KSÍ auglýsir loks eftir manni í stað Arnars Nú þegar tuttugu mánuðir hafa liðið þar sem Arnar Þór Viðarsson hefur verið bæði þjálfari A-landsliðs karla í fótbolta og sviðsstjóri knattspyrnusviðs KSÍ hefur síðarnefnda starfið verið auglýst laust til umsóknar. 23.8.2022 14:08
Átta leikmenn sem ættu að skipta um félag: „Þá vantar svona fauta“ Handboltasérfræðingurinn Arnar Daði Arnarsson tók saman lista yfir átta leikmenn sem hann taldi að ættu helst að skipta um félag, nú þegar styttist í að Olís-deild karla í handbolta hefjist. 23.8.2022 13:37
Bailly segir bæ við Man. Utd Miðvörðurinn Eric Bailly hefur samþykkt að skipta frá Manchester United yfir til franska knattspyrnuliðsins Marseille. 23.8.2022 12:00
Blóðgaði Ólaf en telur „margar ástæður“ fyrir rauða spjaldinu Kian Williams, leikmaður Keflavíkur, var enn harður á því eftir leikinn við FH í Bestu deildinni í gærkvöld að hann hefði ekki átt að fá rautt spjald. Hann gaf í skyn að dómari leiksins hefði haft fleiri ástæður til að lyfta rauða spjaldinu en aðeins þá að fara eftir reglum. 23.8.2022 10:01
Milner hraunaði yfir Van Dijk James Milner var hundóánægður með varnarleik félaga síns, Virgils van Dijk, þegar Manchester United skoraði fyrra mark sitt í 2-1 sigrinum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. 23.8.2022 09:00
Þóttist skjóta stuðningsmenn mótherjanna Brasilíski knattspyrnumaðurinn Yago Cariello gerði allt brjálað þegar hann fagnaði sigurmarki sínu, í efstu deild Portúgals, með því að þykjast skjóta stuðningsmenn andstæðinga sinna. 23.8.2022 08:00
LeBron James með djásn í tönnum Körfuboltastjarnan LeBron James var langt frá því að fá að handleika meistaraverðlaun á síðustu leiktíð í NBA-deildinni en hann hefur nú fengið sér annars konar skartgrip. 23.8.2022 07:31
„Veit ekkert hvenær ég brotnaði“ „Þetta er mikill skellur en um leið er þetta bara partur af þessu,“ segir Adolf Daði Birgisson, einn af ungu leikmönnum sem slegið hafa gegn í liði Stjörnunnar í Bestu deildinni í sumar. Tímabilinu er lokið hjá honum. 22.8.2022 14:31
Emil hættur eftir tvö hjartastopp Emil Pálsson lýsti því yfir í dag að knattspyrnuferli sínum væri lokið en ástæðan er sú að hann hefur tvisvar farið í hjartastopp á síðustu misserum. 22.8.2022 13:30
Rooney myndi ekki láta Ronaldo byrja í kvöld Wayne Rooney telur að sinn gamli liðsfélagi Cristiano Ronaldo eigi best heima á varamannabekknum í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 22.8.2022 12:30