Lögreglan
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 39 ›
Blaðamennska í ágjöf norðlensks réttarfars Enn hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra kallað fjóra blaðamenn til yfirheyrslu vegna tapaðs síma í eigu húskarls Samherja. Enn heyrist ekkert af yfirheyrslum yfir Samherjamönnum vegna meintar mútustarfssemi í þróunarlandi – örlítið stærra mál en tapaður sími. Skoðun 31.8.2022 13:01
Rannsóknin flókin og erfitt að gefa upplýsingar sem hægt sé að standa við á þessu stigi Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, segir að enn sem komið er sé aðeins gróf mynd komin á atburðarásina í skotárásinni á Blönduósi á sunnudag. Hún er sammála því að mikilvægt sé að lögregla upplýsi um gang rannsókna á sakamálum en segir að lögregla hafi einfaldlega ekki haft neinu nýju við að bæta síðustu daga. Innlent 26.8.2022 12:31
Handtekinn vegna gruns um líkamsárás Maður var handtekinn í nótt rétt eftir miðnætti, grunaður um líkamsárás. Að sögn lögreglu var hann mjög ölvaður og gisti í fangageymslu. Innlent 26.8.2022 06:28
Ósáttur að rannsóknin heyri undir annað embætti Birgir Jónasson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra segist ekki sammála því að rannsóknir mála, eins og þess voðaverks sem upp kom á Blönduósi á sunnudag, eigi að vera í höndum annars lögreglustjóra. Lögreglan á Norðurlandi eystra, sem fer með rannsókn málsins, hefur ekki veitt upplýsingar um framgang rannsóknarinnar til þessa. Innlent 24.8.2022 21:43
„Þegar svona stór áföll verða þá er miðlun upplýsinga afar mikilvæg“ Prófessor í afbrotafræði segir harmleikinn á Blönduósi um síðustu helgi með þeim stærri sem hefur orðið í samfélaginu síðustu áratugi. Afar mikilvægt sé að opinberir aðilar gefi greinargóðar upplýsingar þegar slíkir atburðir verði. Innlent 24.8.2022 13:10
Telur að stórefla þurfi öryggi vegfarenda í miðborginni Stórefla þarf öryggi gangandi vegfarenda við stóra viðburði eins og Menningarnótt í miðbænum að mati sérfræðings í öryggismálum. Tvö tilvik þar sem ofurölvi ökumenn óku inn í mannmergð þar sem götulokanir voru í gildi sýni nauðsyn þess. Innlent 23.8.2022 20:33
Þrjú ráðuneyti vinna að endurbótum í geðheilbrigðismálum Bæði aðstandendur hjónanna sem ráðist var á á Blönduósi um helgina og aðstandendur árársarmannsins báðu í dag um næði frá fjölmiðlum. Þrjú ráðuneyti vinna að endurbótum í geðheilbrigðismálum. Innlent 23.8.2022 18:49
Vill herða löggjöf um skotvopn og hefur áhyggjur af fjölgun hnífamála Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að herða skotvopnalöggjöf hér á landi. Hann hefur jafnframt áhyggjur af fjölgun mála þar sem hnífar eru notaðir. Verið er að skoða hvort endurskoða þurfi vopnaburð lögreglu. Innlent 23.8.2022 12:09
Í sárum eftir að hundurinn var aflífaður án nokkurs fyrirvara Hundur fjölskyldu á Siglufirði var aflífaður á föstudaginn, einum og hálfum tíma eftir að hann var tekinn af þeim. Hundurinn var ekki settur í geðmat líkt og Heilbrigðiseftirlitið fer fram á. Fjölskyldan segist ekki hafa fengið að vita að það ætti að aflífa hann fyrr aðgerðin var þegar hafin í öðru bæjarfélagi. Innlent 22.8.2022 17:14
Móðir Hrafnhildar Lilju fékk símtalið sem hún hafði beðið eftir í fjórtán ár Móðir Hrafnhildar Lilju, sem myrt var á ferðalagi í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum, segir að yfirlögregluþjónn hafi hringt símtalið sem hún hafi beðið eftir í fjórtán ár. Hún kveðst þakklát fyrir að lögregla hafi hlustað og segir stuðninginn ómetanlegan. Innlent 22.8.2022 13:38
Þegar embættismenn fara ekki að lögum Fyrir nokkru fékk ég inn á borð til mín mál einstaklings sem sviptur var ökuréttindum. Hann var tekinn fyrir ölvunarakstur árið 2018 en málinu lauk ekki fyrr en með sektargerð í janúar 2020 vegna tafa málsins í höndum lögreglu. Þegar kom svo að því að viðkomandi ætlaði að sækja um ökuréttindi að nýju er honum tjáð að hann þurfi fyrst að ljúka sérstöku námskeiði hjá Samgöngustofu. Þannig var mál með vexti að 1. janúar 2020 höfðu ný umferðarlög tekið gildi sem gerðu það að skilyrði fyrir því að fá að ökuprófið aftur að setið væri sérstakt námskeið hjá Samgöngustofu, en slíkt var ekki skilyrði eldri laga sem í gildi voru þegar viðkomandi brot átti sér stað. Skoðun 19.8.2022 17:02
Starfsmenn hins opinbera fá milljónir í vasann Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er sá starfsmaður fyrirtækja í eigu íslenska ríkisins eða borgarinnar sem var með hæstu tekjurnar árið 2021 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Hörður var með tæpar fjórar milljónir í mánaðarlaun. Innlent 18.8.2022 14:51
Ef íslenskur ríkisborgari er myrtur erlendis hefur utanríkisráðherra ekki pólitísk afskipti Ef íslenskur ríkisborgari er myrtur erlendis hefur utanríkisráðherra almennt ekki pólitísk afskipti af málinu. Þetta segir upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins sem segir ráðuneytinu ekki heimilt að hafa afskipti af lögreglurannsókn í öðrum löndum. Innlent 17.8.2022 12:17
Fengu ekki fullnægjandi svör á sínum tíma: „Við gerum aðra atlögu“ Lögreglan á Íslandi hefur ákveðið að gera aðra tilraun til þess að fá skýringar í máli Hrafnhildar Lilju Georgsdóttur sem myrt var í Dóminíska lýðveldinu fyrir fjórtán árum. Ríkislögreglustjóri segir að óskað verði eftir frekari gögnum og svörum sem ekki bárust á sínum tíma. Innlent 16.8.2022 18:30
Biðjast afsökunar á að hafa sigað lögreglu á hinsegin mótmælendur Stjórn Hinsegin daga hefur beðist afsökunar á því að hafa nafngreint Elínborgu Hörpu og Önundarburs við lögreglu fyrir Gleðigönguna árið 2019. Á leið sinni í gönguna var Elínborg handtekið. Innlent 11.8.2022 20:28
Umboðsmaður vill skýringar á barnabanni Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna ákvörðunar hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 11.8.2022 13:57
Tveir sérmerktir torfærubílar teknir í notkun hjá almannavörnum Almannavarnir hafa fest kaup á tveimur buggy-bílum sem verða notaðir við störf þeirra og lögreglunnar. Fyrst um sinn munu bílarnir vera notaðir af lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 6.8.2022 17:32
„Þetta hefur verið eitthvað flipp“ Myndband af lögreglumönnum á rafskútum hefur fengið mikla dreifingu á netinu í dag. Margir hefðu kannski haldið að um nýjan fararskjóta lögreglunnar sé að ræða en svo virðist ekki vera. Lífið 5.8.2022 16:31
Opið bréf til Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu Nýlega samþykktu borgaryfirvöld nýja Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar, sem lýsir framtíðinni innan borgarinnar og tekur til þau atriði og þær framkvæmdir sem borgaryfirvöld geta sett af stað til að hvetja fólk til að nota reiðhjól í ríkari mæli, sérstaklega til styttri ferða. Skoðun 27.7.2022 14:00
Lögreglu bárust tólf beiðnir um leit að börnum og ungmennum Samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní fjölgaði tilkynningum um þjófnað mikið á milli mánaða, eins fjölgaði tilkynningum um innbrot. Innlent 13.7.2022 10:09
Lögreglan er fyrir alla Ég tók við sem formaður stéttarfélags lögreglumanna fyrir um ári síðan og fljótlega fór ég að velta fyrir mér með hvaða hætti félagið gæti lagt sitt að mörkum til baráttu hinsegins fólks í samfélaginu. Innan lögreglunnar eins og annarstaðar starfar auðvitað fólk með mismunandi kynhneigðir og ég fór að hugsa um hvort að þessir félagar mínir ættu ekki rétt á, vildu og þyrftu á auknum stuðningi félags síns að halda. Skoðun 5.7.2022 13:01
Hulda Elsa og Ásgeir Þór skipuð aðstoðarlögreglustjórar Hulda Elsa Björgvinsdóttir hefur verið skipuð aðstoðarlögreglustjóri á ákærusviði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri á löggæslusviði sama embættis. Innlent 30.6.2022 18:20
Undirbúningur brottvísana til Grikklands hafinn Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra staðfestir í samtali við fréttastofu að undirbúningur brottvísana flóttafólks úr landi sé hafinn. Innlent 30.6.2022 14:42
Leggur fram frumvarp í haust um víðtækar rannsóknarheimildir lögreglu Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra mun í haust leggja fram frumvarp um víðtækar rannsóknarheimildir lögreglu. Lögregla mun meðal annars fá víðtækari heimildir til að afla upplýsinga til að meta ógn af hryðjuverkum og segir Jón þær verða í takt við það sem gengur og gerist í nágrannaríkjum Íslands. Innlent 29.6.2022 06:30
„Minna hik við að beita skotvopnum á almannafæri“ Sérsveit Ríkislögreglustjóra vopnaðist margfalt oftar á síðasta ári vegna skotvopna en fimm árum áður. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir minna hik við að beita skotvopnum á almannafæri en áður. Innlent 23.6.2022 20:31
Fjölgun á hegningarlagabrotum milli mánaða Í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að 716 hegningarlagabrot voru skráð í maí og fjölgaði þeim á milli mánaða. Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða en tilkynningum um innbrot fækkaði. Innlent 20.6.2022 17:40
Grímur verður lögreglustjóri á Suðurlandi Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, verður settur lögreglustjóri á Suðurlandi frá 1. júlí næstkomandi og út árið. Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri verður í leyfi á sama tíma en Grímur mun áfram starfa sem lögreglustjóri í Vestmannaeyjum á tímabilinu. Innlent 14.6.2022 06:36
Koma þurfi á virku eftirliti með lögreglu áður en hugmyndir um auknar heimildir hennar eru skoðaðar Þingmaður Pírata segir að það sé gömul saga og ný að lögreglan vilji auknar valdheimildir. Koma þurfi á virku eftirliti með störfum lögreglu áður en hugmyndir um lengri gæsluvarðhaldstíma séu skoðaðar. Innlent 10.6.2022 23:01
Fær 19 milljónir vegna ellefu mánaða gæsluvarðhalds að ósekju Íslenska ríkinu var í dag gert að greiða nígerískum karlmanni 19 milljónir króna í miskabætur vegna frelsissviptingar er hann sætti í ellefu mánuði í tengslum við rekstur sakamáls sem lauk með tveggja mánaða fangelsisdómi. Innlent 10.6.2022 16:17
Húmbúkk að lögreglan þurfi heimildir til að halda fólki lengur í gæsluvarðhaldi Hæstaréttarlögmaður segir það stórt skref afturábak ef menn ætla að taka undir orð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um þörf á auknum heimildum lögreglu til að halda fólki lengur en í tólf vikur í gæsluvarðhaldi. Lögmaðurinn segir Evrópuráðið og stofnanir þess hafa þrýst á íslensk stjórnvöld að herða skilyrði um gæsluvarðhald. Innlent 10.6.2022 13:01