Hinsegin

Argentína fyrst ríkja Suður-Ameríku til að setja lög um kynhlutlaus skilríki
Þúsundir tóku þátt í Gleðigöngu í Buenos Aires höfuðborg Argentínu í gær en að þessu sinni fór gangan fram aðeins nokkrum vikum eftir að lög um kynhlutlaus skilríki tóku gildi í landinu.

Svar við ummælum rektors um ókyngreind salerni í HÍ
Þann 2. nóvember síðastliðinn kom Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 og tjáði sig um stöðu ókyngreindra salerna innan bygginga háskólans.

„Þetta er hluti af mér og ég ætla ekkert að skammast mín fyrir það“
Þættirnir Afbrigði í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.

Tekur tíma að koma alls staðar upp ókyngreindum salernum
Ókyngreind salerni má nú finna í um það bil þremur af hverjum fjórum byggingum Háskóla Íslands. Skólinn hefur verið gagnrýndur fyrir að bjóða ekki upp á slíkt alls staðar.

Fyrsti atvinnufótboltamaðurinn sem kemur út úr skápnum
Ástralinn Josh Cavallo greindi opinberlega frá því að hann væri hommi. Hann er fyrsti atvinnufótboltamaðurinn sem kemur út úr skápnum svo vitað sé.

Fagnar samstöðu sem hefur skapast eftir hatursorðræðu gegn hinsegin fólki
Ingileif Friðriksdóttir, fjölmiðlakona og einn stofnandi Hinseginleikans, segist fegin því hve mikil samstaða hafi skapast á samfélagsmiðlum gegn hatursorðræðu, sem beinst hafi að hinsegin fólki undanfarna daga. Hún segir sorglegt að sjá að fólk hafi enn svona skoðanir um hinsegin fólk.

Hótað vegna kynhneigðar sinnar: „Þeir sögðu að það ætti að setja homma í útrýmingarbúðir“
Hinseginfólk og fatlað fólk hefur undanfarna daga fengið símtöl og skilaboð á samfélagsmiðlum frá óprúttnum aðilum sem hafa hótað þeim barsmíðum og lífláti. Upptökur af slíkum símtölum hafa farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla undanfarna daga en málið hefur verið kært til lögreglu.

Segir ekkert því til fyrirstöðu að gift lesbía verði drottning
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir það ekki koma í veg fyrir að erfingi krúnunnar verði drottning eða konungur að viðkomandi hafi gengið í hjónaband með einstaklingi af sama kyni.

Nýi Súpermann er tvíkynhneigður
DC Comics myndasagnarisinn hefur tilkynnt að nýjasta útgáfan af persónu Súpermann verði tvíkynhneigð. Í næsta hefti myndasögunnar verður ofurhetjan ástsæla sýnd í ástarsambandi við karlmann.

Chappelle sakaður um transfóbíu
Forsvarsmenn Netflix eru undir þrýstingi um að fjarlægja nýjustu sýningu grínistans Dave Chappelle af streymisveitunni vegna ummæla hans um trans-fólk. Í sýningunni, sem heitir The Closer, lýsir Chappelle yfir stuðningi við rithöfundinn JK Rowling, sem hefur einnig verið sökuð um transfóbíu, og sagði kyn vera staðreynd.

Kjósa um hjónabönd og ættleiðingar samkynhneigðra eftir hatramma kosningabaráttu
Kjósendur í Sviss greiða atkvæði um hvort leyfa eigi samkynhneigðum pörum að gifta sig og ættleiða börn á sunnudag. Skoðanakannanir benda til þess að stuðningsmenn þess hafi sigur en dregið hefur saman á milli fylkinga í harðri kosningabaráttu síðustu vikna.

Við erum öll hinsegin
Það eru ekki einungis forréttindi að fá að eldast, heldur líka forréttindi að fá að eldast í jafn framsæknu samfélagi og Íslandi. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan ég var barn og unglingur. Miklar framfarir hafa átt sér stað í réttindum kvenna, réttindum barna, réttindum hinsegins fólks og trans-fólks. Og ég hef verið svo heppinn að hafa verið hluti af þeirri vegferð þó það hafi ekki alltaf verið auðvelt.

Kynjaskráning liðin tíð en hægt að velja úr átta persónufornöfnum
Framhaldsskólarnir eru hættir að skrá kyn nemenda og geta þeir nú valið á milli átta persónufornafna í nemendakerfinu Innu. Að sögn konrektors Menntaskólans við Hamrahlíð er aðeins hægt að velja eitt fornafn eins og stendur en þessu verður breytt.

Metfjöldi umsagna um frumvarp sem bannar bælingarmeðferð
Metfjöldi umsagna hefur borist um frumvarp stjórnvalda á Nýja-Sjálandi sem bannar svokallaðar bælingarmeðferðir (e. conversion therapy) gegn samkynhneigð. Stuðningsmenn eru vongóðir um að meirihluti umsagnaraðila séu fylgjandi frumvarpinu.

Himinlifandi með boðaða breytingu Svandísar
Formaður Samtakanna 78 fagnar boðuðum breytingum á lögum um blóðgjafir, sem heimila karlmönnum sem stundað hafa kynlíf með öðrum karlmönnum að gefa blóð. Breytingin gangi nógu langt að mati samtakanna, sem telja núverandi lög úrelt og ómannúðleg.

Samfylkingin skorar hæst á kvarða Samtakanna '78 en þrír flokkar fá engin stig
Flokkur fólksins, Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn fá 0 stig af 115 mögulegum í einkunnagjöf Samtakann '78 þegar kemur að áherslum stjórnmálaflokkanna í málefnum hinsegin fólks.

Samkynhneigðir karlmenn mega gefa blóð nái breyting á reglugerð fram að ganga
Óheimilt verður að mismuna blóðgjöfum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, svo sem kyns, kynhneigðar, uppruna eða stöðu að öðru leyti, nái breyting á reglugerð sem tekur á söfnun, meðferð og varðveislu blóðs fram að ganga.

Bein útsending: Hinsegin Alþingi 2021
Samtökin '78 efna til fundar í dag með fulltrúum þeirra flokka sem bjóða fram til Alþingis. Yfirskriftin er „Hinsegin Alþingi 2021“ og að loknum framsögum mun þátttakendum gefast kostur á að spyrja frambjóðendurna spjörunum úr.

Regnboginn er ekki skraut
Í síðustu viku voru kynntar tillögur borgarinnar að breytingum á Skólavörðustíg. Tillögurnar eru um margt góðar, en einhvers staðar í ferlinu gleymdist að gera ráð fyrir því að á neðsta hluta Skólavörðustígs er varanlegur regnbogafáni, eða þannig var hann víst samþykktur í borgarstjórn árið 2019.

Regnboginn á heima í miðborginni
Forhönnun Laugarvegar og Skólavörðustígs hefur nú verið kynnt, meðal annars í borgarstjórn í dag. Þarna eru margar skemmtilegar hugmyndir sem munu án ef gera miðborgina okkar fallegri og bæði auðveldari og skemmtilegri til að ferðast um.

Göngugötur Regnbogans
Reykjavík er hinsegin borg. Hún hefur stutt ríkulega við bakið á hinsegin fólki með margvíslegum hætti og hefur gengið fram með góðu fordæmi og það á undan ríkinu og öðrum sveitarfélögum. Hún hefur stutt Samtökin ´78, Hinsegin daga, Gleðigönguna og mörg önnur áríðandi mannréttindamál.

Klúður að hafa regnbogann ekki með í skipulagi nýs Skólavörðustígs
Mikil óánægja ríkir meðal hinsegin fólks um áætlun Reykjavíkurborgar að færa Regnbogafánann af Skólavörðustíg vegna áætlana um framkvæmdir á göngugötunni. Borgarfulltrúi meirihlutans segir það hafa verið mistök að hafa kynnt áætlanir án þess að hafa fundið Regnboganum nýtt heimili áður.

Skipuleggja femíníska kvikmyndahátíð í Reykjavík
RVK Feminist Film Festival (RVK FFF) verður haldin í þriðja sinn 13.-16. janúar 2022. Opið er nú fyrir umsóknir í stuttmyndakeppnina Sister awards og einnig verður í ár keppni fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum.

„Bara einhver götuskreyting“: Harma skeytingarleysi borgarinnar gagnvart regnboganum
Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum um nýja umgjörð Skólavörðustígs og nærliggjandi gata en athygli vekur að nýtt skipulag og útlit gerir ekki ráð fyrir regnbogafánanum, sem prýðir götuna.

Hittust fyrst á bókasafni Samtakanna 78: „Ég hélt hann ætlaði aldrei að hringja“
Þeir Felix og Baldur voru báðir tiltölulega nýkomnir út úr skápnum á fullorðinsaldri þegar þeir litu hvorn annan augum á bókasafni Samtakanna 78 árið 1996. Það var þó ekki fyrr en Baldur elti Felix uppi á skemmtistað mánuði síðar sem þeir fóru að stinga saman nefjum og þá var ekki aftur snúið.

Sex dæmdir til dauða fyrir að myrða hinsegin aðgerðasinna
Sex meðlimir íslamsks vígahóps voru dæmdir til dauða í Bangladess í morgun fyrir að hafa myrt tvo hinsegin aðgerðasinna fyrir fimm árum síðan.

Sigmundur fær svar við fyrirspurn sinni um fjölda kynja
Svar Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, um fjölda kynja hefur nú verið birt á vef Alþingis. Þar kemur fram að kyn samkvæmt lögum séu ekki lengur tvö.

Hinsegin réttindi - hvar stendur Ísland
Þegar jafnréttisbarátta hinsegin fólks er til umræðu í samfélaginu nú til dags er oft einblínt á persónulegu hliðina. Við fáum að heyra reynslusögur og skoðanapistla um fordóma og mismunun í garð hinsegin fólks. Þessar sögur eiga fyllilega rétt á sér, það er mikilvægt að þær séu sagðar, og að á þær sé hlustað, en þær einar og sér birta ekki heildarmyndina.

Klopp biður stuðningsfólk Liverpool um að hætta níðsöngvum um samkynhneigð
Jurgen Klopp, þjálfari enska knattspyrnuliðsins Liverpool, hefur beðið stuðningsfólk félagsins um að hætta öllum hómófóbískum söngvum. Slíkir söngvum var beint að Billy Gilmour, leikmanni Norwich City, í leik liðanna um liðna helgi.

Forsetahjónin á World Pride
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú taka þátt í World Pride í Kaupmannahöfn og Málmey á næstu dögum.