Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Agnar Már Másson skrifar 9. september 2026 18:30 Ólafsfjarðargöng eða Múlagöng eru um 3.400 metrar að lengd og er að finna milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Wikipedia Commons Tveir karlmenn á sextugsaldri hafa verið dæmdir í fimm og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að búa til og sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum í mars 2021. Tveir aðrir voru ákærðir í málinu en þeir létust á meðan málsfrelið stóð yfir.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra í apríl, fimm árum eftir að atvikið átti sér stað, en tvímenningarnir voru þar sakfelldir fyrir stórfelld og sérstaklega vítaverð eignaspjöll. Fram kemur að annar maðurinn hafi í upphafi gefið lögreglu ítarlega frásögn þar sem hann lýsti því að þeir hefðu búið til sprengjuna, farið saman í göngin og komið henni fyrir. Aftur á móti kvaðst hann síðar fyrir dómi muna lítið og neitaði að hafa komið að sprengjugerðinni. Dómurinn taldi fyrri framburð hans engu að síður trúverðugan og þann síðari ótrúverðugan. Fyrir vikið var dómurinn sem sá maður hlaut mánuði vægari heldur en dómurinn yfir samverkamanni hans, sem neitaði sök fyrir dómi en viðurkenndi þó að hafa mulið niður stjörnublys samkvæmt leiðbeiningum hins mannsins. Dómurinn taldi framburð hans um aðkomu sína að sprengingunni ótrúverðugan og studdist meðal annars við framburð hins mannsins og framburð tveggja vitna, sem voru bæði með þeim í bílnum og sögðust hafa séð þá búa til sprengjuna. Vitnin tvö voru einnig ákærð en eru bæði látin í dag. Auk þess hafði annað vitnið látið vinkonu sína vita að þeir væru á leiðinni í göngin að „sprengja eitthvað“ og hún hafði rakleiðis samband við lögreglu. Kastaðist aftur þegar sprengingin varð Sprengjan var talin hafa verið gerð úr púðurleifum úr flugeldum eða stjörnuljósum auk þrýstikúts. Henni var, að því er fram kemur í dómnum, komið fyrir undir tæknigámi við spennistöð. Þeir hafi komið sprengjunni þar fyrir rétt fyrir miðnætti, kveikt í þræðinum og farið inn í bíl en ekki hafi tekist að sprengja hana í fyrstu. Því hafi annar þeirra farið aftur að sprengjunni og reynt aftur. Þegar sprengjan sprakk loksins var annar maðurinn ekki kominn inn í bíl og kastaðist hann því nokkra metra til vegna þrýstibylgjunnar. Sprengingin sló út rafmagni í göngunum í um átta klukkustundir og olli verulegum skemmdum aðfaranótt 18. mars 2021. Þegar lögregla mætti á vettvang kl. 9 um morguninn sást hola við norðausturhorn tæknirýmisins og beyglur á hliðum þess. Leifar af mikið tættum súrefniskút lágu sömuleiðis á jörðinni, ásamt bút úr kútnum í holunni sjálfri. Púðurlykt hafi verið greinanleg frá sprengjustaðnum og krumpaður álpappír með púðurleifum fannst nærri. Þá var hurð tæknirýmisins bogin af þrýstingnum og hefði þurft að skera hana upp með slípirokk, sem hafi líklega gert af starfsmönnum sem komu fyrstir á vettvang, að því er fram kemur í dómnum. Dómkvaddur matsmaður taldi að myndast hefði um 40 loftþyngda yfirþrýstingur við sprenginguna, sem var nóg til að færa þungan tæknigám, skapa gíg í jörðinni og kasta gerandanum til. Matsmaðurinn sagði að við aðrar aðstæður hefði sprengingin getað valdið gríðarlegum skaða í tugum eða jafnvel hundruðum metra fjarlægð. Fimm og sex mánuðir Dómurinn taldi sannað að báðir mennirnir hefðu tekið þátt í undirbúningi og framkvæmdinni. Annar þeirra hlaut sex mánaða fangelsisdóm og hinn fimm mánaða dóm en refsingin er skilorðsbundin til tveggja ára. Þó svo að tjónið hafi verið metið á þrjár milljónir króna kemur ekki fram í dómnum að þeir hafi verið dæmdir til að greiða skaðabætur. Fyrir brot af þessu tagi hefði mátt dæma mennina til allt að sex ára fangelsisvistar en dómurinn bendir á að rannsókn og meðferð málsins hafi dregist úr hófi og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar.
Dómsmál Lögreglumál Fjallabyggð Dalvíkurbyggð Jarðgöng á Íslandi Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Erlent Fleiri fréttir Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Sjá meira