
EM 2020 í fótbolta

Byrjunarliðin í úrslitaleiknum: Óbreytt hjá Ítölum en Trippier kemur inn hjá Englandi
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, gerir eina breytingu á liði sínu frá sigrinum á Dönum í undanúrslitum EM fyrir úrslitaleikinn við Ítali í kvöld. Ítalir eru með óbreytt lið frá sigri sínum á Spáni.

England verður í fimm manna vörn í úrslitaleiknum
Sky Sports hefur staðfest að England verði í fimm manna vörn í kvöld er liðið mætir Ítalíu í úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta. Byrjunarliðið má finna hér að neðan.

Ítalska liðið heldur í hefðirnar
Fótboltamenn og íþróttafólk almennt á það til að vera mjög vanafast og í raun hjátrúafullt. Þetta hefur ítalska landsliðið í knattspyrnu sannað það sem af er Evrópumótinu í fótbolta.

Segir Conor Coady leikmann mótsins
Val Steve Holland, aðstoðarþjálfara Englands, á besta leikmanni Evrópumótsins í fótbolta kom töluvert á óvart en að hans mati er Conor Coady, leikmaður Wolves, besti leikmaður Englands til þessa. Coady hefur ekkert spilað á mótinu.

Sagan ekki með Englendingum
Það verður seint sagt að sagan sé Englendingum hliðholl fyrir úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta í kvöld. England hefur skotið sögunni ref fyrir rass til þessa á mótinu og þurfa að gera það enn eina ferðina í úrslitaleiknum gegn Ítalíu í kvöld.

Kane klár í að mæta „tveimur stríðsmönnum“
Giorgio Chiellini, varnarmaður ítalska landsliðsins, og Harry Kane, framherji enska landsliðsins, hlakka báðir til þess að mæta hvorum öðrum í úrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í kvöld.

Bara síðasti sentímetrinn eftir
Giorgio Chiellini, varnarmaður ítalska karlalandsliðsins í fótbolta, kveðst bjartsýnn fyrir komandi leik liðsins við England í úrslitum Evrópumótsins í kvöld. Þetta kann að vera hans síðasti séns til að vinna titil á stórmóti.

Enginn staður betri en Wembley til að klára dæmið
Harry Kane, sóknarmaður og fyrirliði enska karlalandsliðsins í fótbolta, hlakkar til úrslitaleiks á heimavelli gegn Ítalíu á Wembley í Lundúnum. Úrslitaleikur Englands og Ítalíu er klukkan 19:00 annað kvöld.

Elísabet drottning sendi kveðju til landsliðsins
Elísabet önnur, Bretlandsdrottning, sendi hamingjuóskir og baráttukveðjur til Gareth Southgate, landsliðsþjálfara Englands, og enska liðsins í aðdraganda úrslitaleiks liðsins á EM við Ítalíu á Wembley annað kvöld.

Hlakkar til að styðja liðsfélagana til sigurs á Wembley
Leonardo Spinazzola, leikmaður Roma og ítalska landsliðsins í fótbolta, átti frábært Evrópumót með ítalska liðinu áður en hann meiddist illa í 8-liða úrslitum gegn Belgum. Hann kveðst spenntur fyrir úrslitaleik mótsins milli Englands og Ítalíu á morgun.

Phil Foden æfði ekki með enska liðinu í morgun
Phil Foden var hvergi sjáanlegur á æfingu enska landsliðsins í morgun. Samkvæmt heimildum Sky Sports eru það varúðarráðstafanir vegna smávægilegra meiðsla.

Enska knattspyrnusambandið sektað vegna hegðunar stuðningsmanna
Enska knattspyrnusambandið hefur verið sektað um 30.000 evrur vegna hegðunar stuðningsmanna enska landsliðsins í undanúrslitaleik liðsins gegn Danmörku.

Forseti UEFA segir það ósanngjarnt að spila EM í mörgum mismunandi löndum
Forseti UEFA, Aleksander Ceferin, segir það ósanngjarnt gagnvart stuðningsmönnum og liðunum sem taka þátt á EM hversu langt sumir þurfi að ferðast á milli leikja. Hann segir að hann muni ekki láta þetta koma fyrir aftur.

Lofar því að knúsa vörðinn sem reyndi að meina honum aðgang að vellinum
Leonardo Bonucci, varnarmaður ítalska landsliðsins, komst í fréttirnar á dögunum er öryggisvörður á Wembley reyndi að stöðva kappann á leið inn á völlinn.

Segir dómarann og VAR hafa tekið rétta ákvörðun
John Stones, varnarmaður enska landsliðsins, segir að vítaspyrnan sem England fékk gegn Danmörku á miðvikudag hafi verið réttur dómur.

Skellt í lás á æfingasvæði Ítala eftir að sjónvarpslýsandi greindist með veiruna
Ítalir vonast til þess að staðfest smit þriggja fjölmiðlamanna sem fylgt hafa ítalska landsliðshópnum eftir muni ekki hafa nein áhrif á úrslitaleikinn við England á sunnudaginn.

Þúsund Ítalir fá að fljúga til Lundúna á úrslitaleikinn
Þrátt fyrir varnaðarorð ferðamálaráðherra Bretlands þá munu þúsund Ítalir fá að fljúga til Lundúna og mæta á Wembley á sunnudagskvöld, í von um að sjá sína menn landa Evrópumeistaratitlinum með sigri á Englendingum.

„Ríkasti dómari heims“ fékk úrslitaleik EM
Hollendingurinn Björn Kuipers fær það eftirsótta hlutverk að dæma úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta á sunnudagskvöld, á milli Englands og Ítalíu á Wembley.

Heimilisofbeldi í Englandi eykst um 38 prósent þegar enska liðið tapar
Umfangsmikil herferð gegn heimilisofbeldi hefur farið af stað í Englandi vegna þátttöku Englands á Evrópumeistaramótinu í fótbolta. Englandi hefur gengið nokkuð vel í keppninni og mun leika til úrslita gegn Ítalíu á mótinu á sunnudaginn næsta.

Pickford búinn að lifa á lyginni og skutlar sér eins og hann sé nýbyrjaður að æfa
Markvörðurinn Jordan Pickford hefur fengið mikla gagnrýni fyrir markið sem Danmörk skoraði gegn Englandi í undanúrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu. Þá sérstaklega hvernig hann skutlaði sér á eftir boltanum.

Carragher segir Sterling besta leikmann Evrópumótsins
Jamie Carragher, sparkspekingur Sky Sports og fyrrum landsliðsmaður Englands, segir Raheem Sterling, framherja Englands, besta leikmann Evrópumótsins í knattspyrnu til þessa.

„Football's diving home“
Sálfræðihernaðurinn fyrir úrslitaleik Englands og Ítalíu er hafinn þar sem Ítalarnir hafa meðal annars breytt frægum söng þeirra ensku.

Ítalía líklegri til að vinna EM
Samkvæmt tölfræðilíkani Stats Perform er Ítalía töluvert líklegri til að vinna Evrópumótið í knattspyrnu heldur England. Úrslitaleikurinn fer fram á Wembley í Lundúnum á sunnudag.

„Betra en fæðing dóttur minnar“
Það var glatt á hjalla hjá stuðningsmönnum Englands eftir sigurinn á Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins í gær.

Fengu kveðjur frá konungsfjölskyldunni og Wozniacki
Það hrifust margir með danska landsliðinu í knattspyrnu og þá sér í lagi Danir. Þeir féllu úr leik gegn Englandi í undanúrslitunum í gær.

UEFA kærir Englendinga
Enska landsliðið er komið í úrslitaleik á stórmóti í fyrsta sinn í 55 ár en það lítur út fyrir að hegðun stuðningsmanna liðsins á Wembley í gær kalli á aðgerðir og refsingar frá yfirvöldum evrópska fótboltans.

Leysigeisla beint að höfði Schmeichel í vítinu hans Kane
Stuðningsmenn enska landsliðsins gripu til óhugnanlegra aðferða til að trufla markvörð danska landsliðsins á Wembley í gærkvöldi.

Declan Rice hafði tvöfalda ástæðu til að fagna í gærkvöldi
Declan Rice og félagar í enska landsliðinu tryggðu sér sæti í úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta í gær en þetta voru ekki einu góðu fréttirnar fyrir fjölskyldu hans það kvöld.

„Hvorki England né nokkuð annað lið verðskuldar að vinna á þessu“
Vítaspyrnudómurinn í framlengingu leiks Englands og Danmerkur í undanúrslitum EM var til umræðu í þættinum EM í dag eftir leikinn í gærkvöld. Dómurinn réði úrslitum leiksins og voru gestir þáttarins sammála að um rangan dóm hefði verið að ræða.

Björgólfur naut leiksins með Beckham og félögum
Auðkýfingurinn Björgólfur Thor Björgólfsson lét sig ekki vanta á stórleik Englands og Danmerkur sem fór fram á Wembley fyrr í kvöld.