Mál Alexei Navalní
1 2 3 4 5 … 5 ›
Rétta yfir Navalní á bak við luktar dyr í fangelsi Lokuð réttarhöld yfir Alexei Navalní, einum helsta leiðtoga rússnesku stjórnarandstöðunnar, hófust í hámarksöryggisfangelsinu þar sem hann er fangi á mánudag. Navalní á áratugalanga fangelsisvist yfir höfði sér verði hann fundinn sekur. Erlent 21.6.2023 09:06
Fá ekki að mæta á verðlaunaafhendingu vegna ógnar við almenning Rússneskum fréttamanni og fjölskyldu hans hefur verið meina að mæta á afhendingarathöfn Bafta verðlaunanna. Lögregluyfirvöld í Bretlandi telja að almenningi myndi stafa ógn af mætingu hans þar sem hann er eftirlýstur af yfirvöldum í Rússlandi. Hann hefur unnið til verðlauna fyrir umfjöllun sína um Alexei Navalní. Erlent 19.2.2023 12:22
Stóreignir bendlaðar við Pútín virðast reknar í „samvinnufélagi“ Vísbendingar eru um að hallir, snekkjur og vínekrur sem bendlaðar hafa verið við Vladímír Pútín Rússlandsforseta tengist innbyrðis og að þær séu jafnvel reknar í einhvers konar óformlegu samvinnufélagi. Verðmæti eignanna er metið á meira en 590 milljarða íslenskra króna. Erlent 21.6.2022 11:23
Navalní skyndilega færður í annað hámarksöryggisfangelsi Rússnesk yfirvöld færðu Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, skyndilega úr fangelsinu þar sem hann hefur verið vistaður í hámarksöryggisfanganýlendu enn fjær Moskvu. Erlent 14.6.2022 22:23
Fangelsisvistin lengd um níu ár og Navalní færður í hámarksöryggisfangelsi Alexei Navalní, pólitískur andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi og verður færður í hámarksöryggisfangelsi. Hann var í morgun dæmdur sekur um stórfellt fjármálamisferli í tengslum við samtök hans gegn spillingu í Rússlandi sem yfirvöld hafa skilgreint sem öfgasamtök. Erlent 22.3.2022 13:10
Navalní fundinn sekur um fjármálamisferli Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní, einn helsti gagnrýnandi Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, var í morgun fundinn sekur um stórfellt fjármálamisferli. Erlent 22.3.2022 08:00
Úr leyniþjónustunni í forsetahöllina Á gamlársdag árið 1999, átta árum eftir fall Sovétríkjanna, tilkynnti þáverandi forseti rússneska sambandsríkisins, Boris Jeltsín, að hann hygðist skyndilega stíga til hliðar. Eftirmaður hans birtist í sjónvarpinu rétt fyrir miðnætti til að ávarpa þjóð sína en hann hafði fæstum verið kunnur þar til fimm mánuðum áður, í ágúst 1999, þegar hann hafði verið skipaður forsætisráðherra af Jeltsín. Erlent 16.3.2022 09:01
Navalní enn og aftur fyrir dómara Fangelsisvist Alexeis Navalní, eins helsta stjórnarandstæðings Rússlands, verður mögulega lengd um meira en tíu ár vegna nýrra réttarhalda sem hófust í dag. Hann er meðal annars sakaður um að hafa dregið sér fé úr samtökum sem hann stofnaði á árum áður en voru í fyrra skilgreind sem öfgasamtök af yfirvöldum í Rússlandi. Erlent 15.2.2022 11:09
Hæstiréttur Rússlands gerir elstu mannréttindasamtökunum að hætta starfsemi Hæstiréttur Rússlands hefur dæmt Memorial, elstu mannréttindasamtökum landsins, að hætta starfsemi sinni. Úrskurðurinn er sagður enn eitt skrefið í aðför Vladimírs Pútín Rússlandsforseta að hugsanafrelsi. Erlent 28.12.2021 11:50
Reiðir yfir því að fá ekki boð á lýðræðisfund Bidens Joe Biden mun í dag loka tveggja daga stafrænum lýðræðisfundi sínum með því að beina athygli að mikilvægi þess að standa í hárinu á harðræðisstjórnum og einræðisherrum og það að tryggja sjálfstæða fjölmiðla. Erlent 10.12.2021 13:01
Navalní hlýtur Sakharov-verðlaunin Rússneski andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag hin árlegu Sakharov-verðlaun Evrópuþingsins fyrir framlag sitt til umbóta í rússneskum stjórnmálum. Erlent 20.10.2021 15:21
Navalní fær stöðu hryðjuverkamanns Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi hafa nú skilgreint Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, sem öfga- og hryðjuverkamann. Dómstóll úrskurðaði samtök Navalní ólögleg öfgasamtök fyrr á þessu ári. Erlent 11.10.2021 11:22
Rússneskur ritstjóri sem flúði land eftirlýstur Yfirvöld í Rússlandi hafa lýst eftir þekktum rússneskum rannsóknarblaðamanni sem hefur tekið þátt í umfangsmiklum rannsóknum sem beinast gegn ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Roman Dobrokhotov, stofnandi og ritstjóri Insider, er eftirlýstur fyrir að hafa laumað sér yfir landamæri Rússlands og Úkraínu. Erlent 30.9.2021 17:01
Saka Navalní um að ætla sér ofbeldisfulla valdatöku Ráðamenn í Rússlandi hafa opnað enn eitt dómsmálið gegn stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní. Að þessu sinni er hann sakaður um að stofna öfgasamtök og gæti fangelsisdómur hans lengst um áratug. Erlent 28.9.2021 16:18
Navalní hvetur Rússa til að kjósa af kænsku Rússar ættu að kjósa af kænsku í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði til þess að losa tangarhald Sameinaðs Rússlands á rússneskum stjórnmálum. Þetta segir Alexei Navalní, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Erlent 19.8.2021 15:07
Frelsi talskonu Navalní skert í átján mánuði Rússneskur dómstóll dæmdi Kiru Jarmysh, talskonu Alexeis Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, til þess að sæta frelsisskerðingu í átján mánuði fyrir brot á sóttvarnareglum. Erlent 17.8.2021 14:34
Saka Navalní um að brjóta á réttindum fólks Rússnesk yfirvöld hafa lagt fram nýjar ákærur á hendur Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem allt að þriggja ára fangelsisdómur liggur við. Félagasamtök sem Navalní stofnuðu eiga að hafa „brotið á réttindum“ fólks, að sögn yfirvalda. Erlent 11.8.2021 15:53
Enn fleiri sjálfstæðum fjölmiðlum lokað í Rússlandi Tveimur rússneskum fjölmiðlum hefur verið lokað af yfirvöldum landsins. Þar er um að ræða fréttavefina Otrkytye Media og MBKh Media, auk þess sem hjálparsamtökunum Otkrytki hefur einnig verið lokað. Erlent 5.8.2021 10:36
Huga að því að refsa Rússum vegna Navalní Bandaríkjastjórn leggur nú drög að frekari refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna taugaeiturstilræðisins gegn Alexei Navalní, eins helsta leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu. Þetta segir þjóðaröryggisráðgjafi Joes Biden Bandaríkjaforseta innan við viku eftir leiðtogafund Biden og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Erlent 21.6.2021 08:27
Náinn bandamaður Navalní eftirlýstur Rússnesk yfirvöld lýsa nú eftir Ivan Zhdanov, nánum bandamanni Alexeis Navalní, í kjölfar þess að dómstóll úrskurðaði samtök Navalní gegn spillingu ólögleg öfgasamtök í vikunni. Zhdanov veitti sjóði Navalní foyrstu. Erlent 11.6.2021 13:05
Samtök Navalnís lýst ólögleg öfgasamtök Borgardómstóll í Moskvu féllst í dag á kröfu saksóknara um að lýsa samtök Alexeis Navalní, stjórnarandstöðuleiðtoga í Rússlandi, ólögleg öfgasamtök. Það hefur það í för með sér að meðlimir samtakanna mega ekki bjóða sig fram í þingkosningum í landinu í september. Erlent 9.6.2021 21:46
Samtök Navalní líklega bönnuð í dag Búist er við því að dómstóll í Moskvu fallist á kröfu saksóknara um að lýsa samtök Alexeis Navalní, stjórnarandstöðuleiðtoga, ólögleg öfgasamtök í dag. Félagar í samtökunum gætu átt yfir höfði sér fangelsisdóma auk þess sem þeim yrði bannað að bjóða sig fram í kosningum í haust með nýjum lögum. Erlent 9.6.2021 10:35
Enn einn stjórnarandstæðingurinn handtekinn í Rússlandi Rússnesk yfirvöld handtóku fyrrverandi forsvarsmann stjórnarandstöðuhóps sem olíufurstinn Mikhail Khodorkovsky stofnaði. Samtökin sögðust ætla að hætta starfsemi til þess að forða félögum frá því að vera handteknir í síðustu viku. Erlent 1.6.2021 10:21
Leggja fram frekari gögn til að banna samtök Navalní Saksóknari í Moskvu lagði fram mikið magn gagna til að styðja kröfu sína um að dómari banni starfsemi samtaka Alexeis Navalní gegn spillingu í dag. Ekki er ljóst á hvaða forsendu saksóknarinn byggir kröfuna um að samtökin verði lýst öfgahreyfing þar sem leynd liggur yfir þeim gögnum sem hann lagði upphafleg fram. Erlent 17.5.2021 10:52
Banna unglingsstúlku sem mótmælti Kreml að yfirgefa heimabæinn Dómstóll í Rússlandi bannaði nítján ára gamalli stúlku að yfirgefa heimabæ sinn í meira en tvö ár eftir að hún var sakfelld fyrir skemmdarverk. Stúlkan vakti mikla athygli þegar hún tók þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum árið 2019. Innlent 12.5.2021 09:42
Horaður Navalní lokar skrifstofum til að forða bandamönnum Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, var krúnurakaður og lítið meira en skinn og bein þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti frá því að hann var fangelsaður í dag. Á sama tíma tilkynnti náinn samverkamaður hans að skrifstofum samtaka hans víða um Rússland yrði lokað til að vernda félaga og bandamenn. Erlent 29.4.2021 18:18
Kreml vængstífir samtök Navalní Samtökum Alexeis Navalní gegn spillingu var bannað að koma upplýsingum á framfæri á netinu eða í gegnum fjölmiðla, skipuleggja viðburði, taka þátt í kosningum eða nota bankareikninga með úrskurði dómstóls í Moskvu í dag. Yfir samtökunum vofir einnig að vera lýst öfgasamtök. Erlent 27.4.2021 18:57
Kremlverjar láta loka skrifstofum samtaka Navalní Rússnesk yfirvöld létu loka skrifstofu samtaka Alexeis Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu á meðan beðið er úrskurðar dómstóls um hvort að samtökin verði skilgreind sem öfgasamtök og bönnuð í dag. Samtök Navalní berjast gegn spillingu í Rússlandi. Erlent 26.4.2021 14:04
Navalní hættur í hungurverkfalli að læknaráði Tuttugu og fjögurra daga löngu hungurverkfalli Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, er lokið. Navalní tilkynnti þetta í dag skömmu eftir að læknar vöruðu við því að hann gæti látið lífið héldi hann verkfallinu til streitu. Erlent 23.4.2021 14:36
Hvetja Navalní til að hætta hungurverkfallinu Læknar Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstæðingsins, hvetja hann til að hætta strax hungurverkfalli sínu í fangelsinu þar sem rússnesk yfirvöld halda honum. Þeir óttast að halda hann því áfram dragi það hann til dauða. Erlent 23.4.2021 07:43