Fótbolti
183 184 185 186 187 188 189 190 191 … 334 ›
Uppgjör Stúkunnar: Leikmaður umferðarinnar í Fram og mark umferðarinnar kom í Garðabæ Áttunda umferð Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á sunnudag. Guðmundur Benediktsson gerði umferðina upp í Stúkunni að leikjum loknum. Farið var yfir lið umferðarinnar, leikmann og mark umferðarinnar. Íslenski boltinn 30.5.2022 17:00
De Bruyne urðar yfir Þjóðadeildina Kevin De Bruyne, miðvallarleikmaður Englandsmeistara Manchester City, er ekki beint aðdáandi Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 30.5.2022 15:31
Hörður um stöðu mála hjá FH: „Í einhverskonar tilvistarkreppu“ Hörður Magnússon, starfsmaður Viaplay og fyrrum leikmaður FH um árabil, segist ekki átta sig á hver stefna félagsins. Hann telur að „menn séu ekki alveg að dansa sama dans í Hafnafirðinum.“ Íslenski boltinn 30.5.2022 15:00
Hólmbert dettur út og Bjarki kemur í staðinn Framherjinn hávaxni Hólmbert Aron Friðjónsson hefur dregið sig úr landsliðshópnum í fótbolta fyrir leikina við Ísrael og Albaníu í Þjóðadeildinni. Fótbolti 30.5.2022 14:23
Freyr þakklátur að fara upp með Lyngby-fjölskyldunni Freyr Alexandersson stýrði Lyngby upp úr dönsku B-deildinni á sínu fyrsta tímabilið með liðið. Lyngby endaði á endanum í öðru sæti deildarinnar, aðeins stigi á eftir toppliði Horsens. Fótbolti 30.5.2022 14:00
Hörður Björgvin mögulega á leið aftur til Englands Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon gæti verið á leiðinni aftur til Englands eftir að hafa leikið með CSKA Moskvu frá árinu 2018. Tvö ár þar á undan lék hann með Bristol City í ensku B-deildinni. Enski boltinn 30.5.2022 11:00
Áfram skorar Ísak Snær, óvæntar hetjur og markasúpur í Safamýri og Kaplakrika Það fór heil umferð fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær, sunnudag. Hér að neðan má sjá öll mörk umferðarinnar en af nægu er að taka. Viktor Örlygur Andrason reyndist hetja Íslands- og bikarmeistara Víkings gegn KA á meðan Ísak Snær Þorvaldsson getur ekki hætt að skora. Íslenski boltinn 30.5.2022 09:31
Horfa til Katalóníu í leit að arftaka Mané Jürgen Klopp horfir til Katalóníu í leit að arftaka Sadio Mané sem virðist vera á leið frá Liverpool í sumar. Enski boltinn 30.5.2022 09:00
Tók við liðinu á botni B-deildar og skilaði því upp í deild þeirra bestu Nottingham Forest vann Huddersfield Town 1-0 í úrslitaleik umspils ensku B-deildarinnar og er þar með komið upp í ensku úrvalsdeildina eftir 23 ára bið. Það sem gerir afrek Forest enn merkilegra er að liðið var á botni B-deildarinnar þegar Steve Cooper tók við liðinu í september síðastliðnum. Enski boltinn 30.5.2022 08:31
Thibaut Courtois, Edwin van der Sar og Oliver Kahn Thibaut Courtois reyndist hetja Real Madríd er liðið vann sinn fjórtánda Evróputitil um helgina. Courtois lék óaðfinnanlega og var í kjölfarið kosinn maður leiksins af UEFA sem þýðir að hann er nú kominn á einkar fámennan lista. Fótbolti 30.5.2022 07:31
Matthías: Hefði klárlega átt að fá víti Matthías Vilhjámsson, fyrirliði FH, segir liðið vera stadda í brekku sem erfitt sé að vinna sig úr. Það hafi sýnt sig í kvöld að liðið skorti sjálfstraust. Fótbolti 29.5.2022 22:14
Kjartan Henry: Fannst ég skulda mörk Kjartan Henry Finnbogason lagði lóð sín á vogarskálina þegar KR lagði FH að velli í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fótbolti 29.5.2022 22:02
Ari Freyr lagði upp mark í jafntefli Ari Freyr Skúlason lagði upp fyrra mark Norrköping þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Elfsborg í sænsku efstu deildinni í fótbolta karla í dag. Fótbolti 29.5.2022 15:17
Mikil sveifla á tveimur vikum hjá Brann og Avaldsnes Brann kreisti fram 2-1 sigur með sigurmarki í uppbótartíma þegar liðið sótti Avaldsnes heim í 12. umferð norsku efstu deildarinnar í fótbolta kvenna í dag. Tvær vikur eru síðan Brann vann 10-0 stórsigur í deildarleik liðanna. Fótbolti 29.5.2022 14:59
Segir Mané hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Liverpool Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá því á twitter-síðu sinni í dag að senegalski fótboltamaðurinn Sadio Mané hafi ákveðið að yfirgefa herbúðir Liverpool í sumar. Sport 29.5.2022 14:34
Agla María missti af tveimur stigum í toppbaráttunni Agla María Albertsdóttir, landsliðskona í fótbolta, kom inná sem varamaður þegar lið hennar Häcken gerði markalaust jafntefli við Djurgärden þegar liðin mættust í sænsku efstu deildinni í dag. Fótbolti 29.5.2022 13:13
Marcelo kveður með viðeigandi hætti Brasilíski vinstri bakvörðurinn Marcelo sem leikið með nýkrýndum sigurvegurum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla, Real Madrid í 15 ár, mun róa á önnur mið í sumar. Fótbolti 29.5.2022 12:33
Óttar Magnús heldur áfram að skora Framherjinn Óttar Magnús Karlsson skoraði mark Oakland Roots þegar liðið gerði 1-1 jafntefli í leik sínum á móti Sacramento Republis í næstefstu deild bandarísku deildarkeppninnar í fótbolta í nótt. Fótbolti 29.5.2022 11:58
Sara Björk utan hóps í stórleiknum í kvöld Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður ekki í leikmannahópi Lyon þegar liðið mætir Paris Saint-Germain í toppslag í frönsku efstu deildinni í kvöld. Sport 29.5.2022 10:32
Klopp hvatti stuðningsmenn til að bóka hótel í Istanbúl Jürgen Klopp var upplitsdjarfur og spenntur fyrir framtíðinni þrátt fyrir svekkjandi tap Liverpool gegn Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla í gærkvöldi. Sport 29.5.2022 09:53
Arnór Ingvi spilaði klukkutíma þegar lið hans náði í öflugt stig Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 63 mínúturnar þegar lið hans, New England Revolution, gerði 1-1 jafntefli í leik sínum við Philadelphia Union í MLS-deildinni í fótbolta í nótt sem leið. Sport 29.5.2022 09:33
Real Madrid Evrópumeistari í fjórtánda sinn Real Madrid er Evópumeistari í fótbolta í fjórtánda sinn í sögunni eftir 1-0 sigur gegn Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildar Evópu í París í kvöld. Fótbolti 28.5.2022 18:15
KR og Þór/KA með stórsigra | Stjarnan marði FH Þremur leikjum af fimm í Mjólkurbikar kvenna í fótbolta er nú lokið. KR vann 6-0 stórsigur á Akranesi, Þór/KA vann 6-0 sigur á Haukum og Stjarnan vann nauman 1-0 útisigur á FH. Fótbolti 28.5.2022 16:30
Jafnt hjá Ingibjörgu og Selmu Sól Íslendingalið Vålerenga og Rosenborg gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í kvöld. Fótbolti 28.5.2022 16:00
Willum Þór á skotskónum og BATE enn ósigrað Frábært gengi BATE Borisov í hvít-rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta heldur áfram. Willum Þór Willumsson var á skotskónum er liðið vann þægilegan 3-0 sigur á botnliði Dynamo Brest. Fótbolti 28.5.2022 14:31
„Þá hefði ég sagt að þetta væri mesti fáviti sem ég hef kynnst“ Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum tími samherji goðsagnarinnar Thierry Henry hjá New York Red Bulls. Aðspurður á þeim tíma hefði Guðlaugur Victor sagt að Henry væri algjör fáviti. Skoðun hans hefur þó breyst með árunum. Fótbolti 28.5.2022 14:00
Roman þakkar fyrir sig: „Heiður að vera hluti af þessu félagi“ „Það eru næstum þrír mánuðir síðan ég tilkynnti áform mín um að selja Chelsea,“ segir í upphafi tilkynningar Roman Abramovich á vefsíðu Chelsea. Auðjöfurinn er að kveðja þar sem loks er búið að finna nýja eigendur. Enski boltinn 28.5.2022 13:31
Óskar Hrafn orðaður við þjálfarastöðu AGF Óskar Hrafn Þorvaldsson er meðal þeirra sem er orðaður við þjálfarastöðu Íslendingaliðs AGF í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 28.5.2022 12:46
Hófu magnaða endurkomu eftir að Gunnhildur Yrsa fór af velli Orlando Pride, lið landsliðskonunnar Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur, skoraði tvívegis þegar langt var komið fram yfir venjulegan leiktíma og bjargaði þar með stigi á heimavelli gegn Washington Spirit, lokatölur 2-2. Fótbolti 28.5.2022 12:00
Fæddist í flóttamannabúðum en leikur nú til úrslita í Meistaradeild Evrópu Eduardo Camavinga mun að öllum líkindum koma við sögu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þegar Real Madríd mætir Liverpool. Það er með hreinum ólíkindum ef horft er til þess að hann fæddist í flóttamannabúðum í Angóla síðla árs 2002. Fótbolti 28.5.2022 11:31