Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Við lifum á tímum sem mætti kalla hlé frá áföllum, engin þjóðarvá steðjar að. Hvorki eldgos, efnahagshrun né heimsfaraldur setja mark sitt á samfélagið. Sólin rís sem fyrr yfir landi okkar fagra og landsmenn halda áfram sínu daglega lífi. En á hinu háa Alþingi ríkir óhugnanleg þróun,valdníðsla og yfirlæti gagnvart lýðræði, málfrelsi og ekki síst stöðu sveitarfélaganna í landinu. Skoðun 11. júlí 2025 17:00
Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Einn karlmaður var handtekinn í umfangsmiklum alþjóðlegum aðgerðum íslenskra lögreglu um mansal á Íslandi. Maðurinn sem var handtekinn gekkst undir sektargerð vegna vændiskaupa. Hann var handtekinn á vettvangi þegar lögregla fylgdist með húsnæðinu. Innlent 11. júlí 2025 14:52
Með skynsemina að vopni Það er ekki sjálfgefið að rökræður skili árangri í stjórnmálum. Oft virðist sem fjöldinn ráði ferðinni frekar en rök, en það eru líka stundir sem minna okkur á gildi skynsemi, röksemi og yfirvegunar. Þau gildi geta leitt til betri ákvarðana, sérstaklega þegar þau eru höfð að leiðarljósi í lýðræðislegu ferli. Skoðun 1. júlí 2025 15:31
Sérsveitin handtók vopnaðan mann í Sandgerði Sérsveitin var kölluð að húsi í Sandgerði upp úr hádegi þar sem maður með hníf var handtekinn sagður vera í ójafnvægi. Lögreglan yfirbugaði manninn og lagði hald á hnífinn. Innlent 26. júní 2025 19:23
„Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Tímamót urðu í málefnum barna á Íslandi í dag þegar Farsældarráð Suðurnesja var formlega stofnað. Bæjarstjórar þriggja sveitarfélaga sem standa að stofnun ráðsins segja það sögulegt skref fyrir landshlutann. Innlent 23. júní 2025 13:31
Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Íbúar Suðurnesjabæjar ráða sér ekki yfir kæti þessa dagana því það var verið að opna nýja og glæsilega heilsugæslustöð í Sandgerði en þar munu heilbrigðisstarfsmenn frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinna skjólstæðingum nýju stöðvarinnar. Innlent 17. júní 2025 21:03
Svo verði Íslands ástkæra byggð ei öðrum þjóðum háð 81 ár er liðið síðan Ísland varð sjálfstæð þjóð og lýðveldið Ísland stofnað við Lögberg á Þingvöllum, við Öxará. Það er ekki langur tími, aðeins einn mannsaldur. Enn eru meðal okkar þeir sem muna daginn, muna hátíðina. Skoðun 17. júní 2025 10:32
Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð – loksins orðin að veruleika 4.júní 2025 markaði stór tímamót fyrir okkur í Suðurnesjabæ, því þá opnaði ný heilsugæsla í Vörðunni í Suðurnesjabæ. Þetta er árangur sem margir hafa beðið eftir lengi og sannar að samvinna, staðfesta og skýr forgangsröðun skilar raunverulegum árangri fyrir samfélagið okkar. Skoðun 5. júní 2025 10:15
Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift. Innlent 31. maí 2025 15:02
Fyrsta mastrið í Suðurnesjalínu 2 risið Fyrsta mastur Suðurnesjalínu 2 reis við Kúagerði í morgun. Alls munu 86 mastur rísa vegna lagningar línunnar og markaði framkvæmdin í morgun því tímamót í verkefninu. Innlent 21. maí 2025 14:21
Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi Síðan á miðnætti hafa verið fimm útköll á sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu segir að það sé óvenju mikið miðað við árstíma. Fyrsta útkallið var frá fólki sem var á siglingu á miðjum Seyðisfirði og hin fjögur vegna strandveiðibáta í vandræðum. Innlent 19. maí 2025 12:48
Brýn þörf á auknum fjárveitingum vegna sjávarflóða Sjávarflóð eru náttúruvá sem Íslendingar þurfa að búa við og mikilvægt er að bregðast við á viðeigandi hátt. Líkt og í baráttunni við ofanflóð, þar sem sterk og markviss varnarvinna hefur skilað góðum árangri, er nauðsynlegt að setja upp öflugar sjóvarnir til að lágmarka skaða af völdum sjávarflóða. Skoðun 19. maí 2025 09:02
Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, heldur fullum launum út skipunartíma sinn og í sex mánuði til viðbótar. Hann verður því á launum til og með 15. maí á næsta ári. Innlent 16. maí 2025 14:51
Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Úlfari Lúðvíkssyni var boðið starf lögreglustjórans á Austurlandi á fundi með ráðherra án þess að þurfa að sækja starfið gegn því að hann myndi láta af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Úlfar afþakkaði það á fundi og lét svo af störfum sem lögreglustjóri. Frá þessu er greint á vef mbl.is og er vísað í fundargerð af fundi ráðherra og lögreglustjórans. Innlent 15. maí 2025 12:59
Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Stjórnsýslufræðingur telur líkur á að afsögn Úlfars Lúðvíkssonar fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum tengist útlendingapólitík. Hann segir framvinduna undanfarna daga óvenjulega. Innlent 14. maí 2025 19:58
Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Prófessor í stjórnmálafræði við HA segir skiljanlegt að lögreglustjórinn á Suðurnesjum líti svo á að hann hafi verið rekinn í ljósi viðtekinnar venju. Lögreglustjórinn lét sjálfur af embætti á miðnætti eftir að dómsmálaráðherra sagði honum að staða lögreglustjórans yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð tímabundið í embættið. Innlent 14. maí 2025 13:32
„Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð tímabundið í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eftir að Úlfar Lúðvíksson baðst lausnar. Hún segir embættið víðamikið og áskoranirnar margar en er jafnframt þakklát fyrir traustið. Innlent 13. maí 2025 20:35
Víðir og Reynir ekki í eina sæng Ekkert verður af sameiningu íþróttafélaganna Víðis í Garði og Reynis í Sandgerði. Íslenski boltinn 13. maí 2025 15:31
Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina „Það eru miklar breytingar framundan á skipulagi og stærð verkefna embættisins. Því fannst mér einfaldlega heiðarlegt og heilbrigt að auglýsa embætti lögreglustjórans og tilkynnti honum það í samræmi við lög og reglur að það stæði til.“ Innlent 13. maí 2025 14:11
Úlfar hættir sem lögreglustjóri Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun láta af embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum á miðnætti. Hann segir að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hafi tjáð sér að staða lögreglustjórans á Suðurnesjum yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Innlent 13. maí 2025 13:20
Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Undanfarnar vikur hafa íbúar Suðurnesjabæjar verið dregnir inn í mál sem hefur reynst bæði flókið og misvísandi. Boðað hefur verið til kosningar meðal félagsmanna íþróttafélaganna Reynis og Víðis um stofnun nýs íþróttafélags. En er kosningin í raun aðeins um nýtt íþróttafélag, eða eru önnur og stærri mál falin bak við tjöldin? Hér verður reynt að upplýsa málið af fullri hreinskilni og ábyrgð. Skoðun 9. maí 2025 23:00
Röðin í öryggisleitina nær langt inn í brottfararsal Örtröð ríkir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem ein stærsta ferðahelgi ársins er að ganga í garð. Röðin í öryggisleitina náði langt inn í brottfararsalinn á jarðhæð flugstöðvarinnar um klukkan 09:30 í morgun. Isavia biðlar til fólks að mæta snemma á völlinn. Innlent 16. apríl 2025 10:29
Ósáttur við aukna gjaldtöku við flugvöllinn fyrir leigubílstjóra Isavia stefnir að því að hækka gjaldtöku fyrir leigubílstjóra sem stöðva við flugstöðina til að sækja farþega. Hækka á gjaldið til að geta ráðið starfsmenn til að sinna gæslu við leigubílastöðina og aðstoða farþega við að finna sér leigubíl. Öryggisgæsla við leigubílasvæðið hefst 1. maí á háannatíma en hærri gjaldtaka síðar. Neytendur 16. apríl 2025 07:53
Átján ára með 13 kíló af kókaíni Piltur á nítjánda aldursári er í gæsluvarðhaldi fyrir innflutning á þrettán kílóum af kókaíni. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir sérstakt að leggja hald á flugfreyjutösku fulla af fíkniefnum, sem ferðast var með í handfarangri. Áætlað götuvirði er um 220 milljónir króna. Innlent 14. apríl 2025 19:05
Verður Frelsið fullveldinu að bráð? Viðreisn hefur ítrekað talað fyrir frelsi og lýst sig sem flokkur sem berst fyrir opnu, frjálsu þjóðfélagi. Flokkurinn hefur þó jafnframt sett Evrópusambandsaðild á oddinn í sínum málflutningi og telur hana nauðsynlega fyrir framtíð Íslands. En hver er raunveruleg merking frelsis í þeirra huga? Getur Ísland verið frjálst og fullvalda innan Evrópusambandsins, eða felst í þeirri stefnu ákveðin mótsögn? Skoðun 14. mars 2025 12:02
Bæjarfulltrúum í Suðurnesjabæ fækkað um tvo Meirihluti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar samþykkti að fækka bæjarfulltrúum um tvo á næsta kjörtímabili. Þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði gegn breytingunni. Innlent 12. mars 2025 12:14
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11. mars 2025 23:17
Hundur í hjólastól í Sandgerði Hundurinn Arlo í Suðurnesjabæ lætur ekkert stoppa sig þrátt fyrir að hafa fæðst með engar framlappir. Arlo notar hjólastól til að komast leiða sinnar eða hleypur um á afturlöppunum á heimili sínu. „Lífsglaðasti hvolpur, sem ég hef vitað um“, segir eigandinn. Lífið 9. mars 2025 20:06
Flugstarfsemin skapi tvö til fjögur hundruð ný störf á ári næsta áratuginn Leifsstöð er orðin ígildi stóriðju. Spáð er að flugstarfsemin á Keflavíkurflugvelli muni skapa milli tvö og fjögur hundruð ný störf á hverju ári næsta áratuginn. Innlent 8. mars 2025 23:01
„Þetta eru auðvitað náttúruhamfarir“ Stór svæði eru á floti í Suðurnesjabæ eftir veðrið sem hefur gengið þar yfir síðustu daga. Bæjarstjórinn segist lengi hafa kallað eftir bættum sjóflóðavörnum á svæðinu. Bryggjunni í Vogum hefur verið lokað vegna skemmda. Innlent 4. mars 2025 21:22