„Gríðarlega brugðið eins og allri þjóðinni“ Dómsmálaráðherra segist slegin vegna skotárásar sem átti sér stað í Úlfársárdal í gærnótt. Ofbeldisárásir virðist vera að færast upp á næsta stig og nauðsynlegt sé að bregðast við. Frumvarp um breytingar á lögreglulögum sé tilraun til þess. Innlent 3. nóvember 2023 13:48
Tveir urðu fyrir skoti í árásinni við Silfratjörn Tveir ungir menn urðu fyrir skotum í skotárásinni í Úlfarsáradal í gær, annar særðist en hinn fékk skrámu. Um er að ræða deilur milli tveggja hópa sem ólíklegt er að sjái fyrir endann á. Lögregla kannar hvort auka þurfi viðbúnað í höfuðborginni vegna málsins. Innlent 3. nóvember 2023 11:50
Yfirheyrslur yfir sjömenningum framundan Yfirheyrslur yfir mönnunum sjö sem handteknir voru vegna skotárásar í fjölbýli á Silfratjörn í Úlfarsárdal munu fara fram í dag. Lögregla hyggst ekki veita frekari upplýsingar um mennina að svo stöddu. Innlent 3. nóvember 2023 09:29
Hafa handtekið alla sjö sem taldir eru tengjast árásinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið sjö í tengslum við skotárásina í fjölbýli á Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Það eru allir sem taldir eru hafa komið að árásinni Innlent 2. nóvember 2023 21:41
„Allt starfsfólk meðvitað um þennan harmleik“ Mikill viðbúnaður hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna leitar að manni sem er grunaður um skotárás við fjölbýlishús í nótt þar sem einn særðist. Líðan hins særða er sögð góð eftir atvikum en hann er ekki í lífshættu. Í árásinni var einnig skotið á nærliggjandi hús og bíl. Lögreglan telur atlöguna tengjast útistöðum tveggja hópa. Innlent 2. nóvember 2023 19:31
Lögregla gefur ekkert upp um þá handteknu Þrír hafa verið handteknir vegna skotárásar í fjölbýli í Úlfarsárdal í nótt. Einn særðist en líðan hans er sögð góð eftir atvikum. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í dag vegna málsins. Lögregla gefur ekki upp hver aðild þeirra handteknu að málinu er. Innlent 2. nóvember 2023 18:47
Umtalsverðar líkur á áframhaldandi lífshættulegu ofbeldi Maður sem er grunaður um tilraun til að verða fyrrverandi kærustu sinni að bana hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til mánudagsins 27. nóvember. Hann þykir mjög líklegur til að beita konuna frekara ofbeldi fengi hann að ganga laus. Innlent 2. nóvember 2023 17:19
Stendur ekki til að lýsa eftir byssumanni Grímur Grímsson segir alvarlegt mál að maður sem hafi hleypt af skotum í íbúðarhverfi gangi laus. Hann telur almenning þó ekki í mikilli hættu. Allt kapp sé lagt á að hafa hendur í hári mannsins. Ekki standi þó til að lýsa eftir honum. Innlent 2. nóvember 2023 15:07
Fjögurra og átta ára vöknuðu við lögreglu í heimsókn Kona sem býr í íbúðinni sem skotið var á í skotárás í Úlfarsárdal í morgun, segist í áfalli og enn vera að melta það sem hafi gerst. Skotið var á vegg við hliðina á barnaherbergi þar sem átta og fjögurra ára dætur hennar voru sofandi. Innlent 2. nóvember 2023 14:38
Vaktin: Lögregla leitar logandi ljósi að byssumanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar byssumanns eftir að maður var skotinn fyrir utan fjölbýlishús í Silfratjörn í Úlfarsárdal í Reykjavík í nótt. Vísir fylgist með nýjustu vendingum í málinu. Innlent 2. nóvember 2023 14:27
Banaslys á Reykjanesbraut Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut, skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ í dag eftir að ökutæki sem hann ók valt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 2. nóvember 2023 13:55
Áhyggjufullur nágranni lýsir stöðugu partýstandi Íbúi í fjölbýlishúsi við Silfratjörn í Úlfarsárdal segir mikið partýstand hafa verið í íbúð á þriðju hæð fjölbýlishúss þar sem maður var skotinn um fimmleytið í nótt. Íbúðin er í eigu Félagsbústaða. Innlent 2. nóvember 2023 13:49
Leita byssumanns eftir skotárás í Úlfarsárdal Lögregla leitar byssumanns sem grunaður er um að hafa skotið karlmann við fjölbýlishús í Úlfarsárdal í nótt. Hinn særði er ekki í lífshættu. Mörg börn vöknuðu upp við skothvelli. Yfirlögregluþjónn segir vettvang árásarinnar hafa verið utandyra. Lögregla sé með aukið viðbragð vegna málsins til að tryggja öryggi almennings um borgina. Innlent 2. nóvember 2023 11:31
Íbúar heyrðu skothvelli í Úlfarsárdal Lögregla verst allra frétta af meiriháttar líkamsárás í Úlfarsárdal í nótt. Að sögn íbúa heyrðust skothvellir í hverfinu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út vegna málsins. Innlent 2. nóvember 2023 10:42
Alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut Alvarlegt umferðarslys varð þegar bíll valt á Reykjanesbraut, vestan við Grindarvíkurveg, í morgun. Lögregla og sjúkralið eru nú á vettvangi. Innlent 2. nóvember 2023 08:45
Meiriháttar líkamsárás og fjórir handteknir fyrir húsbrot Lögreglu barst tilkynning um meiriháttar líkamsárás í póstnúmerinu 113 rétt fyrir klukkan fimm í morgun. Í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar segir að málið sé í rannsókn. Innlent 2. nóvember 2023 06:28
Engin vitni að banaslysinu í Hafnarfirði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með skýra mynd af atburðarásinni þegar átta ára drengur lést nálægt vinnusvæði í Hafnarfirði á mánudaginn. Engin vitni urðu að slysinu. Innlent 1. nóvember 2023 16:14
Fjöldi kærður og sektaður eftir slys á rafhlaupahjóli Lögregla hefur á þessu ári kært og sektað um hundrað manns sem hafa dottið á rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. Aðalvarðstjóri umferðardeildar segir óhæft hversu algeng slysin eru og telur að taka þurfi á málinu. Innlent 1. nóvember 2023 12:51
Fjögurra bifreiða árekstur Sjúkralið og lögregla voru kölluð til í dag vegna fjögurra bifreiða áreksturs í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem þjónustar Hafnarfirði og Garðabæ í dag. Innlent 31. október 2023 19:10
Átta ára drengur lést í umferðarslysi við Ásvelli Átta ára drengur lést í umferðarslysi á Ásvöllum í Hafnarfirði síðdegis í gær. Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 31. október 2023 09:43
Afbrotavarnir í þágu öruggs samfélags Skýrar vísbendingar hafa komið fram á síðustu árum um að umfang og eðli skipulagðrar brotastarfsemi hafi tekið verulegum breytingum hér á landi til hins verra. Hópar innlendra jafnt sem erlendra aðila hafa það að atvinnu að fremja fjölda afbrota með skipulegum hætti, þar á meðal alvarleg ofbeldisbrot, þjófnað, fjársvik, fíkniefnabrot og peningaþvætti. Skoðun 31. október 2023 07:32
Alvarlegt umferðarslys í Hafnarfirði Alvarlegt umferðarslys varð við Ásvelli í Hafnarfirði síðdegis í dag, eða á sjötta tímanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 30. október 2023 17:48
Aðeins ein kona meðal 28 stúta 28 ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þar af var aðeins ein kona. Innlent 30. október 2023 15:39
Stúlkan er fundin Sautján ára stúlka, sem saknað hafði verið síðan á föstudag, er komin í leitirnar. Innlent 30. október 2023 14:58
Þrjár líkamsárásir undir morgun Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst þrívegis tilkynning um líkamsárásir í miðborginni í morgun. Einn var vistaður í fangageymslu vegna árásar. Innlent 29. október 2023 17:53
Óhæfir embættismenn valdi skattgreiðendum fjárhagstjóni Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Sverris Einars Eiríkssonar, annars eiganda skemmtistaðarins B, telur lögreglu hafa farið algjöru offari þegar kom að eftirliti á staðnum og sakar hana um valdníðslu. Þá telur hann að sýslumaður hafi brotið meginreglur stjórnsýslulaga með þeirri ákvörðun að svipta staðinn tímabundnu rekstrarleyfi. Innlent 29. október 2023 15:41
Þrjár konur slógust og hrækt í andlit lögregluþjóns Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu höfðu í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt, ef marka má dagbók lögreglunnar í morgun. Samkvæmt henni var mikil ölvun í miðbænum og annarsstaðar og bárust margar tilkynningar um hávær samkvæmi og voru alls áttatíu mál skráð hjá lögreglu. Innlent 29. október 2023 07:27
Teknir við ólöglegar veiðar í Elliðaám Lögreglunni barst í dag tilkynning um þrjá erlenda einstaklinga við veiðar í Elliðaám. Þegar lögregla kom á vettvang og ræddi við veiðimennina kom í ljós að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir veiðibrotinu. Lögregla vísaði mönnunum af vettvangi, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 28. október 2023 20:34
Ölvaður með skotvopn í bílnum Lögregla fann haglabyssu auk annars skotvopns og nokkurs magns skotfæra í bifreið manns í neðra Breiðholti í Reykjavík í gærkvöldi. Vopnin fundust þegar lögregla hafði afskipti af manninum vegna ölvunar. Innlent 28. október 2023 10:55
Starfsleyfi skemmtistaðarins B afturkallað Skemmtistaðnum B verður lokað tímabundið, frá og með deginum í dag. Lokunin stendur yfir í sex vikur. Sýslumaður afturkallaði starfsleyfi staðarins vegna tilkynninga frá lögreglu um að á staðnum hafi á tilteknum dögum verið of margir gestir. Þá hafi ungmenni undir aldri verið meðal gesta. Eigendur ætla í skaðabótamál. Innlent 27. október 2023 21:28