
Danski boltinn

Helmingslíkur á því að Gylfi Þór gangi í raðir Lyngby
Freyr Alexandersson, þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby, segir helmingslíkur á því að Gylfi Þór Sigurðsson semji við félagið. Frá þessu greinir Freyr í viðtali við fjölmiðla ytra.

Lyngby í efri hlutanum eftir góðan sigur
Íslendingalið Lyngby vann 1-0 heimasigur á Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er sem stendur í efri hluta deildarinnar. Virðist sem lærisveinar Freys Alexanderssonar ætli sér ekki að endurtaka leik síðasta tímabils og vera í fallbaráttu allt til lokadags.

Orri Steinn kominn á blað í dönsku úrvalsdeildinni
Framherjinn Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrra mark FC Kaupmannahafnar í 2-0 útisigri á Hvidovre í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. FCK er því áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Alfreð farinn til Eupen í Belgíu
Íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason er genginn í raðir belgíska félagsins KAS Eupen frá Íslendingaliði Lyngby í Danmörku.

Andri Lucas lánaður til Lyngby
Íslenski landsliðsframherjinn Andri Lucas Guðjohnsen er kominn í dönsku deildina og bætist því í hóp Íslendinganna hjá Lyngby.

Dönsku meistararnir í karlafótboltanum loksins að stofna kvennalið
FC Kaupmannahöfn hefur gert frábæra hluti í karlafótboltanum síðustu ár enda eitt allra sterkasta fótboltalið Norðurlanda.

„Það sem ég var að gera var að tala með hjartanu“
Knattspyrnumaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson segist lengi hafa fundið fyrir áhuga frá þýska liðinu Fortuna Düsseldorf en forráðamenn félagsins hafa fylgst með honum í nokkur ár.

Mikael Neville tryggði AGF stig með marki úr víti á 103. mínútu
Það var boðið upp á mikla dramatík í lokaleik dagsins í dönsku úrvalsdeildinni en það var Mikael Neville sem tryggði AGF stig gegn Silkeborg með marki þegar 102 mínútur voru komnar á leikklukkuna.

Kolbeinn sá rautt í 3-0 tapi Lyngby
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Lyngby áttu ekki góða ferð til Bröndby í dag en liðið tapaði 3-0 í 4. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar.

Kristall Máni opnaði markareikninginn í Íslendingaslag
Sønderjyske vann yfirburðasigur í Íslendingaslagnum í dönsku 1. deildinni í dag þegar liðið tók á móti Horsens. Lokatölur 5-0 þar sem Kristall Máni Ingason skoraði annað mark heimamanna.

Orri og félagar enn með fullt hús stiga á toppnum
Orri Steinn Óskarsson og félagar hans í FCK unnu virkilega sterkan 2-1 endurkomusigur er liðið tók á móti OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Ísak sagður á leið í þýsku B-deildina
Ísak Bergmann Jóhannesson mun að öllum líkindum yfirgefa danska stórveldið FCK í sumar.

Ísak Bergmann ekki í hóp hjá FCK
Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er ekki í leikmannahópi danska meistaraliðsins FCK sem mætir Sparta Prag í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á morgun.

Seldur fyrir metfé og brast í grát við kveðju Freys
Danski knattspyrnumaðurinn Lucas Hey gekk í raðir Nordsjælland frá Íslendingaliðinu Lyngby í dag en hann lék sinn síðasta leik fyrir Lyngby í 4-1 sigri á Midtjylland í gær.

Kolbeinn á skotskónum í óvæntum stórsigri Lyngby
Íslendingalið Lyngby vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið fékk Midtjylland í heimsókn.

Orri Steinn fékk tækifæri með FCK
Orri Steinn Óskarsson var verðlaunaður fyrir þrennuna gegn Blikum með byrjunarliðssæti hjá FCK gegn Randers í dönsku deildinni í dag.

Sjáðu þrennuna: Þjálfari Orra aldrei haft betri slúttara
Þó að Jacob Neestrup, FH-ingurinn fyrrverandi sem nú þjálfar FC Kaupmannahöfn, hafi verið afar gagnrýninn á sitt lið eftir leikinn við Breiðablik í gærkvöld þá hrósaði hann Orra Steini Óskarssyni í hástert.

„Myndi ekki óska mínum versta óvini þess“
Orri Steinn Óskarsson stal senunni með því að skora þrennu í sigri á liði pabba síns, þjálfarans Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þegar FC Kaupmannahöfn vann Breiðablik 6-3 í gærkvöld.

Lyngby kaupir efnilegan leikmann frá FH
Danska knattspyrnuliðið, Lyngby, hefur fengið til sín Þorra Stefán Þorbjarnarson frá FH. Þorri er hugsaður til langstíma og mun byrja hjá U19 ára liði Lyngby.

Sverrir Ingi stóð vaktina í hjarta varnarinnar í sigri
Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmiðvörður í fótbolta, karla hóf leikinn í miðri vörn Midtjylland þegar liðið sigraði Silkeborg, 2-0, á heimavelli sínum í annarri umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Alfreð Finnbogason skoraði og lagði upp fyrir Lyngby í jafntefli
Þrír íslenskir leikmenn byrjuðu fyrir Lyngby þegar liðið gerði jafntefli við Viborg 2-2 á útivelli í annarri umferð efstu deildar Danmerkur í dag. Alfreð Finnbogason skoraði annað mark liðsins en ásamt honum byrjuðu þeir Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson einnig leikinn. Þetta var fyrsta stigið sem Lyngby nær í þetta tímabilið.

FCK vill ekki valda börnum vonbrigðum: „Nei takk“
Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahafnar hafa sent frá sér tilkynningu þar sem óskað er eftir því að stuðningsmenn beri ekki skilti þar sem beðið er um treyjur leikmanna að leik loknum. Of mörg börn fari vonsvikin heim.

„Elska hann en við verðum óvinir í 90 mínútur, því miður“
Orri Steinn Óskarsson, framherji FC Kaupmannahafnar, segist ekki sérstaklega hrifinn af því að vera mótherji föður síns, Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara Breiðabliks. Hann vonast þó til að fá að spila í leiknum. Liðin tvö mætast í forkeppni Meistaradeildarinnar í Kópavogi í kvöld.

„Haf á milli okkar og við sjáumst alltof sjaldan“
Óskar Hrafn Þorvaldsson segir FC Kaupmannahöfn vera sterkasta andstæðing sem hann hefur mætt sem þjálfari Breiðabliks. Blikar þurfi að vera sjálfum sér trúir í einvíginu og megi ekki líta á verkefnið sem ákveðna biðstofu fyrir næsta einvígi sem þeir eiga bókað falli þeir úr keppni. Það sé þá sérkennilegt að mæta syni sínum, Orra Steini Óskarssyni, sem er leikmaður FCK.

FCK sé ekki spennt fyrir því að spila í Kópavogi
Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby í Danmörku, kveðst spenntur fyrir leik Blika við FC Kaupmannahöfn. Hann stýrði Lyngby gegn dönsku meisturunum um helgina og þekkir vel til liðsins.

Freyr: Ef Gylfi vill spila með Lyngby þá yrði það frábært
Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby, tjáði sig fyrir leik Lyngby og FC Kaupmannahafnar um orðróminn að Gylfi Þór Sigurðsson gæti verið á leið í Lyngby.

Mark Alfreðs dugði ekki gegn meisturunum en mörkin tvö hefðu gert það
Alfreð Finnbogason skoraði eina mark Lyngby í 1-2 tapi gegn Danmerkurmeisturum FCK í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Alfreð skoraði einnig mark sem var dæmt af vegna rangstöðu.

Sverrir Ingi byrjar á sigri í Danmörku
Midtjylland vann Hvidovre 1-0 í fyrsta leik tímabilsins í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Kristall semur við Sönderjyske til þriggja ára
Kristall Máni Ingason er genginn til liðs við danska félagið Sönderjysk frá Rosenborg í Noregi. Danska félagið staðfesti félagaskiptin á samfélagsmiðlum sínum nú fyrir skömmu.

Rúnar Alex og Hákon Rafn á blaði hjá Bröndby
Markverðirnir Rúnar Alex Rúnarsson og Hákon Rafn Valdimarsson eru á blaði hjá danska stórliðinu Bröndby. Félagið er í markmannsleit eftir að hafa selt Mads Hermansen til Leicester City í ensku B-deildinni.