Badminton

Vann Ólympíugull og fékk bónorð strax í kjölfarið
Huang Ya Qiong varð Ólympíumeistari í tvenndarleik í badminton á leikunum í París og einhverjir halda örugglega að dagurinn hennar hafi ekki getað orðið betri. Kærastinn hennar sá þó til þess að hann yrði miklu betri.

Sautján ára strákur lést eftir að hafa hnigið niður í miðjum leik
Badmintonsamband Asíu og kínverska utanríkisráðuneytið sendu bæði samúðarkveðjur vegna fráfalls kínversk tánings á Asíumóti unglinga í badminton í Indónesíu.

Jens fyllir í stóra skó Sigfúsar Ægis hjá TBR
Jens Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri TBR. Hann tekur við starfinu af Sigfúsi Ægi Árnasyni sem hefur gegnt starfinu í um 43 ár. Sigfús Ægir lætur af störfum fyrir aldurs sakir í haust.

Kári tók spaðann fram og vann tíunda titilinn
Kári Gunnarsson úr TBR og Gerda Voitechovskaja úr BH urðu um helgina Íslandsmeistarar í einliðaleik í badminton þegar Meistaramóti Íslands lauk í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.

Fylgdi hyggjuvitinu og kom í veg fyrir stórbruna
Fastagestur í húsakynnum TBR við Gnoðavog brást skjótt við þegar eldur kviknaði í gufuklefa hússins á þriðjudag. Telja má fullvíst að hann hafi forðað milljónatjóni og tryggt að badmintonkempur landsins geti stundað íþrótt sína sem fyrr. Líklega besta jólagjöf sem félagi gat fært klúbbi sínum.

Badmintongoðsögn hannar jólakort
Nýtt jólakort eftir Elsu Nielsen er komið í sölu hjá SOS Barnaþorpunum á Íslandi. Nýja kortið, Júlaknús, er það þriðja og síðasta í jólakortaseríu sem Elsa hannaði fyrir SOS og gaf samtökunum í þágu góðs málefnis. Elsa hannaði einnig jólakort SOS síðastliðinn tvö ár, Jólahjarta og Jólaskór, og seldust þau upp en eru nú fáanleg aftur.

Nýju indónísku Ólympíumeistararnir fá hverja ótrúlegu gjöfina á fætur annarri
Það er óhætt að segja að Indónesía sé stolt af fyrstu gullverðlaunahöfum sínum á Ólympíuleikunum í Tókýó.

Íslandsmeistari þrjátíu árum eftir fyrsta Íslandsmeistaratitilinn sinn
Júlíana Karitas Jóhannsdóttir og Daníel Jóhannesson urðu bæði Íslandsmeistarar í badminton í fyrsta sinn um helgina en einn af hinum Íslandsmeisturum helgarinnar varð sinn fyrsta titil löngu áður en þau Júlíana Karitas og Daníel fæddust.

Greindist með kórónuveiruna daginn fyrir úrslitaleik á EM: Keypti sér far með einkaflugvél heim
Daninn Viktor Axelsen, einn besti badminton spilari heims, lenti um helgina í einni af verstu mögulegu martröð afreksmannsins á tímum kórónuveirunnar. Hann greindist með kórónuveiruna daginn fyrir úrslitaleik á Evrópumótinu.

TBR opnar dyrnar með ströngum reglum
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur í Gnoðarvogi hefur opnað dyr sínar fyrir einliðaleik í fullorðinsflokki að ströngum skilyrðum. Til dæmis má aðeins nota tvo bolta í leik og eru iðkendur hvattir til að merkja bolta sína með lit.

Sautjánfaldur Íslandsmeistari í badminton ráðinn landsliðsþjálfari
Nýr landsliðsþjálfari Íslands í badminton þekkir það vel að spila fyrir Íslands sem og að verða Íslandsmeistari.

Kára bíður erfið ákvörðun ef ÓL verður frestað
Draumur Kára Gunnarssonar um að keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar er úti eftir að öllum mótum þar sem honum gafst kostur á að vinna sér inn stig á heimslista var frestað vegna kórónuveirunnar.

Eftir tveggja ára baráttu hafa allir ÓL möguleikarnir nú horfið vegna COVID-19
Ólympíudraumur íslenska badmintonspilarans Kára Gunnarssonar er svo gott sem dáinn svo framarlega sem að Ólympíuleikunum verði ekki frestað og enn á ný er hægt að kenna kórónuveirunni um.

Sigruðu Dani í undanúrslitum
Þeir Kári Gunnarsson og Davíð Bjarni Björnsson eru komnir í úrslit í tvíliðaleik karla í badminton á Reykjavíkurleikunum, RSL Iceland International. Sigruðu þeir par frá Danmörku í undanúrslitum.

Besti badminton spilari heims í bílslysi þar sem bílstjórinn lést
Kento Momota, sem sumir ganga svo langt að kalla langbesta badminton spilara heims, slapp lifandi úr hörðu bílslysi í Kuala Lumpur í Malasíu morgun.

Erla Björg og Drífa heimsmeistarar öldunga
Unnu úrslitaleikinn örugglega.

Ellefu tekjuhæstu íþróttakonur heims koma allar úr tennis
Serena Williams og Naomi Osaka voru langtekjuhæstu íþróttakonur heims á síðasta ári.

Rær öllum árum í átt til Tókýó
Kári Gunnarsson freistar þess að verða fyrsti íslenski badmintonspilarinn til þess að taka þátt í Ólympíuleikunum þegar leikarnir verða haldnir í Tókýó árið 2020 síðan Ragna Ingólfsdóttir gerði það árið 2012.