UNICEF kallar eftir stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kallar eftir auknum stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút svo öll þau börn sem ættu að hefja nýtt skólaár njóti réttinda sinna til menntunar. Heimsmarkmiðin 4. september 2020 10:14
Sala hafin á Fokk Ofbeldi bol með mynd frá Önnu Maggý og ljóði GDRN UN Women á Íslandi hefja í dag sölu á glænýjum Fokk ofbeldi bol. Allur ágóði rennur til verkefna UN Women til upprætingar á ofbeldi gegn konum og stúlkum í Líbanon. UN Women á Íslandi fengu GDRN til leggja átakinu lið en FO langerma bolurinn skartar ljóði GDRN sem er táknrænt fyrir baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi á bakhlið bolarins. Lífið 3. september 2020 09:15
Macron biðlar til Líbanon að mynda ríkisstjórn í flýti Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur biðlað til nýs forsætisráðherra Líbanon að mynda nýja ríkisstjórn í flýti. Erlent 31. ágúst 2020 23:00
Líklegt að sendiherra verði næsti forsætisráðherra Líbanon Mustapha Adib, sendiherra Líbanon í Þýskalandi, er reiðbúinn til þess að taka við forsætisráðherrastólnum í Líbanon. Erlent 30. ágúst 2020 23:30
Vonar að faraldrinum verði lokið innan tveggja ára Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), segist vona að kórónuveirufaraldrinum verði lokið innan tveggja ára. Erlent 21. ágúst 2020 22:39
Einn fundinn sekur um morðið á Hariri Sérstakur dómstóll, sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna, hefur sakfellt einn af þeim fjórum sem ákærðir voru fyrir aðild að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í Beirút árið 2005. Erlent 18. ágúst 2020 13:56
Engar sannanir fyrir aðkomu Sýrlands að dauða Hariri Engar sannanir eru fyrir því að forsvarsmenn Sýrlands eða Hezbollah-samtakanna hafi látið myrða Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanon, þó þessir aðilar hafi talið sig hagnast á dauða hans. Erlent 18. ágúst 2020 12:03
Rúmlega 16 milljónir söfnuðust fyrir Beirút hjá Rauða krossinum Neyðarsöfnun Rauða krossins fyrir íbúa Beirút vegna sprengingarinnar sem varð þar í síðustu viku er lokið. Rúmlega 16 milljónir söfnuðust og renna til Rauða krossins í Líbanon. Innlent 14. ágúst 2020 13:17
Líbanski herinn fær aukin völd Líbanska þingið hefur framlengt neyðarástandið landinu sem felur meðal annars í sér að herinn fær nú aukin völd. Erlent 13. ágúst 2020 12:15
Varaðir við hættunni í síðasta mánuði Forsætisráðherra og forseti Líbanon voru varaðir við því í síðasta mánuði að 2.750 tonn af ammóníum nítrati, sem finna mátti í vöruskemmu við höfn Beirút, væri ógn við borgina. Erlent 10. ágúst 2020 23:51
Sleit ríkisstjórn Líbanon: Segir spillinguna stærri en ríkið Hassan Diab, forsætisráðherra Líbanon, hefur slitið ríkisstjórn sinni og stigið úr embætti. Það gerði hann vegna sprengingarinnar í Beirút en mikil reiði ríkir í Líbanon vegna langvarandi spillingar, vanrækslu stjórnvalda og efnahagsörðugleika. Erlent 10. ágúst 2020 17:47
Reiknað með að líbanska ríkisstjórnin segi af sér vegna sprengingarinnar Búist er við því að ríkisstjórn Líbanon muni segja af sér síðar í dag, innan við viku frá því að gríðarstór sprenging lagði hluta Beirút, höfuðborgar Líbanons, í rúst. Erlent 10. ágúst 2020 15:47
Tvö hundruð talin af eftir sprenginguna Sífellt fleiri finnast látin í rústum Beirút eftir sprenginguna þar í liðinni viku. Erlent 10. ágúst 2020 10:54
Fyrst ráðherra til að segja af sér eftir sprenginguna Upplýsingamálaráðherra Líbanons, Manal Abdel Samad, tilkynnti um afsögn sína í morgun og varð þar með fyrst ráðherra til að segja af sér embætti eftir sprenginguna í höfuðborginni Beirút á þriðjudag. Erlent 9. ágúst 2020 09:46
Gígurinn í Beirút 43 metra djúpur Fjöldi leiðtoga ríkja heims munu í dag ræða saman á símafundi og skipuleggja fjársöfnun fyrir Líbani sem glíma nú við afleiðingar sprengingarinnar. Erlent 9. ágúst 2020 08:28
Ætlar að boða til snemmbúinna kosninga Kröftug mótmæli hafa brotist út í líbönsku höfuðborginni Beirút eftir sprenginguna sem varð í borginni síðasta þriðjudag. Sprengingin kostaði að minnsta kosti 158 manns lífið og má rekja hana til ammóníum-nítrats sem hafði verið geymt í miklu magni í geymslu á hafnarsvæði borgarinnar. Erlent 8. ágúst 2020 21:14
Beita táragasi gegn mótmælendum í Beirút Líbönsk óreirðalögregla hefur beitt táragasi á mótmælendur í höfuðborginni Beirút eftir að þeir reyndu að brjóta sér leið inn í þinghús landsins. Erlent 8. ágúst 2020 14:15
Alvarlegt ástand og reiði í Beirút innst 149 eru látnir en talið er að þeim muni fjölga þar sem margra er enn saknað. Erlent 7. ágúst 2020 15:35
Lögregla beitti mótmælendur í Beirút táragasi Lögreglan beitti fólk sem safnast hafði saman hjá þinghúsinu táragasi. Erlent 7. ágúst 2020 07:02
Í miðri brúðarmyndtöku þegar sprengingin varð Hin 29 ára gamla Israa Seblani var í miðri brúðarmyndatöku við Le Gray hótelið í Beirút þegar gríðarstór sprenging varð á hafnarsvæði borgarinnar á þriðjudag. Erlent 6. ágúst 2020 21:01
Án umbóta muni íbúar Líbanon þjást áfram Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að án umbóta muni íbúar Líbanon halda áfram að þjást. Landið gangi nú í gegnum pólitíska og efnahagslega krísu og þörf sé á skjótum viðbrögðum. Erlent 6. ágúst 2020 12:14
Íbúar Beirút krefjast réttlætis eftir sprenginguna Íbúar í Beirút, höfuðborg Líbanon, hafa lýst reiði sinni í garð ríkisstjórnar landsins vegna sprengingarinnar sem varð við höfn borgarinnar á þriðjudag. Erlent 6. ágúst 2020 06:35
Hefja neyðarsöfnun vegna sprenginganna í Beirút Rauði krossinn á Íslandi hefur hafið neyðarsöfnun vegna hamfarasprenginganna í Beirút. Á annað hundruð manns fórust í sprengingunum að minnsta kosti og þúsundir slösuðust. Innlent 5. ágúst 2020 17:46
Forseti og borgarstjóri senda samúðarkveðjur til Líbanon Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafa sent kollegum sínum í Líbanon samúðarkveðjur. Innlent 5. ágúst 2020 15:59
Farþegaskip á hliðinni og stærðarinnar gígur í höfninni Gervihnattamyndir frá höfninni í Beirút sýnir að sprengingin í gær skildi eftir sig stærðarinnar gíg. Erlent 5. ágúst 2020 14:13
Vel er fylgst með geymslu á ammóníum nítrat-áburði hér á landi Sérfræðingur og fyrrum forstjóri Mannvirkjastofnunar segir að vel sé fylgst með geymslu og notkun á ammóníum nítrat áburði hér á landi. Innlent 5. ágúst 2020 12:10
300 þúsund án heimilis eftir sprenginguna í Beirút Allt að 300 þúsund manns misstu heimili sín í stærðarinnar sprengingu í Beirút í Líbanon í gær. Tjónið vegna sprengingarinnar var þar að auki minnst þrír milljarðar dala og allt að fimm milljarðar. Erlent 5. ágúst 2020 10:13
Yfir 100 látin og þjóðarsorg lýst yfir Þjóðarsorg ríkir nú í Líbanon eftir hina gríðarlega öflugu sprengingu sem varð í gær á hafnarsvæðinu í höfuðborginni Beirút. Tala látinna stendur nú í rúmlega hundrað manns, Erlent 5. ágúst 2020 07:12
Þúsundir tonna sprengifims efnis geymd í sex ár Forseti Líbanons segir að um 2.750 tonn af afar sprengifimu efni hafi verið geymd við óviðunandi aðstæður á höfninni í Beirút í sex ár. Gríðarleg sprenging varð þegar eldur komst í efnið og eru tugir manna í það minnsta látnir og þúsundir slösuð. Erlent 4. ágúst 2020 23:02
Sendu Líbönum samúðarkveðjur vegna sprengingarinnar í Beirút Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, sendu Líbönum samúðarkveðjur vegna sprengingarinnar mannskæðu í Beirút í dag. Að minnsta kosti sextíu manns eru sagðir hafa farist og þúsundir slasast. Erlent 4. ágúst 2020 22:00