Sextán greinst með omíkron hér á landi Alls hafa sextán einstaklingar greinst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Innlent 7. desember 2021 21:28
Endurskoða þurfi prófafyrirkomulag í Covid fyrir næsta misseri Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir að endurskoða þurfi fyrirkomulag staðprófa í háskólanum á tímum heimsfaraldurs eftir að upp kom smit í prófi við HÍ. Innlent 7. desember 2021 20:46
Mótmæltu bólusetningum á Austurvelli Tugir manna voru samankomin á Austurvelli á sjöunda tímanum í kvöld til að mótmæla bólusetningarstefnu stjórnvalda. Beindust mótmælin einna helst gegn bólusetningum barna við Covid-19. Innlent 7. desember 2021 20:26
Veiran varð nær 30-falt útbreiddari hjá börnum Heilbrigðisráðherra vonast til að geta slakað til í samkomutakmörkunum á næstu tveimur vikum en breytir engu að sinni. Bólusetning barna fimm til ellefu ára gæti slegið á útbreiðslu faraldursins í heild, að sögn barnalæknis. Innlent 7. desember 2021 19:46
Sér fyrir sér að fólk með örvunarskammt sleppi við fjöldatakmarkanir og hraðpróf Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til við heilbrigðisráðherra að viðhalda óbreyttum sóttvarnaráðstöfunum í nokkrar vikur frá og með 9. desember. Ráðherra ákvað að framlengja núverandi aðgerðir um tvær vikur. Innlent 7. desember 2021 13:59
Danski heilbrigðisráðherrann með Covid-19 Danski heilbrigðisráðherrann Magnus Heunicke greindist með Covid-19 í dag. Hann dvelur nú í belgísku höfuðborginni Brussel þar sem hann er í einangrun á hóteli. Erlent 7. desember 2021 13:27
Markmiðið að grípa sem flesta og koma til móts við Landspítala Ný Covid deild verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir síðar í dag. Deildin getur tekið á móti allt að tíu öldruðum einstaklingum sem eru með væg einkenni. Framkvæmdastjóri hjúkrunarsviðs Eirar segir að um sé að ræða nauðsynlegt úrræði sem muni meðal annars létta undir með Landspítala. Innlent 7. desember 2021 12:18
44 prósent boðaðra í desember hafa þegar þegið örvunarskammt 85 prósent þeirra sem áttu kost á því að mæta í örvunarbólusetningu fyrir nóvember hafa þegið þriðja skammtinn og 73 prósent þeirra sem gátu mætt í nóvember. Þá hafa þegar 44 prósent þeirra sem eiga kost á að mæta í desember þegar þegið örvunarskammt. Innlent 7. desember 2021 11:28
Að efla hreysti þjóðar Fleiri heimsfaraldrar eru á leiðinni segja þeir og jafnvel miklu alvarlegri en þessir sem hafa komið áður. Ekki getum við sprautað fólk endalaust í handleggina, við verðum að hugsa dæmið upp á nýtt! Skoðun 7. desember 2021 11:01
116 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær 116 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 53 af þeim 116 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 46 prósent. 63 voru utan sóttkvíar, eða 54 prósent. Innlent 7. desember 2021 10:36
Smit í Njarðvík og leik frestað Leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í Subway-deild karla í körfubolta, sem fara átti fram á fimmtudaginn, hefur verið frestað vegna kórónuveirusmits í herbúðum Njarðvíkur. Körfubolti 7. desember 2021 10:33
Óbreyttar aðgerðir næstu tvær vikur Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur kynnt sóttvarnaaðgerðir sem taka gildi á morgun. Aðgerðir verða óbreyttar og gildir þetta næstu tvær vikurnar, eða til 22. desember. Heilbrigðisráðherra segir þó vel koma til greina að aflétta fyrir 22. desember verði staðan orðin betri. Innlent 7. desember 2021 10:33
Hjúkrunardeild fyrir eldri Covid-19 sjúklinga opnuð á Eir Í dag verður opnuð á hjúkrunarheimilinu Eir sérstök hjúkrunareining fyrir covid-sjúklinga. Deildin er einkum hugsuð sem sérstakt úrræði fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum sem veikjast af völdum Covid-19 og þurfa á sólarhringsumönnun að halda og einnig aldraða sem geta ekki haldið einangrun heima og þurfa umönnun. Innlent 7. desember 2021 09:00
Ekkert skólahald í Eskifjarðarskóla vegna smits Ákveðið hefur verið að fella niður skólahald í Eskifjarðarskóla í dag eftir að starfsmaður skólans greindist með COVID-19 í gær. Innlent 7. desember 2021 08:20
Atvinnurekendur í New York skikkaðir til að krefjast bólusetningar starfsmanna Borgaryfirvöld í New York hafa ákveðið að allir atvinnurekendur í borginni verði að krefjast þess að starfsmenn þeirra þiggi bólusetningu og séu bólusettir frá og með 27. desember næstkomandi. Erlent 7. desember 2021 07:56
Einkaaðilar hafa fengið 240 milljónir króna greiddar fyrir hraðprófin Þeir einkaaðilar sem séð hafa um hraðprófin vegna kórónuveirunnar höfðu fram til 1. desember fengið um 240 milljónir greiddar fyrir þjónustuna. Innlent 7. desember 2021 06:57
Hafi upplifað martröð nemandans þegar HÍ lagði föður hennar í hættu Eftir hafa barist fyrir því að nemendur við Háskóla Íslands (HÍ) fengju að taka heimapróf af sóttvarnaástæðum var Söndru Ósk Jóhannsdóttur tjáð að hún hafi deilt prófstofu með Covid-sýktum samnemenda. Innlent 6. desember 2021 23:14
Fékk kærkomna staðfestingu á að í sér renni blóð Örvunarbólusetning heilbrigðisráðherra gekk ekki alveg slysalaust fyrir sig þó stórslys hafi sannarlega ekki átt sér stað. Það blæddi örlítið úr handlegg hans eftir sprautuna og varð því að fá plástur í boði ríkisins, eins og hjúkrunarfræðingurinn sem bólusetti hann komst að orði. Innlent 6. desember 2021 22:10
Greindist með omíkron innan við mánuði eftir fyrra smit Fullbólusett íslensk kona greindist tvisvar með kórónuveiruna á einum mánuði og er nú í einangrun með omíkron afbrigðið. Hún segir nokkurn mun á einkennum og veit ekki hvernig hún smitaðist. Innlent 6. desember 2021 19:03
Undirbúa málsókn en eru enn að raðgreina sýni Íslensk erfðagreining er nú að undirbúa málsókn vegna ákvörðunar Persónuverndar frá því í síðustu viku þar sem fram kom að fyrirtækið hafi brotið persónuverndarlög. Þá er aðkoma fyrirtækisins að raðgreiningu sýna vegna Covid-19 til skoðunar. Innlent 6. desember 2021 16:24
Þórólfur leggur ekki til hertar aðgerðir Heilbrigðisráðherra segir að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggi ekki til hertar aðgerðir í minnisblaði sínu, sem hann skilaði ráðherranum um helgina. Nýjar aðgerðir verða kynntar eftir ríkisstjórnarfund á morgun, í kring um hádegi. Innlent 6. desember 2021 13:47
Sóttvarnalæknir hvetur alla til að þiggja örvunarskammt Sú staðreynd að örvunarskammtur gegn SARS-CoV-2, það er að segja þriðji skammturinn, virðist veita 90 prósent meiri vernd en grunnbólusetning ætti að vera öllum hvatning til að þiggja bólusetningu og örvunarskammt. Innlent 6. desember 2021 12:34
Gerir ráð fyrir að Omíkron verði ráðandi afbrigðið á Bretlandseyjum á næstu vikum Breskur smitsjúkdómasérfræðingur segist gera ráð fyrir því að Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar verði orðið ráðandi á Bretlandseyjum á næstu vikum eða mánuði. Erlent 6. desember 2021 12:19
Omíkron setur okkur í biðstöðu með samkomutakmarkanir Sóttvarnalæknir telur ekki mikið svigrúm til tilslakana þegar núgildandi samkomutakmarkanir renna úr gildi á miðvikudag vegna óvissu um omíkron afbriðið. Niðurstöður rannsókna um virkni bóluefna gagnvart því eigi að liggja fyrir á næstunni. 101 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Innlent 6. desember 2021 12:11
Iðkendur í Hlíðaskóla þurfi neikvætt sýni til að æfa hjá Val Barna og unglingasvið íþróttafélagsins Vals í Reykjavík hefur biðlað til foreldra barna sem æfa hjá félaginu að senda iðkendur, sem einnig stunda nám í Hlíðaskóla, ekki til æfinga að Hlíðarenda fyrr en neikvæð niðurstaða úr COVID-prófi liggur fyrir. Innlent 6. desember 2021 11:56
Dauðsföll af völdum Covid-19 mun tíðari meðal stuðningsmanna Trump Frá því í maí á þessu ári hafa íbúar í sýslum þar sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, naut mikils stuðnings í síðustu forsetakosningum verið þrisvar sinnum líklegri til að deyja sökum Covid-19 en íbúar sýsla þar sem stuðningur við Joe Biden var verulegur. Erlent 6. desember 2021 11:37
Grænlendingar herða aðgerðir Yfirvöld á Grænlandi hafa hert samkomutakmarkanir í landinu öllu til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar og tóku nýju reglurnar gildi í dag. Erlent 6. desember 2021 11:21
101 greindist innanlands 101 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 39 af þeim 101 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 39 prósent. 62 voru utan sóttkvíar, eða 61 prósent. Innlent 6. desember 2021 10:00
Omíkron hefur greinst í 16 ríkjum Bandaríkjanna Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar hefur nú fundist í 16 ríkjum Bandaríkjanna en um er að ræða nokkra tugi tilfella. Margir smituðu eru fullbólusettir og með væg einkenni. Delta-afbrigðið er enn það sem greinist í 99,9 prósent tilvika. Erlent 6. desember 2021 08:46
Útilokar ekki að „breyta um taktík“ virki bóluefnin á omíkron-afbrigðið Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist ekki útiloka að hann „breyti um taktík“, sýni niðurstöður fram á að bóluefni virki á omíkron-afbrigði veirunnar. Innlent 6. desember 2021 08:09
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent