Formúla 1
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 101 ›
Horner: Höfum ekki efni á að vera værukærir Yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðisins, Christian Horner segir að lið sitt sé ekki ósigrandi. Sebastian Vettel hefur unnið þrjú mót af fjórum á keppnistímabilinu og hann er efstur í stigamóti ökumanna og Red Bull í stigamóti bílasmiða. Formúla 1 9.5.2011 14:04
Mistök Hamilton reyndust dýrkeypt Lewis Hamilton er enn í öðru sæti í stigamótinu ökumanna, þó honm hafi gengið brösótt í fjórða móti ársins á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann var fjórði á ráslínu og lauk keppni í sama sæti, eftir eigin mistök og mistök McLaren í þjónustuhléi. Formúla 1 8.5.2011 19:27
Vettel: Höfum tekið framfaraskref og lært okkar lexíu Sebastian Vettel er kominn með 34 stiga forskot á Lewis Hamilton í stigamóti Formúlu 1 ökumanna, eftir þriðja sigurinn í fjórum mótum ársins. Hann vann öruggan sigur á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag á Red Bull. Formúla 1 8.5.2011 15:40
Öruggur sigur og örugg forysta hjá Vettel Heimsmeistarinn í formúlu eitt í fyrra, Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull, er hreinlega að stinga af í formúlunni en hann vann tyrkneska kappaksturinn örugglega í dag. Formúla 1 8.5.2011 13:38
Rosberg vill skáka Webber í rásmarkinu Nico Rosberg hjá Mercedes er þriðji á ráslínu í Formúlu 1 mótinu á Istanbúl brautinni í Tyrklandi í dag, á eftir Red Bull ökumönnunum Sebastian Vettel og Mark Webber. Hann vill komast framúr Webber strax eftir ræsingu mótsins, en bein útsending frá keppninni hefst kl. 11.30 á Stöð 2 Sport í dag. Formúla 1 8.5.2011 09:44
Vettel fremstur á ráslínu fjórða skipti í röð Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel sá við öllum keppinautum sínum í tímatökum á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann varð á undan Mark Webber liðsfélaga sínum hjá Red Bull, en Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji. Formúla 1 7.5.2011 12:55
Schumacher í hörkuslag við Vettel um besta tíma á lokaæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull rétt marði að vera á udan Michael Schumacher á Mercedes á lokæfingu keppnisliða á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi fyrir tímatökuna sem er kl. 10.45 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í dag. Formúla 1 7.5.2011 09:21
Button örlítið fljótari en Rosberg á æfingu - Vettel í vandræðum Jenson Button á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann varð á undan Nico Rosberg á Mercedes, en Lewis Hamilton á McLaren var með þriðja besta tíma og Michael Schumacher á Mercedes fjórði. Formúla 1 6.5.2011 12:47
Vettel: Það er enginn ósigrandi Sebastian Vettel, heimsmeistarinn og forystumaður stigamótsins í Formúlu 1 í ár segir Red Bull verði að læra af mistökum sem voru gerð í síðustu keppni í Kína. Lewis Hamilton vann mótið í Sjanghæ í Kína á dögunum, en Vettel hafði verið fremstur á ráslínu. Formúla 1 5.5.2011 17:28
Massa: Mikilvægt að taka framfaraskref Felipe Massa vonar að nýir fram og afturvængir sem Ferrari er mætt með á Formúlu 1 mótssvæðið í Tyrklandi muni bæta gengi liðsins, en Ferrari hefur ekki unnið mót á þessu ári. Mótið í Tyrklandi er það fjórða á keppnistímabilinu og er keppt á Istabúl Park brautinni, en Massa hefur þrívegis unnið mótið. Keppt hefur verið á brautinni í sex skipti. Formúla 1 5.5.2011 15:23
Hamilton mætir varfærinn til keppni Lewis Hamilton hjá McLaren keppir í Formúlu 1 í Tyrklandi um helgina, en hann vann síðustu keppni sem var í Kína, auk þess sem hann vann mótið í Tyrklandi í fyrra. Hamilton er í öðru sæti á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull í stigamóti ökumanna. Formúla 1 5.5.2011 14:38
Glock: Ein besta og erfiðasta brautin í Tyrklandi Virgin liðið í Bretlandi sem er að hluta til í eigu Marussia sportbílaframleiðandans í Rússlandi mætir með verulega endurbættan bíl hvað yfirbygginguna varðar fyrir Þjóðverjann Timo Glock í mótið í Tyrklandi um helgina. Belginn Jerome d'Ambrosio verður hinsvegar að bíða til mótsins á Spáni til að fá samskonar útfærslu af Virgin bílnum. Formúla 1 4.5.2011 14:07
Trulli vill komast skör ofar með Lotus Lotus Formúlu 1 liðið mætir til keppni í Tyrklandi um helgina, en fyrstu æfingar keppnisliða á Istanbúl Park brautinni eru á föstudaginn. Sama fyrirtæki, Lotus Enterprise og á Lotus liðið tilkynnti í síðustu viku að það hefði keypt Caterham Cars sportbílafyritækið breska, sem er sögufrægt merki. Formúla 1 4.5.2011 12:39
Fjárfestar skoða möguleika á að kaupa Formúlu 1 Fjárfestingafélagið EXOR og News Corporation fjölmiðlasamsteypan, sem er í eigu Rupert Murdoch staðfestu síðdegis í dag að verið er að frumkanna möguleg kaup á Formúlu 1. Fyrirtækin tvö sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þessa efnis, en autosport.com greindi frá þessu og í frétt á BBC Sport segir að fulltrúi fyritækjanna sé þegar búinn að ræða við eigendur Formúlu 1. Formúla 1 3.5.2011 23:06
Williams án stiga eftir þrjú fyrstu mótin Williams liðið hefur ekki byrjað Formúlu 1 tímabilið vel, en hvorki Rubens Barrichello frá Brasilíu né nýliðinn Pastor Maldonado frá Venusúela hafa fengið stig í keppni ökumanna í fyrstu þremur mótunum og þar af leiðandi Williams ekki heldur stig í stigakeppni bílasmiða. Formúla 1 3.5.2011 15:14
Jákvætt gengi hjá Force India Force India Formúlu 1 liðið, sem er í eigu Vijay Mallay frá Indland mun njóta þess heiðurs að keppa í fyrsta mótinu í Indlandi í lok október, en um næstu helgi mætir liðið með bíla sína til Tyrklands. Þjóðverjinn Adrian Sutil og nýliðinn skoski Paul di Resta munu þá takast á við Istanbúl Park brautina, eftir þriggja vikna hlé frá kappaksturskeppni. Formúla 1 3.5.2011 14:32
Liuzzi: Markmiðið að minnka bilið í forystubílanna Ítalinn Viantonio Liuzzi hjá Formúlu 1 liði Hispania segir að lið sitt gæti komið á óvart í kappakstrinum í Tyrklandi um næstu helgi, en þá keppir hann ásamt liðsfélaga sínum Narain Karthikeyan frá Indlandi á Istanbúl Park brautinni. Formúla 1 3.5.2011 13:35
Nýliðinn Perez vill ná í fyrstu stigin Sergio Perez frá Mexíkó, hjá Formúlu 1 liðii Sauber vill ná því markmiði að fá fyrstu stigin sín í stigakeppni ökumanna um næstu helgi. Þá keppir hann í Tyrklandi ásamt liðsfélaga sínum Kamui Kobayashi frá Japan á Istanbúl Park brautinni. Perez er á fyrsta ári sínu í Formúlu 1. Formúla 1 3.5.2011 13:17
FIA framlengdi frest Barein til 3. júní FIA, aþjóðabílasambandið tilkynnti í kvöld að bílasambandið í Barein og mósthaldarar á Barein brautinni fái frest til þriðja júní að sækja aftur um að halda Formúlu 1 mót í Barein á þessu ári. Fyrri frestur til til umsóknar rann út í gær, en mótið átti upphaflega að fara fram 15. mars. Því var frestað vegna pólitísks ástands í landinu. Formúla 1 2.5.2011 19:42
Enn óljóst hvort Formúlu 1 mót verður í Barein 2011 Frestur sem FIA, alþjóðabílasambandið gaf Formúlu 1 mótshöldurum í Barein til að sækja aftur um mót á þessu ári rann út í gær. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins átti upphaflega fara fram 15. mars í Barein. Vegna póltísks ástands í landinu var því frestað, en FIA gaf mótshöldurum færi á því til sunnudagsins 1. maí að sækja um að koma mótinu á síðar á árinu. Formúla 1 2.5.2011 15:19
Rosberg: Fyrstu þrjú mótin eins og rússibanareið tilfinninga Michael Schumacher og Nico Rosberg hjá Mercedes hafa ekki náð því flugi, sem Mercedes liðið vonaðist eftir. En þeir eru ekki meðal efstu manna í stigamóti ökumanna eftir þrjú fyrstu mótin. Mercedes bíllinn hefur ekki reynst eins öflugur og til stóð í upphafi, en virkaði þó betur í síðustu keppni, en í fyrstu tveimur mótum ársins. Mercedes keppir í Tyrklandi um næstu helgi. Formúla 1 2.5.2011 14:44
Whimarsh telur að framþróun McLaren geti fært liðinu titilinn Martin Whitmarsh hjá McLaren telur að framþróun McLaren á keppnisbíl þeirra Lewis Hamilton og Jenson Button geti fært liðinu meistaratitilinn í Formúlu 1. Hamilton vann síðustu keppni, sem var í Kína og McLaren keppir í Tyrklandi um aðra helgi. Formúla 1 29.4.2011 16:23
Meistaranum Vettel hlakkar til næsta móts eftir páskaeggjaát Forystumaður stigamótins í Formúlu 1, Sebastian Vettel nýtti páskafríið vel og hitti vini sína og gæddi sér á nokkrum páskaeggjum eins og hann orðaði það í fréttatilkynningu frá Red Bull. Vettel og Mark Webber, liðsfélagi hans hjá Red Bull keppa næst í Tyrklandi um aðra helgi og kunna báðir vel við mótssvæðið. Formúla 1 29.4.2011 15:52
Hamilton og Button telja áhugavert mót framundan í Tyrklandi Næsta Formúlu 1 mót er um aðra helgi í Tyrklandi og sigurvegari þess móts í fyrra var Lewis Hamilton hjá McLaren. Hann vann einnig síðustu keppni þessa árs, sem var í Kína. Formúla 1 29.4.2011 14:31
Eigendur Formúlu 1 liðs Lotus keyptu sportbílaframleiðanda Team Lotus Enterprise, sem á Formúlu 1 liðið Lotus tilkynnti í morgun að fyrirtækið hafi keypt breska sportbílaframleiðandann Caterham Cars. Eigendur Team Lotus Enterprise eru Tony Fernandes, Kamarudin Maranun og SM Nasarudin, en Formúlu 1 lið Lotus hefur keppt í Formúlu 1 frá því í fyrra. Formúla 1 27.4.2011 12:39
Endurskipulag bætti gengi Mercedes Nobert Haug, einn af yfirmönnum Mercedes Formúlu 1 liðsins segir að fundur um skipulag á mótshelgum hafi breytt gangi mála í Kína á dögunum, en liðsmenn voru ekki sáttir við árangurinn í fyrstu tveimur mótum ársins. Formúla 1 26.4.2011 15:14
Haug hjá Mercedes hrifinn af frammistöðu nýliðans Paul di Resta Þjóðverjinn Nobert Haug, sem er yfirmaður hjá Mercedes Benz í akstursíþróttageiranum telur að frammistaða Skotans Paul di Resta í Formúlu 1 sé framúrskarandi. Di Resta ekur með Force India sem notar Mercedes vélar og hann varð meistari með Mercedes í DTM mótaröðinni í fyrra, sem er fer að mestu fram í Þýskalandi. Formúla 1 20.4.2011 16:56
Keppnisáætlanir mikilvægar í mótum ársins Yfirmenn McLaren og Red Bull sem áttust við um fyrsta sætið í Formúlu 1 mótinu í Sjanghæ á sunnudaginn telja að keppnisáætlanir liða verði mikilvægar í mótum ársins. McLaren sá við Red Bull í Sjanghæ á betur útfærðri keppnisáætlun. Formúla 1 19.4.2011 13:09
Enginn uppgjöf hjá Webber Óhætt er að segja að Mark Webber hafi sýnt framúrskarandi hæfileika í Formúlu 1 mótinu í Sjanghæ í gær. Hann var átjándi á ráslínu, en vann sig upp í þriðja sæti, á eftir þeim Lewis Hamilton og Sebastian Vettel. Formúla 1 18.4.2011 14:42
Vettel: Reyndi að verjast Hamilton af bestu getu Sebastian Vettel hjá Red Bull er efstur í stigamótinu í Formúlu 1, en hann varð annar á eftir Lewis Hamilton á Sjanghæ brautinni í gær. Hann var fremstur á ráslínu, en komst ekki hratt af stað í rásmarkinu og missti Jenson Button og Lewis Hamilton framúr sér. Formúla 1 18.4.2011 13:46