Íslensk tunga
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 17 ›
Vaknar klukkan fimm á hverjum morgni til að sinna ástríðunni Hinn pólski Jacek Godek hefur unnið ötullega að þýðingum úr íslensku yfir í pólsku í meira en fimmtíu ár. Ferill Jaceks í þýðingum hófst á unglingsaldri þegar hann fluttist hingað vegna starfa föður hans fyrir pólska sendiráðið. Innlent 27.4.2023 09:02
Embla og GPT-4 í eina sæng Notendur raddaðstoðarsmáforritsins Emblu frá Miðeind er nú boðið að spjalla ókeypis við nýjustu útgáfu gervigreindarinnar frá OpenAI, Chat GPT-4. Viðskiptaþróunarstjóri Miðeindar segir að um sé að ræða einu íslensku vöruna sem er tengd þessu nýja gervigreindarlíkani. Innlent 21.4.2023 12:26
Féllust í faðma þegar ráðherra fól þeim lykilinn að Eddu Hús íslenskunnar var vígt síðdegis við hátíðlega athöfn. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og viðskiptaráðherra, greindi gestum frá því að nýja húsið hefði hlotið nafnið Edda. Nafnið var valið úr hópi 1580 tillagna í sérstakri nafnasamkeppni. Sex ára stúlka sem ber sama nafn og nýja húsið er hæstánægð með valið. Innlent 19.4.2023 21:29
Notendur geta talað íslensku við gervigreindina Gestir og gangandi geta rabbað við gervigreindarforritið Emblu á íslensku á opnu húsi í Eddu, Húsi íslenskunnar, á sumardaginn fyrsta á morgun. Í viku frá og með morgundeginum geta notendur Emblu síðan spjallað ókeypis við gervigreindina GPT-4. Innlent 19.4.2023 19:13
Hús íslenskunnar heitir Edda Hús íslenskunnar, nýtt húsnæði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, hefur fengið nafnið Edda. Nafnið var afhjúpað við hátíðlega athöfn í dag. Alls bárust rúmlega þrjú þúsund tillögur í nafnasamkeppni um húsið sem hefur verið í byggingu frá 2019. Innlent 19.4.2023 17:23
Bein útsending: Hús íslenskunnar vígt og nafnið afhjúpað Vígsla á Húsi íslenskunnar fer fram í dag. Sýnt verður frá vígslunni í beinni útsendingu. Á meðal þess sem fram fer á vígslunni er að nafn hússins verður afhjúpað. Alls bárust rúmlega þrjú þúsund tillögur í samkeppni um nafn á húsinu. Innlent 19.4.2023 16:01
Þjóðinni muni þykja mjög vænt um nafnið Hús íslenskunnar verður vígt í dag og nafn þess, sem mikil leynd hvílir yfir, opinberað. Menningarráðherra segir daginn marka tímamót fyrir íslenska tungu. Þá séu fleiri handrit á heimleið frá Danmörku sem sýnd verða í húsinu strax á næsta ári. Innlent 19.4.2023 12:00
Skiptir málið í skólum máli? Íslenska er skólamálið okkar, á öllum skólastigum. Gott læsi og vald á tungunni er mikilvægt veganesti til virkrar þátttöku í þjóðfélaginu. Þannig nýtast hæfileikar okkar betur. Er það hvort tveggja samfélaginu til farsældar og einstaklingnum sjálfum. Skoðun 17.4.2023 07:31
Hvers á kerling að gjalda? Tungumálið er ekki eingöngu samansafn orða til að gera sig skiljanlega(n). Það endurspeglar viðhorf og felur í sér vald. Taka má sem dæmi þau ólíku viðhorf til Nató sem felast í því að kalla það annars vegar hernaðarbandalag og hins vegar varnarbandalag eða jafnvel friðarbandalag. Skoðun 7.4.2023 15:00
Fjármálaáætlun dapurleg lesning frá sjónarhóli íslenskrar tungu Prófessor emeritus í íslenskri málfræði segir að fjármálaáætlun sé dapurleg lesning frá sjónarhóli íslenskunnar. Hún veki litlar vonir um að íslenskan komist út úr þeirri varnarstöðu sem hún sé nú í. Hann segir raunverulega hættu á því að hér á landi verði til samfélög fólks sem ekki tali íslensku. Það sé alvarlegt fyrir lýðræðið ef stórir hópar fólks geti ekki tekið þátt í samfélagslegri umræðu. Innlent 4.4.2023 13:22
Fjármálaáætlun án framtíðarsýnar fyrir íslenskukennslu Langstærsta áskorun íslenskunnar um þessar mundir og á næstu árum er mikil fjölgun íbúa með annað móðurmál en íslensku. Í haust varð töluverð umræða um nauðsyn þess að efla kennslu í íslensku sem öðru máli og þá lýsti forsætisráðherra þeirri skoðun sinni að það hefði „alls ekki verið nóg gert í því að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga“. Skoðun 4.4.2023 09:01
„Hús íslenskunnar“ vígt 19. apríl og nýtt nafn afhjúpað Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands verður vígt 19. apríl næstkomandi. Húsið hefur verið kallað „Hús íslenskunnar“ en mun við vígsluna fá varanlegt nafn. Innlent 30.3.2023 10:20
Skautadrottning lærir íslensku til að ná sér eftir slys Bandarísk kona sem lenti í slysi ákvað að koma til Íslands til að ná bata. Læknir hennar sagði að það væri ekkert sem hún gæti gert en hún fullyrðir að henni líði mun betur eftir að hafa verið hér í sjö mánuði. Hún lærir íslensku til að þjálfa heilann og fer í sund til að hjálpa líkamlegu hliðinni. Lífið 28.3.2023 09:01
Læra íslensku sem er sérhæfð fyrir vinnu í skólum Í Reykjanesbæ er rekin svokölluð leikskólasmiðja þar sem innflytjendur læra íslensku sem er sérsniðin fyrir störf í leik- og grunnskólum en skortur á íslenskukunnáttu getur staðið fólki af erlendum uppruna fyrir þrifum. Innlent 26.3.2023 23:14
Gefum íslensku séns! Á síðasta ári var staðið að átaki á Ísafirði með það augnamið að auka vitund fólks gagnvart íslensku og tileinkun málsins. Átakið hlaut nafngiftina Íslenskuvænt samfélag: við erum öll almannakennarar og hafði Háskólasetur Vestfjarða veg og vanda að skipulagningu átaksins þótt fleiri aðilar hafi vissulega komið að því, t.a.m. Fræðslumiðstöð Vestfjarða og ekki síst íbúar Ísafjarðar. Skoðun 24.3.2023 14:00
Teslur tala nú íslensku Nokkrir eigendur Tesla-bifreiða geta nú valið íslensku sem tungumál ökutækisins. Okkar ástkæra og ylhýra er þar með komið í hóp rúmlega tuttugu tungumála sem bíllinn býður upp á. Bílar 23.3.2023 19:07
Yfirmaður hjá Open AI hreifst af íslensku sendinefndinni og elskar Ísland Yfirmönnum hjá bandaríska gervigreindarfyrirtækinu Open AI þóttu mikið til vinnu Íslendinga í máltækni koma og þess vegna veðjaði fyrirtækið á íslenskuna. Innlent 20.3.2023 22:08
Bein útsending: Framtíðin svarar á íslensku „Framtíðin svarar á íslensku“ er yfirskrift kynningarfundar menningar- og viðskiptaráðuneytisins um íslenska máltækni og gervigreind sem hefst í Grósku klukkan 13 í dag. Fulltrúar OpenAI verða á fundinum og verður hægt að fylgjast með í spilara að neðan. Innlent 20.3.2023 12:30
Gervigreindin næsta stóra byltingin og nú talar hún íslensku Besta og stærsta gervigreind sem opin er almenningi kann nú íslensku. Stofnandi Miðeindar segir gervigreindina næstu stóru byltinguna í okkar samfélagi. Rithöfundur og fyrirlesari segir hina íslenskumælandi gervigreind einungis geta hafa orðið til vegna aukinnar „nándar“ tækninnar og mannsins með notkun snjallsíma og samfélagsmiðla. Á þessari nánd byggi hún sína þekkingu. Innlent 15.3.2023 19:59
Sá strax að Íslendingar höfðu unnið heimavinnuna sína Menningar- og viðskiptaráðherra segir það gríðarmikilvægt fyrir framtíð íslenskrar tungu að málið hafi verið valið inn í nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT. Ísland var eitt fyrsta þjóðríkið sem óskaði eftir samstarfi með eigandanum - og hann sá fljótt að Íslendingar höfðu unnið heimavinnuna sína. Innlent 15.3.2023 13:10
Magnaður áfangi fyrir íslenskuna Það er sannarlega magnaður áfangi fyrir íslenskuna að tungumálið okkar hafi verið valið í þróunarfasa fyrir nýjustu útgáfu gervigreindarmállíkansins GPT-4, fyrst allra tungumála fyrir utan ensku. Samstarfsverkefni með fyrirtækinu OpenAI hefur komið því til leiðar að stærsta gervigreindarnet heims er nú fínþjálfað til þess að skilja og miðla upplýsingum á íslensku. Skoðun 15.3.2023 07:01
Íslenskt máltæknifyrirtæki í samstarfi við OpenAI um GPT-4 Íslenska máltæknifyrirtækið Miðeind hefur síðustu mánuði aðstoðað bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI við að þjálfa nýjustu kynslóð GPT líkansins. Þetta er í fyrsta sinn sem OpenAI gerir tilraunir með sérstaka þjálfun risamállíkans síns á öðru tungumáli en ensku, og þar varð íslenska fyrir valinu. Viðskipti innlent 14.3.2023 18:05
Starfsmenn frá 45 löndum í Krónunni og hátt í þriðjungur fastráðinna „Við höfum verið að sjá það undanfarið að starfsþróun starfsfólks af erlendum uppruna er að færast í aukana þannig að þessi hópur er að færa sig í auknu mæli í yfirmanna- og stjórnunarstöður,“ segir Erla María Sigurðardóttir, mannauðsstjóri Krónunnar. Atvinnulíf 9.3.2023 07:00
Ekki vera feimin við að spyrja: Viltu að ég tali við þig á íslensku? Fleira hæft starfsfólk vantar erlendis frá til að vinna á Íslandi. Atvinnulíf 8.3.2023 07:01
Áhyggjur leikskólakennara Í töluverðan tíma hef ég haft gríðarlegar áhyggjur af máltöku ungra barna í leikskólum. Eftir 37 ára starf með börnum veit ég hversu mikilvæg máltakan er..hversu mikið vægi hún hefur í daglega lífi lítilla barna og hversu mikill grunnur hún er að framtíð þeirra. Skoðun 6.3.2023 10:01
Bing skrifar fréttir á íslensku, stundum Bing er leitarvélin frá Microsoft sem getur skrifað fréttartexta á mörgum tungumálum, þar á meðal íslensku. Bing lærði íslensku með því að nota gervigreind og málþjálfun. Lífið 19.2.2023 14:01
Krummi í lagi en alls ekki Kisa Nýr úrskurður mannanafnanefndar, sem hafnaði nafninu Kisa, styrkir þingmann Sjálfstæðisflokksins enn frekar í þeirri trú sinni að leggja eigi nefndina niður. Við kynntum okkur hinn umdeilda úrskurð og íslensk dýranöfn, sem þykja mishentug á menn. Innlent 1.2.2023 09:40
Lesfimipróf barna – af hverju leggjum við þau fyrir? Lestur er grunnur að frekara námi og eitt það mikilvægasta fyrir skólagöngu barns er að ná góðum tökum á lestri. Það er því mikilvægt fyrir kennara og forsjáraðila að vita hvernig barni gengur að læra að lesa, en til þess eru lesfimiprófin. Skoðun 24.1.2023 12:01
Gervigreind samdi kynningu fyrir Ísland í dag Fyrir forvitnissakir var gervigreind fengin til að semja stutta kynningu á miðvikudagsþætti Íslands í dag í vikunni. Forritið ChatGPT á vegum bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefur vakið mikla athygli notenda, einkum fyrir glettilega færni þess við að setja saman texta. Innlent 22.1.2023 13:35
Uppruni Íslendinga sé flóknari en áður var talið Prófessor hjá stofnun Árna Magnússonar segir uppruna Íslendinga flóknari en áður hefur verið talið. Við skoðun heimilda þurfi að hafa í huga að um sé að ræða minningar fólks á tólftu og þrettándu öld, sem jafnvel hafði einhverra hagsmuna að gæta. Ólíklegt sé að allir hafi komið frá norrænum konungum. Innlent 15.1.2023 22:26