Breiðablik getur tryggt sér titilinn í dag með smá hjálp frá KR Fimm leikir fara fram í Pepsi Max deild karla í fótbolta í dag og gæti farið svo að Breiðablik sé orðið Íslandsmeistari áður en það fer að myrkva um kvöldmatarleytið. 19.9.2021 08:01
Dagskráin í dag: Breiðablik getur orðið Íslandsmeistari, NFL, golf og fleira Orðatiltækið „sunnudagar til sælu“ á vel við í dag enda er boðið til veislu á rásum Stöðvar 2 Sport. Alls eru 14 beinar útsendingar á dagskrá. 19.9.2021 06:01
Stefnir á jafn farsælt samband með Maguire og hann átti með Ramos Franski miðvörðurinn Raphaël Xavier Varane vonast eftir að samstarf hans og Harry Maguire í hjarta varnar Manchester United verði jafn farsælt og samstarf hans með Sergio Ramos hjá Real Madríd. 18.9.2021 23:01
Martin átti fínan leik í naumu tapi Martin Hermannsson spilaði nauman hálftíma í fimm stiga tapi Valencia gegn Baskonia í ACB-deildinni, spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, í kvöld. Lokatölur 72-67 Baskonia í vil. 18.9.2021 20:46
Fyrsta tap Everton kom gegn Aston Villa Síðasti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var viðureign Aston Villa og Everton. Fór það svo að Villa vann öruggan 3-0 sigur en fyrir leikinn hafði Everton ekki tapað undir stjórn Rafa Benitez. 18.9.2021 18:25
Birkir og Balotelli á skotskónum í sigri Liðsfélagarnir Birkir Bjarnason og Mario Balotelli skoruðu sitthvort markið í 3-1 sigir Adana Demirspor á Rizespor í tyrknesku úrvalsdeildinni. 18.9.2021 18:16
Meistararnir á toppinn eftir stórsigur Ítalíumeistarar Inter Milan gjörsamlega pökkuðu Bologna saman í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, er liðin mættust á Giuseppe Meazza-vellinum. Lokatölur 6-0 og Inter komið tímabundið á topp deildarinnar. 18.9.2021 18:00
Haukar og Valur með góða sigra Haukar og Valur hófu tímabilið í Olís deild kvenna á góðum sigrum í dag. Valur lagði Aftureldingu örugglega í Mosfellsbæ, lokatölur 20-31. Haukar unnu svo sex marka sigur á HK, 21-15. 18.9.2021 17:45
Klopp mjög sáttur með sigur í erfiðum leik: „Vorum ekki að spila frábærlega“ „Einn erfiðasti 3-0 sigur sem ég hef upplifað,“ sagði Jürgen Klopp um sigur Liverpool á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag. 18.9.2021 17:01
Fram taplaust í gegnum Lengjudeildina Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í fótbolta í dag. Topplið Fram fór taplaust í gegnum deildina þökk sé 6-1 sigri á Aftureldingu í dag. Það þýðir að Afturelding tapaði síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni 14-1. 18.9.2021 16:30