
Heilbrigðismál

Sárvantar fagfólk á Landspítala
Fjörutíu sjúkrarúm á Landspítalanum standa ónotuð vegna manneklu og ekki var hægt að leggja inn hátt í 40 sjúklinga í morgun.

Vill framlengja um eitt ár við sérfræðilækna
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra vill framlengja rammasamning við sérfræðilækna sem rennur út um áramótin um eitt ár. Þetta segir Svandís í samtali við fréttastofu. Hún vill nýta næsta ár til þess að búa til nýjan heilstæðan samning við sérfræðilækna.

Óttast ekki að allt fari á hliðina með nýju áfengisfrumvarpi
Flutningsmaður nýs áfengisfrumvarps segir að þrátt fyrir stóraukið aðgengi á síðustu árum hafi ekki orðið merkjanleg aukning í áfengisneyslu Íslendinga.

Telur heilbrigðisráðherra fara fram úr sér
Hanna Katrín Friðriksson gagnrýnir forgangsröðun heilbrigðisyfirvalda.

Íbúar á Hlíð í efstu sætum alþjóðlegrar hjólakeppni
Á öldrunarheimilum Akureyrar er mikið hjólað þessa dagana en öldrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð taka nú þátt í Heimsleikum eldri borgara í hjólreiðum.

Mæting í leghálsskimun sú versta á Norðurlöndunum
Íslenskar konur skila sér verr í skimun fyrir leghálskrabbameini en aðrar konur á Norðurlöndunum. Mæting í krabbameinsskimun hefur dregist saman á liðnum árum að sögn yfirlæknis hjá Krabbameinsfélaginu.

Segir Svandísi styrkja stöðu sígarettunnar
Ólafur Stephensen telur einsýnt að ný reglugerð muni kæfa rafrettubransann.

Skattar lækki á getnaðarvarnir og tíðavörur
Tólf þingmenn standa að frumvarpi sem kveður á um að allar tegundir getnaðarvarna, sem og einnota og margnota tíðavörur, falli í lægra þrep virðisaukaskattsins. Vörurnar myndu þá bera 11 prósent skatt en í dag er skatturinn á þær 24 prósent.

Henti sér út í djúpu laugina
Sigrún Waage þekkir vel til Alzheimerssjúkdómsins en hún missti móður sína sem hafði barist við sjúkdóminn í fleiri ár. Sigrún flytur nú til landsins danskt verk sem hefur verið fært í íslenskan búning og fjallar um Alzheimer.

Mikil fjölgun yfirvofandi
Heilabilun er regnhlífarhugtak sem lýsir einkennum. Heilabilun þýðir að viðkomandi einstaklingur getur ekki bjargað sér sjálfur að einhverju leyti út af vitrænni skerðingu. Í dag er ekki nægjanlega mikið lagt í rannsóknir á orsökum og meðhöndlun heilabilunarsjúkdóma á Íslandi.

Ráðherra ekki tekið ákvörðun um hvort dómnum verði áfrýjað
Svandís Svavarsdóttir fundaði með ríkislögmanni síðdegis í dag þar sem farið var yfir dóm héraðsdóms í máli sérfræðilæknis gegn ríkinu.

Þriggja mánaða með kíghósta og móðirin minnir á bólusetningar barna og fullorðinna
María Gróa brýnir fyrir fólki að bólusetja börn sín og fara sjálft í endurnýjun bólusetningar á tíu ára fresti.

Forstjóri Sjúkratrygginga kátur með niðurstöðu héraðsdóms
Synjun Sjúkratrygginga á aðild sérgreinalæknis að rammasamningi var felld úr gildi í gær. Læknar utan samningsins þurfa að rukka sjúklinga sína um umtalsvert hærri upphæð en ella.

Æ fleiri ungmenni telja kannabis ekki skaðlegt
Sex sinnum fleiri unglingar telja nú kannabisneyslu skaðlausa en jafnaldrar þeirra fyrir 20 árum. Þetta kemur rannsakendum lítið á óvart. Langflestar rannsóknir bendi til þess að regluleg neysla á kannabis hafi slæm áhrif á heilsu.

Lyfjaskortur kom heilbrigðisráðherra á óvart
Krabbameinslyf og önnur nauðsynleg lyf sem skortur hefur verið á verða líklega aðgengileg innan fárra daga.

„Ég á erfitt með að átta mig á þessari útfærslu námsins“
Formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir furðulegt að reynt sé að höfða til markhópa utan heilbrigðisgeirans til að hvetja fleiri til að sækja nám í hjúkrunarfræði. Til stendur að bjóða upp á nýja og styttri námsleið við Háskóla Íslands næsta haust, sem aðeins býðst þeim sem þegar hafa háskólapróf.

„Málið snýst ekki bara um mig og mín réttindi“
Alma Gunnarsdóttir, sérfræðingur í háls- nef- og eyrnalækningum, sendi fréttastofu yfirlýsingu vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli hennar gegn ríkinu.

Telur farsælast að ráðherra áfrýi ekki dómnum
Heilbrigðisráðherra hyggst ekki tjá sig um málið fyrr en að loknum fundi með ríkislögmanni.

Sérfræðilæknir lagði ríkið í baráttu um rammasamninginn
Þá var íslenska ríkinu gert að greiða Ölmu Gunnarsdóttur 1,8 milljón krónur í málskostnað.

Hafa áhyggjur af vegferð Svandísar gegn einkarekstri
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa áhyggjur af vegferð heilbrigðisráðherra þegar kemur að einkarekstri í heilbrigðisgeiranum. Ný heilbrigðisstefna ráðherrans mun koma til kasta þingsins í marsmánuði.

Konur með brjóstakrabbamein þurfa að lána hver annarri lyf
Konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein og eru í fyrirbyggjandi lyfjameðferð hafa neyðst til að vera lyfjalausar dögum saman eða lána hver annarri lyf til að halda meðferð áfram.

Þingmenn fræðast um notagildi núvitundar
Formaður velferðarnefndar Alþingis segir að Bretar hafi notað núvitund með góðum árangri á mörgum sviðum samfélagsins. Nefndin fær í dag kynningu frá breskum þingmanni sem er annar formanna sérstakrar þverpólitískrar nefndar.

Gerum lífið betra
Ísland er að mörgu leyti gott samfélag. Menningarlíf landsmanna er í blóma, stutt er í óviðjafnanlega náttúrufegurð og yfirleitt er mikil nálægð við fjölskyldu og vini. Hins vegar er sumt sem er þyngra en tárum taki. Í hverri viku deyr einn Íslendingur vegna ofneyslu lyfja og annar mun fremja sjálfsvíg

Krefjast endurskoðunar á skerðingum
Lögmaður Öryrkjabandalagsins segir að Tryggingastofnun eigi að hafa frumkvæði að því að endurskoða lífeyrisgreiðslur allra þeirra sem hlotið hafa skerðingar vegna fyrri búsetu erlendis í samræmi við nýlegt álit umboðsmanns.

Glímir við áfallastreituröskun eftir margra ára baráttu við TR
Jóhanna Þorsteinsdóttir segist sátt við niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis vegna kvörtunar hennar um túlkun Tryggingastofnunar á útreikningi búsetuhlutfalls sem hefur áhrif á lífeyrisgreiðslur. Eftir að hafa fengið miklar skerðingar á lífeyrisgreiðslum flutti hún til Danmerkur og komst aftur á vinnumarkað.

Telur kerfið fyrir börn í fíkni- og geðvanda hafa versnað
Móðir drengs sem stytti sér aldur þegar hann var nítján ára ætlar að koma á fót meðferðarúrræði með hópi fagfólks fyrir börn í fíkni- og geðvanda.

Ríkið semji ekki við fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem rekin eru í hagnaðarskyni
Þingmaður VG hefur lagt fram frumvarp sem myndi banna ríkinu að gera samninga við heilbrigðisþjónustufyrirtæki sem starfa í gróðaskyni.

Segir útilokað að læknar vinni eftir útrunnum samningi
Samningar sérfræðilækna við Sjúkratryggingar Íslands renna út um áramótin.

Mennskan
Undanfarnar þrjár vikur hef ég dvalið erlendis og sótt mér endurmenntun og vitneskju um góðar leiðir til að efla geðheilbrigði og tækifæri til bata.

Getur of stutt fæðingarorlof haft slæm áhrif á heilsu ungbarna?
Í dag er fæðingarorlofið 9 mánuðir. 3 mánuðir á hvort foreldri ásamt 3 mánuðum sem foreldrar geta skipt á milli sín. Samfélagið ætlast til þess að ungabörn séu sett í umsjá ókunnugra aðila aðeins 9 mánaða gömul sem ég tel of ungt.