
Flóttafólk á Íslandi

Vill koma upp móttöku flóttamanna við Kaffi Vest
Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur, víninnflytjandi og fjölmiðlamaður á Mogganum segir mjög óþægilegt að bera fram erfiðar spurningar í viðtölum, en það sé hlutverk blaðamanna. Og er hann þá ekki síst að tala um innflytjenda- og hælisleitendamál.

Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít
Kristrún Frostadóttir segir eðlilegt að ágreiningur eigi sér stað innan breiðfylkingar og stórs flokks líkt og Samfylkingarinnar. Þannig svarar hún gagnrýni innan flokksins sem snýr að hjásetu flokksins við afgreiðslu nýrra útlendingalaga.

Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina
Meira en tvö þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista á vef Ísland.is þar sem skorað er á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að grípa inn í svo Yazan Tamimi og fjölskyldu hans verða ekki vísað úr landi.

Engin gögn bendi til tengsla við Hamas
Útlendingastofnun býr ekki yfir neinum gögnum sem gefa til kynna að þeir sem fengu dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar Palestínumanna á þessu ári og síðasta hafi nokkur tengsl við Hamas-samtökin. Samanlagt hafa 184 dvalarleyfi hafa verið veitt í ár og í fyrra.

„Nöturlegt“ ef Barnasáttmálinn grípur ekki Yazan
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir nöturlegt ef réttindi barna og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna grípi ekki fatlaðan ellefu ára dreng sem hefur verið vísað frá landinu. Brottvísun drengsins hefur verið frestað fram yfir verslunarmannahelgi og lögmaður fjölskyldu hans hefur óskað eftir endurupptöku á máli hans.

Yazan vísað úr landi eftir Verslunarmannahelgi
Brottvísun Yazans Tamimi og fjölskyldu hans hefur verið frestað þar til eftir Verslunarmannahelgina. Lögmaður fjölskyldunnar mun seinna í dag senda inn beiðni til kærunefndar útlendingamála um að taka málið aftur upp.

Mál Yazans vekur athygli erlendra fjölmiðla
Mál Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með hrörnunarsjúkdóm sem búið er að ákveða að vísa úr landi, hefur vakið athygli erlendra fjölmiðla á borð við Al Jazeera.

Það er ákvörðun að beita mannvonsku
11 ára drengur með Duchenne-hrörnunarsjúkdóminn liggur á Barnaspítalanum og bíður brottvísunar sinnar af landinu. Sérfræðingar innan heilbrigðiskerfisins, hagsmunasamtök og almenningur hafa fordæmt brottvísun drengsins bæði vegna heilbrigðis- eða mannúðarsjónarmiða.

„Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“
„Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur, get bara sagt fólki það,“ sagði Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þá sagði hann að smáflokkur í ríkisstjórnarsamstarfinu, Vinstri græn, hefði alltof mikil áhrif, og að íslenska stjórnmálamenn vanti þrek og kjark til að gera eitthvað, vitandi það að fullt af fólki muni garga á þau.

„Hann á að vera hér á Íslandi“
Fjölskylda palestínsks drengs með skæðan vöðvarýrnunarsjúkdóm segir heim hans hafa hrunið þegar honum var tilkynnt endanlega nýverið að fjölskyldunni yrði vísað úr landi. Hundruð sýndu samstöðu með fjölskyldunni á Austurvelli í dag en drengurinn dvelur nú á Barnaspítalanum.

Boða til samstöðufundar með Yazan
Landssamtökin Þroskahjálp, Duchenne Samtökin á Íslandi, Réttur barna á flótta og Einstök börn hafa boðað til samstöðufundar með Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskum dreng með hrörnunarsjúkdóm sem vísa á úr landi.

Yazan, Kant og siðleg breytni á Íslandi
Hvað myndi gamli Kant segja við íslensk yfirvöld eða ráðleggja þeim varðandi stöðu Yazan Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs, varðandi hvort þau ættu að hætta við að endursenda hann og fjölskyldu hans í óvissu á Spáni eða ekki?

Efndu til gjörnings við Lækjartorg
Stuðningsmenn Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvahrörnunarsjúkdóm, efndu í dag til gjörnings við Lækjartorg til að mótmæla fyrirhugaðri brottvísun hans úr landi.

Segja aðgerðir lögreglu úr hófi og vilja miskabætur
Níu mótmælendur krefjast miskabóta frá ríkinu vegna þess sem þeir segja harkalegar og tilhæfulausar aðgerðir lögreglu 31. maí síðastliðinn.

Mótmæla brottvísun Yazans á Austurvelli
Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla brottvísun Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvarýrnunarsjúkdóm.

Yazan endanlega vísað úr landi og boðað hefur verið til mótmæla
Ellefu ára palestínskum dreng með hrörnunarsjúkdóm verður vísað úr landi eftir að Kærunefnd útlendinga vísaði máli hans frá og neitaði honum endanlega um vernd hér á landi. Boðað hefur verið til mótmæla á sunnudag vegna þessa.

Hvað verður um þau?
„Af hverju eru þau að flýja?“ spurði dóttir mín þegar hún settist hjá mér þar sem ég horfði á fréttaskýringu um hættulega för flóttafólks í gegnum Mexíkó. Ég þurfti að hugsa mig um augnablik – þarna var verið að fjalla um fólk frá Venesúela en líka öllum heiminum sem fór þessa leið í von um að komast til Bandaríkjanna – og ég hugsaði um allar ólíku ástæðurnar fyrir því að fólk leggi allt í sölurnar, yfirgefi allt sem það á og þekkir, og fari í slíka glæfraför með sig og börnin sín.

Virkja leyniherbergi Alþingis vegna frumvarps um ríkisborgararétt
Ákveðið var í dag að virkja leyniherbergi Alþingis vegna frumvarps um ríkisborgararétt. Þingmönnum verður í samræmi við það heimilt að skoða trúnaðargögn sem tengjast frumvarpinu í sérstöku herbergi, undir eftirliti, fram að afgreiðslu málsins. Ekki má skrifa niður eða taka myndir af gögnunum.

Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð
Í gær birti Hanna Símonardóttir mynd á X, áður Twitter, þar sem sjá má nokkra Palestínufána blakta ásamt fána með merki Mosfellsbæjar og íslenska fánanum. Yfirskrift Hönnu var „dagurinn sem Mosfellsbær varð öðrum til fyrirmyndar“, en færslan hefur vakið misgóð viðbrögð.

Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa
Dagurinn í dag fer í sögubækurnar sem mikill sorgardagur. Alþingi hefur enn einu sinni samþykkt breytingar á útlendingalögum sem fela í sér frekari skerðingar á grundvallarréttindum fólks á flótta, sem þrengja að möguleikum fólks sem neyðst hefur til þess að flýja stríð, átök, ofsóknir eða aðrar hörmungar til þess að fá alþjóðlega vernd á Íslandi, og auka misrétti í garð flóttafólks og hreinlega valda þeim skaða.

Flóttamannastraumurinn renni þangað sem stærstu glufurnar finnast
Dómsmálaráðherra fagnar því að boðaðar séu veigamiklar breytingar á útlendingalöggjöf í áraraðir. Í eldhúsræðu sinni sagði hún málefni útlendinga eru viðkvæman málaflokk en hún hræðist ekki vegferðina sem er fram undan í útlendingamálum.

Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum
Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi.

Útlendingafrumvarpið afgreitt út úr þingnefnd
Á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis var útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra afgreitt út úr nefndinni.

Enginn ágreiningur uppi og útlendingafrumvarpið afgreitt í vikunni
Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir engan ágreining uppi á milli stjórnarflokkanna um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra.

Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk
Dómsmálaráðuneytið segir umboðsmann barna komast að „ótækri“ niðurstöðu í umsögnum sínum um útlendingafrumvarpið svokallaða. Hagsmunir barna séu ekki „tromp spil“ í útlendingamálum.

Vilja samstarf við Norðurlöndin vegna fólks sem vill ekki fara
Fjórir þingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi feli dómsmálaráðherra að leita samstarfs við kollega sína á Norðurlöndum um móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafa fengið umsókn sinni synjað.

Um 200 bíða þess að vera flutt af landi í þvinguðum brottflutningi
Á lista stoðdeildar ríkislögreglustjóra eru 227 verkbeiðnir um þvingaðan brottflutning einstaklinga. Þar af er verið að afla ferðaskilríkja fyrir 58 einstaklinga. Síðustu tólf mánuði hafa alls 188 einstaklingar verið fluttir á brott í þvinguðum flutningi til margra ólíkra landa.

Yazan bíður enn svara
Algjör óvissa er enn í máli tólf ára palestínsks drengs, með hrörnunarsjúkdóm, sem senda á úr landi. Tæpar þrjár vikur eru síðan stoðdeild ríkislögreglustjóra heimsótti drenginn og foreldra hans til að undirbúa brottflutning en óskað hefur verið eftir endurupptöku málsins.

Safna til að koma konunum í varanlegt skjól í Nígeríu
Hópur fólks stendur nú fyrir söfnun til að aðstoða þrjár nígerískar konur sem var vísað úr landi fyrr í þessum mánuði. Konurnar fengu allar endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd fyrir um ári síðan og voru fluttar á brott í þvinguðum brottflutningi.

Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu
Íslandsdeild Amnesty International fordæmir brottvísanir íslenskra stjórnvalda á umsækjendum um alþjóðlega vernd sem eru mansalsþolendur og hvetur stjórnvöld til að endurskoða stefnu sína er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru þolendur mansals. Vinna er hafin í dómsmálaráðuneytinu við nýja aðgerðaráætlun um mansal.