Grindavík
45 46 47 48 49 50 51 52 53 … 74 ›
Enginn hafi sofið af sér erfiða og langa jarðskjálftahrinu Íbúar í Grindavík lýsa erfiðri nótt og einhverjir pökkuðu jafnvel í töskur. Bláa lóninu var lokað eftir mikla og tíða skjálftavirkni á svæðinu, sá stærsti var 4,8 að stærð Innlent 9.11.2023 19:22
Lokun Northern Light Inn: Fjölmiðlaumfjöllun „ekki í neinu samræmi við raunveruleikann“ Hótelið Northern Light inn, sem staðsett er við Svartsengi hefur farið að frumkvæði Bláa lónsins og verður lokað næstu vikuna. Eigandi hótelsins segir lokunina þó einungis stafa af umfjöllun fjölmiðla um ástandið á Reykjanesskaga vegna jarðhræringa. Innlent 9.11.2023 19:01
Nokkuð jafnt landris þó hröðunin sé ólík Stórir skjálftar á Reykjanesinu í nótt þarf ekki að þýða aukinn hraða á kvikusöfnun. Skjálftarnir eru dæmi um hviðakennda skjálftavirkni sem búast má við meðan að kvikusöfnun er í gangi. Landið rís nokkuð jafnt þó hröðun mælist ólík á milli daga. Innlent 9.11.2023 13:52
Telur að Grindvíkingar ættu að sofa annars staðar en heima hjá sér Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands segir að réttast væri að rýma Grindavík eins og hægt sé. Hann segir jafnframt að ekki sé seinna vænna að koma upp varnargörðum til að verja bæinn. Innlent 9.11.2023 12:26
„Nóttin var vægast sagt hræðileg“ Hljóðbrot sem Lilja Ósk Sigmarsdóttir, íbúi í Grindavík náði þegar stór skjálfti reið yfir í nótt, sýnir raunveruleikann sem íbúar búa við þessa dagana. Hún segir nóttina hafa verið hræðilega og taugakerfið orðið ansi marið. Innlent 9.11.2023 12:09
Tómlegt í Bláa lóninu og ferðamenn missvekktir Tómlegt er um að litast í Bláa lóninu í dag á fyrsta degi lokunar. Ferðamenn sem fréttastofa ræddi við höfðu ekki fengið veður af lokuninni og voru missvekktir. Innlent 9.11.2023 12:04
Afpanta aðföng um óákveðinn tíma Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að afpanta öll aðföng sem keypt höfðu verið af birgjum. Staðan verður tekin aftur eftir helgi. Viðskipti innlent 9.11.2023 09:07
Bláa lóninu lokað í viku en starfsmenn fá greitt og gestir endurgreitt Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að loka starfstöðvum sínum í Svartsengi í eina viku, þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið. Innlent 9.11.2023 07:23
„Vill einhver kaupa hús hérna í Eyjabyggðinni? Er að spyrja fyrir vin“ Alls hafa 24 skjálftar mælst yfir 3 að stærð frá miðnætti, allir í nágrenni við Þorbjörn, þar sem vel er fylgst með kvikuinnskoti í Reykjaness-Svartsengis eldstöðvakerfinu. Innlent 9.11.2023 06:30
Skelkaðir hótelgestir við Bláa lónið láti sækja sig vegna skjálftanna Leigubílstjórar á Reykjanesskaga ferja nú gesti af hóteli Bláa lónsins sem eru óttaslegnir vegna stórra jarðskjálfta á svæðinu, sem fóru að gera vart við sig upp úr miðnætti. Innlent 9.11.2023 01:50
„Það er líklegra en ekki að það verði ekki svarta myndin“ Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, sagði mikilvægt að muna að svartasta sviðsmyndin væri ekki sú líklegasta, þegar hann ræddi jarðhræringar á Reykjanesskaga á íbúafundi í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld. Innlent 8.11.2023 21:38
Svona gætu varnargarðar við Svartsengi litið út Starfshópur verkfræðinga og fræðimanna hefur gert greiningu á innviðum og skilað af sér tillögum að varnargörðum vegna mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga. Innlent 8.11.2023 18:55
Fimm rúmmetrar streyma í sylluna á hverri sekúndu Um það bil 1200 jarðskjálftar hafa mælst síðasta sólahring, flestir á svæðinu milli Þorbjörns og Sýlingarfells svipað og daginn áður. Stærsti skjálftinn var 3,4 að stærð klukkan 00:31 í nótt skammt sunnan við Þorbjörn. Innlent 8.11.2023 14:55
Flúði skjálftana og komin í hjólhýsi í Árbænum Sigríður Jónasdóttir, íbúi í Grindavík, hefur fengið sig fullsadda af skjálftahrinunni á Reykjanesi og er flutt í borgina. Þar býr hún nú í hjólhýsi í garðinum hjá tengdaforeldrum dóttur sinnar. Innlent 8.11.2023 09:00
Kynnisferðir hætta ferðum í Bláa lónið Forsvarsmenn Kynnisferða hafa ákveðið að hætta ferðum í Bláa lónið frá og með hádegi á morgun. Framkvæmdastjóri segir það gert með öryggi starfsmanna og gesta að leiðarljósi. Staðan verður endurmetin eftir þrjá daga. Innlent 6.11.2023 20:46
Varaaflsvélar komnar til Grindavíkur Fyrstu tvær varaaflsvélarnar eru komnar til Grindavíkur. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS veitna segir þær hluta af undirbúning fyrir verstu sviðsmyndina ef til eldgoss kæmi og ekkert rafmagn né hiti kæmi frá Svartsengi. Innlent 6.11.2023 20:06
Finnur fyrir óöryggi hjá starfsfólki Bláa lónsins Framkvæmdastjóri Bláa lónsins telur að hægt væri að rýma svæðið innan klukkustundar ef til þess kæmi. Þessa dagana er gestafjöldi yfir tvö þúsund manns á hverjum degi. Mikil áhersla er lögð á að undirbúa starfsfólk fyrir mismunandi sviðsmyndir, en lóninu hefur verið skipt upp í tíu rýmingarsvæði. Innlent 6.11.2023 18:12
Svona var upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa Almannavarnir boða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð klukkan 15 vegna jarðhræringanna á Reykjanesinu. Innlent 6.11.2023 14:01
Land risið um sjö sentimetra Frá 27. október hefur land risið um sjö sentimetra samkvæmt GPS-mælistöð á fjallinu Þorbirni. Aflögunin verður vegna kvikusöfnunar í syllu á um fimm kílómetra dýpi. Innlent 6.11.2023 13:39
Birta leiðbeiningar til íbúa á Reykjanesi Björgunarsveitin Suðurnes hefur birt svör við ýmsum spurningum íbúa um hvað sé best að gera til að undirbúa sig heima fyrir ef það fer að gjósa við Svartsengi. Íbúar eru hvattir til að kynna sér viðbragðsáætlanir. Boðað hefur verið til upplýsingafundar almannavarna klukkan 15:00 í dag. Innlent 6.11.2023 11:52
Segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar Skjálftavirkni jókst á ný í nótt og landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir miður að ekki allir ferðamenn hafi verið upplýstir um jarðhræringar á svæðinu við komuna í lónið í gær. Innlent 5.11.2023 12:01
Landris heldur áfram Landris heldur áfram á sama hraða við Þorbjörn og engin skýr merki eru um að kvika sé að færast nær yfirborði. Gera má ráð fyrir áframhaldandi jarðskjálftavirkni vegna kvikuinnskotsins, sem veldur aukinni spennu á svæðinu. Innlent 5.11.2023 10:58
Bein útsending: Vefmyndavélar í beinni frá Þorbirni Mikil skjálftavirkni og jarðhræringar hafa staðið yfir á Reykjanesi að undanförnu og hefur töluverður hraði verið á landrisi við Þorbjörn. Vísir er með vefmyndavélar á svæðinu, þar sem sjá má útsýnið af Þorbirni, yfir Bláa lónið og Reykjanesskagann annars vegar og svo Grindavík hinsvegar. Innlent 4.11.2023 19:40
Ferðamenn ekki upplýstir um jarðhræringar við komuna í Bláa lónið: „Nei, alls ekki“ Ferðamenn sem voru ný komnir úr Bláa lóninu virtust mis vel upplýstir um jarðhræringarnar á Reykjanesi þegar fréttastofa ræddi við þá í dag. Fáir segjast hafa verið látnir vita af stöðunni við komuna í lónið. Innlent 4.11.2023 19:11
Ekki í stöðunni að loka Bláa lóninu: „Við fylgjum alfarið ráðleggingum sérfræðinganna“ Umhverfisverkfræðingur skorar á yfirvöld að Bláa lóninu verði gert að loka Bláa lóninu tímabundið, en óvissustig almannavarna er þar í gildi vegna jarðhræringa. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins segir forsvarsmenn lónsins fylgja sérfræðingum Veðurstofunnar og Almannavarna í einu og öllu og samkvæmt þeim sé ekki tilefni til lokunar sem stendur. Innlent 4.11.2023 14:56
Skjálftavirkni minnkað en búist við að hún aukist aftur Nokkuð hefur dregið úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga síðan á sjötta tímanum í gær. Jarðskjálftar sem mælst hafa eru að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands minni en áður en gera megi ráð fyrir að jarðskjálftavirkni aukist aftur. Innlent 4.11.2023 12:11
Var að upplifa jarðskjálfta í fyrsta skipti: „Þurfum við að flýja?“ Jörð skelfur í Grindavík og eru íþróttirnar og leikmenn körfuboltaliðs félagsins ekki þeim undanskyldir. Mönnum gekk misvel að sofa í nótt. Körfubolti 4.11.2023 07:00
Skjálfti af stærðinni 4,3 Jarðskjálfti af stærðinni 4,3 mældist norðaustur af Grindavík klukkan 13:14 í dag. Um er að ræða einn stærsta skjálfta sem mælst hefur í yfirstandandi hrinu. Innlent 3.11.2023 14:34
Erlendu leikmenn Grindavíkur vel upplýstir: „Nóttin var ekkert eðlileg“ Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur í körfuboltanum, segir vel haldið utan um erlendu leikmennina í liðinu sem eru flestir að finna fyrir almennilegri jarðskjálftavirkni í fyrsta sinn á ævinni þessa dagana. Órói hefur gert vart um sig á svæðinu en Ólafur sjálfur er rólegur yfir stöðunni og svaf hann af sér skjálfta næturinnar. Körfubolti 3.11.2023 13:01
Skjálftavirknin viðbúin þegar land rís svona hratt Stærðarinnar skjálftar hafa riðið yfir norðvestur af Grindavík frá miðnætti, þrír hafa verið yfir fjórum að stærð. Jarðeðlisfræðingur segir eðlilegt að stærri skjálftar ríði yfir þegar landris verður eins hratt og raunin er við fjallið Þorbjörn. Það þurfi þó ekki að þýði að von sé á gosi. Innlent 3.11.2023 12:06