Sterkar vísbendingar um stóran koparfund Amaroq á Grænlandi Nýjar rannsóknir málmleitarfyrirtækisins Amaroq Minerals sviptu hulunni af málmbelti sem ber mjög svipuð einkenni og ein stærsta og verðmætasta koparnáma heims sem er staðsett í Ástralíu. Innherji 23. nóvember 2022 16:51
Útilokar að ríkisstjórnin endurtaki tilboðsleiðina Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir útilokað að núverandi ríkisstjórn beiti aftur tilboðsfyrirkomulagi við næstu sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Innlent 23. nóvember 2022 11:42
Bein útsending: Bjarni svarar spurningum um Íslandsbankaskýrsluna Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund í dag vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Fjármálaráðherra er á meðal þeirra sem svarar spurningum nefndarinnar í dag. Innlent 23. nóvember 2022 09:15
Kveðja Stjörnutorg fyrir fullt og allt með tónlistaratriðum og gefins bíómiðum Kveðjuhóf verður haldið á Stjörnutorgi í Kringlunni klukkan 11:30 á morgun. Gestalistinn er öllum opinn en rapparinn Daniil tekur lagið, Gústi B þeytir skífum og gefnir verða bíómiðar. Nýtt veitinga- og afþreyingarsvæði, Kúmen, opnar á allra næstu dögum og lokar Stjörnutorg því eftir 23 ára starfsemi. Lífið 22. nóvember 2022 18:44
Hækkar verðmat Íslandsbanka vegna betri reksturs þrátt fyrir dekkri horfur Jakobsson Capital hefur hækkað verðmat sitt á Íslandsbanka um níu prósent einkum í ljósi þess að grunnreksturinn gengur betur en gert var ráð fyrir. Engu að síður eru „örlítið dekkri horfur“ þegar kemur að bankarekstri á næsta ári. Innherji 22. nóvember 2022 15:31
Einkavæðing banka og ábyrgð ráðherra Það má öllum vera ljóst að stjórnarsamstarfið er undir þegar ráðherrar tjá sig um bankasöluna og ábyrgð fjármálaráðherrans. Ef þau viðurkenna ábyrgð hans þá verður krafan eindregnari um að hann segi af sér, fari þau ekki fram á það sjálf. En hversu langt ætla þau að ganga? Skoðun 22. nóvember 2022 13:30
Aðstoðarritstjóri Euromoney gagnrýnir skýrslu um sölu á Íslandsbanka Aðstoðarritstjóri Euromoney gagnrýnir nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Hann segir að verðið í útboðinu hafi verið sanngjarnt einkum í ljósi krefjandi markaðsaðstæðna. Það hefði haft dýrkeyptar afleiðingar fyrir innlenda hlutabréfamarkaðinn að selja á hærra gengi miðað við eftirspurnina. Að sama skapi hafi umræða um tiltekið Excelskjal verið á villigötum. Innherji 22. nóvember 2022 13:03
Halldór og Róbert slíðra sverðin Sættir hafa náðst á milli lyfjafyrirtækisins Alvogen og Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, sem bar Róbert Wessman forstjóra þess þungum sökum í fyrra. Alvogen féll frá málsókn gegn Halldóri sem segist nú ekki lengur hafa stöðu uppljóstrara. Viðskipti innlent 22. nóvember 2022 12:18
Staðreyndir og þvættingur um úttekt Ríkisendurskoðunar Það hefur verið sagt að það sé vísindalega sannað að það sé ómögulegt annað en að vera vitur eftir á. Við höfum orðið vitni að því síðustu daga þegar þekkt bandalag stjórnarandstöðuflokka og sumra fjölmiðlamanna, fóðruð með skýrslu Ríkisendurskoðunar, hefur tekið það að sér að útskýra fyrir landsmönnum hvernig hefði átt að standa að sölu á stórum hlut í banka sem er skráður á markað. Þar er teygt sig langt við að snúa öllum staðreyndum á haus til að þjóna eigin pólitískri hentisemi. Umræðan 22. nóvember 2022 08:56
IFS lækkaði verðmat Marels um 22 prósent og ráðleggur að halda bréfunum IFS Greining hefur lækkað verðmat sitt á Marel um 22 prósent og mælir með því að fjárfestar haldi bréfum sínum. Lækkunina má einkum rekja til þess að meðaltal fjármagnskostnaðar (e. Weighted Average Cost of Capital, WACC) hækkaði um 1,4 prósentustig vegna þess að áhættulausir vextir og áhættuálag á hlutabréf hafa hækkað. Innherji 21. nóvember 2022 14:18
Marel fjárfestir í tæknifyrirtæki sem sótti fjóra milljarða til fjárfesta Marel fjárfesti í tæknifyrirtækinu Soft Robotics fyrir skemmstu ásamt fleiri fjárfestum. Fyrirtækið, sem staðsett er í Boston í Bandaríkjunum, þróar sjálfvirkar lausnir til að grípa til dæmis matvæli af færibandi með þjörkum og raðar þeim í kassa. Innherji 18. nóvember 2022 15:23
Magnús Þór til Kviku Magnús Þór Gylfason, fyrrverandi forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, hefur verið ráðinn tik Kviku banka. Hann á að hefja störf þar á nýju ári. Viðskipti innlent 17. nóvember 2022 21:45
„Mikil samlegðartækifæri “ í kaupum Hampiðjunnar á Mørenot Ljóst er að „mikil samlegðartækifæri eru til staðar“ samhliða kaupum Hampiðjunnar á Mørenot. Skráning Hampiðjunnar á Aðalmarkað á næsta ári mun fjölga tækifærum til ytri vaxtar enn frekar og bæta verðmyndun. Þetta segir forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS. VÍS er níundi stærsti hluthafi Hampiðjunnar. Innherji 17. nóvember 2022 15:05
Þorbjörg segir „innanhúsmet í meðvirkni“ hafa fallið á Alþingi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, er ósátt með þann farveg sem umræðan um Íslandsbankasölumálið er farin í á Alþingi. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins töldu ástæðu til að vekja máls á þeim leka sem varð á skýrslu ríkisendurskoðunar til fjölmiðla. Trúnaður átti að ríkja um skýrsluna í sólarhring til að gefa nefndarmönnum stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar Alþingis ráðrúm til að gaumgæfa hana áður en fjölmiðlar inntu þá eftir svörum um efni hennar. Innlent 17. nóvember 2022 14:54
Athugasemdir Bankasýslunnar „allrar athygli verðar“ og varpi mögulega ljósi á að vinna Ríkisendurskoðunar þarfnist skoðunar Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ef athugasemdir Bankasýslu ríkisins við skýrslu Ríkisendurskoðunar reynist réttar hafi ríkisendurskoðandi ekki staðið nógu faglega að skýrslugerð sinni. Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar telur ekki ástæðu til að efast um fagleg vinnubrögð ríkisendurskoðunar. Innlent 17. nóvember 2022 12:02
Rannsóknarnefnd strax Það hefur verið áhugavert að fylgja með viðbrögðum Bankasýslunnar við skýrslu Ríkisendurskoðanda. Bæði formaður og forstjóri hafa brugðist við og virðast ekki sjá neitt athugavert við leið sem valin var, hina svokölluðu tilboðsleið. Er Ríkisendurskoðandi m.a. sakaður um vanþekkingu á viðfangsefninu og seinagang. Skoðun 17. nóvember 2022 10:30
Hampiðjan stefnir á aðalmarkað eftir kaup á norsku félagi Hampiðjan hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í norska félaginu Mørenot sem er sagt leiðandi framleiðandi á lausnum fyrir sjávarútveg, fiskeldi og olíuiðnað. Stefnt er að því að hlutabréf í Hampiðjunni verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi á næsta ári, en bréfin eru nú skráð á First North-markaðnum. Viðskipti innlent 17. nóvember 2022 09:22
Segir úlfalda gerðan úr mýflugu í skýrslu Ríkisendurskoðunar Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins segir sýsluna ekki vera sammála þeim sjónarmiðum sem komi fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Verið sé að gera úlfalda úr mýflugu hvað suma annmarka varðar. Söluna hefði einnig mátt kynna betur fyrir almenningi. Viðskipti innlent 16. nóvember 2022 15:30
Kvika annast skráningu Arctic Adventures á næsta ári Arctic Adventures hefur ráðið Kviku banka sem aðalráðgjafa sinn vegna skráningar félagsins á hlutabréfamarkað. Skráning er fyrirhuguð á síðari hluta næsta árs. Þetta staðfestir Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Arctic Adventures í samtali við Innherja. Innherji 16. nóvember 2022 15:20
Ef einhvern skorti þekkingu og mannskap þá sé það hjá Ríkisendurskoðun Forstjóri Bankasýslu ríkisins hafnar því að stofnunin hafi ekki haft mannskapinn eða þekkinguna í að jafn flókið ferli og sala ríkisins á eignarhlut í Íslandsbanka var. Hann vandar Ríkisendurskoðun ekki kveðjurnar og segist ekki hafa gert nein mistök við framkvæmd útboðsins. Viðskipti innlent 16. nóvember 2022 14:15
Bankasýslan hafi haft fulla yfirsýn á heildareftirspurn í útboðinu Bankasýsla ríkisins hafnar því alfarið að hafa ekki haft fullnægjandi upplýsingar um heildareftirspurn í Íslandsbankaútboðinu í mars síðastliðnum, líkt og haldið er fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á 22,5 prósent hlut í Íslandsbanka í mars síðastliðnum. Innherji 16. nóvember 2022 12:31
Stoðir stækka stöðu sína í Kviku banka Fjárfestingafélagið Stoðir, langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Kviku, hefur stækkað stöðu sína í bankanum um nærri tíund. Kaupin í Kviku koma um einu ári eftir að félagið minnkaði hlut sinn um liðlega þriðjung þegar hlutabréfaverð bankans var í hæstu hæðum. Innherji 16. nóvember 2022 11:36
„Eitt stórt klúður frá upphafi til enda“ „Tilfinning þjóðarinnar reyndist rétt, það er staðfest í þessari skýrslu,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Kristrún flutti ræðu í sérstakri umræðu á Alþingi fyrr í kvöld þar sem Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra var til andsvara. Innlent 15. nóvember 2022 22:14
„Við í ríkisstjórn og fjármálaráðherra höfum axlað pólitíska ábyrgð“ Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina og fjármálaráðherra þegar hafa axlað pólitíska ábyrgð vegna söluferils Íslandsbanka. Viðskiptaráðherra segir framkvæmd Bankasýslunnar á frekari einfaldri sölu, hafa mistekist. Innlent 15. nóvember 2022 18:42
Segir greinargerð ráðherra vegna sölunnar hafa verið óskýra Ríkisendurskoðandi segir að það náist ekki heildarmynd af sölunni á Íslandsbanka fyrr en Fjármálaeftirlitið hefur lokið rannsókn sinni. Skýrsla stofnunarinnar sýni margskonar annmarka á söluferlinu og markmið ráðherra hafi ekki verið nægjanlega skýr í greinagerð með lögum. Innlent 15. nóvember 2022 17:26
Hvað svo? Stjórnartíð VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur ekki farið vel með heilsu ríkissjóðs. Viðvarandi hallarekstur hins opinbera er nú staðreynd sem ríkisstjórnin telur sig ekki geta undið ofan af á kjörtímabilinu. Meðalið, sem á að efla þrekið alla vega næsta árið, er fólgið í ríflega 70 milljarða söluandvirði þess hluta sem ríkið á enn í Íslandsbanka. Skoðun 15. nóvember 2022 16:30
Bjarni leggur áherslu á að lög hafi ekki verið brotin Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, hóf umræðu um skýrslu Ríkisendurskoðanda á Alþingi nú fyrir skömmu. Innlent 15. nóvember 2022 15:26
„Framkvæmdin var ekki nógu góð“ Viðskiptaráðherra segist ljóst að framkvæmd Íslandsbankaútboðsins hafi ekki verið nógu góð og að vönduð skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfesti það. Það séu vonbrigði að helstu sérfræðingar hafi ekki staðið betur að útboðinu sem eigi ekki að vera mjög flókið. Innlent 15. nóvember 2022 15:11
Matsbreyting eigna Regins fimmfalt hærri en Reita á þriðja ársfjórðungi Matsbreytingar fjárfestingaeigna fasteignafélaganna Regins og Reita voru mjög mismunandi á þriðja ársfjórðungi þrátt fyrir að efnahagsreikningur félaganna sé sambærilegur að stærð og samsetningu. Reginn færði mat á eignum sínum upp fimmfalt meira en Reitir. Innherji 15. nóvember 2022 12:42
Stjörnutorg verður að Kúmen Nýtt veitinga- og afþreyingasvæði Kringlunnar hefur fengið nafnið Kúmen. Sautján veitingastaðir verða á svæðinu en nokkrir þekktir staðir Stjörnutorgs munu hverfa á brott. Viðskipti innlent 15. nóvember 2022 10:49