01
Biden minntist þeirra sem hafa látist í faraldrinum Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóð sína í gærkvöldi í tilefni af þeim sorglega áfanga að nú hafa 500 þúsund Bandaríkjamenn dáið af völdum Covid-19, fleiri en í nokkru öðru landi. Erlent 23. febrúar 2021 06:49
Bandaríkin nú formlegir aðilar að Parísarsamkomulaginu á ný Bandaríkin urðu í dag formlegir aðilar að Parísarsamkomulaginu svokallaða á ný, en það miðar að því að draga úr losun ríkja á gróðurhúsalofttegunum til að stemma stigu við loftslagsbreytingar. 107 dagar eru frá því að Bandaríkin gengu formlega úr samstarfinu. Erlent 19. febrúar 2021 13:38
Sýkna Trumps áminning um að lýðræðið er brothætt Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að sýkna Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, í ákæru um embættisbrot sé áminning um að lýðræði sé brothætt. Hann segir að þrátt fyrir sýknuna sé alvarleiki málsins ekki deiluefni. Erlent 14. febrúar 2021 13:29
Hættir eftir hótanir í garð blaðakonu TJ Ducklo, einn aðstoðarfjölmiðlafulltrúa Joes Biden Bandaríkjaforseta, hefur sagt upp störfum. Erlent 14. febrúar 2021 08:58
Segja það markmið forsetans að loka Guantanamo Joe Biden Bandaríkforseti hefur falið ráðgjöfum sínum að ráðast í formlega endurskoðun á starfsháttum Guantanamo-herfangelsisins sem rekið er af Bandaríkjaher á Kúbu, með það að markmiði að fangelsinu verði lokað áður en Biden lætur af embætti. Erlent 13. febrúar 2021 12:03
Talsmaður Biden víkur í viku fyrir hótanir í garð blaðakonu Einn talsmanna Joe Biden Bandaríkjaforseta hefur verið vikið tímabundið frá störfum vegna áreitni í garð blaðamanns. TJ Ducklo er sakaður um að hafa ógnað Töru Palmeri, blaðamanni Politico, þegar hann komst að því að hún væri að rannsaka samband Ducklo við annan blaðamann. Erlent 13. febrúar 2021 08:13
Herforingjarnir beittir efnahagsþvingunum Joe Biden forseti Bandaríkjanna hefur undirritað tilskipun þess efnis að leiðtogar herforingjastjórnarinnar í Mjanmar sem tóku völdin í landinu á dögunum verði beittir efnahagsþvingunum af hálfu Bandaríkjanna. Erlent 11. febrúar 2021 13:31
ICE óhlýðnast Biden og flytur börn í upplausnarástand á Haítí Bandaríska löggæslustofnunin sem sér um að framfylgja ákvörðunum í útlendingamálum sætir nú mikilli gagnrýni fyrir að hafa flogið með að minnsta kosti 22 börn til Haítí, þvert á yfirlýstan vilja bandarískra stjórnvalda. Erlent 9. febrúar 2021 09:05
Telur Trump ekki eiga að fá minnisblöð um þjóðaröryggismál Joe Biden Bandaríkjaforseti telur óráðlegt að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fái aðgang að minnisblöðum um þjóðaröryggismál. Hefð er fyrir því að fyrrum forsetar fái upplýsingar um þjóðaröryggismál, en að mati Biden er Trump of óútreiknanlegur. Erlent 6. febrúar 2021 11:02
Fyrsti samkynhneigði ráðherra Bandaríkjanna sem þingið staðfestir Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag tilnefningu Pete Buttigieg í embætti samgönguráðherra í ríkisstjórn Joes Biden. Erlent 2. febrúar 2021 21:17
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent