Fjölmiðlar
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 90 ›
Forsætisráðherra brugðið yfir að blaðamennirnir hafi verið kallaðir til yfirheyrslu Forsætisráðherra segist hafa verið brugðið yfir fréttum af því að fjórir blaðamenn hefðu verið kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu með réttarstöðu sakborninga í tengslum við umfjallanir þeirra um Samherja. Hún treysti því að lögregla fari ekki af stað með slíka rannsókn nema ríkt tilefni sé til. Innlent 21.2.2022 17:34
Viðbrögð fjölmiðla þegar blaðamenn eru til rannsóknar Fjórir blaðamenn hafa nú stöðu sakborninga, grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífs. Þetta er mjög sérstakt. Venjulega höfða þeir einkamál sem telja blaðamenn hafa brotið gegn sér og almennt er erfitt að fá lögreglu til að rannsaka brot gegn friðhelgi einkalífs nema húsbrot, þjófnaður eða ofbeldi komi við sögu. Skoðun 21.2.2022 11:30
Kristín Björg frá Torgi til Orkunnar Kristín Björg Árnadóttir hefur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Orkunnar. Hún starfaði síðast sem fjármálastjóri hjá Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins, DV, Hringbrautar og tengdra miðla. Viðskipti innlent 21.2.2022 09:25
Mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, og Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, segja mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði og án þess að þurfa að gera grein fyrir uppruna þeirra. Innlent 20.2.2022 16:52
Brynjar þráspurði Jón Trausta um hvort Stundin væri með gögnin úr síma Páls Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, þráspurði Jón Trausta Reynisson, framkvæmdastjóra Stundarinnar um hvort að fjölmiðlinn hefði gögn úr síma Páls Steingrímssonar undir höndum. Brynjar telur að blaðamennirnir fjórir sem hafa réttarstöðu grunaðra væru ekki með slíka réttarstöðu ef málið snerist eingöngu um nýtingu blaðamanna á gögnum. Innlent 20.2.2022 13:21
Segir Páleyju gengna til liðs við „skæruliðadeild Samherja“ Nokkuð fjölmenn mótmæli fóru fram bæði í Reykjavík og á Akureyri í dag vegna rannsóknar lögreglu á fjórum blaðamönnum og umfjöllun þeirra. Ræðumenn vildu meina að lögregla væri að vega að tjáningarfrelsinu og sumir gengu svo langt að kalla tilburði hennar fasíska. Innlent 19.2.2022 22:00
Yfirheyrslum allra blaðamannanna frestað Yfirheyrslum yfir blaðamönnum Kjarnans, Stundarinnar og RÚV vegna meintra brota á lögum um friðhelgi einkalífs hefur verið frestað. Lögreglan á Norðurlandi eystra boðaði fjóra blaðmenn til yfirheyrslu vegna fréttaflutnings um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. Fréttir 19.2.2022 18:44
Þrumuræða Kristins um rannsókn á blaðamönnum: „Gallsúrt íslenskt afbrigði af fasisma“ Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, tók til máls á mótmælafundi sem haldinn var á Austurvelli í dag. Þar var rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á fjórum blaðamönnum mótmælt og var Kristni nokkuð heitt í hamsi. Innlent 19.2.2022 15:50
Yfirheyrslu Aðalsteins frestað Yfirheyrslu yfir Aðalsteini Kjartanssyni, blaðamanni Stundarinnar, hefur verið frestað. Hann er einn þeirra sem lögreglustjórinn á Norðurlandi hefur veitt stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn sem snýr að umfjöllun þeirra um um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. Innlent 19.2.2022 15:22
Styðjum frelsi blaðamanna Lýðræðið þarfnast aðhalds og verndar. Það gerist ekki af sjálfu sér og það viðheldur sér ekki sjálft. Valdinu er eðlislægt að finnast lýðræði og réttindi þrengja að sér, finnst það óþægilegt að þurfa að pæla í því og geta ekki bara farið fram að vild eftir hentugleika. Skoðun 19.2.2022 13:02
Mótmælum ofsóknum á fjölmiðlafólki Í dag klukkan 14 boða ungliðahreyfingarnar Ungir jafnaðarmenn, Ungir Sósíalistar, Ung Vinstri græn, Uppreisn – ungliðahreyfing Viðreisnar og Ungir Píratar til mótmæla á Austurvelli í Reykjavík og á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan 14:00. Við gerum það vegna aðfarar að einni af grunnstoðum frjáls lýðræðissamfélags: frjálsri blaða- og fréttamennsku. Skoðun 19.2.2022 10:01
Skellti á Neyðarlínuna í miðju hjartaáfalli Kristjón Kormákur Guðjónsson hringdi á Neyðarlínuna í byrjun febrúar vegna gruns um að hann væri að fá fyrir hjartað. Hann fór fljótt að efast um þá ákvörðun og skellti á áður en honum var svarað. Grunurinn reyndist hins vegar á rökum reistur og hann hné niður skömmu seinna. Innlent 18.2.2022 21:37
Óskar eftir úrskurði um lögmæti aðgerða lögreglustjóra Lögmaður Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Stundinni og eins þeirra sem lögreglustjórinn á Norðurlandi hefur veitt réttarstöðu sakbornings vegna umfjöllunar um „skæruliðadeild“ Samherja, hefur afhent Héraðsdómi Norðurlands eystra kæru þar sem farið er fram á úrskurð um lögmæti aðgerða lögreglustjórans. Innlent 18.2.2022 19:28
Að beita valdi og múlbinda Þegar blaðamenn eru komnir með stöðu grunaðra hjá lögregluyfirvöldum fyrir það eitt að segja fréttir vakna áleitnar spurningar um stöðu lýðræðisins. Það er erfitt að sjá af þeim upplýsingum sem lögreglan lætur frá sér að þessi för gegn blaðamönnum sem sögðu fréttir af skæruliðadeild Samherja sé til neins annars en að leggja fyrirhöfn og kostnað á blaðamenn, hugsanlega til að vera öðrum víti til varnaðar. Þannig er það hættulegt lýðræðinu og frjálsum fjölmiðlum þegar ríkisvaldið beitir sér með þessum hætti. Blaðamenn sem skrifa gegn stjórnmála- eða peningavaldinu eiga skilið vernd og stuðning frá samfélagi sínu, sú vernd er að hluta til bundin í lög, en hún er ekki nóg ein og sér. Það er því skylda þeirra sem vilja verja lýðræðið að tala gegn þöggun, sérstaklega þegar ríkisvaldið beitir henni. Skoðun 18.2.2022 16:31
Boðað til mótmæla vegna yfirheyrsla á blaðamönnum Ungliðahreyfingar Pírata, Samfylkingar, Sósíalista, Viðreisnar og Vinstri grænna hafa boðað til mótmæla á Austurvelli á morgun. Innlent 18.2.2022 11:13
Nú hafa þau gengið of langt Okkar þjóð stendur á háskalegum tímum. Við erum á hraðri leið í átt að því að verða land þar sem raddir auðmanna stýra öllu á kostnað almennings. Skoðun 18.2.2022 08:01
Þurfi að þola að lögreglan rannsaki mál þar sem grunur sé um lögbrot Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gefur lítið fyrir viðbrögð stéttarfélaga blaðamanna við fyrri ummælum hans. Hann segir enn margt óljóst í máli fjögurra blaðamanna sem hafi verið boðaðir til yfirheyrslu í tengslum við umfjöllun um svokallaða skæruliðadeild Samherja. Innlent 17.2.2022 19:20
Skilur að marga svíði vegna óréttlætis en kallar eftir hófsemi Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, segir undanfarna daga hafa verið honum og hans fólki mjög erfiðir. Hann hefur fulla trú á því að rannsókn lögreglu á hvarfi síma hans muni leiða hið sanna í ljós. Hann gefur í skyn að málið sé viðkvæmt en fólk muni skilja hvers vegna hann vilji ekki ræða málið efnislega þegar upplýst verði opinberlega um málið. Innlent 17.2.2022 10:27
Svör við spurningum Bjarna að finna í löggjöfinni Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamannahvetja valdhafa til að standa vörð um frjálsa fjölmiðlun á Íslandi frekar en að freistast til að ráðast gegn henni. Innlent 16.2.2022 20:01
Svar við spurningum Bjarna Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, fjallaði í gær á Facebooksíðu sinni um þá ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra, að boða fjóra blaða- og fréttamenn í yfirheyrslu með réttarstöðu sakborninga, vegna umfjöllunar um svokallaða skæruliðadeild Samherja. Skoðun 16.2.2022 18:34
Sýn hagnaðist um tvo milljarða á seinasta ári Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hf. hagnaðist um 2,10 milljarða króna á seinasta ári samanborið við 405 milljóna króna tap árið 2020. Innifalið í hagnaði ársins 2021 er hagnaður af sölu óvirkra innviða en bókfærður söluhagnaður að frádregnum kostnaði við söluna var 2,55 milljarðar króna. Viðskipti innlent 16.2.2022 17:41
Heiðar Örn ráðinn fréttastjóri RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson hefur verið ráðinn fréttastjóri hjá Ríkisútvarpinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV. Hann tekur við starfinu af Rakel Þorbergsdóttir sem sagði upp störfum í nóvember. Innlent 16.2.2022 17:30
Bjarni hafnar því að hann þjófkenni Þórð Snæ Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans hnýtir í Facebookfærslu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þess efnis að ekkert sé óeðilegt við að blaðamenn séu kallaðir til yfirheyrslu í sakamáli; að Bjarni gefi í skyn að hann sé þjófur. Bjarni telur þetta fráleita túlkun. Innlent 16.2.2022 11:31
Skilaboð lögreglu séu skýr: Það sé ólöglegt að segja frá Einn fjögurra blaðamanna sem hafa réttarstöðu sakbornings í rannsókn lögreglu vegna fréttaflutnings um svokallaða skæruliðadeild Samherja furðar sig á háttsemi lögreglunnar og segir hana senda skýr skilaboð: Það sé glæpur að segja frá. Innlent 16.2.2022 09:25
Spyr hvort fréttamenn séu of góðir til að svara spurningum lögreglu Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra spyr hvernig það geti talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að blaðamenn mæti í skýrslutöku líkt og almennir borgarar. Innlent 15.2.2022 22:03
Ljáir jaðarsettum einstaklingum rödd í nýju hlaðvarpi Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason er farinn af stað með glænýtt hlaðvarp, Ósýnilega fólkið. Í hlaðvarpinu fá hlustendur að kynnast jaðarsettum einstaklingum í samfélaginu og heyra persónulegar sögur þeirra. Lífið 15.2.2022 21:01
Síminn segir framtíð RÚV betur borgið utan samkeppnismarkaðar Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins leggur aftur fram frumvarp um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Síminn fagnar framkomu málsins í umsögn og segir ánægjulega afleiðingu þess að hið opinbera fari af samkeppnismarkaði verði betra ríkisútvarp. „Ríkisútvarp þar sem dagskrárákvarðanir verða loks teknar af dagskrárstjóra en ekki auglýsingadeild.” Innherji 15.2.2022 15:35
Skæruliðadeildin sem nú vill ná vopnum sínum Fjórir íslenskir blaðamenn hafa verið boðaðir til yfirheyrslu af lögreglu vegna umfjöllunar þeirra um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. En hver er þessi deild, hvað gerði hún og hvers vegna er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu? Innlent 15.2.2022 15:31
Blaðamönnum almennt frjálst að vinna úr illa fengnum gögnum Héraðsdómari og sérfræðingur í fjölmiðlarétti segir ýmsar ástæður fyrir því að lögregla geti viljað fá blaðamenn í skýrslutökur og segir fordæmi fyrir því. Formanni Blaðamannafélagsins finnst rannsókn lögregu á fréttaflutningi af skæruliðadeild samherja tilraun til að beita blaðamenn þrýstingi. Innlent 16.2.2022 10:28
Megi túlka rannsókn lögreglu sem „tilraun til að beita blaðamenn þrýstingi“ Formaður Blaðamannafélags Íslands segir að túlka megi rannsókn lögreglu á fréttaflutningi um „skæruliðadeild“ Samherja sem tilraun til að beita fjölmiðla og blaðamenn þrýstingi að fjalla ekki um ákveðin mál. Innlent 15.2.2022 10:02