Líbanon
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Skiptast á eldflaugum í massavís Ísraelski herinn og Hezbollah hafa skotið fjölda eldflauga þvers og kruss yfir landamæri Ísrael og Líbanon í nótt og í gær. Árásirnar hafa líklega aldrei verið jafn umfangsmiklar í hvora áttina frá því Hezbollah hóf árásir á Ísrael í október í fyrra, eftir að Ísraelar hófu hernað sinn á Gasaströndinni. Erlent 22.9.2024 07:37
Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Líbönsk yfirvöld segja þrjú börn og sjö konur hafa verið meðal þeirra 37 sem féllu í ísraelskri loftárás á Beirútborg sem dró einn æðsta leiðtoga Hezbollah til bana í gær. Erlent 21.9.2024 23:24
Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Talsmaður Ísraelshers segir að þó nokkrir af háttsettum leiðtogum Hezbollah-samtakanna hafi verið felldir í loftárás í Beirút í dag. Helsta skotmark árásarinnar var Ibrahim Aqil, einn af æðstu leiðtogum samtakanna sem sagður var hafa leitt hernaðararm Hezbollah eftir að fyrrverandi leiðtogi þessa arms var ráðinn af dögum í júlí. Erlent 20.9.2024 16:52
Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Ísraelar gerðu í dag loftárás á fjölbýlishús í úthverfi Beirút en árásin er sögð beinast gegn háttsettum leiðtoga Hezbollah-samtakanna. Nokkrar sprengjur eru sagðar hafa lent á húsinu, sem varð fyrir miklum skemmdum. Erlent 20.9.2024 13:49
Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Herþotur Ísraelshers gerðu árásir á fjölda skotmarka í suðurhluta Líbanon í gærkvöldi, aðeins klukkustundum eftir að Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, hét hefndum fyrir sprengingar símboða og talstöðva liðsmanna samtakanna. Erlent 20.9.2024 06:37
Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Ísraelar hafa selt meðlimum Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna símboða sem þeir framleiddu sjálfir gegnum skúffufélög frá árinu 2022. Þegar leiðtogi samtakanna fordæmdi notkun snjallsíma fyrr á þessu ári var framleiðslan aukin til muna og þúsundir símboða voru seldir til Líbanon. Erlent 19.9.2024 15:03
Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Forvarsmenn ísraelska hersins hafa tilkynnt nýjar árásir gegn Hezbollah-samtökunum í suðurhluta Líbanon. Formaður herforingjaráðs Ísraels segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun fyrir herinn í norðurhluta Ísrael. Erlent 19.9.2024 14:03
20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Að minnsta kosti 20 létust og 450 særðust þegar talstöðvar liðsmanna Hezbollah sprungu í borgum Líbanon í gær, degi eftir að tólf létust og 2.800 særðust þegar sama gerðist með símboða. Erlent 19.9.2024 06:34
Talstöðvar springa einnig í Beirút Degi eftir að fjölmargir símboðar í notkun meðal meðlima Hezbollah-samtakanna í Líbanon og Sýrlandi sprungu, gerðist það sama með talstöðvar þeirra. Sprengingar hafa átt sér stað víðsvegar um Beirút og annarsstaðar í Líbanon. Erlent 18.9.2024 14:37
Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Forsvarsmenn taívanska fyrirtækisins Gold Apollo, eins stærsta framleiðanda símboða heims, segjast ekki hafa framleitt tækin sem sprungu í Líbanon og Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi tækin verið framleidd af ungversku fyrirtæki sem kallast BAC Consulting Kft. eftir að samningur var gerður milli fyrirtækjanna. Erlent 18.9.2024 11:22
Settu sprengjur í símboðana Ísraelsmenn standa að baki árás á Hezbollah sem framin var í dag, þegar um 2.800 manns slöðuðust eftir að símboðar sprungu í Líbanon, Íran og Sýrlandi. Símboðarnir voru gerðir í Taívan en átt var við þá áður en þeir voru fluttir til Líbanon. Erlent 17.9.2024 23:26
Tæplega þrjú þúsund slasaðir eftir að símboðar sprungu Rúmlega 2.800 manns eru sagðir hafa særst og átta látið lífið, þegar fjölmargir símboðar sprungu samtímis í Líbanon og Sýrlandi. Margir hinna særðu eru meðlimir hinna líbönsku Hezbollah-samtaka en samtökin eiga að hafa verið að nota símaboðana. Símboðarnir eru sagðir hafa gefið frá sér hljóð og sprungið skömmu síðar. Erlent 17.9.2024 14:38
Herforingi kallar eftir innrás í Líbanon Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, segir tímann á þrotum þegar kemur að því að koma í veg fyrir átök milli Ísrael og Hezbollah í sunnanverðu Líbanon. Ori Gordin, yfirmaður herafla Ísrael í norðri, hefur kallað eftir því að fá grænt ljós á innrás í Líbanon. Erlent 16.9.2024 16:06
Lofar að svara árásum Húta af hörku Flugskeyti sem skotið var frá Jemen til Ísrael virkjuðu í morgun loftvarnaflautur á alþjóðlega flugvellinum í Tel Aviv í Ísrael. Flugskeytunum var skotið í loft upp af Hútum, uppreisnarmönnum í Jemen sem studdir eru af írönskum yfirvöldum. Forsætisráðherra Ísrael segir að árásunum verði svarað. Erlent 15.9.2024 12:18
Ísraelar gerðu áhlaup á leynilega vopnaverksmiðju í Sýrlandi Samhliða umfangsmiklum loftárásum Ísraela á fjölda skotmarka í Sýrlandi síðastliðinn sunnudag gerðu ísraelskir sérsveitarmenn áhlaup á eldflaugaverksmiðju Hezbollah. Verksmiðjan er sögð hafa verið reist af Írönum við landamæri Sýrlands og Líbanon. Erlent 13.9.2024 11:21
Sýrlendingar reiðir yfir árásum Ísraela Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmiklar árásir á fjölda skotmarka í Sýrlandi. Minnst fjórtán eru sagðir liggja í valnum en árásirnar eru sagðar hafa beinst að mörgum hernaðarlegum skotmörkum í landinu. Ráðamenn í Sýrlandi segja þó að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Erlent 9.9.2024 11:34
Röð loftárása á Ísrael og Hezbollah-skotmörk í Líbanon Ísrael gerði röð loftárása á suðurhluta Líbanon snemma í morgun. Að sögn yfirvalda var um að ræða fyrirbyggjandi árás á Hezbollah en samtökin gáfu út að þau hefðu sent á loft hundruð eldflauga og dróna til að hefna fyrir morðið á einum æðsta leiðtoga þeirra í síðasta mánuði. Erlent 25.8.2024 12:06
Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Skrifstofa Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sendi frá sér yfirlýsingu í gær eftir að fregnir bárust af því að varnarmálaráðherrann Yoav Gallant hefði kallað yfirlýst markmið Netanyahu um að tortíma Hamas „vitleysu“. Erlent 13.8.2024 08:32
Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn. Erlent 6.8.2024 07:23
Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Bandarísk og fleiri vestræn stjórnvöld hafa gefið út viðvaranir til ríkisborgara sinna um að koma sér hið snarasta frá Líbanon af ótta við að stríðsátök fyrir botni Miðjarðarhafs dreifist út. Spenna á milli Ísraels annars vegar og Íran og Líbanon hins vegar stigmagnast. Erlent 4.8.2024 07:45
Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Hassan Nasrallah, leiðtogi Hezbollah, flutti ávarp í gær þar sem hann sagði að skærur samtakanna og Ísrael væru í „nýjum fasa“. Óvinurinn mætti nú eiga von á „óumflýjanlegum viðbrögðum“ þar sem hann hefði farið yfir „rauðar línur“. Erlent 2.8.2024 06:59
Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Ísraelar gerðu loftárásir á úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanons, þar sem ísraelski herinn telur háttsetta meðlimi Hezbollah halda til. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir fyrir árásir Hezbollah á byggð Ísraela á Golan-hæðum þar sem 12 börn létu lífið. Erlent 30.7.2024 19:14
Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi hafa gefið út ferðaviðvörun til ríkisborgara sinna og hvatt þá til að ferðast ekki til Líbanon og íhuga að yfirgefa landið ef þeir eru þar. Erlent 30.7.2024 07:16
Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Miklar áhyggjur eru uppi af því að stjórnvöld í Ísrael ákveði að ráðast í umfangsmiklar hefndaraðgerðir gegn skotmörkum í Líbanon, sem gæti leitt til allsherjar stríðs á svæðinu. Erlent 29.7.2024 06:56
Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Ísraelski flugherinn segist hafa hæft skotmörk tengd Hezbollah-samtökunum í Líbanon eftir að tólf börn og ungmenni létust í eldflaugaárás á hernumdu svæði Ísraels í Gólanhæðum. Erlent 28.7.2024 10:35
Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Ellefu ungmenni létust og nítján særðust í eldflaugaárás sem gerð var á fótboltavöll á Gólanhæðum í dag. Ísraelsher kennir líbönsku samtökunum Hizbollah um en þau neita sök. Erlent 27.7.2024 21:37
Stjórnvöld á Kýpur ítreka hlutleysi eftir hótanir Hezbollah Stjórnvöld á Kýpur hafa neyðst til að ítreka að þau eigi ekki þátt né muni þau eiga þátt í neinum stríðum eða átökum eftir hótanir af hálfu Hezbollah samtakanna í Líbanon. Erlent 21.6.2024 07:32
Stjórnvöld í Ísrael íhuga stríð gegn Hezbollah og Líbanon Utanríkisráðherra Ísrael segir ákvörðun um mögulegt stríð gegn Hezbollah munu liggja fyrir innan tíðar en greint var frá því í gær að stjórnvöld hefðu ákveðið að ráðast í aðgerðir gegn samtökunum í Líbanon. Erlent 19.6.2024 06:59
Íranar hóta hefndum gegn Ísrael Klerkastjórnin í Íran og vígahópar á snærum þeirra hafa hótað hefndum eftir loftárás á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi í gær. Ísraelar hafa verið bendlaðir við árásina en í henni féllu háttsettur íranskur herforingi og sex aðrir hermenn. Erlent 2.4.2024 13:01
Heitir því að halda árásum í Líbanon áfram þrátt fyrir vopnahlé Yoav Gallant varnarmálaráðherra Ísraels hefur heitið því að auka þungann í árásum þeirra á Hezbollah-samtökin í Líbanon jafnvel þó að vopnahlé náist á Gasasvæðinu. Erlent 25.2.2024 23:54