
Frakkland

Mætti óvænt og fagnaði nýju línunni
Fyrirsætan Cara Delevingne mætti á tískuvikuna í París í gær þar sem línunni Cara Loves Carl var fagnað. Óvissa var með hvort hún myndi mæta á viðburðinn, en hún lét ekki sjá sig í partýinu sem var haldið þegar línan fór í sölu fyrr í mánuðinum.

Frönsk stemning á frumsýningu Bara smástund
Sýningin Bara smástund var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á föstudag. Frönsk stemning beið gestanna í leikhúsinu og hljómaði harmonikkuleikur um forsalinn.

Þrír íslenskir kappar í topp tíu í ofurhlaupi í Frakklandi
Þorbergur Jónsson, Snorri Björnsson og Þorsteinn Roy urðu allir á meðal tíu efstu af um fimmtán hundruð keppendum í 59 kílómetra fjallahlaupi í Suður-Frakklandi í dag. Þorbergur hafnaði í öðru sæti í keppinni.

Íslenskar konur slösuðust eftir að loftbelgur brotlenti
Loftbelgur með þrjá Íslendinga innanborðs lenti harkalega nærri Tours í Frakklandi í gærmorgun með þeim afleiðingum að tveir slösuðust.

Klæddust kvenmannsfötum, settu á sig hárkollu og rændu tugi lestarfarþega
Meðlimir í frönsku glæpagengi eru sagðir hafa klæðst kvenmansfatnaði, sett á sig hárkollur og rænt í það minnsta 170 farþega í fyrsta farrými lesta í Frakklandi. Lögreglan í Marseille fann þýfið og reynir nú að finna réttmætu eigendur þess.

Leikstjórinn Jean-Luc Godard er látinn
Einn af risum franskrar kvikmyndagerðar, leikstjórinn Jean-Luc Godard, er látinn, 91 árs að aldri.

Fundu líkamsleifar í Eystrasalti
Líkamsleifar hafa fundist í sjónum í Eystrasalti þar sem einkaþota brotlenti um helgina. Brak hefur einnig fundist en mikil óvissa ríkir varðandi það hvað leiddi til þess að flugvélin hrapaði í hafið.

Mbappé um Pogba-málið: „Orð gegn orði“
Kylian Mbappé segist treysta Paul Pogba þrátt fyrir orðróm þess efnis að hann hafi leitað til töfralæknis til að leggja bölvun á félaga í franska landsliðinu.

Evrópuþingið hættir við nýjan bar í nafni orkusparnaðar
Til þess að reyna að spara orkukostnað hefur Evrópuþingið hætt við framkvæmdir og úrbætur á húsnæði í kringum starfsemi þingsins sem nema 6,7 milljónum evra eða um 947,7 milljónum íslenskra króna.

Rússar muni skrúfa fyrir gasflæði um Nord Stream 1 leiðsluna enn á ný
Orkurisinn Gazprom er sagður ætla að loka fyrir flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna til Þýskalands á morgun og muni lokunin vara í þrjá daga. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gazprom lokar á flæði gass til Þýskalands en gasflæði þangað sem og til annarra Evrópuríkja hefur verið óstöðugt í nokkurn tíma.

Yfirvöld nota gervigreind til að finna faldar sundlaugar
Yfirvöld í Frakklandi hafa notað gervigreind til að leita að sundlaugum í níu héruðum, sem íbúar hafa ekki gefið upp. Fleiri en 20 þúsund sundlaugar hafa fundist til þessa og fært skattayfirvöldum jafnvirði 1,4 milljarða króna í tekjur.

Nota gervigreind til að finna ótilkynntar sundlaugar
Yfirvöld í Frakklandi hafa notað gervigreind til þess að finna sundlaugar í einkaeigu sem eigendur hafa ekki tilkynnt um. Gervigreindin hefur fundið yfir tuttugu þúsund sundlaugar í landinu hingað til.

Flugmenn Air France í straff eftir átök í flugstjórnarklefa
Tveimur flugmönnum hjá franska flugfélaginu Air France hefur tímabundið verið vikið frá störfum eftir að til átaka kom milli þeirra inni í flugstjórnarklefanum í miðju flugi.

Paul Pogba kúgaður af bróður sínum í skipulagðri glæpastarfsemi
Mathias Pogba, bróðir Paul Pogba, hótar að afhjúpa upplýsingar um bróður sinn sem myndu fá alla stuðningsmenn Pogba til að snúast gegn honum.

Frysta verð til að berjast gegn verðbólgunni
Franska verslunarkeðjan Carrefour hyggst leggja baráttunni gegn verðbólgu í Frakklandi lið með því að frysta vöruverð á hundrað vörum.

Apabóla smitaðist frá manni yfir í mjóhund
Nýjustu upplýsingar úr læknatímaritinu „the Lancet“ herma að nú hafi apabóla smitast frá manni yfir í hund. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hvetur fólk til þess að fara varlega í kringum dýr greinist það með apabólu en ekki sé nauðsynlegt að hafa miklar áhyggjur af málinu sem stendur.

Þúsundir manna þurft að flýja heimili sín í Frakklandi
Alls hafa um tíu þúsund manns þurft að flýja heimili sín í Frakklandi vegna mikilla skógarelda. Íbúar Gironde-svæðisins hafa þurft glíma við fjölda elda í ágústmánuði.

Orkuvandræðin í Evrópu hafi áhrif á starfsemi verslana
Í kjölfar mikillar hækkunar á orkuverði og litlu flæði á gasi um Evrópu hafa sumar verslunarkeðjur íhugað að stytta opnunartíma verslana og slökkva ljós í þeirri von að það lækki orkukostnað.

Mjaldurinn í Signu svæfður eftir umfangsmiklar björgunaraðgerðir
Vannærður mjaldur sem fastur var í ánni Signu í rúma viku var fluttur þaðan í gær í umfangsmiklum björgunaraðgerðum. Til stóð að færa hvalinn í saltvatnstank í Normandí til að bjarga lífi hans en í dag var greint frá því að mjaldurinn hafi drepist á leiðinni.

Mjaldurinn í ánni Signu enn í vanda staddur
Vannærður mjaldur fannst í ánni Signu nú á þriðjudag en mjaldurinn hefur neitað að borða þá fæðu sem honum hefur verið gefin og hefur vísindafólk á svæðinu miklar áhyggjur af heilsu hans. Líkurnar á því að hann komist aftur á sínar heimaslóðir séu hverfandi.

Hafa áhyggjur af horuðum mjaldri sem er fastur í Signu
Yfirvöld í Frakklandi hafa áhyggjur af mjaldri sem fastur er í ánni Signu. Hvalurinn hefur ekki viljað borða neitt síðan hann fannst.

Georg á Kalda bar og Anaïs Barthe: Brúðkaupsdraumur í Suður-Frakklandi
George Leite eigandi Kalda bars giftist ástinni sinni Anaïs Barthe Leite í síðustu viku við fallega athöfn í Suður-Frakklandi. Lífið á Vísi tók púlsinn á honum og fékk að heyra meira um stóra daginn.

Stinnandi krem og brúðkaupsferð í París
Söngdívan Jennifer Lopez er 53 ára í dag og í tilefni þess tilkynnti hún um komu húðlínunnar sinnar en fyrsta kremið í henni er hannað til þess að stinna bossann. Hún segir í tilkynningunni að almennt einbeiti fólk sér að því að huga vel að andlitinu en líkaminn eigi það til að gleymast.

Nýtt nafn á lista sigurvegara í Tour de France
Hinn danski Jonas Vingegaard Rasmussen kom fyrstur í mark í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France, en keppni lauk í hjólreiðakeppninni sögufrægu í dag.

Íbúum í Suður-Evrópu gert að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda
Frönsk stjórnvöld hafa fyrirskipað um sextán þúsund manns að yfirgefa heimili sín vegna hættu af skógareldum í suðvesturhluta landsins. Eldar ógna einnig svæðum á Spáni, Grikklandi og í Króatíu.

Þúsundir flýja heimili sín vegna gróðurelda
Þúsundir manna þurftu að flýja heimili sín undan gróðureldum sem geisuðu víða um Vestur-Evrópu í gær og hafa eyðilagt gríðarlegt landflæmi. Gróðureldarnir hafa kviknað eftir hitabylgju sem ríður nú yfir Evrópu.

Frönsk yfirvöld staðfesta tengsl ristilkrabbameins og nítrata í unnum kjötvörum
Frönsk yfirvöld hafa staðfest skaðsemi nítrata í unnum kjötvörum og tengsl þeirra við ristilkrabbamein. Matvælaöryggisyfirvöld í Frakklandi (ANSES) hafa hvatt til þess að neysla nítrata verði takmörkuð en nítrötin lengja líftíma ýmissa matvæla.

Listaverkaspæjari segir frá því hvernig hann endurheimti blóð Krists
Mikil sorg greip um sig meðal kaþólikka þegar gullnum kistli sem er sagður innihalda tvo dropa af blóði Jesú Krists var stolið úr skrúðhúsinu í Fécamp-klausturkirkjunni í Normandy. Kistillinn er nú kominn aftur í leitirnar, eftir að þjófurinn setti sig í samband við hollenskan listaverkaspæjara.

Stjórnendur Uber nýttu sér ofbeldi gegn ökumönnum til að greiða götu sína
Stjórnendur Uber nýttu sér ofbeldi gegn ökumönnum fyrirtækisins til að auglýsa fyrirtækið og hafa áhrif á löggjafa í þeim ríkjum þar sem þeir vildu koma starfsemi sinni á fót. Þá voru digrir sjóðir frá fjárfestum notaðir til að niðurgreiða þjónustuna og grafa undan samkeppnisaðilum.

Beittu vafasömum og ólögmætum aðferðum í tilraun til heimsyfirráða
Um 40 fjölmiðlar um allan heim munu á næstu dögum og vikum birta fréttir upp úr umfangsmiklum gagnaleka til Guardian, sem meðal annars leiðir í ljós hvernig forsvarsmenn Uber beittu siðferðilega vafasömum aðferðum við að koma starfsemi fyrirtækisins á fót í borgum heims.