Tilkynningar um andlát orðnar átta Lyfjastofnun var í gær tilkynnt um andlát aldraðrar manneskju sem fengið hafði bólusetningu gegn kórónuveirunni með bóluefni Pfizer. Engar vísbendingar eru um tengsl bólusetningarinnar og andlátsins. Stofnuninni hefur nú verið tilkynnt um átta andlát eftir bólusetningu. Innlent 26. janúar 2021 17:48
Enn fækkar stöðum hjá Gló og Joe & the Juice Þremur veitingastöðum Gló hefur verið lokað á síðustu tíu mánuðum og eftir stendur einungis einn staður í Fákafeni. Fjármálastjóri segir að heimsfaraldurinn hafi reynst veitingabransanum erfiður og að stjórnendur reyni nú að koma jafnvægi á reksturinn. Þá hefur Joe & the Juice, sem er að hluta til í eigu sömu aðila, lokað flestum stöðum sínum tímabundið og tveimur varanlega. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 17:17
Hundrað þúsund dánir í Bretlandi Rúmlega hundrað þúsund manns hafa nú dáið vegna Covid-19 í Bretlandi. Það er samkvæmt opinberum tölum en um 3,7 milljónir manna hafa smitast af nýju kórónuveirunni, sem veldur Covid-19. Erlent 26. janúar 2021 17:01
3,7 milljarðar í tekjufallsstyrki síðustu tvær vikur Undanfarnar tvær vikur hafa um 3,7 milljarðar króna verið greiddir í tekjufallsstyrki til rekstraraðila sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 16:37
Heilbrigðisráðherra býst við bóluefni Janssen fyrr en áður var talið Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir von á bóluefni Janssen fyrr en áður var talið. Þetta kom fram í máli Svandísar í umræðum um skýrslu sem hún flutti um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. Innlent 26. janúar 2021 14:54
Íslendingar rifja upp síðustu utanlandsferðina „Viltu segja mér frá seinustu útlandaferðinni þinni?“ Lífið 26. janúar 2021 13:31
Vilja bíða með útgöngubann og skyldubólusetningu Velferðarnefnd Alþingis leggur til að heimild til setningar útgöngubanns og skyldubólusetningar á landamærunum verði felldar brott úr frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum. Innlent 26. janúar 2021 13:30
Gjöld vegna Covid-19 vottorðs geta margfaldað ferðakostnað Fleiri ríki gera nú kröfu um að flugfarþegar framvísi vottorði um neikvæða niðurstöðu úr nýlegu Covid-19 prófi þegar þeir koma til landsins. Frá og með deginum í dag þurfa allir sem koma til Bandaríkjanna að hafa undir höndum slíkt vottorð en fyrr í mánuðinum tók sú breyting til að mynda gildi í Englandi og Danmörku. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 13:11
Uppfært: Bóluefni fyrir 35 þúsund manns væntanlegt fyrir lok mars Ísland á von á bóluefni fyrir 33.500 manns í febrúar mánuði. Enn sé stefnt að því að þorri þjóðar verði bólusettur fyrir mitt ár, þó engu sé slegið á föstu. Innlent 26. janúar 2021 12:10
Pfizer farið að rukka fyrir sjötta skammtinn Eftir að fram kom að hægt er að ná sex bóluefnaskömmtum út úr flöskum Pfizer í stað fimm, er bandaríski lyfjaframleiðandinn nú farinn að rukka fyrir sjötta skammtinn. Hærri reikningar Pfizer eru þó sendir út án samþykkis frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Viðskipti erlent 26. janúar 2021 11:34
Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru í sóttkví við greiningu. Innlent 26. janúar 2021 10:56
Verstu óeirðir í Hollandi í fjörutíu ár Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár. Fjöldi mótmælenda hefur komið saman í hollenskum borgum til þess að mótmæla útgöngubanni sem yfirvöld hafa sett á til þess að reyna að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Erlent 26. janúar 2021 07:33
Ný afbrigði og bólusetningar: Full ástæða til að fara varlega Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki þurfi nema smá óheppni til að smit berist inn í landið. Þess vegna, segir hann, er nauðsynlegt að viðhafa áfram öflugt eftirlit á landamærunum og huga að persónubundnum sóttvörnum. Innlent 25. janúar 2021 23:54
Segja bóluefni AstraZeneca ekki virka fyrir 65 ára og eldri Bóluefni AstraZeneca er sagt ekki munu fá markaðsleyfi í Evrópu til bólusetningar þeirra sem eru 65 ára og eldri. Ástæðan mun vera sú að bóluefnið tryggi eldra fólki ekki næga vörn gegn sjúkdómnum. Þessum fullyrðingum neitar aftur á móti AstraZeneca. Erlent 25. janúar 2021 23:44
Erfitt að segja til um hvenær útgöngubanni verður aflétt Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, segir margt benda til þess að baráttan við faraldurinn þar í landi sé að skila árangri en hann telur erfitt að spá fyrir um hvenær útgöngubanni verði aflétt. Aðgerðirnar virðist vera að virka en nú sé ekki rétti tímapunkturinn til að slaka á. Erlent 25. janúar 2021 22:28
Milljarða samkomulag í höfn um greiðslu bóta til minkabænda Samkomulag er í höfn milli dönsku ríkisstjórnarinnar og meirihluta flokka á þingi um greiðslu bóta vegna minkamálsins svokallaða. Samkomulagið tókst loksins í kvöld eftir ríflega tveggja mánaða viðræður og hljóðar það upp á 18,7 milljarða danskra króna, eða sem nemur tæpum 396 milljörðum íslenskra króna. Erlent 25. janúar 2021 21:46
Íhuga að banna útflutning á bóluefni til ríkja utan sambandsins Evrópusambandið er sagt íhuga að banna útflutning á bóluefni til ríkja utan sambandsins eftir að AstraZeneca greindi frá töfum í framleiðslu á föstudag. Búist var við hundrað milljónum skammta til aðildarríkja á fyrsta ársfjórðungi, en útlit er fyrir að aðeins helmingur þess skili sér á þeim tíma. Erlent 25. janúar 2021 20:14
Hátt í fjórtán þúsund skammtar af bóluefni AstraZeneca væntanlegir til landsins í febrúar Von er á 13.800 skömmtum af bóluefni frá AstraZeneca í febrúar, ef væntingar ganga eftir um að bóluefnið fái markaðsleyfi í Evrópu á föstudaginn. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá heilbrigðisráðuneytinu við fyrirspurn Rúv. Innlent 25. janúar 2021 19:30
Miami Heat mætir með COVID-hunda til að þefa uppi smitaða áhorfendur NBA körfuboltaliðið Miami Heat ætlar að leyfa áhorfendum aftur að mæta á leiki liðsins í AmericanAirlines Arena en það hefur bæst við starfsliðið í höllinni þeirra. Körfubolti 25. janúar 2021 15:30
Bóluefni Moderna virðist virka gegn nýjum afbrigðum veirunnar Bóluefni frá Moderna virðist virka gegn afbrigðum kórónuveirunnar nýju sem kennd hafa verið við Bretland og Suður-Afríku. BBC greinir frá og hefur eftir vísindamönnum hjá lyfjafyrirtækinu sem rannsökuðu blóðsýni úr átta manns sem höfðu verið bólusett með tveimur skömmum af bóluefninu frá Moderna. Erlent 25. janúar 2021 14:54
Fólkið á Grund bólusett og takmarkanir minnkaðar í næstu viku Bólusetningu heimilismanna Grundarheimilanna lauk fyrir helgi. Frá og með 1. febrúar verður hægt að minnka þær takmarkanir sem verið hafa á heimsóknum aðstandenda til heimilismanna. Þó er ekki reiknað með eðlilegu ástandi fyrr en í fyrsta lagi í byrjun sumars. Innlent 25. janúar 2021 14:35
Full staðkennsla í MH frá og með mánaðamótum Full staðkennsla samkvæmt stundatöflu verður í Menntaskólanum við Hamrahlíð frá og með mánudeginum 1. febrúar. Þetta kemur fram í tölvupósti Steins Jóhannssonar rektors til foreldra og nemenda í gær. Innlent 25. janúar 2021 12:44
Landlæknir fór yfir nýju afbrigðin sem gera mörgum þjóðum erfitt fyrir Alma Möller, landlæknir, fór á upplýsingafundi dagsins yfir nýja skýrslu Evrópsku sóttvarnastofnunarinnar um þrjú ný afbrigði kórónuveirunnar sem hafa valdið miklum usla í fjölda landa. Skýrslan kom út fyrir helgi. Innlent 25. janúar 2021 12:29
Nýleg dæmi um að fólk sé á ferðinni með einkenni Covid-19 Nýleg dæmi eru um að fólk sé á ferðinni í sínum daglegu störfum með einkenni Covid-19. Þess vegna hvetja almannavarnir og sóttvarnayfirvöld almenning áfram til þess að fara í sýnatöku við minnstu einkenni. Innlent 25. janúar 2021 11:28
Einn greindist innanlands Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sá sem greindist var í sóttkví. Innlent 25. janúar 2021 10:42
Svona var 156. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulegs upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 25. janúar 2021 10:15
„Ekkert endilega viss um að við eigum að flýta okkur mjög hratt núna í því að slaka mikið á“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hvetur fólk til að vera áfram duglegt að mæta í sýnatöku við minnstu einkenni en undanfarið hafi færri mætt í sýnatökur. Þá minnir Þórólfur á að núgildandi reglugerð um samkomutakmarkanir gildir til 17. febrúar. Innlent 25. janúar 2021 09:33
Forseti Mexíkó greindist með Covid-19 Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, hefur tilkynnt að hann hafi greinst með Covid-19. Erlent 25. janúar 2021 07:50
Líklegt að þurfi að koma á allsherjar útgöngubanni í þriðja sinn Helsti sóttvarnafræðingur Frakka segir að líklega þurfi að skella í lás og setja allsherjar útgöngubann í öllu landinu í þriðja sinn síðan kórónuveiran lét fyrst á sér kræla, ef allt eigi ekki að fara úr böndunum að nýju. Erlent 25. janúar 2021 07:16
Óeirðir í Hollandi vegna sóttvarnaaðgerða Óeirðalögregla var kölluð út í Eindhoven í Hollandi í gærkvöldi vegna mótmælenda sem hópuðust á götur borgarinnar til að mótmæla nýju útgöngubanni í borginni sem tók gildi í gærkvöldi vegna útbreiðslu Covid-19 á svæðinu. Erlent 25. janúar 2021 07:04