Amanda „framtíðarleikmaður fyrir okkur ef hún velur rétt“ „Að sjálfsögðu viljum við ekki missa svona leikmann,“ segir Þorsteinn Halldórsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, um Amöndu Andradóttur sem valin hefur verið í U19-landslið Noregs í fótbolta. 2.6.2021 10:00
Enski EM-hópurinn klár og Trent með eftir allt saman Gareth Southgate hefur tilkynnt hvaða 26 leikmenn hann ætlar að taka með sér á Evrópumótið sem hefst eftir tíu daga. 1.6.2021 16:17
Aðrar gerist aðalnúmerið þegar þær geti ekki treyst á Söru Rúmt ár er í að leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta pakki í töskur og haldi á Evrópumótið í Englandi. Fram að því er í nógu að snúast í nýrri undankeppni HM sem hefst með stórleik við Evrópumeistara Hollands í september. 1.6.2021 15:15
„Fer á leikana með gífurlega háar kröfur á sjálfan mig“ Anton Sveinn McKee ætlar sér að synda á næstbesta tíma sögunnar, í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í Tókýó. Það ætti að skila honum verðlaunum, jafnvel fyrsta ólympíugulli Íslendinga. 1.6.2021 12:30
Verður gaman á Ólympíuleikunum með pabba með mér í lauginni Um leið og Anton Sveinn McKee syrgir föður sinn hefur hann reynt að undirbúa sig fyrir keppni á Ólympíuleikunum í Tókýó. Stærstu stund ferilsins hjá þessum 27 ára gamla sundmanni og eina íslenska íþróttamanni sem á sæti á leikunum. Það hefur reynst þrautin þyngri en Antoni líður betur í dag og ætlar að njóta leikanna með pabba sinn með sér í anda. 1.6.2021 09:00
„Þegar maður eignast barn og missir af öllu undirbúningstímabilinu þá finnur líkaminn auðvitað fyrir því“ „Ég er ótrúlega stolt af liðinu. Mér fannst við gera ótrúlega vel,“ sagði Helena Sverrisdóttir þegar hún mætti í spjall við Pálínu Gunnlaugsdóttir og sérfræðinga Dominos Körfuboltakvölds eftir annan sigur Vals á Haukum. 31.5.2021 16:00
Agüero í fremstu víglínu hjá Barcelona Barcelona kynnti í dag argentínska sóknarmanninn Sergio Agüero sem sinn nýjasta liðsmann. Agüero snýr þar með aftur til Spánar eftir að hafa verið afar sigursæll með Manchester City síðastliðinn áratug. 31.5.2021 14:19
KA mætir Val án Ólafs Tímabilinu er lokið hjá Ólafi Gústafssyni, handknattleiksmanni KA, vegna hnémeiðsla sem hafa plagað hann síðustu tvo og hálfan mánuð. 31.5.2021 13:31
Ísafjarðartröllið á Sauðárkrók Sigurður Gunnar Þorsteinsson, körfuknattleiksmaðurinn stóri og stæðilegi, mun leika með Tindastóli á næsta keppnistímabili. 31.5.2021 10:48
Langri bið eða ævintýri þýsks höfundar lýkur á Drekavöllum Chelsea getur fullkomnað hreint út sagt ævintýralega fjóra mánuði, eftir handriti Þjóðverjans Thomas Tüchel, og Manchester City getur uppfyllt langþráðan draum, þegar liðin mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Portúgal í kvöld. 29.5.2021 09:00