Kjaramál
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 153 ›
Samningsviðræðum slitið og deilunni vísað til ríkissáttasemjara Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að kjaraviðræðum breiðfylkingar ASÍ við Samtök atvinnulífsins hafi verið slitið og deilunni verði nú vísað formlega til ríkissáttasemjara. Frost er komið í viðræðurnar. Innlent 24.1.2024 16:51
Fimm staðreyndir inn í kjaraviðræður Undanfarna mánuði og jafnvel rúmt ár hefur oft verið deilt um kaup og kjör í fjölmiðlum. Eykst það gjarnan þegar fundahöld í tengslum við kjaraviðræður færast yfir í Karphúsið. Inn á milli stífra funda heyrast svo gjarnan einhliða yfirlýsingar um að það sé einum eða öðrum að kenna að viðræður séu komnar í strand. Skoðun 24.1.2024 16:01
Grindavík og kjaraviðræðurnar Yfirlýsingar fjármálaráðherra og utanríkisráðherra þess efnis að náttúruhamfarir í Grindavík muni hafa áhrif á getu stjórnvalda til að koma til móts við kröfur launafólks um aðkomu ríkisins að kjaraviðræðum hafa að vonum vakið talsverða furðu. Skoðun 24.1.2024 14:01
Ríkið þurfi bæði að styðja við Grindvíkinga og samningsaðila Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir mikilvægt að ríkið styðji við Grindvíkinga jafnt sem aðra í samfélaginu sem tengjast kjarasamningum. Þá sé brýnt að ná niður vöxtum sem bíti heimili félagsmanna gríðarlega fast. Innlent 23.1.2024 20:09
Sólveig Anna segir ríkisstjórnina ekki getað fríað sig ábyrgð í kjarasamningum Formaður Eflingar segir kjarasamninga ríflega sjötíu prósenta fólks á vinnumarkaði ekki eitthvað verkefni sem stjórnvöld geti ýtt frá sér vegna atburðanna í Grindavík. Samningarnir skipti alla þjóðina máli. Innlent 23.1.2024 19:29
„Þú notar ekki sömu krónurnar tvisvar“ Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála-og efnahagsráðherra, segir ljóst að aðgerðir til handa Grindvíkingum hafi áhrif á stöðu ríkisfjármála og þar með mögulegt útspil stjórnvalda í kjaraviðræðum. Innlent 23.1.2024 12:27
Dapurlegt ef stjórnvöld ætla að draga í land í kjaraviðræðum vegna Grindavíkur Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins virðist ekki hafa trú á að hægt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef Seðlabankinn hækki vexti í byrjun febrúar sé þátttöku verkalýðshreyfingarinnar í þessari tilraun lokið. Innlent 23.1.2024 11:46
„Tökum ekki að okkur að semja um launaskrið hærri launaðra hópa“ Breiðfylking stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði og Samtök atvinnulífsins funduðu í Karphúsinu í dag vegna kjaraviðræðna. Formaður Eflingar segir breiðfylkinguna vilja semja um flata krónutöluhækkun og hún taki ekki að sér að semja um launaskrið hærri launaðra hópa. Innlent 22.1.2024 20:27
Alvöru þjóðarsátt Samtök atvinnulífsins gerðu það eina rétta í stöðunni að hafna nálgun meintrar breiðfylkingar til þjóðarsáttar í kjaramálum. Skoðun 20.1.2024 15:12
Breiðfylkingin og SA funda hjá ríkissáttasemjara Samninganefnd breiðfylkingar stéttarfélaga kemur saman til fundar klukkan 11 til að ræða um næstu skref í harðnandi kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins. Klukkan 13 fundar samninganefndin með SA hjá ríkissáttasemjara. Viðræðurnar eru komnar í uppnám, og líklegt þykir að deilunni verði formlega vísað til ríkissáttsemjara. Innlent 20.1.2024 10:33
Staðan komi á óvart en samstaða ríki innan breiðfylkingarinnar Formaður VR segir stöðuna sem upp er komin í kjaraviðræðum breiðfylkingar stéttarfélaga við Samtök atvinnulífsins mjög alvarlega. Aðkoma stjórnvalda ætti að koma þeim sjálfum vel, enda sé markmið nýrra samninga að draga úr verðbólgu og vaxtastigi. Innlent 19.1.2024 11:01
Ræða að vísa deilunni formlega til ríkissáttasemjara Samninganefnd breiðfylkingar stéttarfélaga kemur saman klukkan tíu í dag til að ræða næstu skref í harðnandi kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins. Formaður Starfsgreinasambandsins telur líklegt að niðurstaða fundarins verði að vísa deilunni formlega til ríkissáttasemjara. Innlent 19.1.2024 09:32
Viðræður breiðfylkingar ASÍ og SA í uppnámi Formaður VR segir Samtök atvinnulífsins hafa hleypt kjaraviðræðum í uppnám með kröfu um að tekið verði tillit til launaskriðs þeirra hæstlaunuðu í kostnaðarmati við kjarasamninga. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir markmið samningsaðila enn vera þau sömu, að ná niður verðbólgu og vöxtum. Innlent 18.1.2024 19:21
Kuldi í kjaraviðræðum vegna deilna um launaskrið Nú þegar hálfur mánuður er þar til friðarskylda rennur út á almennum vinnumarkaði ásamt gildandi skammtímasamningum, er mikil óvissa komin í viðræður breiðfylkingar stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Verkalýðsforystan segir atvinnurekendur vilja minni krónutöluhækkanir vegna launaskriðs þeirra hærra launuðu. Innlent 18.1.2024 12:07
Rauðar tölur eftir hikst í kjaraviðræðum Gengi langflestra félaga í Kauphöllinni lækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins. Telja má líklegt að tíðindum af erfiðleikum í kjaraviðræðum sé um að kenna. Viðskipti innlent 18.1.2024 10:27
Strand í viðræðum um krónutöluhækkun Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins vara við því að krónutölunálgun sé höfð að leiðarljósi við gerð kjarasamninga. Það valdi því að kostnaður sé vanmetinn við upphaf kjaraviðræða. Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði segir Samtök atvinnulífsins hafna nálgun fylkingarinnar um þjóðarsátt. Viðskipti innlent 18.1.2024 09:36
Kærir ráðherra fyrir að skipa Ástráð sem ríkissáttasemjara Dr. Aldís G. Sigurðardóttir hefur lagt fram kæru til kærunefndar jafnréttismála vegna ákvörðunar Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um að skipa Ástráð Haraldsson í embætti ríkissáttasemjara. Innlent 18.1.2024 07:01
Segja SA hafna sinni nálgun um þjóðarsátt Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði segir Samtök atvinnulífsins hafna nálgun fylkingarinnar um þjóðarsátt. Hún hvetur SA til að rýna betur tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja. Innlent 17.1.2024 18:47
Lítill gangur í viðræðum Formaður félags stjórnar fagfélaga telur að ekki beri mikið í milli í kjaradeilu þess og Samtaka atvinnulífsins. Lítill gangur hafi þó verið í viðtæðum og því hafi ákvörðun verið tekin um að koma deilunni í formlegt ferli hjá ríkissáttasemjara. Innlent 16.1.2024 13:01
Fagfélögin vísa kjaradeilu til ríkissáttasemjara Samninganefndir Fagfélaganna hafa vísað kjaradeilu félaganna við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Fagfélögin eru ekki hluti af breiðfylkingu, sem telur um 93 prósent félagsmanna ASÍ, sem nú semur um kjör við SA. Innlent 16.1.2024 07:42
Andrés húðskammar Lyfjastofnun Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir Lyfjastofnun fyrir 8,7 prósenta hækkun á gjaldskrá um áramótin. Allir verði að leggja sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu og háa vexti, líka Lyfjastofnun. Viðskipti innlent 15.1.2024 15:02
Baráttan gegn verðbólgu – stofnanir eru ekki undanþegnar Mikilvægasta verkefnið við þær kjaraviðræður sem nú standa yfir er að ná tökum á þeirri miklu verðbólgu og því háa vaxtastigi sem íslenskt samfélag hefur verið að glíma við undanfarin misseri. Bæði verðbólgan og vextirnir hafa komið hart niður á heimilum jafnt sem fyrirtækjum eins og alkunna er. Skoðun 15.1.2024 13:31
Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma. Innlent 15.1.2024 13:21
Tekur fyrir að hafa sagt að Marta María sé ekki blaðamaður Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir ekki rétt að hún hafi sagt að Marta María Winkel væri ekki blaðamaður. Marta María hafði greint frá því að hún hafi skipt um félag eftir að hafa heyrt af ummælum sem Sigríður átti að hafa látið frá sér að samningafundi. Innlent 13.1.2024 12:53
Vilhjálmur segist óánægður með Samtök atvinnulífsins Formaður Starfsgreinasambandsins segir nokkur ljón í veginum í kjaraviðræðum við SA en fólk sé sammála um að ryðja þeim úr vegi. Hann telur að aðildarfélög SA hafi ekki sýnt nógu skýrt að þau ætli að halda aftur af hækkunum. Framkvæmdastjóri SA fagnar yfirlýsingu Haga um að félagið ætli að halda aftur af sér. Innlent 12.1.2024 20:18
Rjúfa verður vítahringinn í húsnæðismálum Enn syrtir í álinn í húsnæðismálum landsmanna. Í Morgunblaðinu (fimmtudag 11. janúar) er sagt frá nýrri könnun sem Samtök iðnaðarins (SI) gerðu meðal stjórnenda verktakafyrirtækja sem leiðir í ljós að þeir gera ráð fyrir 30% samdrætti í íbúðabyggingum næstu misserin. Skoðun 12.1.2024 13:01
Hvetur félagsmenn til að halda aftur af hækkunum Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda skorar á félagsmenn að halda aftur af verðhækkunum og taka þannig þátt í að þjóðarsátt náist milli SA og breiðfylkingar innan ASÍ. Fyrirtækin eigi auðveldara með slíkt dragi hið opinbera úr boðuðum hækkunum. Forsvarsmenn félagsins hittu forystu VR í morgun. Innlent 12.1.2024 12:01
Kjarafundur í dag og Efling fundar sérstaklega með SA Kjarasamningsviðræður Samtaka atvinnulífsins og breiðfylkingar stéttarfélaga halda áfram í dag. Samningsfundur hefst klukkan eitt eftir hádegi en þangað til mun samninganefnd SA funda sérstaklega með samninganefnd Eflingar. Innlent 12.1.2024 08:50
Verður stórfyrirtækjum hlíft við „sáttinni“? „Á Íslandi er samfélagssáttmáli um jöfnuð... ekki bara í þeim kjarasamningum sem við gerum heldur líka í skattkerfinu okkar...“ sagði framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í grein í Morgunblaðinu á nýársdag. Skoðun 11.1.2024 09:30
Hafnarfjörður mun endurskoða gjaldskrár Vonir standa til að næstu kjarasamningar muni tryggja stöðugleika og lága verðbólgu til langs tíma. Þess vegna höfðu bæjaryfirvöld í Hafnarfirði frumkvæði að því í byrjun desember að lýsa yfir mögulegri endurskoðun á gjaldskrám bæjarins. Með því móti vill sveitarfélagið hvetja til ábyrgrar samningagerðar á vinnumarkaði. Skoðun 11.1.2024 08:00