Fótbolti
278 279 280 281 282 283 284 285 286 … 334 ›
Aðeins Messi og Lewandowski komið að fleiri mörkum en Bruno Bruno Fernandes var enn og aftur á skotskónum í gærkvöldi er Manchester United vann 4-0 sigur á Real Sociedad í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Aðeins tveir leikmenn hafa komið að fleiri mörkum en hann undanfarna 13 mánuði. Fótbolti 19.2.2021 07:01
Jiménez farinn að æfa eftir höfuðkúpubrotið Raul Jiménez, mexíkóski framherji Wolverhampton Wanderers, er byrjaðu að æfa á nýjan leik eftir að hafa höfuðkúpubrotnað gegn Arsenal fyrr á leiktíðinni. Það er þó enn langt í að hann snúi aftur á knattspyrnuvöllinn. Enski boltinn 18.2.2021 23:00
„Ég vil bara halda áfram að þróa leik minn“ Bukayo Saka skoraði jöfnunarmark Arsenal í 1-1 jafntefli liðsins gegn Benfica í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Hann sagði í viðtali eftir leik að Arsenal hefði verið betri aðilinn og átt skilið að vinna. Fótbolti 18.2.2021 22:46
Jafnt hjá Arsenal í Róm | Molde kom til baka gegn Hoffenheim Arsenal náði 1-1 jafntefli í fyrri leik liðsins gegn Benfica í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Björn Bergmann Sigurðarson og félagar í Molde gerðu 3-3 jafntefli við Hoffenheim. Hér að neðan má sjá önnur úrslit kvöldsins. Fótbolti 18.2.2021 19:30
Stefán Teitur á skotskónum og Patrik Sigurður hélt hreinu Silkeborg vann öruggan 3-0 sigur á Kolding IF í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Miðjumaðurinn Stefán Teitur Þórðarson og Patrik Sigurður Gunnarsson leika með liðinu. Fótbolti 18.2.2021 21:30
Orri nýr formaður ÍTF þar sem Geir dró framboð sitt til baka Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, dró í kvöld framboð sitt til formanns Íslensks toppfótbolta, hagsmunasamtaka félaga í efstu deildum, til baka á aðalfundi samtakanna í dag. Íslenski boltinn 18.2.2021 21:15
„Markmiðið mitt er að vinna titla“ Bruno Fernandes skoraði tvívegis er Manchester United vann 4-0 sigur á Real Sociedad í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Hann segir að sitt eina markmið með félaginu sé að vinna titla. Fótbolti 18.2.2021 20:30
Þægilegt hjá Tottenham í Ungverjalandi | Úrslit kvöldsins Segja má að Tottenham Hotspur hafi aðeins þurft 35 mínútur af þeim 180 sem í boði voru til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Liðið var 3-0 yfir á þeim tímapunkti og vann leik kvöldsins sannfærandi 4-1. Fótbolti 18.2.2021 17:15
Man United í góðum málum eftir fyrri leikinn Lærisveinar Ole Gunnar Solskjær í Manchester United eru í góðum málum eftir fyrri leik liðsins gegn Real Sociedad í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Unnu þeir leikinn 4-0 og eru því í kjörstöðu fyrir síðari leik liðanna sem fram fer á Old Trafford eftir viku. Fótbolti 18.2.2021 17:15
Bjarni um nýja starfið: Verður aðalliðinu innan handar og lokar ekki á endurkomu til KR í framtíðinni Bjarni Guðjónsson, fyrrum landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu, hefur ákveðið að grípa tækifærið og taka við U19 ára liði Norrköping í Svíþjóð en Bjarni hefur undanfarin ár verið aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar hjá KR. Fótbolti 18.2.2021 18:16
Stuðningsmennirnir hótuðu öllum leikmönnum liðsins lífláti Það er ekkert grín að vera leikmaður Colo-Colo þessa dagana. Það gengur lítið inn á vellinum og utan hans þurfa leikmenn að þola morðhótanir frá stuðningsmönnum. Fótbolti 18.2.2021 11:01
Dætur tveggja forseta Bandaríkjanna fjárfesta í sama kvennafótboltaliði Bandaríska kvennaknattspyrnan hefur fengið góðan meðbyr að undanförnu og það er að færast í aukana að fræga og ríka fólkið fjárfesti í kvennafótboltaliðum í Bandaríkjunum. Fótbolti 18.2.2021 10:01
Setti svefntöflur í bjór Maradona á kvöldin og lét hann fá áfengi í morgunmat Þær eru ekki mjög fallegar sögurnar af því hvernig hugsað var um Diego Armando Maradona síðustu mánuðina í hans lífi. Fótbolti 18.2.2021 08:31
Önnur argentínsk goðsögn fallin frá Einungis þremur mánuðum eftir að Diego Armanda Maradona féll frá þá er önnur argentínsk goðsögn fallinn frá. Leopoldo Luque er látinn. Fótbolti 17.2.2021 18:17
Neville sleppti Bruno er hann fór yfir bestu kaup Man United Gary Neville, sparkspekingur Sky Sports, vann á sínum tíma fjölda titla með Manchester United. Hann var beðinn um að velja bestu kaup félagsins og hér að neðan má sjá bestu fimm kaupin að mati Neville. Enski boltinn 17.2.2021 07:00
„PSG heilsteyptara lið en við“ Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, var bugaður í viðtali eftir 1-4 tap sinna manna á heimavelli gegn Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 16.2.2021 22:46
Henderson varar við værukærð fyrir síðari leik Liverpool og Leipzig Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, var ánægður með 2-0 sigur Englandsmeistaranna á RB Leipzig í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann tók þó fram að einvígið væri aðeins hálfnað og Liverpool gæti ekki slakað á. Fótbolti 16.2.2021 22:21
Liverpool í frábærri stöðu þökk sé klaufalegum varnarleik Leipzig Liverpool vann 2-0 sigur á RB Leipzig í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Segja má að „heimamenn“ hafi gefið Liverpool forskotið og þurfa þeir að klífa dágóða brekku ætli þeir sér í 8-liða úrslit annað árið í röð. Fótbolti 16.2.2021 19:30
Alaba staðfestir að hann sé á förum David Alaba, varnarmaður heims-, Evrópu- og Þýskalandsmeistara Bayern München, staðfesti í dag það sem hefur verið vitað undanfarnar vikur. Að hann muni yfirgefa félagið í sumar er samningur hans rennur út. Fótbolti 16.2.2021 18:30
Buðu þeim hjálp sem óttast að koma út úr skápnum Danska knattspyrnustjarnan Pernille Harder og kærasta hennar, sænska landsliðskonan Magdalena Eriksson, nýttu Valentínusardaginn í að bjóða fram stuðning til þeirra sem eiga erfitt með að opinbera kynhneigð sína. Fótbolti 15.2.2021 16:31
Álitu sænskar leiklýsingar ólíklegar til vinsælda: Viaplay ýmist sögð ógn eða tímanna tákn „Við höfum ekki keypt sýningarréttinn á leikjum íslenska landsliðsins til að fela þá fyrir íslensku þjóðinni, það væri einfaldlega heimskulegt,“ segir forstöðumaður íþrótta hjá NENT Group. Hinn danski Peter Nørrelund segist ekki geta beðið eftir því að faraldurinn endi svo hann geti sótt frændþjóð sína heim og hafið ráðningar. Viðskipti innlent 15.2.2021 07:01
Nýtt leikkerfi og endurnærður Suárez ástæða fyrir góðu gengi Atlético Madrid La Liga, spænska úrvalsdeildin í knattspyrnu, er rúmlega hálfnuð og situr Atlético Madrid á toppi deildarinnar, nokkuð þægilega meira að segja. Það virðist mikið þurfa að gerast til að félagið verði ekki Spánarmeistari í sumar. Fótbolti 13.2.2021 08:01
Lars ekki enn gert skriflegan samning við KSÍ Lars Lagerbäck er ekki búinn að skrifa undir samning við Knattspyrnusamband Íslands þó svo það sé búið að staðfesta að hann komi inn í nýtt landsliðsteymi A-landsliðs karla sem tæknilegur ráðgjafi. Fótbolti 13.2.2021 07:00
Breiðablik byrjar á stórsigri á meðan Víkingur og KR gerðu jafntefli Lengjubikar karla fór af stað í kvöld þar sem tveir leikir í A-deild og tveir leikir í B-deild fóru fram. Breiðablik vann Leikni Reykjavík 4-0, Víkingur og KR gerðu 1-1 jafntefli, Þróttur Reykjavík vann 4-3 sigur á Fjölni og Afturelding lagði Víking Ólafsvík 3-0. Íslenski boltinn 12.2.2021 21:30
Manchester-liðin hafa sætaskipti eftir sigur City Manchester City tók á móti Manchester United í alvöru borgarslag í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á Englandi. Fór það svo að Man City vann öruggan 3-0 sigur eftir eitt mark í sitthvorum hálfleik í kvöld. Enski boltinn 12.2.2021 21:00
Einn eftirsóttasti varnarmaður Evrópu á leið til Bayern Heims- og Evrópumeistarar Bayern München hafa svo gott sem tryggt sér þjónustu miðvarðarðarins Dayot Upamecano á næstu leiktíð. Upamecano hefur verið orðaður við nær öll stórlið Evrópu undanfarna mánuði. Fótbolti 12.2.2021 19:45
Lykilmaður Leicester frá út tímabilið James Justin, hinn ungi vinstri bakvörður í Leicester City, verður frá út tímabilið eftir að hafa meiðst illa á hné gegn Brighton & Hove Albion er liðin mættust í 16-liða úrslitum FA-bikarsins í vikunni. Enski boltinn 12.2.2021 18:30
Aron Jóhannsson á leið til Póllands Sóknarmaðurinn Aron Jóhannsson er á leið til pólska úrvalsdeildarfélagsins Lech Poznan. Gaf félagið það út á samfélagsmiðlum sínum í dag þar sem má sjá Aron í læknisskoðun. Fótbolti 12.2.2021 18:00
Hlaðborð fyrir stórlið Evrópu ef Dortmund kemst ekki í Meistaradeild Evrópu Gengi Borussia Dortmund hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarið. Fari svo að liðið komist ekki í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð gæti það neyðst til að selja sína bestu leikmenn. Fótbolti 12.2.2021 07:01
Abraham hetja Chelsea gegn Barnsley Chelsea sló Barsnley út úr deildarbikarnum fyrr á leiktíðinni og endurtók leikinn í kvöld þökk sé sigurmarki Tammy Abraham í síðari hálfleik. Enski boltinn 11.2.2021 19:30