Erlent

Fréttamynd

"Í guðanna bænum Patrick"

Hann er líklega heimskasti eða óheppnasti þjófur á Írlandi, nema hvorttveggja sé. Í eitt skiptið flutti lögreglan hann á sjúkrahús eftir að hann rændi veðbanka, og hljóp fyrir vörubíl, á flóttanum.

Erlent
Fréttamynd

Abbas gefst upp á stjórnarmyndun með Hamas

Forseti Palestínu hefur tilkynnt konungi Jórdaníu að viðræðurnar við Hamas, um þjóðstjórn, hafi farið út um þúfur og hann munu nú leita annarra leiða til að mynda ríkisstjórn. Reuters fréttastofan hefur þetta eftir hátt settum palestinskum embættismanni.

Erlent
Fréttamynd

Evrópa laug um fangaflutninga og leynifangelsi

Evrópuríki lugu og reyndu að hindra rannsókn á leynifangelsum CIA fyrir meinta hryðjuverkamenn, að því er segir í frumskýrslu rannsóknarnefndar Evrópuþingsins um málið. Bæði ríkisstjórnir og nafngreindir, hátt settir embættismenn, fá harða gagnrýni í skýrslunni.

Erlent
Fréttamynd

NATO-ríki vilja ekki láta hermenn sína berjast

Nokkur evrópsk aðildarríki NATO hafa verið gagnrýnd fyrir að halda hermönnum sínum fjarri öllum bardögum í Afganistan. Breskir, kanadiskir og hollenskir hermenn hafa borið hitann og þungann af bardögum undanfarin misseri.

Erlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald enn framlengt í Danmörku

Gæsluvarðhald yfir fimm múslimum, sem voru handteknir í Danmörku í september síðastliðnum, hefur verið framlengt til nítjánda desember. Mennirnir eru sakaðir um að hafa safnað að sér sprengiefni til þess að vinna hryðjuverk í Danmörku.

Erlent
Fréttamynd

Franskir hermenn berjast í Mið-Afríku Lýðveldinu

Franskar hersveitir hafa aðstoðað stjórnarher Mið-Afríku Lýðveldisins við að endurheimta borgina Birao úr höndum skæruliða sem hertóku hana um síðustu mánaðamót. Stjórnarherinn er þegar búinn að ná flugvelli borgarinnar á sitt vald.

Erlent
Fréttamynd

Segjast til í viðræður

Norður-Kóreumenn segjast nú reiðubúnir til viðræðna um kjarnorkumál sökum þess að staða þeirra hefur vænkast verulega með tilraunasprengingum þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Páfi kominn til Tyrklands

Heimsókn Benedikts páfa sextánda til Tyrklands hófst í morgun en búist er við háværum mótmælum vegna hennar. Þetta er í fyrsta sinn sem Benedikt heimsækir ríki sem er að mestu byggt múslimum frá því að hann tók við páfadómi.

Erlent
Fréttamynd

Ekki hærri skatta, hikk

Tékkland hefur neitað að fallast á áætlun Evrópusambandsins um að hækka skatta á uppáhaldsdrykk landsmanna, bjórnum. Til þess að leggja áherslu á málstaðinn mættu fulltrúar Tékklands með tvo bjórkúta á fundinn þar sem þeir tilkynntu að þeir myndu beita neitunarvaldi.

Erlent
Fréttamynd

Í gæsluvarðhaldi vegna morðs á njósnara

Ítalinn Mario Scaramella, sem hitti rússneska njósnarann Alexander Litvinenko, daginn sem hann veiktist af geislaeitrun, er kominn til Lundúna og er undir vernd bresku lögreglunnar. Hann mun undirgangast rannsóknir til þess að kanna hvort hann hafi einnig orðið fyrir eitrun.

Erlent
Fréttamynd

Hvetur reiða þjóðina til þess að taka vel á móti páfa

Forsætisráðherra Tyrklands hefur hvatt þjóðina til þess að taka vel á móti Benedikt páfa sem kemur í opinbera heimsókn til landsins í dag. Margir Tyrkir eru páfa reiðir fyrir ummæli sem þeir túlka á þann veg að hann telji islam vera órökrétt og ofbeldisfulla trú.

Erlent
Fréttamynd

Ný útgáfa af Opera Mini kom út í dag

Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software gaf í dag út nýja útgáfu af Opera-vafranum, Opera Mini 3.0 fyrir farsíma. Með vafranum geta farsímanotendur meðal annars deilt með sér stafrænum ljósmyndum, bloggað og farið á netbanka. Vafrinn þykir afar hentugur fyrir einfaldari gerðir farsíma.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Styður lögreglustjórann þrátt fyrir ólgu

Borgarstjórinn í New York lýsti í gær yfir stuðningi við lögreglustjóra borgarinnar. Háværar kröfur hafa verið uppi um að lögreglustjórinn láti af embætti, eftir að óvopnaður blökkumaður var skotinn til bana, fyrir utan næturklúbb í borginni um helgina.

Erlent
Fréttamynd

NATO má ekki missa móðinn

Framkvæmdastjóri NATO segir að bandalaginu muni takast ætlunarverk sitt í Afganistan, og hvetur aðildarþjóðirnar til þess að missa ekki móðinn, þrátt fyrir aukin umsvif Talibana undanfarin misseri.

Erlent
Fréttamynd

Bush á leið á NATO-fund

George Bush, Bandaríkjaforseti, kom til Tallin höfuðborgar Eistlands í gær. Bush stoppar þar stutt því í dag heldur hann á tveggja daga fund Atlantshafsbandalagsins, sem haldin verður í Riga í Lettlandi.

Erlent
Fréttamynd

Ford í fjárhagskröggum

Stjórn bandaríska bílaframleiðandans Ford segir að fyrirtækið þurfi að taka allt að 18 milljarða dala lán til að standa straum af þeim kostnaði sem hagræðingarferli fyrirtækisins kostar. Þetta svarar til rúmlega 1.260 milljarða íslenskra króna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Al-Kæda reynir að sundra Írökum

Bandaríkjaforseti segir að átök sjía og súnní múslima í Írak, séu ekki borgarastríð, heldur liður í áætlunum al-Kæda um að nota ofbeldi til þess að egna fólk til átaka.

Erlent
Fréttamynd

Auðvelda vegabréfaáritun til BNA

George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lofað að gera íbúum Mið-Evrópu auðveldara að ferðast til Bandaríkjanna. Síðan hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin hefur sífellt verið að setja nýjar reglur um vegabréf, sem svo hefur verið frestað, þannig að fólk á orðið erfitt með að átta sig á hvort vegabréf þess dugi til að komast inn í landið.

Erlent
Fréttamynd

Guiliani vinsæll

Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgargarstjóri New York borgar og repúblikani, er vinsælasti stjórnmálamaðurinn meðal Bandaríkjamanna. Giuliani vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína eftir hryðjuverkaárásina á Bandaríkin þann 11. september 2001.

Erlent
Fréttamynd

Vill hjálpa fátækum og draga úr áhrifum Bandaríkjanna

Rafael Correa, 43 ára vinstrisinnaður hagfræðingur, sigraði með glæsibrag í forsetakosningunum í Ekvador á sunnudaginn. Þegar helmingur atkvæða hafði verið talinn í gær hafði Correa fengið tvisvar sinnum fleiri atkvæði en andstæðingur hans, auðjöfurinn Alvaro Noboa.

Erlent
Fréttamynd

Sakaður um miðlun vændis og ofbeldi

Harri Jaskari, framkvæmdastjóri Hægriflokksins í Finnlandi, getur átt margra ára fangelsisdóm yfir höfði sér ef hann verður fundinn sekur um að hafa miðlað vændi, haft í hótunum og beitt konur ofbeldi meðan hann var framkvæmdastjóri flokksins, að sögn finnlandssænska dagblaðsins Hufvudstadsbladet.

Erlent
Fréttamynd

Síminn var fullur af klámi

Kristinu Birkeland frá Björgvin í Noregi brá heldur betur í brún þegar hún komst að því að nýi farsíminn hennar var stútfullur af klámmyndum.

Erlent
Fréttamynd

Hætta á þrem borgarastríðum

Abdullah II Jórdaníukonungur sagði um helgina hættu á því að borgarastyrjaldir brjótist út í þremur ríkjum Mið-Austurlanda á næsta ári, og nefnir þar Írak, Líbanon og Palestínu.

Erlent
Fréttamynd

Töldu sig hafa ekið yfir dýr

Danska lögreglan hefur haft afskipti af minnst tólf bílstjórum, sem um síðustu helgi óku yfir lík manns sem látist hafði í bílslysi á þjóðveginum skammt fyrir utan Sønderborg á Jótlandi. Frá þessu var greint í danska blaðinu Politiken.

Erlent
Fréttamynd

Hundruð mótmæltu lögregluofbeldi

Lögregla í New York borg í Bandaríkjunum varð manni að bana og særði tvo í skothríð á laugardag. Hundruð manna komu saman á sunnudaginn til þess að mótmæla þessum verknaði lögreglunnar og kröfðust sumir þess að lögreglustjóri borgarinnar segði af sér.

Erlent
Fréttamynd

Fimm myrtir í veiðiferð

Fimm ungir veiðimenn, sem allir voru í sömu fjölskyldu, fundust myrtir í miðhluta Grikklands á laugardag. Mennirnir, sem voru á aldrinum 17 til 33 ára, voru saman í veiðiferð þegar harmleikurinn varð. Tveir þeirra voru bræður en hinir þrír voru frændur bræðranna.

Erlent
Fréttamynd

Ehud Olmert hvetur til friðar

Forsætisráðherra Ísraels lýsti því yfir í gær að Palestínumenn gætu myndað sjálfstætt ríki, komi þeir að samningaborðinu með Ísrael. Palestínumenn segja að um innantóm loforð sé að ræða.

Erlent
Fréttamynd

90 handteknir vegna mótmæla

Lögreglan í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar handtók 90 mótmælendur á unglingsaldri við samkomuhús trúfélagsins Faderhuset á sunnudag. Vildu ungmennin mótmæla fyrirhuguðum flutningi æskulýðsstarfs trúfélagsins í byggingu sem nú hýsir Ungdomshuset, samkomustað ungs fólks á Norðurbrú í Kaupmannahöfn.

Erlent
Fréttamynd

Öll rafmagnstæki sprungu

Íbúar þorpsins Tsarev Brod í Búlgaríu lentu í þeirri óþægilegu lífsreynslu um daginn að öll rafmagnstæki þeirra sprungu. Örbylgjuofnar, brauðristar, útvörp og sjónvörp sprungu öll í einu og skelkaðir íbúar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið.

Erlent