Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Eftir fjóra sigra í röð gerði Grótta 3-3 jafntefli við FHL í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR hefði getað minnkað forskot Gróttu á toppnum en tapaði fyrir ÍA, 3-2. Völsungur vann langþráðan sigur og gott gengi Keflavíkur hélt áfram. Íslenski boltinn 23.7.2026 22:27
KR sækir sænskan landsliðsmann Adam Ramstedt, sænskur landsliðsmaður í körfubolta, hefur gengið í raðir KR. Hann hefur áður leikið á Íslandi en hann spilaði með Val í eitt ár. Körfubolti 23.7.2026 14:51
Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Gyrðir Hrafn Guðbrandsson átti draumabyrjun fyrir Þór á Akureyri er liðið varð það fyrsta í sumar til að vinna Íslandsmeistara Víkings. Hann hafði varla æft með liðinu þegar komið var í leikinn. Íslenski boltinn 21.7.2026 09:31
Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Nágrannarnir KR og Grótta fögnuðu sigri í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. KR vann heimasigur á Völsungi en Grótta vann útisigur á HK á sama tíma. Gróttukonur halda því áfram fimm stiga forskoti. Íslenski boltinn 17. júlí 2026 21:33
Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, er mættur heim í Þorpið og mun spila með Þór út leiktíðina í Bestu deildinni í fótbolta. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er sömuleiðis kominn til Þórs, að láni frá KR. Íslenski boltinn 17. júlí 2026 13:34
Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Bubbi Morthens hélt upp á sjötugsafmælið sitt í síðasta mánuði og KR-ingar ákváðu að færa honum sérstaka gjöf í tilefni stórafmælisins. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 19:30
Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 09:02
Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Alls var 21 mark skorað í fjórum leikjum í Bestu deild karla í gær. KA og FH unnu kærkomna sigra á meðan Fram og KR röðuðu inn mörkum. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 10:32
„Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Aron Sigurðarson skoraði tvö og lagði upp eitt þegar KR lagði ÍBV 5-2 í Bestu deild karla í fótbolta. Hans markmið er einfalt, vinna bæði gullskóinn sem og að slá markamet efstu deildar. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 20:45
Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Eftir sex leiki án ósigurs var Eyjamönnum skellt á jörðina þegar liðið sótti KR heim í Vesturbænum. Lokatölur 5-2 í leik þar sem mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri. Leik liðanna í Eyjum lauk með 6-2 sigri KR og hafa Eyjamenn eflaust fengið nóg af því að spila við svarthvíta í sumar. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 19:56
Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sigurpáll Sören Ingólfsson fékk á sig þrjú mörk á fyrstu fjórtán mínútunum þegar KR sótti Þór heim í Bestu deild karla í síðustu viku. Kollegi hans í marki Akureyrarliðsins, Aron Birkir Stefánsson, skoraði meðal annars með skoti af gríðarlöngu færi. Bjarni Guðjónsson tók til varna fyrir Sigurpál í Stúkunni. Íslenski boltinn 7. júlí 2026 16:45
Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Amin Cosic hefur verið opinberaður sem nýr leikmaður Noregsmeistara Viking í Stafangri. Hann er keyptur til liðsins frá KR í Bestu deildinni. Íslenski boltinn 6. júlí 2026 19:30
Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Aron Birkir Stefánsson varð í gær aðeins fjórði markvörðurinn til að skora í efstu deild karla þegar hann skoraði fyrir Þórsara í 3-3 jafntefli á móti KR í Bestu deildinni í fótbolta. Íslenski boltinn 3. júlí 2026 12:30
Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Akureyrarliðin tvö, KA og Þór, misstu bæði niður forystu í leikjum gærkvöldsins í Bestu deild karla. KR náði í stig eftir að Þór hafði komist 3-0 yfir í Þorpinu með ótrúlegum mörkum og Víkingur vann KA með dramatísku sigurmarki af vítapunktinum. Íslenski boltinn 3. júlí 2026 12:01
Átti Amin að sjá rautt? Akureyringar kröfðust þess að Amin Cosic, leikmaður KR, sæi rautt spjald í leik við Þór norðan heiða í gær. Hann virtist traðka á Christian Greko Jakobsen, leikmanni Þórs. Íslenski boltinn 3. júlí 2026 09:19
Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR Þór og KR skyldu jöfn 3-3 í markaleik á Akureyri í dag þar sem að heimamenn komust í 3-0 eftir hreint ótrúlega byrjun á leiknum. Íslenski boltinn 2. júlí 2026 20:04
„Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ „Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. Íslenski boltinn 2. júlí 2026 20:00
KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Botnlið Þórs fær KR í heimsókn í Bestu deild karla í fótbolta á Akureyri í kvöld og það ætti að vera von á mörkum í leiknum ef marka má sumarið til þessa. Íslenski boltinn 2. júlí 2026 12:00
„Ég er farinn“ Útlit er fyrir að Amin Cosic, kantmaður KR, spili sinn síðasta leik fyrir félagið er það sækir Þór heim á Akureyri seinni partinn á morgun. Íslenski boltinn 1. júlí 2026 15:58
Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Þórsarar fá KR-inga í heimsókn til Akureyrar í Bestu deild karla í fótbolta á morgun og þetta verður sérstakur styrktarleikur fyrir mikinn stuðningsmann Þórsara en hann á í erfiðri baráttu þessa dagana. Íslenski boltinn 1. júlí 2026 12:33
Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Fjórir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær þar sem Keflavík, Valur og Stjarnan fögnuðu öll sigri en nú má sjá mörkin úr þeim öllum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 29. júní 2026 08:15
Uppgjörið: Keflavík - KR 3-2| Frábært sigurmark batt enda á 18 ára bið eftir sigri gegn KR Keflavík tók á móti KR á HS-Orku vellinum þegar tólfta umferð Bestu deild karla hélt áfram göngu sinni í dag. Keflavík hafði ekki unnið sigur á KR í 18 ár en það breyttist í dag þegar Keflavík vann góðan 3-2 sigur. Íslenski boltinn 28. júní 2026 20:11
Jason Daði kominn í KR Fótboltamaðurinn Jason Daði Svanþórsson er genginn í raðir KR. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Íslenski boltinn 28. júní 2026 12:17
KR skoraði sex og fór á toppinn Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í dag. KR-ingar voru í miklum ham og tylltu sér á toppinn. Íslenski boltinn 27. júní 2026 19:20