Valskonur unnu í Ljónagryfjunni Valskonur komust upp í annað sætið í Dominosdeild kvenna í körfubolta eftir fimm stiga sigur á Njarðvík, 71-66, í Ljónagryfjunni í kvöld en þetta var lokaleikur 7. umferðar. Valur, KR og Snæfell eru öll með tíu stig í 2. til 4. sæti en Valsliðið er með bestan árangur í innbyrðisviðureignum liðanna. Körfubolti 7. nóvember 2012 20:58
Keflavík vann eftir framlengdan leik Keflavík er enn með fullt hús stiga í Dominos-deild kvenna eftir sigur á Fjölni í kvöld í framlengdum leik. Körfubolti 6. nóvember 2012 21:13
KR-konur upp í annað sætið KR er komið upp í annað sætið í Domino´s deild kvenna eftir sannfærandi 26 stiga sigur á Snæfelli, 93-67, í DHL-höllinni í dag. KR-liðið er nú búið að vinna fjóra leiki í röð og komst með þessum sigri upp fyrir Snæfell á innbyrðisviðureignum. Körfubolti 4. nóvember 2012 18:23
Faðmaði dómarann í miðjum leik Strákarnir á Leikbrot.is eru oft fljótir að duglegir að birta flottustu tilþrifin í íslenska körfuboltanum og setja þau saman í skemmtilegt myndbrot á heimasíðu sinni.Nýjasta myndbrotið snýst þó meira um mannlega þáttinn í körfuboltanum heldur en tilþrif í sjálfum körfuboltanum. Körfubolti 4. nóvember 2012 07:00
Dramatískur Haukasigur í Grindavík Siarre Evans tryggði Haukum eins stigs sigur á nýliðum Grindavíkur á vítalínunni þegar liðin mættust í eina leik dagsins í Dominosdeild kvenna í körfubolta. Haukar unnu leikinn 79-78, enduðu með því fjögurra leikja taphrinu og komust upp úr botnsæti deildarinnar. Körfubolti 3. nóvember 2012 18:31
Keflavík enn með fullt hús stiga Keflavík fer vel af stað í Domino's-deild kvenna en liðið er enn með fullt hús stiga eftir sex umferðir. Liðið hafði betur gegn Val í kvöld, 69-65. Körfubolti 31. október 2012 20:59
Fyrsti sigur Fjölnis - úrslitin í kvennakörfunni í kvöld Heil umferð fór fram í Dominos-deild kvenna í kvöld. Valskonur unnu sinn fjórða leiki sinn í röð og Fjölnir fór á Ásvelli og vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu. KR-konur eru líka að rétta úr kútnum eftir sigur á Íslandsmeisturum Njarðvíkur í Vesturbænum. Keflavík vann síðan Snæfell í toppslagnum eins og áður hefur komið fram. Körfubolti 24. október 2012 21:11
Keflavíkurkonur fyrstar til að vinna Snæfell í vetur Keflavíkurkonur eru einar á toppi Dominos-deildar kvenna í körfubolta eftir fjögurra stiga sigur á Snæfelli, 73-69, í æsispennandi uppgjöfi tveggja efstu liðanna í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Þetta var ennfremur fyrsta tap Snæfells á tímabiliunu en liðið var búið að vinna níu fyrstu leiki sína í deild, Fyrirtækjabikar og Meistarakeppni. Körfubolti 24. október 2012 20:59
Toppslagur hjá konunum í kvöld Keflavík og Snæfell hafa unnið fjóra fyrstu leiki sína í Dominos-deild kvenna í körfubolta í vetur en annað liðanna mun tapa sínum fyrsta leik í kvöld þegar toppliðin mætast í Toyota-höllinni í Keflavík. Körfubolti 24. október 2012 06:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 70-68 Valskonur fögnuðu sínum þriðja sigri í röð í kvöld þegar þær unnu dramatískan 70-68 sigur á Haukum í Vodafone-höllinni í kvöld í 4. umferð Dominos-deildar kvenna. Unnur Lára Ásgeirsdóttir skoraði sigurkörfuna 5,7 sekúndum fyrir leikslok og Valsliðið náði að stoppa Haukana í lokin. Þetta var sveiflukenndur leikur þar sem bæði lið náðu tíu stiga forskoti í fyrri hálfleiknum og skiptust á að taka frumkvæðið. Körfubolti 17. október 2012 21:47
Úrslit kvöldsins í Dominos-deild kvenna Fjórir leikir fóru fram í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell, Keflavík, Valur og KR unnu öll sigra. Körfubolti 17. október 2012 21:05
Heldur sigurganga Snæfells og Keflavíkur áfram? Heil umferð fer fram í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld og meðal leikja eru Reykjanesbæjarslagur í Ljónagryfjunni og slagur KFUM-félöganna í Vodafonehöllinni. Keflavík og Snæfell hafa unnið alla sína leiki til þessa en Fjölnir og Grindavík eru enn að bíða eftir sínum fyrsta sigri. Körfubolti 17. október 2012 14:12
Lele Hardy með tröllatvennu puttabrotin Lele Hardy, spilandi þjálfari Njarðvíkurliðsins, lét ekki puttabrot hindra sig í að leið sitt lið til sigurs í Dominsdeild kvenna í gærkvöldi. Körfubolti 11. október 2012 15:15
Keflavík og Snæfell enn ósigruð Heil umferð fór fram í Domino's-deild kvenna í kvöld en þar voru úrslit flest eftir bókinni. Körfubolti 10. október 2012 20:57
Öruggt hjá Val gegn KR Valur vann afar öruggan sigur, 70-45, á KR þegar liðin mættust í Dominos-deild kvenna í kvöld. Körfubolti 7. október 2012 19:15
Úrslit dagsins í Dominos-deild kvenna Þrír leikir fóru fram í Dominos-deild kvenna í dag og urðu Íslandsmeistarar Njarðvíkur að sætta sig við tap gegn Haukum á heimavelli. Körfubolti 6. október 2012 18:37
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Snæfell 48-64 | Snæfellsvörnin lokaði öllum leiðum Kvennalið Snæfells er til alls líklegt í Dominosdeild kvenna og sýndi styrk sinn með sextán stiga sigri á bleikum Valskonum, 64-48, í Vodafonehöllinni í kvöld. Körfubolti 3. október 2012 22:03
Keflavík og Snæfell byrjuðu vel | Úrslit kvöldsins Fyrsta umferð Domino's deild kvenna fór fram í kvöld en Keflavík og Snæfell unnu góða sigra á útivelli, sem og Íslands- og bikarmeistarar Njarðvíkur. Körfubolti 3. október 2012 21:09
Valsstelpurnar verða bleikar í heilan mánuð Kvennalið körfuknattleiksdeildar Vals ætlar að spila í bleikum búningum í öllum leikjum sínum í Domino's deildinni í októbermánuði. Í tilefni átaks Krabbameinsfélagsins í október, Bleiku slaufunnar, hafa Valsstelpurnar, ákveðið að leggja þessu þarfa málefni lið, bæði með því að vekja athygli á því sem og að safna fé. Körfubolti 3. október 2012 15:34
Ertu búinn að velja þér þínar stelpur í Draumaliðsleik KKÍ og Domino's? KKÍ og Domino's hafa sett af stað Draumaliðsdeild í Domino's deildunum og geta aðdáendur íslensk körfubolta nú valið sér leikmenn úr deildinni og sett í lið, og þar með safnað stigum í vetur og keppt um verðlaun í lok tímabils. Einnig er hægt að stofna einkadeildir og keppa gegn vinum. Körfubolti 3. október 2012 12:30
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Snæfell 72-78 | Snæfell Lengjubikarmeistari Snæfellskonur unnu fyrsta titilinn í kvennakörfunni eftir sex stiga sigur á Keflavík, 78-72, í æsispennandi úrslitaleik Lengjubikars kvenna sem fram fór í Toyotahöllinni í Keflavík í kvöld. Þetta er fyrstu titill kvennaliðs Snæfells. Liðin áttu bæði góða spretti og lentu einnig bæði í því að missa miður tíu stiga forskot en Snæfell var sterkari á lokasprettinum. Körfubolti 27. september 2012 20:03
Keflavík og Snæfell geta orðið Lengjubikarmeistarar í kvöld Í kvöld verður spilað um fyrsta bikar vetrarins í kvennakörfunni þegar Keflavík tekur á móti Snæfelli í úrslitaleik Lengjubikarsins en spilað er í Toyota-höll þeirra Keflvíkinga. Þrjú lið sóttu um að halda úrslitaleikinn og ákvað stjórn KKÍ að fela Keflavík umsjónina með leiknum. Leikurinn hefst kl. 19:15. Körfubolti 27. september 2012 15:17
Snæfellskonur komust í úrslitaleikinn í Lengjubikarnum Snæfellskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna eftir átta stiga sigur á Haukum, 77-68, í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í dag. Snæfell er búið að vinna riðilinn þrátt fyrir að eiga einn leik eftir því Valskonur, sem unnu Fjölni í lokaleik sínum, verða alltaf neðar en Snæfell á tapi í innbyrðisleik liðanna. Körfubolti 22. september 2012 18:15
Keflavík fær til sína eina bestu þriggja stiga skyttuna í sögu bandaríska háskólaboltans Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við bandaríska bakvörðinn Jessica Jenkins um að leika með kvennaliði félagsins á komandi tímabili. Jessica er 22 ára bakvörður sem er nýútskrifuð úr St. Bonaventure háskólanum og lék við góðan orðstýr í NCAA háskólaboltanum. Körfubolti 22. september 2012 16:30
Keflavíkurkonur fá að vera á heimavelli í úrslitaleiknum Körfuknattleiksamband tilkynnti á heimasíðu sinni að úrslitaleikur Lengjubikars kvenna fari fram í Toyota-höllinni í Keflavík á fimmtudaginn í næstu viku, þann 27. september. Þrjú lið sóttu um að halda úrslitaleikinn og ákvað stjórn KKÍ að fela Keflavík umsjónina með leiknum. Körfubolti 22. september 2012 14:15
Keflavíkurkonur ekki í miklum vandræðum í Garðabænum Keflavík vann 27 stiga sigur á Stjörnunni, 77-50, í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík lék án Birnu Valgarðsdóttur í leiknum en það kom ekki að sök. Keflavíkurkonur hafa því byrjað tímabilið á tveimur sannfærandi sigrum því þær unnu 30 stiga sigur á Íslands- og bikarmeisturum Njarðvíkur í fyrsta leik. Körfubolti 13. september 2012 21:18
Snæfellskonur eru til alls líklegar í vetur - myndir Kvennalið Snæfells vann 30 stiga útisigur á Fjölni í kvöld, 92-62, í fyrsta leik liðsins í Lengjubikarnum en stelpurnar hans Inga Þórs Steinþórssonar eru til alls líklegar í kvennakörfunni í vetur. Körfubolti 12. september 2012 22:18
Lengjubikar kvenna í körfu: Útisigrar hjá Snæfelli, KR og Val Snæfell, KR og Valur unnu öll örugga útisigra í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell vann Fjölni með 30 stigum í Grafarvogi, KR vann Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur með 11 stigum í Ljónagryfjunni og Valur vann 34 stiga sigur á Hamar í Hveragerði. Öll þessi þrjú lið voru að leika sína fyrstu leiki í keppninni sem hófst um síðustu helgi. Körfubolti 12. september 2012 20:59
Guðrún Gróa spilar með KR í vetur Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir er búinn að rífa körfuboltaskóna fram úr hillunni á nýjan leik og ætlar að spila með KR í vetur. Körfubolti 11. september 2012 10:00
Margrét Kara ófrísk og spilar ekki með KR í vetur Margrét Kara Sturludóttir, landsliðskona og fyrirliði kvennaliðs KR í körfubolta, verður ekki með KR-liðinu í Dominos-deildinni í vetur. Margrét Kara er ófrísk og spilar ekki körfu næstu mánuðina. Þetta kemur fram í frétt á karfan.is. Körfubolti 4. september 2012 14:15