Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfuboltamaðurinn og Íslandsmeistarinn Ólafur Ólafsson úr Grindavík var í dag sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu. Körfubolti 17. júní 2026 15:12
Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Íslandsmeistarar Grindavíkur munu áfram leika undir stjórn þjálfarans Jóhanns Þórs Ólafssonar á næstu leiktíð. Íslenskir lykilmenn hafa einnig framlengt samninga sína og DeAndre Kane verður áfram með liðinu. Körfubolti 5. júní 2026 14:35
Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Eins og búist var við losnaði DeAndre Kane, leikmaður Íslandsmeistara Grindavíkur í körfubolta, fljótt úr fangelsi í Pittsburgh. Hann er væntanlegur aftur til Íslands í september til að verja Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 4. júní 2026 12:02
Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Þróttur vann mikilvægan sigur á Grindvíkingum í sjöundu umferð Lengjudeildar karla á Avis-vellinum í Laugardalnum í kvöld. Lokatölur 2-0 fyrir heimamenn. Íslenski boltinn 1. júní 2026 21:08
Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Tíu marka tryllingur á Akureyri og þrenna varamanns í Kaplakrika var á meðal þess sem stóð upp úr markasúpunni í 7. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Öll mörkin má nú sjá á Vísi. Íslenski boltinn 31. maí 2026 11:47
„Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ „Ég vissi alveg að hann skuldaði barnameðlög og hann var alveg opinn með það við okkur. En ég vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt. Ég hélt að þetta væri í einhverju ferli,“ segir Óli Björn Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, um mál DeAndre Kane sem handtekinn var við komu heim frá Íslandi til Pittsburgh á föstudagskvöld. Körfubolti 31. maí 2026 10:16
Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag DeAndre Kane, lykilmaður Íslandsmeistaraliðs Grindavíkur í körfubolta, var handtekinn í gærkvöld við komuna heim til Pittsburgh. Körfubolti 30. maí 2026 17:08
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Breiðablik vann öruggan 0-5 sigur á Grindavík/Njarðvík í sjöundu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Gestirnir komust yfir snemma í leiknum þar sem þær nýttu sér mistök heimakvenna, áður en þær gerðu endanlega út um leikinn í seinni hálfleik. Íslenski boltinn 30. maí 2026 13:17
Pétur Már tekur við Grindavík Pétur Már Sigurðsson hefur verið ráðinn til starfa sem þjálfari kvennaliðs Grindavík í Bónus deildinni í körfubolta. Hann tekur við af Þorleifi Ólafssyni sem lét af störfum eftir síðasta tímabil. Körfubolti 28. maí 2026 14:26
Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Fylkir og Afturelding eru í tveimur efstu sætum Lengjudeildar karla í fótbolta eftir fjöruga sjöttu umferð í kvöld. Íslenski boltinn 27. maí 2026 21:18
Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH Fimm leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í gærkvöld og mörkin úr þeim má sjá hér fyrir neðan. Íslenski boltinn 26. maí 2026 14:30
Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu Grindavík hefur endursamið við fjóra leikmenn liðsins fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna í körfubolta. Leitin að nýjum þjálfara stendur enn yfir en nýr maður nálgast. Körfubolti 26. maí 2026 13:19
Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma ÍBV og Grindavík/Njarðvík gerðu 1-1 jafntefli í 6. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Leikurinn var afar kaflaskiptur og tókst heimakonum að jafna leikinn í uppbótartíma. Íslenski boltinn 25. maí 2026 15:17
Sjáðu öll mörkin: Hrafnhildur Ása og Sigríður í ham Íslandsmeistarar Breiðabliks náðu þriggja stiga forskoti á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta þegar 5. umferðin fór fram í gær. Öll mörkin úr leikjunum fimm má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 21. maí 2026 11:00
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Stjarnan 1-1 | Afmælisbarnið Ingibjörg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna Hér fer fram textalýsing frá leik Grindavík/Njarðvík og Stjörnunnar í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Flautað verður til leiks á JBÓ vellinum klukkan 19:15. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 4. Íslenski boltinn 20. maí 2026 18:31
Grét alla Reykjanesbrautina Grindvíkingar gleðjast þessa dagana eftir langþráðan Íslandsmeistaratitil í körfubolta. Þungbær vegur var troðinn í átt að titlinum og fráfarandi formaður körfuknattleiksdeildar getur vart hugsað sér betri leið til að kveðja. Körfubolti 20. maí 2026 08:02
Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ Það er hreinlega tilefni til að reisa styttu af Bandaríkjamanninum Jeremy Pargo í Grindavík eftir guðdómlega frammistöðu hans í gærkvöld þegar Grindvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Tilþrif Pargo verða lengi í minnum höfð og má nú sjá þau á Vísi. Körfubolti 19. maí 2026 08:34
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta í fjórða sinn í sögunni eftir sigur í Síkinu í kvöld gegn heimamönnum í liði Tindastóls. Lokatölur 101-109. Grindavík hafði betur í úrslitaeinvíginu 3-1. Fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins síðan árið 2013. Körfubolti 18. maí 2026 22:07
„Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Taiwo Badmus segir Tindastólsliðið ekki enn hafa sýnt sínar bestu hliðar en ætlar að nýta orkuna frá áhorfendum á Sauðárkróki í kvöld til að jafna einvígið gegn Grindavík, um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Körfubolti 18. maí 2026 10:02
Dregið í Mjólkurbikarnum: Stjarnan og FH mæta nýliðunum Að loknum 3-2 sigri Þróttar á Breiðabliki í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag var dregið í átta liða úrslit keppninnar. Íslenski boltinn 16. maí 2026 17:57
Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Ragnar Ágústsson var að sjálfsögðu valinn Just Wingin' it maður leiksins eftir magnaða frammistöðu sína með Tindastóli gegn Grindavík í kvöld, þegar Stólarnir héldu sér á lífi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn með 94-89 sigri. Körfubolti 15. maí 2026 22:04
Sýna puttann til stuðnings Kane Stuðningsmenn körfuboltaliðs Grindavíkur standa með DeAndre Kane og mættu sumir hverjir í sérstökum bol Kane til heiðurs, á leikinn í kvöld þar sem Grindavík getur með sigri orðið Íslandsmeistari. Körfubolti 15. maí 2026 18:44
Kane sektaður en ekki settur í leikbann DeAndre Kane var ekki dæmdur í leikbann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ fyrir framkomu sína eftir leik Grindavíkur og Tindastóls í Síkinu á þriðjudag. Hann fær 80.000 króna sekt. Körfubolti 14. maí 2026 21:54
Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfuknattleiksdeild Grindavíkur sendi frá sér yfirlýsingu í morgunsárið þar sem greint var frá því að stuðningsmaður liðsins hefði verið úrskurðaður í bann. Körfubolti 14. maí 2026 11:02
ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Bestu deildar lið ÍA lenti í vandræðum með Lengjudeildarlið Grindavíkur en vann samanlagt 7-6 eftir vítakeppni í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Fyrrum hetjan Gunnleifur Orri Gunnleifsson klikkaði á örlagastundu. Íslenski boltinn 13. maí 2026 22:12
Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Kæra frá eftirlitsmanni á leik Tindastóls og Grindavíkur hefur ratað inn á borð aga- og úrskurðanefndar Körfuknattleikssambands Íslands vegna hátterni DeAndre Kane, leikmanns Grindavíkur, eftir leik liðanna í gærkvöld. Körfubolti 13. maí 2026 19:39
Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Allir miðar sem fóru í sölu á þriðja leik Grindavíkur og Tindastóls í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla seldust upp á innan við þremur mínútum. Körfubolti 13. maí 2026 18:42
„Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Auðvitað á Kane bara að sleppa þessu en menn verða að halda haus,“ sagði Sævar Sævarsson eftir fokkjúmerkin sem DeAndre Kane sendi stuðningsfólki Tindastóls eftir sigur Grindavíkur á Sauðárkróki í gærkvöld. Körfubolti 13. maí 2026 08:32
„Einhver barnaskapur held ég“ Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var mjög ánægður að ná að klára leik tvö í kvöld á móti Tindastóli í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Körfubolti 12. maí 2026 22:58
Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var ekki ánægður eftir tap hans manna fyrir Grindavík í Síkinu á Sauðárkróki í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í kvöld. Hann kallar eftir viðurlögum fyrir DeAndre Kane, leikmanni Grindavíkur, sem var með læti eftir leik. Körfubolti 12. maí 2026 21:59