McIlroy flaug upp í toppbaráttuna en Varner er efstur Rory McIlroy, efsti maður heimslistans í golfi, átti stórkostlegan hring á Charles Schwab mótinu í Texas í gær þegar hann kom sér í baráttuna um sigur á öðrum degi mótsins. 13.6.2020 07:00
Dagskráin í dag: Stórleikur Vals og KR, bikarmeistararnir mæta Fylki og Messi snýr aftur Það verður heldur betur nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag, nú þegar Íslandsmótið í fótbolta er hafið, spænski boltinn farinn að rúlla og bestu kylfingar heims farnir af stað á ný. 13.6.2020 06:00
Katrín Tanja er hætt Katrín Tanja Davíðsdóttir tilkynnti það í kvöld að hún myndi ekki keppa á heimsleikunum í CrossFit í ár og að ef að ekkert breyttist yrði hún ekki lengur fulltrúi íþróttarinnar. 12.6.2020 22:47
ÍH áttunda liðið sem komst áfram í bikarnum Pétur Hrafn Friðriksson skoraði tvö mörk og Garðar Ingi Leifsson eitt þegar ÍH vann GG í lokaleik kvöldsins í 2. umferð Mjólkurbikarsins í fótbolta. 12.6.2020 22:22
Víti á síðustu stundu tryggði tíu mönnum Levante stig í Valencia Það var mikil dramatík í lokin á leik Valencia og Levante sem skildu jöfn, 1-1, í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Granada vann Getafe, 2-1. 12.6.2020 22:13
Dramatíkin alls ráðandi á Húsavík er Þór komst áfram Rauða spjaldið fór tvisvar á loft og framlengingu og vítaspyrnukeppni þurfti til að skera úr um sigurvegara þegar Þór vann Völsung í Mjólkurbikar karla í fótbolta í kvöld. 12.6.2020 21:59
Selfoss slapp með skrekkinn í Mosfellsbæ - Fimm lið komin áfram í bikarnum Selfoss, sem spáð er góðu gengi í 2. deild í sumar, vann nauman sigur á 4. deildarliði Hvíta riddarans í Mosfellsbæ í kvöld í 2. umferð Mjólkurbikars karla í fótbolta. 12.6.2020 21:24
Sjáðu fyrstu mörk Íslandsmótsins - Elín Metta skoraði eftir 90 sekúndur Elín Metta Jensen skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins 2020 eftir aðeins níutíu sekúndna leik gegn KR. Hún skoraði tvö marka Vals í 3-0 sigri en öll mörkin má sjá í fréttinni. 12.6.2020 21:10
Vítaklúður Ronaldos en Juve í bikarúrslit eftir stundarbrjálæði Rebic Keppni í ítalska fótboltanum hófst að nýju með stórleik í kvöld eftir hléið langa vegna kórónuveirufaraldursins. Juventus komst þá áfram í úrslitaleik bikarkeppninnar. 12.6.2020 21:02
Olmo með tvö fyrir Leipzig sem andar í hálsmál Dortmund Spænski miðjumaðurinn Dani Olmo skoraði sitt fyrsta mark í þýsku 1. deildinni í fótbolta í síðustu viku og bætti um betur í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk RB Leipzig í 2-0 útisigri gegn Hoffenheim. 12.6.2020 20:24