
Fylkir

„Verst bara að Gylfi sé ekki kominn“
Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, segir spennu á meðal leikmanna liðsins fyrir leik þess við Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Verst sé að Gylfi Þór Sigurðsson sé ekki á meðal andstæðinga kvöldsins.

„Auðvitað er áhugi á mér“
„Ég býst við erfiðum leik. Þeir hafa gefið Víking og Breiðablik hörku leik. Fyrstu sextíu mínúturnar voru þeir mjög flottir og voru nálægt því að gera jafntefli. Þeir eru með gæði innan síns liðs og eru þéttir til baka. Rúnar kann alveg að búa til lið,“ segir Adam Pálsson, sóknarmaður Vals, um leik liðsins gegn Fylki í Bestu deild karla í kvöld.

Dagskráin í dag: Mikilvægur leikur í Bestu deild karla
Valur tekur á móti nýliðum Fylkis í eina leik dagsins í Bestu deild karla. Umferðin klárast svo á fimmtudag og sunnudag. Valur er í öðru sæti á eftir Víkingum sem eru með níu stigum meira. Fylkir er í næst neðsta sæti. Leikurinn er því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið.

„Þú verður bara að fara með það á koddann“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum afar sáttur eftir öruggan 5-1 sigur hans liðs á Fylki í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Fylkismenn geti ekki hætt sér hátt og pressað: „Við skíttöpuðum þessu“
„Mér líður ekkert vel,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, eftir 5-1 tap liðs hans fyrir Breiðabliki í Bestu deild karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fylkir 5-1 | Blikar blésu til veislu
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu öruggan 5-1 sigur á nýliðum Fylkis í Bestu deild karla í knattspyrnu þrátt fyrir að brenna af vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

Sjáðu Ísak fara illa með FH-inga og öll hin mörkin frá því í gærkvöldi
Stjarnan og Víkingur fögnuðu bæði sigri í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og skoruðu samtals átta mörk í leikjum sínum.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Víkingur 1-3 | Þriðji sigur Víkings í röð
Topplið Víkings vann 1-3 útisigur á Fylki. Gestirnir komust yfir snemma í leiknum en það tók Fylki aðeins tvær mínútur að jafna. Víkingur komst síðan aftur yfir snemma í síðari hálfleik. Ari Sigurpálsson skoraði þriðja mark Víkings þegar heimamenn köstuðu öllu liðinu fram til að freista þess að jafna metin á 95. mínútu.

Grótta með tvo sigra og Vestri vann á heimavelli
Grótta vann sigra bæði í Lengjudeildum karla og kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þá lagði Vestri lið Leiknis í Lengjudeild karla.

Tvö jafntefli í Lengjudeild karla en markasúpa hjá konunum
Tveir leikir fóru fram í áttundu umferð Lengjudeildar karla og einn í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu. Fjölnir og Vestri skildu jöfn á Extra vellinum í Grafarvogi, 1-1. Njarðvík og Þór skildu einnig jöfn á Rafholtsvellinum í Njarðvík, 2-2. Kvennamegin fóru Fylkiskonur í heimsókn í Fjarðarbyggðarhöllina og unnu 4-2 sigur á FHL.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Fylkir 1-1 | Allt jafn í fallbaráttuslagnum
Keflavík og Fylkir mættust í fallbaráttuslag í 12. umferð Bestu-deildar karla í kvöld. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli sem gerir töluvert meira fyrir Fylki á meðan Keflavík er sem fyrr á botni deildarinnar.

Fjölnir á toppinn eftir sigur í Grindavík | Auðvelt hjá Fylki í Árbænum
Grindvíkingar töpuðu þremur dýrmætum stigum í toppbaráttu Lengjudeildarinnar í kvöld þegar Fjölnismenn komu í heimsókn á Stakkavíkurvöllinn. Með sigri hefði Grindavík jafnað Fjölni að stigum í 2. sæti.

Úrslitin í leik Fylkis og KR standa þrátt fyrir kæru KR-inga
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur úrskurðað að úrslit í leik KR og Fylkis í Lengjudeild kvenna skuli standa. KR hafði kært leikinn á þeim grundvelli að Fylkir hefði teflt fram ólöglegum leikmanni í leiknum en Árbæingar unnu einkar sannfærandi 6-0 sigur.

Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Þriðja sýning Vals og Davíð refsaði Blikum
Víkingar verða með fimm stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta næstu ellefu daga eftir öruggan sigur gegn Fram í gærkvöld. Öll mörkin úr 11. umferð má nú sjá hér á Vísi.

Umfjöllun: KA - Fylkir 2-1 | Heimamenn aftur á sigurbraut
KA tók á móti Fylki í leik þar sem að sæti í efri hlutanum var undir. Með sigri hefðu Fylkismenn getað komið sér í efri hluta Bestu deildarinnar, svo fór þó ekki og sigruðu KA 2-1.

Dramatískar lokamínútur er Víkingur tyllti sér aftur á toppinn
Dramatískt sigurmark undir lok leiks sá til þess að Víkingur Reykjavík endurheimti toppsætið í Lengjudeild kvenna í leik gegn Fylki í dag. Leikið var á Wurth-vellinum í Árbænum.

Sjáðu markaveislu Fylkis og KR í Árbænum og mörkin úr FH-sigri á Akureyri
Fylkir og KR buðu upp á sex marka leik í Lautinni í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og það er ekki hægt að segja annað en Vesturbæingar séu farnir að finna markið aftur.

Rúnar Páll: Fannst við rændir þessum sigri
Fylkir gerði 3-3 jafntefli í hádramatískum leik við KR fyrr í kvöld. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var mjög ósáttur í leikslok.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fylkir - KR 3-3 | Jafnt í markaleik í Árbænum
Fylkir og KR skildu jöfn þegar liðin mættust í Bestu deildinni í Árbænum í kvöld. Lokatölur 3-3 í markaleik og hvorugu liðinu tókst því að taka skrefið upp í efri hluta deildarinnar.

Umfjöllun viðtöl og myndir: Fylkir - ÍBV 2-1 | Fimmta tap Eyjamanna í röð
Eyjamenn máttu þola sitt fimmta deildartap í röð er liðið heimsótti Fylki í Bestu-deild karla í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-1 og Fylkismenn eru farnir að nálgast efri hluta deildarinnar.

„Við stýrðum þessum leik“
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar niðurlútur eftir 2-1 tap á móti Fylki í Árbænum í dag. Þetta er fimmta tap Eyjamanna í Bestu deildinni og virðist lítið ganga hjá Vestmanneyingum um þessar mundir.

HK tók mikilvæg stig gegn Fylki
HK vann sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Fylki í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í Kórnum í kvöld.

Rúnar Páll: Þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið
Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í Garðabænum í kvöld. Eftir að Fylkir hafði komist í 1-2 jöfnuðu Stjörnumenn með marki undir lokin. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var súr í leikslok.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-2 | Jafnt í endurkomu Rúnars Páls í Garðabæ
Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Emil Atlason jafnaði metin fyrir Stjörnuna í blálokin. Hans fyrsta mark í sumar eftir erfið meiðsli.

Sjáðu þrumu Örvars beint úr aukaspyrnu og öll hin mörkin úr Bestu í gær
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og lauk þar með sjöundu umferð deildarinnar. Hér má sjá mörkin úr leikjunum í gær.

„Gekk einfaldlega allt upp hjá okkur í dag“
Fylkir vann glæsilegan 3-1 sigur á Fram í Bestu deild karla. Fyrir leik voru fyrstu bikarhafar Fylkis heiðraðir og strákarnir náðu í þrjú stig fyrir þá hér í kvöld. Rúnar Páll Sigmundsson var að vonum ánægður með sigurinn og sagði að þetta hafi verið einn af þessum leikjum þar sem allt gekk upp.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir – Fram 3-1 | Heimamenn komu til baka og lyftu sér af botninum
Fylkir kom til baka gegn Fram í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir að lenda 0-1 undir. Sigur Fylkis þýðir að KR er komið á botn Bestu deildarinnar.

Sjáðu flautumark Víkinga og grátlega endinn fyrir Fylkismenn
Víkingar héldu sigurgöngu sinni áfram í Bestu deild karla í fótbolta í gær eftir dramatískan sigur í Vestmannaeyjum.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 1-2 | Meistararnir mörðu nýliðana
Íslandsmeistarar Breiðabliks þurftu að hafa fyrir hlutunum er liðið heimsótti nýliða Fylkis í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 2-1, Breiðablik í vil, og óhætt að tala um torsóttan sigur gestanna.

„Vorum mjög lélegir og ég get ekki glaðst yfir þessu“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var allt annað en sáttur við spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 2-1 sigur liðsins gegn Fylki í kvöld.