Meistaradeildin

Meistaradeildin

Keppni hinna bestu í Evrópu.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Hvað verður um Martinez eftir gagn­rýnina?

    Óvíst er hvað verður um framtíð Lissandro Martinez, leikmanns Manchester United, hjá félaginu. Hann gagnrýndi stjórn liðsins harðlega eftir leik gærkvöldsins þar sem Manchester United tapaði fyrir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Náði að hefna sín gegn ítölsku fé­lögunum

    Nicolo Tresoldi átti sannkallað draumakvöld þegar hann skoraði þrennu fyrir Club Brugge í 4-3 sigri liðsins á Inter Milan í Meistaradeild Evrópu karla í gær. Hann náði því að hefna sín á ítölskum félögum eftir að hafa verið hafnað af þeim þegar hann var yngri.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Þorði ekki á Instagram eftir leikinn

    Víkingar frá Noregi áttu stórleik í gær þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við þýska stórveldið Bayern München í Noregi í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Norska liðið beytti ýmsum brögðum til þess að ráða við gestina frá Þýskalandi en liðið fór ekki yfir strikið að þeirra mati.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Lét gamminn geisa og fær að heyra það

    Sparkspekingar hafa látið Lisandro Martinez, leikmann Manchester United, heyra það eftir að hann lét stór orð falla í viðtali í kjölfar 2-0 taps liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ummæli Martinez hafi verið skammarleg. 

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern

    Það voru óvænt úrslit í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar til að mynda Noregsmeistarar Viking náðu 3-3 jafntefli við Bayern á heimavelli og Inter tapaði 4-3 á heimavelli gegn Club Brugge.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Dag­skráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal

    Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld með afar áhugaverðum leikjum og má þar nefna leik Arsenal og Lille sem er með Skagamanninn Hákon Arnar Haraldsson í stóru hlutverki. Körfuboltakvöld Extra snýr líka aftur og 3. umferðin í Bónus-deild kvenna verður gerð upp í beinni útsendingu.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Fé­lag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið á­fall

    Daginn fyrir stórleikinn við Arsenal í Meistaradeild Evrópu hefur franska knattspyrnufélagið Lille, sem Hákon Arnar Haraldsson leikur með, greint frá því að portúgalski bakvörðurinn Tiago Santos sé með slitið krossband í hné í annað sinn á ferlinum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Þor­steinn Leó frá í 8-12 vikur

    Landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson verður frá keppni í allt að tólf vikur eftir að hafa meiðst illa í leik með Porto gegn Veszprem í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Halda úr­slita­leikinn aftur 30 árum síðar

    Barcelona hefur verið verðlaunað fyrir veigamiklar framkvæmdir á hinum sögufræga Nývangi þar sem félagið fær að halda úrslitaleik Meistaradeildarinnar á vellinum árið 2029. Það er sléttum 30 árum eftir að Manchester United vann einn frægasta úrslitaleik keppninnar þar vorið 1999.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Vand­ræða­legasta við­tal sögunnar?

    „Þetta er bara eitt það pínlegasta sem ég hef séð,“ sagði í Meistaradeildarmörkunum eftir viðtal við Michael Olise eftir leik kvöldsins. Viðtalið var ekki gott líkt og viðbrögð sérfræðinga þáttarins sýna.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    United aldrei í vand­ræðum

    Manchester United vann 4-0 sigur á liði Sabah frá Aserbaídsjan í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Old Trafford í kvöld.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Bakverðir til bjargar

    Jafnt var í tveimur fyrir leikjum dagsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta sem fram fóru í Istanbúl og Eindhoven. Bakverðir tryggðu liðum sínum stig í leikjunum tveimur.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Stjórn Como gefur frá sér sína miða

    Como tryggði sig í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í sögu félagsins og mun spila sinn fyrsta Meistaradeildarleik þegar liðið mætir RB Leipzig á heimavelli. Stjórnarmeðlimir félagsins hafa ákveðið að gefa frá sér miðana sína til elstu stuðningsmanna félagsins.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Nýr Camp Nou míglekur

    Það var ekki aðeins á vellinum sem mikil úrkoma vakti athygli þegar Barcelona tók á móti Feyenoord í Meistaradeildinni í gær. Blaðamenn á leikvanginum fengu heldur betur að finna fyrir veðrinu þegar vatn tók að flæða inn á fjölmiðlasvæðið.

    Fótbolti