Reglur um fjárhagslega háttvísi á bak og burt svo moldríkir eigendur geti eytt eins og þeim sýnist Reglur UEFA um fjárhagslega háttvísi (FFP) eru á leiðinni í grunna gröf. Unnið er að nýju regluverki til að passa upp á eyðslu knattspyrnuliða í Evrópu. Félögin sem voru á bakvið hugmyndina að svokallaðri ofurdeild munu vinna saman að nýju regluverki. 20.8.2021 16:00
Með skaddað liðband og óvíst með þátttöku hans í komandi landsleikjum Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason er með sködduð liðbönd í ökkla og verður að öllum líkindum ekki með íslenska landsliðinu er það spilar þrjá leiki í undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í byrjun septembermánaðar. 20.8.2021 13:32
Ásakaðir um að hafa slegið og sparkað í unga svarta leikmenn Chelsea á tíunda áratugnum The Athletic hefur undir höndum dómsskjöl sem sýna fram á skelfilegt kynþáttaníð sem ungir svartir leikmenn enska knattspyrnufélagsins Chelsea urðu fyrir á tíunda áratug síðustu aldar. Gerendurnir eru þjálfari leikmannanna sem og yfirmaður unglingastarfs félagsins. 20.8.2021 10:31
Segir tíma sinn hjá Esbjerg lyginni líkastan og að þjálfarateymið hafi ekki gert neitt rangt Fyrrum styrktarþjálfari Íslendingaliðs Esbjerg segir tíma sinn hjá félaginu vera lyginni líkastan. Hann telur leikmenn hafa snúist gegn Peter Hyballa, þáverandi þjálfara, vegna eigin hagsmuna og ekkert til í ásökunum þeirra. 19.8.2021 17:00
Rifti samningi sínum við Roma og samdi við erkifjendurna í Lazio Spánverjinn Pedro er genginn í raðir ítalska knattspyrnufélagsins Lazio. Það sem vekur athygli við þessi félagaskipti er að Pedro lék með Roma á síðustu leiktíð en hefur nú skipt um félag í Rómarborg, eitthvað sem fáir hafa gert í gegnum tíðina. 19.8.2021 16:31
Draymond og Durant kenna stjórninni um hvernig fór fyrir gullaldarliði Warriors Draymond Green og Kevin Durant, fyrrum samherjar hjá Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta fóru yfir af hverju Durant yfirgaf eitt af bestu liðum NBA-sögunnar sumarið 2019. 19.8.2021 16:01
Sigvaldi Björn frá vegna höfuðhöggs Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson fékk þungt högg á höfuðið í vináttuleik með liði sínu Vive Kielce í gær. Hann missir því af leik liðsins gegn Füchse Berlin í dag. 19.8.2021 15:30
Klopp biður stuðningsfólk Liverpool um að hætta níðsöngvum um samkynhneigð Jurgen Klopp, þjálfari enska knattspyrnuliðsins Liverpool, hefur beðið stuðningsfólk félagsins um að hætta öllum hómófóbískum söngvum. Slíkir söngvum var beint að Billy Gilmour, leikmanni Norwich City, í leik liðanna um liðna helgi. 19.8.2021 15:01
Lewandowski vill nýja áskorun og ætlar að yfirgefa Bayern Framherjinn Robert Lewandowski hefur gefið það út að hann sé í leit að nýrri áskorun og vilji því yfirgefa herbúðir Þýskalandsmeistara Bayern München. Þýska félagið er talið vilja fá rúmlega 100 milljónir punda fyrir þennan magnaða leikmann. 19.8.2021 08:14
Ødegaard búinn að semja við Arsenal Enska knattspyrnufélagið Arsenal er við það að festa kaup á norska sóknartengiliðnum Martin Ødegaard. Skrifar hann undir fimm ára samning við félagið. Sá norski mun kosta Arsenal tæplega 40 milljónir evra. 18.8.2021 16:31