Fasteignamarkaður
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 29 ›
Reykjavík fari að fordæmi Helsinki í húsnæðismálum Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands segir að borgarstjórn ætti að fara að fordæmi borgaryfirvalda í Helsinki og bæði fjölga félagslegum íbúðum og víkka út skilyrðin þannig að fleiri tekjuhópar geti nýtt sér úrræðið í ljósi hækkandi fasteignaverðs. Hlutfall félagslegs húsnæðis í Helsinki er um 19 til 25 prósent á meðan það er um 5 prósent í Reykjavík. Innlent 23.6.2022 13:19
Björgvin Páll selur húsið sitt með gufu á pallinum Handboltamaðurinn Björgvin Páll Gústavsson hefur sett fallega parhúsið sitt og fjölskyldu sinnar á sölu. Húsið er staðsett í póstnúmerinu 108 og er með glæsilegu útsýni yfir Esjuna frá svefnherberginu. Lífið 21.6.2022 14:03
Árshækkun íbúðaverðs 24 prósent og ekki hærri síðan 2006 Samkvæmt nýbirtum upplýsingum frá Þjóðskrá hækkaði íbúðaverð um þrjú prósent í maí á milli mánaða. Það er sem af er ári hefur íbúðaverð hækkað um þrettán prósent og 24 prósent á síðustu tólf mánuðum. Viðskipti innlent 21.6.2022 13:36
Það þarf meira en aðgerðir Seðlabankans Ársverðbólga í dag (7,6%) er að langmestu leyti drifin áfram af fasteignamarkaðinum: ríflega þrjú prósentustig af 7,6% ársverðbólgu eiga sér rætur í fasteignamarkaðinum á meðan t.d. innfluttar vörur eru ábyrgar fyrir minna en tveimur prósentustigum af 7,6% ársverðbólgunni. Skoðun 19.6.2022 10:31
Takk Seðlabankastjóri Þau stórmerkilegu tíðindi gerðust í gær að í fyrsta skipti kom fram seðlabankastjóri sem hafði kjark og þor til að benda á það augljósa að verðtryggð húsnæðislán séu í raun stórhættuleg og kalli fram mikla áhættusækni hjá neytendum. Skoðun 16.6.2022 12:00
Margir komist ekki inn á markaðinn eftir inngrip Seðlabankans Varaformaður Félags fasteignasala telur að ákvörðun Seðlabankans um að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur geti leitt til þess að margir komist ekki inn á fasteignamarkaðinn. Viðskipti innlent 15.6.2022 20:02
Milljónir tapist vegna hvatakerfis fasteignasala Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í hagfræði, hefur undanfarnar vikur vakið máls á slæmri stöðu á fasteignamarkaði og gagnrýnt feitar söluþóknanir fasteignasala. Í skoðanagrein sem Haukur birti á Vísi í dag bendir hann á að hvatakerfi fasteignasala sé þannig uppbyggt að betra sé fyrir fasteignasala að selja eignir hratt á lágu verði fremur en að bíða lengur og fá betra verð. Innlent 15.6.2022 19:25
„Verið að segja við almenning, þetta er hættulegt fyrir ykkur“ Seðlabankinn vill að lánastofnanir gefi skýrari upplýsingar um greiðslubyrði fasteignalána og hefur í fyrsta skipti gefið út viðmið við útreikning þeirra. Seðlabankastjóri segir þetta gert svo fólk taki ekki verðtryggð lán á röngum forsendum. Fyrstu kaupendur þurfa að leggja meira út en áður. Innlent 15.6.2022 19:01
Segir leiguverð ekki þurfa að fylgja hækkandi fasteignaverði Leiguverð hefur ekki mælst lægra að raunvirði síðan 2017. Hagfræðingur hjá Húsnæðis-og mannvirkjastofnun segir leiguverð ekki alltaf þurfa að fylgja fasteignaverði. Kostnaður við að eiga og reka íbúð hafi ekki hækkað mikið Viðskipti innlent 15.6.2022 14:21
Óttast endurkomu verðtryggðra lána Fyrstu kaupendur munu þurfa að leggja út 15 prósent af kaupverði fasteignar í stað 10 prósent, samkvæmt tilmælum Seðlabanka Íslands sem kynnt voru í morgun. Bankinn hefur áhyggjur af óhóflegri skuldsetningu en með aðgerðunum vill seðlabankastjóri fyrst og fremst hemja endurkomu verðtryggingarinnar. Viðskipti innlent 15.6.2022 12:07
Saga af íbúð sem notuð er til okurs Hér verður sögð saga af íbúð sem er notuð til kúgunar og okurs undir sérstakri vernd stjórnvalda. Íslensk stjórnvöld hafa kosið að taka ætíð stöðu með okrurum og bröskurum og aldrei með leigjendum. Skoðun 15.6.2022 10:41
Lækka hámarkshlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur Gæta þarf þess að vaxandi efnahagsumsvifum fylgi ekki yfirdrifin áhættusækni og óhóflegur vöxtur útlána sem gæti veikt viðnámsþrótt fjármálakerfisins. Verði bakslag í alþjóðlegum efnahagsbata gæti það haft áhrif á fjármálastöðugleika hér á landi. Bankinn hefur ákveðið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90 prósent í 85 prósent. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:37
Leiguverð sem hlutfall af launum ekki mælst lægra síðan 2013 Umsvif á fasteignamarkaði halda áfram að dragast saman og framboð af íbúðum til sölu er farið að aukast á nýjan leik eftir verulegan samdrátt allt frá því í maí 2020. Hátt hlutfall íbúða sem seldist á yfirverði í apríl og stuttur sölutími er hins vegar vísbending um að eftirspurnarþrýstingur hafi þó enn verið mikill í mánuðinum. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:15
Illa verðlagðar fasteignir – Hærra verð með því að selja sjálfur Rannsakendur við Stanford háskóla ráku sig á áhugaverða staðreynd sem varð til þess að nánast engir seljendur nota fasteignasala til að selja eignir sínar þar lengur: Fólk sem notaði fasteignasala til þess að selja eignir sínar á háskólasvæðinu fékk að meðaltali 5,9% til 7,7% lægra verð fyrir þær[1]! Skoðun 15.6.2022 07:31
Spá því að verðbólga fari úr 7,6 í 8,4 prósent Greining Íslandsbanka spáir 8,4% verðbólgu í júnímánuði en tólf mánaða verðbólga mældist 7,6% í maí og hefur ekki mælst svo mikil frá því í mars 2010. Gangi spá bankans eftir væri um að ræða 1,0% hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrri mánuði. Viðskipti innlent 13.6.2022 14:35
Gerður í Blush selur glæsivilluna í Kópavogi og flytur í Hveragerði „Við erum að byrja að byggja draumhúsið okkar í Hveragerði og við hlökkum mikið til að flytja,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir í samtali við Vísi. Lífið 10.6.2022 12:29
Sjóðirnir nálgast bankanna í umsvifum í óverðtryggðum íbúðalánum Ný óverðtryggð lán lífeyrissjóðanna til heimila nema samanlagt rúmlega 25,3 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. Það er einum milljarði króna meira en slíkar lánveitingar sjóðanna voru á öllu árinu 2021. Innherji 8.6.2022 11:01
Iðnmenntun og fasteignaskattar Á fimmtudag var tíunda þing Samiðnar sett, en Samiðn er eitt af aðildarsamtökum ASÍ og vettvangur fagfólks í ýmsum iðngreinum. Mér hlaust sá heiður að ávarpa setninguna og lagði út frá nauðsyn þess að skólakerfið okkar gæti sinnt þeim fjölmörgu sem hafa áhuga á iðn- og tæknimenntun á öllum aldri. Skoðun 3.6.2022 12:01
Heppilegra að rjúfa það beina samhengi sem nú er á milli fasteignaverðs og skattlagningar Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir engin rök fyrir hækkun fasteignaskatta. Fjármálaráðherra telur núverandi fyrirkomulag innheimtu fasteignagjalda meingallað. Innlent 2.6.2022 18:31
Segir fyrirkomulag fasteignagjalda meingallað Fjármálaráðherra segir núverandi fyrirkomulag á innheimtu fasteignagjalda vera meingallað. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að stíga þurfi inn í þróunina og koma í veg fyrir hækkandi álögur. Innlent 2.6.2022 12:03
Fasteignaskattur hækkar úr öllu hófi Ráðast þarf í breytingar á þeirri lagaumgjörð sem gildir um fasteignaskatt. Fyrsti liðurinn væri að afnema þá heimild sem sveitarstjórnir hafa til 25 prósent hækkunar á skattstofni fyrir atvinnuhúsnæði og að innleiða varúðarreglur að norrænni fyrirmynd sem kæmu í veg fyrir stórfelldar hækkanir á fasteignaskatti. Umræðan 2.6.2022 09:00
Minnir á að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða eru lægst í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, starfandi borgarstjóri, segir að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða í Reykjavík séu þau lægstu á Íslandi. Álagning skatta verður ekki ákveðin fyrr en í haust við gerð fjárhagsáætlunar og því ekki ákveðin við myndun meirihluta í borginni. Innlent 1.6.2022 12:19
Ekki eðlilegt að nýr sólpallur hækki skatt á nágrannann Sveitarstjóri Ölfuss segir fasteignagjöld ósanngjarnan skatt í eðli sínu og telur að skoða þurfi tekjumódel sveitarfélaga. Lækka þurfi skatta á heimilin í landinu. Innlent 1.6.2022 11:43
Vinnur fasteignasalinn þinn fyrir þig? Í fasteignaviðskiptum takast á þrjú ólík hagsmuna sjónarmið: Hagsmunir kaupanda, hagsmunir seljanda og hagsmunir fasteignasala. Hagsmunir seljanda og kaupanda skarast eðlilega þar sem þeir sitja sitthvoru megin við samningaborðið. En hvar liggja hagsmunir fasteignasala? Skoðun 1.6.2022 10:30
Hyggjast mörg hver lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla mörg hver að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta til að bregðast við hækkun fasteignamatsins sem kynnt var í gær en gjöldin hafa aldrei áður hækkað jafn mikið í einu skrefi frá bankahruninu 2008. Innlent 1.6.2022 07:15
Hækkunin er sú mesta frá hruni Á einu ári hefur fasteignamat húsnæðis hækkað um nærri tuttugu prósent. Hækkunin er sú mesta frá hruni. Forseti ASÍ segir á ábyrgð sveitarfélaga að hækkun fasteignamats verði ekki til að rýra kjör almennings. Innlent 31.5.2022 17:47
Fasteignamat tekur mikið stökk á milli ára Þjóðskrá hefur gefið út fasteignamat fyrir árið 2023. Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9 prósent á milli ára, sem er umtalsvert meiri hækkun á milli ára en undanfarin ár. Innlent 31.5.2022 13:33
Mikill vöxtur í fyrirtækjalánum utan hins hefðbundna bankakerfis Stöðugur vöxtur er í lánum fagfjárfestasjóða til fyrirtækja á sama tíma og bankakerfið hefur einnig tekið við sér í að stórauka á ný lán til atvinnulífsins. Frá því í ársbyrjun 2021 hafa heildarútlán slíkra sjóða, sem eru einkum fjármagnaðir af lífeyrissjóðum, til atvinnufyrirtækja aukist um 60 prósent og námu þau 155 milljörðum í lok apríl. Innherji 31.5.2022 08:58
Mesta hækkun á leiguverði í tæp tvö ár Hækkun á leiguverði á höfuðborgarsvæðinu milli mánaða mældist 2,1 prósent í apríl og er um að ræða mesta hækkunin síðan í júní 2020. Viðskipti innlent 30.5.2022 14:33
Hvað kostar að selja fasteign? Það er fagnaðarefni þegar bent er á hluti sem eru óhagstæðir neytendum og á það ekki síst við um samsetningu og fjárhæð þóknunar fasteignasala nú þegar hækkanir á fasteignaverði slá met í hverjum mánuði. Skoðun 24.5.2022 10:00